Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Síða 8
Vikublað 11.–13. febrúar 20148 Fréttir
Hjördís Svan bíður
dóms í Danmörku
n Ákærð fyrir mannrán eftir harða forræðisdeilu n Börnin hjá ömmu n Segja velferð barnanna borgið
E
ftir að Hjördís Svan Aðal-
heiðardóttir var ákærð fyrir
mannrán, sótt hingað til
lands af dönskum lögreglu-
mönnum sem fluttu hana
nauðuga til Danmerkur og færð fyr-
ir dómara sem setti hana í mánað-
arlangt farbann, gáfu lögmenn
hennar út yfirlýsingu um helgina
þar sem fram kemur að hún verði
hugsanlega laus allra mála í næsta
mánuði.
Harðvítug deila
Hjördís Svan hefur staðið í ára-
langri forræðisdeilu við barnsföður
sinn, Kim Gram Laursen, en þau
eiga þrjár dætur saman, fæddar árið
2004, 2006 og 2007.
Forræðisdeilan hófst árið 2010
og hefur verið harðvítug. Eftir skiln-
aðinn kom Hjördís til Íslands með
börnin en var það óheimilt sam-
kvæmt Haag-samningnum, þar
sem forræðið var sameiginlegt og
dvalarstaður stúlknanna var í Dan-
mörku þar sem forræðismálið var
upphaflega dómtekið.
Síðan hefur málið farið ítrekað
fyrir dóm bæði hér á landi og í Dan-
mörku.
Segja góðar líkur á sýknu
Hjördís hefur staðfastlega sakað
barnsföður sinn um að beita dætur
þeirra harðræði og ofbeldi.
Í yfirlýsingunni sem Hreinn
Loftsson og Kristín Ólafsdóttir, lög-
menn Hjördísar á Íslandi, sendu
frá sér um helgina segir að lögmað-
ur hennar í Danmörku, Thomas
Berg, meti það sem svo að hún verði
hugsanlega komin aftur til Íslands
áður en farbannið fellur úr gildi.
Þar segir: „Telur hann góðar líkur
á sýknu þar sem Hjördísi Svan hafi
ekki aðeins verið rétt heldur skylt
á grundvelli nauðvarnar, að forða
börnunum úr þeim aðstæðum sem
þau bjuggu við. Mun þess verða
krafist að nýleg gögn er varða meint
harðræði verði tekin til umfjöllun-
ar ekkert síður en kæra föður um
brottnám barnanna.“
Flúði til Íslands
Það var í ágúst sem Hjördís fór með
börnin frá Danmörku. Hún hélt þá
til Noregs þar sem hún fór huldu
höfði í nokkrar vikur, áður en hún
flaug með einkaþotu með börnin til
Íslands, líkt og fram hefur komið, en
í fylgd með Hjördísi var velgjörðar-
maður frá Íslandi og Þóra Tómas-
dóttir, þáverandi ritstjóri á Nýju Lífi
sem skrifaði grein um flóttann.
Flutt nauðug til Danmerkur
Síðastliðinn miðvikudag var Hjördís
handtekin og flutt nauðug til Dan-
merkur í fylgd danskra lögreglu-
þjóna sem komu hingað til lands að
sækja hana.
Á fimmtudag var hún færð fyrir
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Harðvítug barátta fyrir börnunum
2002
Hjördís og
Kim kynntust
í Horsens í
Danmörku.
2005
Hjördís og
Kim fluttu til
Bretlands.
2006
Hjördís og
Kim fluttu til
Íslands.
2009
Hjördís
og Kim
fluttu
aftur til
Dan-
merkur.
2010
Hjördís og Kim skildu.
2010
Hjördís kom með dæturnar
til Íslands. Hjördís og Kim
voru með sameiginlegt
forræði og börnin með lög-
heimili í Danmörku. Hjördís
fór aftur út með börnin
nokkrum vikum seinna
að ráði forstöðumanns
Barnaverndarstofu.
2011
Héraðsdómur Austurlands kvað á um að Kim
væri heimilt að láta sækja börnin til Hjördísar
hefði hún ekki komið þeim til Danmerkur inn-
an sex vikna. Hæstiréttur staðfesti dóminn.
2012
Hjördís áfrýjaði til Vestri Landsréttar
sem staðfesti niðurstöðu Vestri Lands-
réttar í janúar.
2013
Vestri Landsréttur tók málið fyrir og Kim
fékk fullt forræði til bráðabirgða.
2010
Málið fór fyrir dóm í
Kolding í september.
Hjördís fór með börnin til
Íslands áður en dómur féll.
Dönsk yfirvöld fóru fram
á að börnin yrðu tekin af
móður sinni og send aftur
til Danmerkur á grundvelli
Haag-samningsins.
2011
Í Danmörku tók Héraðsdómur Kolding málið
upp að nýju. Niðurstaðan var sameiginlegt
forræði en lögheimili barnanna var hjá Kim.
2012
Í febrúar fór Hjördís með börnin til
Íslands. Í júlí voru börnin tekin af Hjördísi
með aðfarargerð við grátur og gnístarn
tanna, þar sem sýslumaður naut
liðsinnis lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu, víkingasveitarinnar og fjölda
einkennisklæddra lögreglumanna.
Barnaverndaryfirvöld vistuðu börnin
hjá vandalausum þar til þau voru flutt í
fylgd lögreglu til Danmerkur.
2013
Innaríkisráðuneytið gagnrýndi vinnubrögð
sýslumannsembættanna á fyrri stigum
málsins. Í bréfi ráðuneytisins segir að
vafi hafi leikið á gildi heimildar til að taka
börnin sumarið 2012. Lögmaður Hjördísar
vildi kyrrsetja börnin á grundvelli þriggja
tilkynninga og vottorði frá dönsku sjúkra-
húsi á meðan væri hvort þau hefðu mátt
þola harðræði. Framkvæmdin var kærð til
Mannréttindadómstóls Evrópu.
2012
Í ágúst var nýtt mál tekið fyrir í Héraðs-
dómi Kolding. Dómur féll í september
þar sem Kim fékk fullt forræði yfir
dætrunum. Niðurstöðunni var áfrýjað til
Vestri Landsréttar í október.
2013Í ágúst fór Hjördís huldu höfði með
börnin hjá íslenskum presti í Noregi. Hún
flúði síðan með einkaþotu til Íslands með
börnin í september. Þar fóru þau í skóla.
2013
Í byrjun október barst lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu handtökuskipun
á hendur Hjördísi. Hún var sett í farbann
á meðan dómstólar fjölluðu um málið. Í
desember komst Héraðsdómur Reykja-
víkur að þeirri niðurstöðu að skilyrði væru
til staðar til að Hjördís yrði flutt til Dan-
merkur og afhent dönskum yfirvöldum.