Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Blaðsíða 45
Verslunarskýrslur 1983
43
og því var þessu breytt frá og með Verslunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er
nú í sérstökum lið í töflu VII.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um útflutning í pósti
og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem sendir eru að gjöf, hvort
heldur hingað til lands eða héðan frá einstaklingum, eru ekki teknir með í
verslunarskýrslur.
í töflu VII kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvörugeymsluna í
Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráðherra til að reka
almenna tollvörugeymslu í Reykjavík (sbr. lög nr. 47/1960 og reglugerð nrj 56/
1961), hóf starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlutverk hennar er að skapa innflytjend-
um aðstöðu til að fá, að vissu marki, einstakar vörusendingar tollafgreiddar
smám saman eftir hentugleikum. Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega
fyrirferðarlitlar vörur, og vörur með háum tolli, sem færðar eru í
tollvörugeymslu. — Það skal tekið fram, að Hagstofan telur allar vörur í
vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru færðar í tollvörugeymslu eftir komu
þeirra til landsins í farmrými skips eða flugvélar, eða í pósti, — en ekki þegar
einstakir hlutar vörusendingar eru endanlega tollafgreiddir og afhentir innflytj-
anda. — í júlí 1970 tók til starfa Almenna tollvörugeymslan h.f. á Akureyri, og í
júní 1976 hóf starfsemi Tollvörugeymsla Suðurnesja h.f., Keflavík. Vörur, sem
fara um þær, eru teknar í innflutningsskýrslur á sama hátt og vörur, sem fara um
tollvörugeymslu í Reykjavík.
7. Tollar og önnur gjöld á innflutningi.
Customs duties etc.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sem voru á innfluttum vörum á árinu
1983.
f ársbyrjun 1980 kom til framkvæmda síðasti áfangi 10% árlegrar lækkunar frá
upphaflegum tolli á svo nefndum verndarvörum frá EFTA- og EBE-löndum.
Vörur þær, er hér um ræðir, urðu þar með tollfrjálsar frá viðkomandi löndum.
Innflutningsgjald á bensíni hækkaði frá 3. mars 1983 úr kr. 3,06 í kr. 3,40, frá
7. júní 1983 í kr. 4,07, frá 12. júlí 1983 í kr. 4,77 og frá 20. október 1983 í kr. 5,08
á lítra (sbr. reglugerðir nr. 68, 345, 490 og 721/1983). Gjald á hjólbörðum og
gúmmíslöngum hélst óbreytt á árinu 1983, kr. 0,45 á kg, svo og innflutningsgjald
á gas- og brennsluolíu, kr. 0,0133 á kg. Innflutningsgjald á bifreiðum og
bifhjólum (50% og 35% af cif-verði) var fellt niður 30. apríl 1982, en í stað þess
kom annað gjald, sem fer stighækkandi og er miðað bæði við eigin þyngd
bifreiða í kg og sprengirými þeirra í cm3. Frá 23. ágúst 1982 var þetta gjald frá
12% af bifreiðum 700—800 kg með sprengirými 1001—1300 cm3 upp í 37% af
bifreiðum þyngri en 1 500 kg og með meira sprengirými en 3 000 cm3, en 17% af
bifhjólum. Frá 1. júlí 1983 var þetta gjald lækkað um 8% í hverjum gjaldflokki
bifreiða og um 7% af bifhjólum. Ökutæki með burðarþol 6 tonn og þar yfir,
almenningsbifreiðar, sjúkrabifreiðar og bifreiðar til sérstakrar notkunar undan-
þegnar þessu gjaldi (sbr. reglugerðir nr. 225/1982, 466/1982 og 481/1983). — Að
öðru leyti vísast til greinargerða á þessum stað í inngangi verslunarskýrslna fyrir
hvert ár 1972—82.
Með lögum nr. 65 16. júlí 1975 var lagt 12% svo kallað vörugjald á fjölmargar
innfluttar vörur og á sömu innlendar vörur að svo miklu leyti sem þær eru