Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Page 20
20 Lífsstíll 22. júlí 2013 Mánudagur
T
ígramynstur hefur verið áber-
andi síðustu mánuði í sinni
víð ustu mynd og litasamsetn-
ingu. Hvort sem um er að ræða
jakka, kjóla, buxur, skó eða töskur og
allt mögulegt, þá er þetta mynstur sem
mun lifa langt fram á vetur. Merki eins
og Burberry, Kenzo og DKNY fylgja
þessum tískustraumi þessa dagana.
Einu sinni þótti þetta sígilda
mynstur ekki það mest dannaða
í heimi, en nú er öldin allt önnur.
Það er ekki þar með sagt að það eigi
að sleppa sér í að blanda alls konar
dýramynstrum saman í einum heil-
klæðnaði. Minna af þessu mynstri
er betra í einu.
Varúð skal höfð
Það fer alls ekki öllum konum að klæð-
ast fötum með dýramynstri, en sumar
konur komast vel upp með það. Fyr-
ir þær sem eru sjúkar í þetta trend er
gott að hafa í huga að velja sér ekki of
stutt pils eða kjóla með slíku mynstri,
því ekki viljum við vera „sjoppulegar“
í útliti.
Hnésíður kjóll eða pils við svartar
þekjandi sokkabuxur og háa hæla get-
ur verið afar lekkert. Síðan er kápa eða
trefill alltaf klassískt í þessum stíl.
Klassískt og smart
Gallabuxur við hvíta skyrtu og skór í
tígramynstri er flott blanda sem getur
varla klikkað. Fyrir þær sem eru ekki
eins djarfar er taska eða belti í þessu
mynstri tilvalið. Slepptu dýrinu lausu
í þér, vertu svolítið villt og nældu þér í
eina tígraflík á útsölum bæjarins sem
eru í fullu fjöri þessa dagana. n
Slepptu dýrinu lausu
Tígramynstur er í tísku
þessa dagana.
Litríkt hár
er málið
Samkvæmt erlendum tísku-
bloggurum verður aukin eftir-
spurn eftir óhefðbundnum háralit
með komandi hausti. Við erum
að tala um alla liti regnbogans
og eru þá sérstaklega pastel-litir
áberandi. Kelly Osbourne hefur
skartað ljósfjólubláu hári síðustu
mánuði og virðist þetta trend vera
vinsælt meðal evrópskra kvenna.
Það ber að hafa í huga að það fer
ekki vel með hárið að undirbúa
það fyrir svona liti, því það þarf að
aflita hárið undir það og þá er nú
eins gott að búa sig undir að geta
jafnvel skemmt hárið. Svo má bara
alltaf verða sér úti um hárkollu til
að breyta til.
Ýktar neglur
Einu sinni þótti frekar djarft að
lakka neglurnar í hárauðum lit. Í
dag þykir ekki fréttnæmt að stein-
ar séu límdir á neglur og jafnvel
litlar skrautkeðjur boraðar í langar
neglur. Mynstur eru mjög vinsæl
um þessar mundir í naglatísk-
unni. Öll helstu tískutímarit sem
fjalla um naglatískuna á komandi
mánuðum tala um dýramynstur.
Það er hægt að kaupa stensla til
þess að ná flottu mynstri þegar
lakka á naglalistaverk. Allt er leyfi-
legt í þessum efnum nú og um að
gera að setja hugmyndaflugið í
gírinn.
Klassík
sem lifir
Pippa Middleton, hefur einstak-
lega látlausan og kvenlegan stíl
sem konur víða um heim hafa
tileinkað sér. Hún leggur mikið
upp úr því að vera pen, klæðir sig
rétt við hvert tækifæri, notar lít-
inn farða og ber af hvert sem hún
fer. Kate notar Blazer jakka við
hin ýmsu tækifæri og verður það
aldrei ofsagt að allar konur ættu
að eiga eitt stykki slíkan jakka í
fataskápnum.
Ný föt frá Burberry
Leynist tígur í þér?
n Tígramynstur er áberandi á tískusýningum
Brúðarkjóllinn
er dýrmætastur
n Verona er í uppáhaldi n Læt aldrei sjá mig í Campbell skóm
Á
sa Reginsdóttir er búsett í
Verona á Ítalíu ásamt eig-
inmanni sínum, Emil Hall-
freðssyni knattspyrnumanni
og syni þeirra Emanuel. Ása
hefur brennandi áhuga á ljósmynd-
un og fallegum hlutum eins og sést á
blogginu hennar, en hún byrjaði að
blogga um tísku, mat, útlit og ann-
að skemmtilegt árið 2007, þegar hún
bjó í Reggio Calabria á suður Ítalíu
þar sem Emil spilaði á þeim tíma.
Gott að búa í Ítalíu
„Við fluttum til Verona haustið 2010
þegar Emil samdi við knattspyrnu-
félag borgarinnar, Hellas Verona til
þriggja ára. Hér höfum við því búið
síðan og komið okkur afar vel fyrir á
meðal fólks á svæðinu.“
Hver er uppáhaldsborgin þín?
„Verona á og mun hér eftir alltaf eiga
sérstakan stað í hjarta mínu. Hér
höfum við átt þrjú ótrúleg ár sem við
munum aldrei gleyma. Við höfum
kynnst hellingi af frábæru fólki sem
er mér afar kært og svo höfum við
verið þeirrar gæfu njótandi að fá að
njóta alls þess besta sem þessi fallega
ítalska borg hefur upp á að bjóða.
Hvað ættu allar konur að eiga
í fataskápnum?
„Miðað við íslenska veðráttu mæli
ég með að íslenskar konur finni sér
hlýja kápu, fallega húfu og trefil í stíl.“
Eru einhverjar snyrtivörur sem
þú getur ekki verið án?
„Húðhreinsilínan og kremin frá
Eucerin hafa reynst mér vel sem og
varasalvarnir frá Burt´s Bees.“
Þeldökkar og ofurgrannar
augabrúnir eru heitar eða hvað?
„Já, þær klæða alveg örugglega marg-
ar konur mjög , þó ég kjósi sjálf að
hafa þær frekar þykkar og í ljósari
kantinum.“
Hvar verslar þú helst föt á þig?
„Ég versla helst í ZARA, J. Crew, Folli
Follie og í hinum ýmsu búðum í mið-
borg Verona.“
Þér er boðið út að borða með
klukkutíma fyrirvara. Í hverju
ferð þú og hvernig farðar þú þig?
„Ég fer í þröngar buxur, háa pinna-
hæla, blazer og set á mig rauðan
varalit eins og mamma gerði alltaf í
denn.“
Einhver tískuslys af þinni hálfu
í fortíðinni og hver þá?
„Já, alveg mjög mörg og mig næst-
um verkjar við að rifja þau upp. Einu
sinni var ég til dæmis oft í Benetton-
peysu af litla bróð-
ur mínum sem er
tíu árum yngri en ég.
Eftir á að hyggja var
það ekki góð hug-
mynd.“
Í hverju myndir þú
bara aldrei láta sjá þig?
„Í Jeffrey Campbell skóm.“
Dýrmætasta
flíkin?
„Þær eru nokkrar
ágætar en ég held að
brúðarkjóllinn hafi
vinninginn í þetta
skiptið.“
Næst á dagskrá?
„Kveðja Ísland, halda suður á bóg-
inn og njóta sumarsins á Ítalíu. Arri-
vederci!“
Ása María
í Flórens
Á róman-
tískum rign-
ingardegi.
Í fríi á Santorini
Ólýsanlegt útsýni
og einkasundlaug.
Fallegur brúðkaupsdagur Brúðkaupskjóllinn er sá dýrmætasti.