Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Qupperneq 36
36 Fólk
C
hristian Bale er einn þekktasti
og eftirsóttasti leikari í heim-
inum í dag og hefur unnið til
fjölmargra verðlauna. Fáir ef-
ast um hæfileika hans á hvíta
tjaldinu en það sem hefur hvað helst
skapað honum nafn eru þær ótrúlegu
útlitsbreytingar sem hann gengur í
gegnum fyrir hlutverk sín.
Líkt og grískt goð
Árið 1999 vakti Bale mikla athygli fyrir
hlutverk sitt sem raðmorðinginn Pat-
rick Bateman í kvikmyndinni Amer-
ican Psycho. Myndin byggir á sam-
nefndri skáldsögu eftir Bret Easton
Ellis en þar er líkamsbyggingu
morðingjans lýst sem líkri grísku goði
og lagði Bale mikið á sig, bæði andlega
og líkamlega, til að ná að ná útliti Ba-
teman sem best. Það gerði hann með
því að æfa í þrjá klukkutíma á dag,
sex daga vikunnar, með einkaþjálf-
ara, auk þess sem hann eyddi mikl-
um tíma í sólbaði til að fá ólífubrúna
húð. Auk þess einangraði hann sig frá
restinni af leikurum og aðstandend-
um myndarinnar til að ná betur að
túlka hinar dimmu hliðar morðingj-
ans.
Ósofinn og sveltur
Þekktasta umbreyting Bale var árið
2004 þegar hann lék í sálfræðitryllin-
um The Machinist. Bale fór þá með
hlutverk vélvirkjans Trevors Reznik
sem þjáist af svefnleysi og grenni-
st óheyrilega mikið sökum þess og
lagði leikarinn mikið á sig í undirbún-
ingi fyrir hlutverkið. Meðal þess sem
hann gerði var að neita sér um svefn í
langan tíma auk þess sem hann svelti
sig svo mánuðum skipti. Mataræði
hans samanstóð eingöngu af kaffi,
vatni og eplum í fjóra mánuði sem
varð til þess að hann missti 28 kíló og
vó leikarinn ekki nema 54 kíló á þeim
tíma.
45 kíló á tveimur mánuðum
Um leið og tökum á The Machinist
lauk réð Bale sér einkaþjálfara til að
massa sig upp fyrir næsta hlutverk;
sjálfan Batman í Batman Begins. Á að-
eins tveimur mánuðum tókst leikar-
anum að þyngjast um 45 kíló með því
að borða kolvetnisríka fæðu og fara í
ræktina í þrjá klukkutíma á dag, sex
daga vikunnar, þar sem hann lagði
áherslu á lyftingar. Bale var þá reynd-
ar orðinn of þungur fyrir hlutverkið
svo hann grenntist aftur áður en tökur
á myndinni hófust.
Léttist og þyngist á víxl
Árið 2010 lék Bale fyrrverandi hnefa-
leikakappa, Dicky Eklund, í myndinni
The Fighter. Í myndinni er Eklund
háður krakki og þurfti Bale því að
grennast nokkuð fyrir myndina til að
ná útliti eiturlyfjafíkils. Það gerði hann
með því að hlaupa langar vegalengd-
ir um nokkurt skeið en sleppa því
að lyfta. Skömmu eftir útkomu The
Fighter þurfti Bale svo aftur að massa
sig upp fyrir þriðju Batman-myndina,
The Dark Knight Rises, en tökur á
henni hófust í maí 2011. Enn og aft-
ur réð hann sér einkaþjálfara og lagði
áherslu á lyftingar til að ná þeim
vöðvamassa og styrk sem Batman
þarf að hafa. Ekki leið þó á löngu þar
til hann þurfti að grennast á ný, en
það var fyrir hlutverk sitt sem starfs-
maður stálvers í myndinni Out of the
Furnace.
Fékk loks að fitna
Mörgum brá heldur í brún að sjá
Bale í hans nýjustu mynd, American
Hustle, en fyrir hana þurfti leikarinn
hvorki að grennast né massa sig upp.
Þvert á móti þurfti hann að fitna um
20 kíló fyrir hlutverk sitt sem svika-
hrappurinn Irving Rosenfeld en það
tókst honum með því að hætta allri
líkamsrækt og borða gríðarlegt magn
af skyndibita, sérstaklega ostborgara.
Leikarinn var þó fljótur að ná fitunni
af sér enda eru þrjár nýjar myndir
með honum væntanlegar á þessu ári
þar sem hann þarf aftur að vera í eðli-
legu formi. n
Vikublað 28.–30. janúar 2014
1 Danny DeVito og Rhea Perlman Danny DeVito
og eigin kona hans, leikkonan Rhea
Perlman, kynntust árið 1971 og hófu
sambúð tveimur vikum síðar. Þau hafa
því verið saman í meira en 40 ár en parið
gifti sig árið 1982, eftir ellefu ára sam-
band, og saman eiga þau þrjú börn.
2 Ozzy og Sharon OsbourneRokkhjónin bresku giftu sig árið
1982 og hafa því verið gift í rúmlega
31 ár. Þau eiga saman þrjú börn; þau
Aimee, Kelly og Jack,
og líkt og kunnugt
er fékk alþjóð að
fylgjast með lífi
fjölskyldunnar í
hinum geysivin-
sælu raun-
veruleikaþáttum
The Osbournes.
3 Tom Hanks og Rita Wilson Hinn margverðlaunaði leikari
og eiginkona hans, leik- og söngkonan
Rita Wilson, hófu
ástarsamband árið
1983. Þau hafa því
verið saman í 30
ár en þau gengu
í hjónaband árið
1988 og eiga saman
tvo syni.
4 Oprah Winfrey og Sted-man Graham Spjallþátta-
drottningin góðkunna hefur verið með
sama manninum í 27
ár. Sá heppni heitir
Stedman Graham
og er félagsráð-
gjafi að mennt.
Parið trúlofaði sig
árið 1992, eftir sex
ára samband, en hefur
aldrei gift sig og hyggst ekki gera það.
5 Elton John og David Furnish
Poppkóngurinn Elton John og eigin-
maður hans, kvikmynda-
gerðarmaðurinn
David Furnish, hófu
ástarsamband
árið 1993 og hafa
því verið saman
í tvo áratugi. Þeir
gengu í hjónaband
þann 21. desember
2005, sama dag og hjónabönd samkyn-
hneigðra voru leyfð í Bretlandi.
Leikarinn fitnar og grennist á víxl
The Fighter Bale lék krakkfíkil í
The Fighter og þurfti því að grennast
talsvert fyrir hlutverkið.
Batman Begins Bale þurfti að massa sig
vel upp fyrir Batman Begins.
American Psycho Líkami Bale líktist grísku g
oði í American Psycho.
Ótrúleg umbreyting
Christians Bale
American Hustle Bale þyngdist um 20 kíló fyrir hlutverk sitt sem Irving Rosenfeld.
The Machinist Leikarinn missti alls 28
kíló fyrir hlutverk sitt sem Trevor Reznik.
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.isLanglíf
sambönd
topp 5
Kendrick
hitti Beyoncé
Bandaríska leik- og söngkonan
Anna Kendrick var í skýjunum á
Grammy-verðlaunaathöfninni
um helgina.
Kendrick fékk
nefnilega loks
að hitta átrún-
aðargoð sitt,
söngkonuna
Beyoncé, og
virtist aldrei
ætla að jafna
sig. Leikkonan
skrifaði um atvikið á Twitter-síðu
sína þar sem hún sagði Beyoncé
vera engil. „Krakkar, það gerðist.
Ég hitti Beyoncé. Og hún er engill.
Og ég er ekki verðug. Og ég mun
aldrei hætta að hristast,“ skrifaði
Kendrick, en hún hefur verið mikill
aðdáandi Beyoncé um langt skeið
og ítrekað lýst yfir ást sinni á söng-
konunni og tónlist hennar á Twitter.
A
triði Macklemore og
Ryan Lewis á Grammy-
verðlaununum síðasta
sunnudag hefur vakið
gríðarlega athygli en
rapptvíeykið ákvað að fara alla
leið við flutning sinn á hinu geysi-
vinsæla lagi Same Love. Boðskap-
ur lagsins fór ekkert á milli mála
því meðan á flutningi lagsins
stóð voru hvorki meira né minna
en 33 pör gefin saman á sviðinu,
þar á meðal systir Ryan Lewis og
unnusti hennar. Það var engin
önnur en Queen Latifah sem sá
um giftingarnar en pörin voru af
öllum stærðum, gerðum og kyn-
hneigðum því, líkt og flestum er
kunnugt um, er boðskapur lags-
ins sá að allir eigi jafnan rétt til að
elskast og ganga í hjónaband.
Söngkonan Mary Lambert,
sem syngur einmitt í Same Love,
var að sjálfsögðu á staðnum
auk þess sem poppdrottningin
Madonna lagði tvíeykinu lið við
flutninginn. Atriðið vakti, sem fyrr
segir, gríðarlega athygli en mikil
fagnaðarlæti brutust út á meðal
viðstaddra og herma heimildir
erlendra fréttamiðla að nokkrar
stjörnur, þar á meðal nýsjálenski
kántrísöngvarinn Keith Urban,
hafi þurrkað tár af hvarmi eft-
ir þessa sögulegu og áhrifamiklu
stund. n
Áhrifaríkt Atriðið
vakti mikinn fögnuð
meðal viðstaddra á
sunnudaginn.
Atriði Macklemore og Ryan Lewis sló í gegn
33 giftingar á Grammy-verðlaununum