Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Side 8
Vikublað 28.–30. janúar 20148 Fréttir É g hætti hjá flokknum. Ég mun ekki og vil ekki vinna með Láru,“ segir einn efni- legasti listdansari þjóðar- innar sem er hættur hjá Ís- lenska dansflokknum vegna erfiðra stjórnunarhátta listræns stjórnanda flokksins, Láru Stefánsdóttur. Reykjavík vikublað segir frá því að tveir vinnustaðasálfræðingar hafi verið fengnir að málinu og segir enn fremur að tveir dansar- ar flokksins hafi hætt hjá flokknum vegna ástandsins. Öruggar heim- ildir DV herma hins vegar að flótti frá flokknum sé enn frekari og allan megi hann rekja til samstarfsörð- ugleika við Láru. Alls fimm starfs- menn flokksins flýja flokkinn. Í samtölum við nokkra þeirra kemur fram að erfiðleikarnir felist í illri meðferð, vondum stjórn- unarháttum og slæmum samskipt- um sem líkja mætti við einelti. Starfsmenn lýsa enn fremur ótta um vinnuöryggi og afkomu enda er á Íslandi aðeins rekinn einn dans- flokkur á vegum hins opinbera og starfsmannalög gera brottvikningu forstöðumanna nánast ókleifa. Tjá sig ekki Fyrst var sagt af erfiðleikum í Ís- lenska dansflokknum í Reykjavík vikublaði. Ekki náðist í Láru Stef- ánsdóttur, listrænan stjórnanda flokksins, við vinnslu þessarar frétt- ar. Aðrir starfsmenn og dansarar sem starfa við flokkinn vildu ekki greina frá erfiðleikunum að öðru leyti en því að þeir væru miður sín vegna erfiðleikanna. Flestir virðast hafa einhverja trú á því að á erfið- leikunum finnist lausn ef allir leggj- ast á eitt. Lára Stefánsdóttir er einn helsti danshöfundur landsins og fyrrver- andi skólameistari Listdansskóla Ís- lands. Hún var sjálf fastráðin við Ís- lenska dansflokkinn um árabil og dansaði þá oft burðarhlutverk í sýn- ingum flokksins. Hún hefur unnið til fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín og er án efa einn besti dansari og danshöfundur landsins, þrátt fyrir að nú knýi erfiðleikar dyra. Henni er lýst sem ástríðumanneskju sem brenni fyrir danslistina en erf- iðara reynist henni að vinna að sam- skiptum sem einkennast af trausti og virðingu. Taka skal fram að átök sem þessi eru ekki óþekkt þegar nýir stjórnendur taka við liststarfi. Frumsýning í skugga erfiðleika Athygli vekur að málefni starfs- manna flokksins komu fyrst til kasta menningar- og menntamálaráðu- neytis fyrir um hálfu ári. Enn eru þau í ólestri og mikil vanlíðan vegna erfiðleikanna. Vanlíðanin brýst að sögn heim- ildarmanns DV út í því að dansarar og starfsmenn hringja sig inn veika. Framundan er viðamikil sýning hjá flokknum. Þann 3. febrúar næstkom- andi verður frumsýndur svonefndur Þríleikur og því ljóst að brýnt er að leysa úr brestinum. Magnús Ragnarsson, aðstoðar- maður menntamálaráðherra, segir í samtali við blaðamann allt gert sem ráðuneytinu er mögulegt til að finna farsæla lausn á málinu. Sérfróðir fagaðilar hefðu verið fengnir til aðstoðar og lausnin væri í sjónmáli. Hann baðst eins og aðr- ir frá því að tjá sig um málefni starfs- manna flokksins. Slíkt væri honum ekki mögulegt. Lög takmarkandi Staðreyndin er sú að stjórnvöld hafa takmörkuð úrræði þegar kemur að mannauðsstjórnun. Kveðið er á um réttindi og skyldur starfsmanna rík- isins í lögum nr. 70/1996 (starfs- mannalög). Lögin ná til allra þeirra sem starfa hjá ríkinu nema forseta, ráðherra, alþingismanna og starfs- manna opinberra hlutafélaga í eigu ríkisins. Ríkisstarfsmenn njóta verndar í starfi umfram launþega á almenn- um vinnumarkaði. Verndin er fólgin í því að ef starfsmaður brýtur af sér með einhverjum hætti eða sýnir af sér háttsemi sem ekki er talin sam- ræmast starfinu eða árangur hans er ófullnægjandi, fær hann tækifæri til að bæta ráð sitt áður en honum er sagt upp. Verndin er enn ríkari fyrir forstöðumenn opinberra stofnana, svo rík að nánast er ómögulegt að knýja fram starfslok þrátt fyrir slæ- lega frammistöðu. Aðeins þrjár áminningar Rökin fyrir því að ríkisstarfsmenn eigi að njóta verndar eru að þeir geti sinnt skyldum sínum án þess að ótt- ast þrýsting sem felst í yfirvofandi uppsögn. Þannig er tryggt að þeir verði til að mynda ekki fórnarlömb geðþóttaákvarðana. Þessi sérstaka vernd sem ríkis- starfsmenn og embættismenn njóta getur komið niður á starfsemi ríkis- stofnana og svo virðist vera um starf- semi Íslenska dansflokksins. Forstöðumenn geta beitt áminn- ingu. En liggi vandinn hjá forstöðu- manni er það viðkomandi ráðuneyti sem stofnunin heyrir undir sem beit- ir slíkum úrræðum. Áminning er úrræði sem afar sjaldan er beitt. Á tímabilinu 2004 til 2009 voru aðeins þrír forstöðu- menn opinberra stofnana áminntir. Í engum þeirra tilvika leiddi áminning til uppsagnar eða starfsloka. Óhæfir njóta ríkrar verndar Ríkisendurskoðun vann skýrslu um mannauðsmál ríkisins og skilaði henni í janúarmánuði 2011. Í henni er greint frá stöðu mála og því að það ferli sem reglur starfsmanna- laga mæla fyrir um og varðar áminn- ingar og starfslok sé þunglamalegt og tímafrekt. Það leiði til þess að starfsmenn og forstöðumenn sem gerast brotlegir í starfi eða eru óhæfir til að gegna embætti öðlist ríkari vernd en til var ætlast. Til að unnt sé að segja starfs- manni upp þarf hann að hafa brotið af sér tvívegis með líkum eða sama hætti. Ekki má heldur líða of langur tími á milli brotanna því þá er hætta á að hið fyrra teljist fyrnt. Þá þarf að áminna starfsmanninn upp á nýtt og þannig koll af kolli. Þannig getur einn og sami starfs- maðurinn, eða forstöðumaðurinn, safnað áminningum án þess að unnt sé að segja honum upp. Niðurstaða skýrslunnar er að það þurfi að breyta lögum um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins og einfalda reglur þeirra um starfslok. Endurskoða þurfi ferli um áminningar. Með feril dansara í hendi sér Í skýrslu ríkisendurskoðunar er kast- ljósinu fremur beint að starfsmönn- um en ekki forstöðumönnum. Þeir starfsmenn dansflokksins sem blaða- maður ræddi við í trúnaði segjast gagnrýna það fyrirkomulag að nánast ómögulegt sé að segja upp forstöðu- manni opinberrar stofnunar. Vald list- ræns stjórnanda og forstöðumanns, í þessu tilviki, Íslenska dansflokksins, sé nánast ótakmarkað gagnvart þeim dönsurum sem hafa unnið sér það til að starfa í flokknum. Enginn annar dansflokkur er rekinn á vegum hins opinberra og því að fáu að hverfa. Dansararnir hafa margir stefnt að því að dansa með flokknum frá barns- aldri. Ferill þeirra og starfsöryggi er að miklu leyti á valdi stjórnanda flokks- ins. „Hún hefur þau öll í hendi sér. Það er ekki sem áður, að það ríki traust og virðing. Allt slíkt er á burt,“ segir einn heimildarmanna blaðsins og segir andrúmsloftið hafa verið vont síðan Lára tók við flokknum af fyrri stjórn- anda, Katrínu Hall. n Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Dansarar flýja „ Traust og virðing. Allt slíkt er á burt. n Erfiðleikar í samstarfi hjá Íslenska dansflokknum n Átök og vanlíðan„Hún hefur þau öll í hendi sér Fá úrræði í lögunum Nú er maður skipaður eða settur í emb- ætti og ber þá að líta svo á að hann skuli gegna því þar til eitthvert eftirgreindra atriða kemur til: 1. að hann brýtur af sér í starfinu svo að honum beri að víkja úr því; 2. að hann fullnægir ekki lengur skilyrðum 6. gr.; 3. að hann fær lausn samkvæmt eigin beiðni, sbr. 37. gr.; 4. að hann fær lausn vegna heilsubrests, sbr. 30. gr.; 5. að hann hefur náð hámarksaldri, sbr. 33. gr.; 6. að skipunartími hans skv. 23. gr. er runninn út, nema ákvæði 2. mgr. eigi við; 7. að setningartími hans skv. 24. gr. er runninn út; 8. að hann flyst í annað embætti, sbr. 36. gr.; 9. að embættið er lagt niður, sbr. 34. gr. Lög nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Lára Stefánsdóttir Samstarfsörðugleikar Láru við starfsmenn flokksins hafa komið til kasta menningar- og menntamálaráðuneytis. Tveir vinnustaðasál- fræðingar hafa verið fengnir að borðinu. Vanlíðan, flótti og veikindi Heimildarmenn DV lýsa bágbornu ástandi í Íslenska dansflokknum. Öllum mögulegum ráðum er beitt til lausnar á vandanum. Myndir SiGTryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.