Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Side 10
8!
Verslunarskýrslur 1983
leiðslueftirlits sjávarafurða, til Landssambands ísl. útvegsmanna og til samtaka
sjómanna (sbr. 4. gr. laga nr. 52/1983). — Engin gjöld eru á útfluttum
landbúnaðarafurðum og iðnaðarvörum.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verslunarskýrslum gilda sérstakar
reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar vörur síðar í inngangi
þessum.
Allmikið er um það, að útflutningsverðmæti sé áætlað í skýrslunum, þ. e. að
reiknað sé með því verðmæti, sem tilgrernt er í útflutningsleyfi útflutningsdeildar
viðskiptaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er uppi af hálfu útflytjanda, að
varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lagfæra þetta síðar í útflutningsskýrsl-
um, og er hér um að ræða ónákvæmni, sem getur munað miklu.
Það segir sig sjálft, að í verslunarskýrslur koma aðeins vörur, sem afgreiddar
eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenskra skipa og flugvéla
erlendis á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í verslunarskýrslum, og
ef slíkar vörur eru fluttar inn í landið, koma þær ekki á skýrslu, nema að svo
miklu Ieyti sem þær kunna að vera teknar til tollmeðferðar.
Þyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verslunarskýrslur.
Innfluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með því ári voru þær
taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar breytingar var aðallega
sú, að illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna í tollskýrslum, þar sem hún skipti
ekki máli við tollafgreiðslu. Hins vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind í
tollskýrslu, vegna þess að vörumagnstollur var miðaður við hana. Með nýjum
tollskrárlögum, sem komu til framkvæmda 1. maí 1963, var vörumagnstollur
felldur niður á öllum vörum, nema á salti og eldsneyti, þar sem þýðingarlaus
vörumagnstollur var látinn haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og
framkallaðar kvikmyndafilmur var lagður vörumagnstollur í stað verðtolls. Frá
1. janúar 1977 var vörumagnstollur einnig felldur niður á þessum vörum, að
undanskilinni gasolíu og brennsluolíu. — Vegna ýmissa annmarka á að miða
innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að reikna þyngd hans nettó frá og með
1. maí 1963, er nýja tollskráin kom til framkvæmda. í því sambandi er rétt að
geta þess að í verslunarskýrslum flestra landa er innflutningur miðaður við
nettóþyngd.
Farmgjöld. Hinn 6. apríl 1983 hækkuðu stykkjavörufarmgjöld á vörum
fluttum frá Evrópu um 4% (í erl. mynt, vegið meðaltal), en hækkanir voru
mismunandi eftir gjaldmiðlum vegna röskunar gengishlutfalls milli þeirra. Hinn
19. des. 1983 lækkuðu stykkjavörufarmgjöld á vörum fluttum frá Evrópu
almennt um 7%. — Stykkjavörufarmgjöld á vörum fluttum frá Bandaríkjunum
hækkuðu um 8% í ársbyrjun 1983, en 21. nóv. 1983 varð 4% lækkun á
farmgjöldum fyrir flutning þaðan vegna gengisþróunar dollars, auk sérstakrar
viðbótarlækkunar á einstökum gjaldflokkum. Frá 20. desember 1983 lækkuðu
svo allir stykkjavörutaxtar fyrir flutning frá Bandaríkjunum um 7%, hliðstætt
áður nefndri lækkun á Evróputöxtum. — Að því er snertir breytingu farmgjalda
fyrir stórflutning til landsins (timbur, járn, áburð, laust korn o. fl.), sem
sérstaklega er samið um hverju sinni, réðst hún sem fyrr af samkeppnisaðstöðu,
en taka má fram, að markaðsaðstaða hefur orsakað nokkra lækkun á ýmsum
liðum á þessu sviði. — Taxtar fyrir útflutning til Evrópulanda, sem eru ekki
sérumsamdir, hækkuðu/lækkuðu eins og taxtar fyrir flutning til landsins og á
sömu tímum. Taxtar fyrir vörur fluttar til Bandaríkjanna, aðrar en frystan fisk,
fylgdu almennum hækkunum/lækkunum. — Farmgjald fyrir stórflutning á