Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Qupperneq 17
Vikublað 28.–30. janúar 2014 Fréttir Erlent 17
Merkisteinn í Sahara
sem sést úr geimnum
n Minnismerki um hryðjuverkarárás Gaddafis n Gerð merkisins tók 18 ár
S
éu gervihnattarmyndir af
suðurhluta Saharaeyði-
merkurinnar skoðaðar
gaumgæfilega má sjá sér-
kennilegt minnismerki sem
sýnir geysistóra flugvél sem snýr í
átt að París. Um er að ræða minn-
isvarða um flugslys og er sagan að
baki flugslyssins jafn áhugaverð og
saga minnisvarðans.
Hefndaraðgerð Gaddafis gegn
Frakklandi
Nítjánda september árið 1989
sprakk flugvél flugfélagsins Union
de Transports Aériens upp í miðju
flugi yfir Saharaeyðimörkinni.
Flugvélin var á leiðinni til París-
ar frá Brazzaville í Kongó. Allir far-
þegar sem og áhöfn vélarinnar
fórst en við rannsókn kom í ljós að
sprengju hafði verið komið fyrir í
vélinni. Alls létust hundrað og sjötíu
manns, þriðjungur þeirra franskir
ríkisborgarar. Í kjölfar yfirheyrslu á
manni ættuðum frá Kongó fóru öll
spjót að beinast að líbískum hryðju-
verkamönnum studdum af ein-
ræðisherranum heitna Muammar
Gaddafi.
Að lokum fór svo að réttað var yfir
sex líbískum karlmönnum í Frakk-
landi í fjarveru þeirra og fór svo að
allir voru þeir dæmdir sekir. All-
ir voru þeir dæmdir í lífstíðarfang-
elsi. Um var að ræða háttsetta menn
í Líbíu svo sem Abdullah Senussi,
yfirmann líbísku leyniþjónustunn-
ar, og mág Gaddafis, og gátu þeir
allir um frjálst höfuð strokið í skjóli
einræðisherrans. Talið er að hryðju-
verkarárásin hafi verið hefndarað-
gerð gegn Frakklandi fyrir að styðja
Tsjad í landamæradeilum landsins
við Líbíu.
Minnismerkið átján ár í gerð
Minnismerkið sem sést úr geimn-
um er gert úr fjölda svartra steina og
brotinna spegla. Fjölskyldur þeirra
sem létust í árásinni stóðu að baki
gerð minnismerkisins sem er stað-
sett á nákvæmlega sama stað og
flugvélin hrapaði. Alls tók átján ár
að reisa minnismerkið. Ein helsta
sprautan bak við verkefnið var
Guillaume Denoix de Saint Marc
en faðir hans var einn þeirra sem
lést. De Saint Marc segir í samtali
við BBC að hann hafi verið heltek-
inn að reisa minnismerkið sem hef-
ur kostað hann hjónaband sitt sem
og fyrirtæki. Árið 2002 hélt sonur
Gaddafis, Saif al-Islam, fyrirlestur
í París og náði de Saint Marc með
krókaleiðum að ná tali af honum.
Saif Gaddafi bauð honum í kjölfar-
ið að koma til Líbíu til að ræða upp-
gjör. Svo fór að de Saint Marc fór í
margar ferðir til Líbíu.
Gaddafi vildi borga minna
fyrir Afríkubúa
De Saint Marc segir frá súrrealísk-
um ferðum sínum til Líbíu í bók
sinni Mon Pere Etait Dans le DC10.
Í bókinni lýsir de Saint Marc við-
ræðum sínum við son Gadda-
fis sem ógnandi sem og fáránleg-
um. Saif Gaddafi bauðst til þess að
borga skaðabætur til aðstandenda
þeirra sem létust í árásinni en neit-
aði þó að borga jafn háa upphæðir
fyrir Vesturlandabúa og Afríkubúa.
Vildi hann borga lægri upphæðir
til Afríkubúanna, en de Saint Marc
þvertók fyrir það. „Það var mjög
mikilvægt að allir aðstandendur
fengju jafn mikið óháð þjóðerni,“
segir de Saint Marc í samtali við
BBC.
Svo fór að árið 2004 samþykkti
þáverandi ríkisstjórn Líbíu að borga
aðstandendum hundrað og sjötíu
milljónir dollara. Fór öll sú upp-
hæð til aðstandenda en ríflegir vext-
ir gerðu þeim þó kleift að smíða
minnismerkið í miðri Saharaeyði-
mörk. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Gervihnattarmynd Minnismerkið sést
vel að ofan og er fyrst og fremst hugsað svo
það sjáist úr flugvél. Töluverð flugumferð er
yfir minnismerkið.
Séð af jörðu Flugvængur
flugvélarinnar stendur upp úr
örinni sem snýr til norðurs.
Gaddafi Vildi hefna
fyrir stuðning Frakka við
Tsjad í landamæradeilu,
að því er talið er.
„Það var mjög
mikilvægt að allir
aðstandendur fengju jafn
mikið óháð þjóðerni
Guillaume Denoix de Saint Marc
Samningur handsalaður Saleh Abdoul Salam, fyrir hönd ríkisstjórnar Líbíu, og
Guillaume Denoix de Saint-Marc, fyrir hönd fórnarlamba hryðjuverksins, innsigla samning
um bætur fórnarlömbunum til handa.
Ættingjarnir myrtir
Nánast allir ættingjar Jang Song-Thaek hafa verið teknir af lífi í Norður-Kóreu
S
kyldmenni Jang Song-Thaek,
sem talinn var næst valdamesti
maður Norður-Kóreu, hafa ver-
ið myrt að skipan Kim Jong-Un,
forseta landsins. Þetta kom fram í fjöl-
miðlum í Suður-Kóreu um helgina.
Jang Song-Thaek, sem var frændi for-
setans, var tekinn af lífi þann 12. des-
ember í fyrra. Var hann sagður hafa
unnið bak við tjöldin að því að grafa
undan stjórn Kim Jongs-Un.
Í fréttum suðurkóreskra fjölmiðla
kom meðal annars fram að börn,
bræður og barnabörn Jang Song-
Thaek hafi verið tekin af lífi á undan-
förnum vikum. Heimildarmenn Yon-
hap-fréttaveitunnar segja að óvíst
sé hvenær fólkið var líflátið. Þó er að
talið að hreinsanirnar hafi hafist fljót-
lega eftir dauða Jang Song-Thaek.
Meðal þeirra sem líflátnir voru
má nefna systur Jang Song-Thaek,
Jang Kye-Sun, og eiginmann henn-
ar og erindreka í utanríkisþjónustu
Norður-Kóreu, Jon Yong-Jin. Hann
sá meðal annars um samskipti Norð-
ur-Kóreu við Kúbu. Til marks um það
hvað hreinsanirnar gengu langt má
nefna að börn og barnabörn tveggja
bræðra Jang Song-Thaek voru einnig
líflátin. „Allir ættingjar hans hafa ver-
ið líflátnir, jafnvel börn,“ sagði heim-
ildarmaður úr suðurkóresku ríkis-
stjórninni við Yonhap-fréttaveituna.
Talið er að meðlimir fjölskyldunnar
hafi verið fluttir til höfuðborgarinn-
ar Pyongyang með hervaldi í des-
ember áður en þeir voru teknir af lífi.
Þeir sem sýndu mótþróa voru skotnir
til bana.
Sem fyrr segir var Jang Song-Thaek
sakaður um að hafa ætlað að grafa
undan stjórn Kim Jong-Un. Var hann
sagður vera að undirbúa valdarán
og jafnvel sakaður um að vera kven-
samur. Málið vakti mikla athygli í des-
ember en tilkynnt var um aftökuna í
norðurkóreska ríkissjónvarpinu. n
Tekinn af lífi
Jang Song-Thaek
og nánast allir
ættingjar hans hafa
verið teknir af lífi.
Sjálfur var hann
sakaður um að
undirbúa valdarán.
Múffan líktist
hundinum
Hana rak í rogastans, bandarísku
stúlkuna sem fór á dögunum út
í bakarí og keypti sér múffur –
nánar tiltekið með bláberjum.
Þegar heim var komið varð hún
þess vör að ein múffan var sem
spegilmynd af andliti Chihu-
ahua-hundsins hennar. Hún tók
meðfylgjandi mynd af múffunni
og hundinum og deildi á Tumblr-
vefsíðu sinni. „Bláberjamúffan
mín lítur alveg eins og út hundur-
inn minn. Ég fer að gráta,“ skrif-
aði hún við færsluna. Á þriðja
hundrað þúsund notenda hafa
skoðað myndina á vefsvæðinu.
Deildi eigin
fangamynd
Bandaríkjamaðurinn Anthony
James Lescowitch Jr. er ekki
skarpasti hnífurinn í skúffunni.
Hann hafði verið eftirlýstur af
lögreglunni í Freeland frá því í
nóvember vegna líkamsárásar
en ekki gefið sig fram. Lögreglan
ákvað að lýsa eftir manninum
á Facebook. Skömmu síðar brá
Lescowitch yngri á það ráð að
deila stöðuuppfærslu lögreglunn-
ar, með skilaboðunum „lol i f*
love it, A**HOLE“, sem líklega
er best að láta ógert að þýða. Lög-
reglumaðurinn T.J. Rentschler
var ekki lengi að hugsa og brá
sér í dulargervi. Hann sendi
Lescowitch skilaboð og þótt-
ist vera aðlaðandi ung kona.
Ekki leið nema hálftími þar til
lögreglumaðurinn snarráði
var búinn að mæla sér mót við
Lescowitch, hinn vitgranna, sem
örskömmu síðar var kominn í
vörslu lögreglunnar.
Heimtaði
Sir Alex
Drukkinn stuðningsmaður
Manchester United hringdi í
neyðarlínuna eftir tapleik liðsins
gegn Sunderland á dögunum,
og krafðist þess að fá að ræða við
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi
knattspyrnustjóra liðsins.
Hvorki hefur gengið né rekið
hjá nýjum stjóra, David Moyes.
Maðurinn sem hringdi var í öng-
um sínum eftir tapið, og hafði
reynt að drekkja sorgum sínum
með áfengum veigum. Mann-
inum var gerð grein fyrir því
að hann mætti bara hringja í
neyðarlínuna ef hann væri í neyð
eða þyrfti að tilkynna glæp. „Ég
vil tilkynna um glæp,“ sagði mað-
urinn. „Manchester United voru
handónýtir í leiknum.“ Símtalið
varð ekki mikið lengra.