Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Side 28
Vikublað 11.–13. febrúar 201428 Lífsstíll
Fjölbreyttar flíkur í ljósum litum
B
reska fyrirsætan, leik- og
söngkonan Agyness Deyn
hefur hannað sína fyrstu
fatalínu. Línan ber heitið
Title A og sækir innblástur í nú-
tímann í klæðskeraiðn en hún
mun innihalda allt frá nauðsyn-
legum hversdagsfatnaði yfir í fínan
kvöldklæðnað. Fatnaður línunn-
ar mun kosta á bilinu 100 til 625
Bandaríkjadala, en það gera um 11
til 70 þúsunda íslenskra króna.
Að sögn Deyn verður línan
bæði fjölbreytt og skemmtileg.
Þar má til dæmis finna mynstruð
maxi-pils, líflega skyrtukjóla og
stóra og víða blazer-jakka en línan
verður öll í ljósum litum þó svo að
fagurrauður nái að lauma sér inn í
margar flíkur.
Deyn hefur starfað sem fyrir-
sæta um nokkurra ára skeið en
sneri sér að fatahönnun árið 2010
þegar hún og yngri systir hennar,
Emily, hönnuðu línu af stutterma-
bolum og hlýrabolum fyrir jap-
anska merkið Uniqlo. Tveimur
árum síðar gerði hún svo samning
við breska skófatamerkið Dr. Mart-
ens og hóf að hanna fyrir fyrirtæk-
ið, en í línu Deyn voru skór, fatn-
aður og fylgihlutir. Alls hefur hún
hannað þrjár línur fyrir fyrirtæk-
ið en nýjasta lína hennar kemur í
verslanir í vor. n
horn@dv.is
Agyness Deyn hannar sína fyrstu fatalínu
Svona var
tískan 1969
Tískan hefur breyst mikið frá
árinu 1969 – eða hvað? Eins og
sjá má á þessum myndum sem
ljósmyndarinn Arthur Sharz tók
fyrir Life-tímaritið af mennta-
skólanemum árið 1969 þá má
sjá smá líkindi með tískunni í
dag. Skemmtilegt afturhvarf til
gamals tíma.
Klassískur, fágaður
og glæsilegur stíll
Kerry Washington kann að klæða sig
B
andaríska leikkonan Kerry
Washington hefur vakið
mikla athygli á rauða dregl-
inum undanfarið en hún
þykir einstaklega smekkleg
í kjólavali og var til að mynda valin
best klædda konan árið 2013 af
tímaritinu Vanity Fair.
„Snýst um að finna milliveginn“
Stíll Washington er glæsilegur, fág-
aður og hátískulegur en margir af
stærstu hönnuðum heims keppast
nú við að hanna á hana kjóla fyr-
ir hin ýmsu tækifæri. Leikkonan
segist reyna að finna hinn gullna
meðalveg í fatavali til að hafa stíl-
inn einfaldan, klassískan og fal-
legan.
„Mér finnst best að finna jafn-
vægi í fatnaði þar sem mér líður
ekki eins og það sé of mikið af ein-
hverjum einum hlut,“ sagði Was-
hington um fataval sitt í samtali við
tímaritið People á dögunum.
„Það er að klæðast ekki eins og
nunna og að klæðast heldur ekki
eins og ég sé að taka þátt í sund-
fatakeppni. Þetta snýst um að finna
milliveginn.“
Í tísku á meðgöngunni
Washington hefur sjaldan mis-
stigið sig á rauða dreglinum og fær
iðulega hrós frá helstu tískuspek-
ingum fyrir kjólaval sitt á verð-
launahátíðum og frumsýningum.
Hún hefur vakið sérstaka athygli
fyrir gott kjólaval á meðgöngu en
Washington á von á sínu fyrsta
barni í apríl og frumsýndi bumb-
una með stolti í glæsilegum kjól frá
Balenciaga á Golden Globe-verð-
launahátíðinni í janúar. Síðan þá
hefur hún sést víða í fallegum kjól-
um sem sýna bumbuna vel en eru
um leið klassískir og elegant.
Tekur einnig áhættu
Washington klæðist þó ekki ein-
göngu hönnun stærstu merkjanna
heldur hefur hún tekið áhættu í fata-
vali með því að veðja oft á efnilega
hönnuði á uppleið. Það gerði hún til
dæmis á Óskarsverðlaunahátíðinni
árið 2013 þegar hún klæddist falleg-
um, bleikum kjól frá merkinu Miu
Miu og hlaut mikið hrós fyrir.
Þrátt fyrir að vera mikil smekk-
kona á Washington þó ekki allan
heiðurinn af fatavali sínu því hún
vinnur náið með stílistanum Erin
Walsh, sem meðal annars hefur
unnið með stjörnum á borð við
Maggie Gyllenhaal og Kristen
Wiig. n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
Pastel er málið Washington í fallegum
kjól eftir Oscar de la Renta.
Ólétt Washington vakti mikla athygli á
Golden Globe-verðlaunahátíðinni í þessum
fallega kjól frá Balenciaga.
Miu Miu Washington þótti taka áhættu
með því að klæðast þessum kjól úr smiðju
Miu Miu á Óskarsverðlaunahátíðinni 2013.
Falleg Leikkonan í fallegum kjól frá Giles.
Glæsileg í gulu Washington í hönnun Jason Wu.
Agyness Deyn Fyrir-
sætan hefur fengist við
hönnun síðan árið 2010.