Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Síða 32
Vikublað 28.–30. janúar 201432 Menning
Stærstu atriðin á Sónar 2014
Trentemøller, Högni og Cell7 vekja eftirvæntingu
Leikhús sem er eins og málverk
Er það eðli allra listastefna að markaðurinn taki þær yfir?
J
ackson Pollock er Jack Ker
ouac málaralistarinnar,“ segir
ein persónan í verkinu Poll
ock sem nú er til sýninga í
Þjóðleikhúsinu. Er hægt að
mála málverk sem er eins og skáld
saga? Og er hægt að gera leikrit
sem er eins og málverk?
Í haust hafa tvö leikverk verið
sett upp hér í bæ sem taka málara
listina fyrir. Eða nánar tiltekið,
abstraktmálara Bandaríkjanna á
6. áratugnum sem höfðu gríðar
leg áhrif á það sem á eftir kom. Hið
frábæra verk Rauður var frumsýnt í
Borgarleikhúsinu í fyrra og sýning
um haldið áfram í haust fyrir fullu
húsi. Höfundur þess nefnist John
Logan, ekki þessi sem var alltaf
að keppa í Eurovision, heldur er
hann þekktur fyrir að skrifa hand
rit að Hollywoodmyndum svo
sem Gladiator og Bondmyndinni
Skyfall. Þó er fátt kvikmyndalegt
við leikritið. Tveir menn standa á
sviðinu, málarinn Mark Rothko og
aðstoðarmaður hans. Allt í kring
eru málverk með miklu rauðu í.
Listamaður hafnar peningum
Sagan gerist árið 1958 þegar
Rothko, nú orðinn ríkur og frægur,
hefur áhyggjur af uppgangi popp
listamanna á borð við Andy
Warhol sem eru að varpa skugga
á hans kynslóð, eins og hann sjálf
ur skyggði á það sem á undan kom.
Honum hefur verið falið að skreyta
veitingasal hins fína Four Seasons
veitingastaðar og þegið talsverða
þóknun fyrir. Og upphefst nú mik
ill eltingarleikur.
Rothko veit innst inni að hann
er að selja sig, en reynir þó að telja
sér trú um að hann geti breytt kerf
inu innan frá. Höfð er eftir honum
sú fræga setning að hann ætli sér
að eyðileggja matarlyst þeirra auð
manna sem stíga inn á veitinga
staðinn. En eftir því sem samræð
urnar við aðstoðarmanninn þróast
kemst hann að því að það er engin
leið fram hjá vandamálinu. Verk
um hans er fyrst og fremst ætlað að
skreyta matsali hinna ríku, að vera
bakgrunnur á meðan viðskiptin
eru rædd. Hann ákveður að skila
peningunum og draga myndirnar
til baka. Leikritið er í meginatrið
um sannsögulegt, engin veit í raun
hvað olli þessum sinnaskiptum hjá
Rothko, en hér er leikið sér með
efniviðinn og varla dauðan punkt
að finna í þriggja tíma sýningu um
inntak listarinnar.
Skraut fyrir hina ríku
Í Þjóðleikhúsinu er svo þráð
urinn tekinn upp hálfri öld síð
ar. Jackson Pollock var, ásamt
Rothko, einn helsti forvígismað
ur abstraktexpressjónismans
sem þótti byltingarkenndur á sín
um tíma en er nú horfinn inn í
meginstrauminn. Kona sem býr í
hjólhýsi finnur verk sem hún tel
ur vera eftir Pollock og reynir að
fá staðfestingu á að svo sé, enda
myndi verkið þá vera rúmra 100
milljóna dala virði, upphæðar sem
fæstir nema hörðustu útrásarvík
ingar geta skilið.
Rothko og Pollock eru hér löngu
orðnir skraut í sölum hinna ríku,
til jafns við nútímapopplistamenn
eins og Damien Hirst og Jeff Koons
sem aldrei höfðu ætlað sér annað.
Mark Rothko Annar framdi sjálfsmorð,
hinn var á góðri leið með að drekka sig í hel
þegar hann fórst í bílslysi.
Hvers virði? Og samt er listin sjálf einhvers virði, eins og kemur í ljós þegar listfræðingur-
inn heldur magnaða ræðu um frumkraftinn sem í Pollock býr, sem hlýtur að snerta alla sem
á það líta.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Leiklist Skyndinámskeið Það er ánægjulegt að leikhúsin taki
abstrakt-expressjónismann upp á
arma sína. Einhver þarf að gera það.
Mynd GRíMuR BjaRnaSon
T
ónleikahátíðin Sónar
Reykjavík verður haldin
í Hörpu 13.–15. febrú
ar. Dagskráin fyrir hátíð
ina er tilbúin og hefst með
trompi, en stórsveitin GusGus
spilar fyrsta kvöldið, í Silfurbergi
klukkan 23.45.
Hátíðin fer fram á fimm sviðum;
Silfurbergi, Norðurljósum, Kalda
lóni, Flóasvæðinu og í bílakjallara
hússins sem breytt verður í dans
gólf þar sem innlendir og erlendir
plötusnúðar koma fram.
Sónarhátíðin var haldin í fyrsta
skipti á Íslandi í fyrra og lukkaðist
vel. James Blake og Modeselektor
voru meðal erlendra sveita sem
komu fram á hátíðinni og slógu í
gegn.
Gert er ráð fyrir 3.300 gestum. Í
ár verða sex Sónarhátíðir haldnar
í sex mismunandi löndum. 67
hljómsveitir og tónlistarmenn
koma fram á Sónar Reykjavík.
Mikil tilhlökkun ríkir vegna
tónleika Trentemøller. Hann kom
fram á fyrstu Sónar Reykjavíkhá
tíðinni. Síðan þá hefur hann gef
ið út sína þriðju breiðskífu, Lost,
og tónleikaskífuna Live in Copen
hagen sem inniheldur mörg af
hans bestu verkum. Danski raftón
listarsnillingurinn snýr aftur á há
tíðina í ár, en að þessu sinni með
hljómsveit.
Högni Egilsson, söngvari
Hjaltalín og GusGus, mun heims
frumflytja sólóverkefni sitt He á
hátíðinni. Þá verður einn af há
punktum hátíðarinnar, hip hop
brautryðjandinn Cell7. n
Mætir með hljómsveit Mikil tilhlökkun
ríkir vegna tónleika Trentemøller.
Kynnir sólóverkefni Högni Egilsson,
söngvari Hjaltalín og GusGus, mun heims-
frumflytja sólóverkefni sitt, He, á hátíðinni.
Víkingur
spilar með
Philip Glass
Í kvöld verða frumflutt í Evrópu
óútgefin píanóverk af hinum
heimsþekkta Philip Glass, Vík
ingi Heiðari Ólafssyni og Maki
Namekawa.
Tónleikarnir fara fram í Eld
borgarsal Hörpu.
Philip Glass hugsaði upp
haflega Etýðurnar, safn tuttugu
verka fyrir einleikspíanó, til að
styrkja leikni sína á hljóðfærið.
Sextán þeirra samdi hann á
tíunda áratugnum og sner
ist þá hver og ein um ákveðið
tæknilegt atriði. Síðustu fjórar
etýðurnar voru loks pantaðar
meira en tíu árum síðar, í tilefni
af 75 ára afmæli tónskáldsins
og frumfluttar í Perth í Ástralíu
16. febrúar í fyrra. Þetta verð
ur frumflutningur verkanna í
Evrópu, en þau eru óútgefin.
Ljós og myrkur
í febrúar
Vetrarhátíð sett í byrjun febrúar
Vetrarhátíð í Reykjavík verður
sett 6. febrúar undir yfirskriftinni
Magnað myrkur. Markmið há
tíðarinnar er að lýsa upp mesta
skammdegið í febrúar með við
burðum og uppákomum af ýmsu
tagi, stórum sem smáum.
Meginstoðir Vetrarhátíðar
2014 verða Safnanótt, Sundlauga
nótt og ljósalistaverk með skýrri
tengingu við ljós og myrkur.
Tollhúsið lýst upp
Ljósaviðburðir munu eiga sér
stað um alla borg en byggingar og
almenningsrými verða lýst upp
með fjölbreyttum hætti. Ljósa
listaverk verða staðsett á fjölsótt
um stöðum í þeirri von að þau
varpi ljósi á fegurð borgarinnar
og veki áhuga borgarbúa og gesta
höfuðborgarinnar á að skoða og
upplifa borgina í gegnum ljós,
leik og arkitektúr. Til að mynda
verður Tollhúsið lýst upp til þess
að leggja áherslu á módernískan
stíl byggingarinnar.
40 söfn opna dyr sínar
Safnanótt verður haldin föstu
dagskvöldið 7. febrúar en þá
opna fjörutíu söfn á öllu höfuð
borgarsvæðinu dyr sínar og bjóða
upp á skemmtilega dagskrá sem
gestir á öllum aldri geta notið
fram undir miðnætti.
Kvöldsund í borginni
Sundlauganótt verður haldin
laugardagskvöldið 15. febrúar en
þá verður frítt í sund í Laugar
dalslaug, Sundhöll Reykjavíkur
og Grafarvogslaug frá klukkan
átta til miðnættis.