Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Qupperneq 11
Fréttir 11Mánudagur 22. júlí 2013
H
valaskoðunarfyrirtækið
Gentle Giants fer á svig við
reglur Samgöngustofu um
farþegafjölda í svokölluð-
um RIB-bátum sem siglt er
frá Húsavík. Samkvæmt öryggiskröf-
um siglingasviðs Samgöngustofu,
sem áður heyrði undir Siglingastofn-
un, mega aðeins 12 farþegar vera um
borð á RIB-bátum og að sögn upp-
lýsingafulltrúa sviðsins eru engar
undanþágur veittar. DV hefur hins
vegar undir höndum mynd af þess
konar báti mönnuðum 17 farþegum
og að sögn íbúa á Húsavík siglir fyrir-
tækið oft með enn fleiri. Stefán Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Gentle
Giants, vísar þessu alfarið á bug og
segir að fyrir tækið virði gildandi regl-
ur um farþegafjölda, jafnvel þótt
reglurnar séu að hans mati fráleitar.
Báðu um undanþágu
„Við höfum haldið okkur við 12 far-
þegana meðan málið er í vinnslu.
Við höfum beðið ráðuneytið og Sigl-
ingastofnun um að fá að sigla með
fleiri meðan málið er í vinnslu, en
því hefur verið hafnað af óskiljanleg-
um ástæðum,“ segir Stefán og bætir
því við að einhugur sé um að bátarn-
ir séu betur búnir en þeir voru þegar
reglurnar um farþegafjöldann voru
settar fyrir sjö árum síðan. „Allir sem
vinna í þessu umhverfi eru hneyksl-
aðir á þessum reglum sem stofnunin
ætlar að halda sig við.“
Stefán hefur oftar en einu sinni
komið fram í fjölmiðlum og gagn-
rýnt öryggiskröfur Siglingastofnun-
ar. „Stofnunin virðist misskilja hlut-
verk sitt fullkomlega og telur sig eiga
að vera í því hlutverki að leggja steina
í götu okkar í stað þjónustu og sam-
vinnu í þróun regluverks á nýjung-
um,“ sagði hann í samtali við mbl.is
í maí. Þá höfðu hann og fleiri fyrir-
tæki sem gera út sams konar báta
kært ákvörðun Siglingastofnunar um
auknar öryggiskröfur til innanríkis-
ráðuneytisins. Skömmu síðar stað-
festi ráðuneytið ákvörðun Siglinga-
stofnunar og í kjölfarið lýsti Stefán
því yfir í viðtali við vísi.is að ef þetta
yrði endanleg niðurstaða væri sjálf-
hætt fyrir Gentle Giants.
„Fyrir neðan beltisstað“
Stefán telur að ásakanir um brot á
reglum Siglingastofnunar séu runn-
ar undan rifjum samkeppnisaðila og
eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum.
„Þetta eru bara vinnubrögð minna
ástkæru keppinauta hér á staðn-
um. Það er þeirra eðli,“ segir hann
og viðurkennir að samkeppnin á
Húsavík sé hörð. „Svona vinnubrögð
eru alltaf fyrir neðan beltisstað. Þetta
eru órökstuddar fullyrðingar og ein-
kennast af einhverri heift.“ Aðspurð-
ur um myndirnar sem DV hefur und-
ir höndum segir Stefán að 12 manna
múrinn sé eingöngu rofinn þegar
farnar eru ferðir fyrir starfsmenn
í þjálfun. „Þetta á sér allt eðlilegar
skýringar,“ segir hann.
Ljóst er að einnig var farið fram
yfir leyfilegan fjölda þegar bátur í eigu
samkeppnisaðila Stefáns á Húsavík
strandaði við Lundey síðasta sumar og
á þriðja tug farþega var ferjaður í land
með RIB-báti Gentle Giants. „Þetta
eru einhverjir bestu björgunarbátarn-
ir þarna á svæðinu,“ segir Stefán.
Þvergirðingsháttur og
óviðeigandi reglur
Þegar innanríkisráðuneytið staðfesti
ákvörðun Siglingastofnunar um far-
þegafjölda og öryggisbúnað í maí
beindi ráðuneytið þeim fyrirmælum
til stofnunarinnar að endurskoða
reglurnar um RIB-báta. Stefán bíð-
ur nú niðurstöðu þess og segist hafa
sent ráðuneytinu tölvupóst á föstu-
daginn til að kalla eftir svörum við
því hvar málið stendur. „Þetta hefur
ekkert með heilbrigð öryggissjónar-
mið að gera. Þetta varðar aðallega
þvergirðingshátt Siglingastofnunar
og einhverjar óviðeigandi reglur sem
vísað er í og eru búnar til bak við
skrif borð í Brussel,“ segir hann. n
Hvalaskoðunarfyrirtæki
sagt hunsa öryggiskröfur
„Þetta varðar aðal-
lega þvergirðings-
hátt Siglingastofnunar
og einhverjar óviðeigandi
reglur sem vísað er í og
eru búnar til bak við skrif-
borð í Brussel.
n „Þetta á sér eðlilegar skýringar“ n Hörð og mikil samkeppni á Húsavík
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
RIB-bátur Hér má sjá dæmi um svokallaðan RIB-bát. Samkvæmt Stefáni Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra Gentle Giants komast 23 farþegar fyrir á bátum fyrirtækisins sem
aðeins hefur leyfi til að sigla með tólf farþega í senn.