Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Qupperneq 19
Verslunarskýrslur 1983
17
verðsins, þannig að viss þungi af dýrri vöru (með háu verðlagi á kg), svo sem
vefnaðarvöru, vegur meira í vörumagninu heldur en sami þungi af þungavöru
(með lágu meðalverði á kg), svo sem eldsneyti og salti. Vörumagnið getur því
aukist, þótt þyngdin vaxi ekki, ef magn dýru vörunnar vex, en þungavörunnar
minnkar. Lítil aukning á þungavöru hleypir þyngdinni miklu meira fram heldur
en stórmikil aukning á dýrum vörum, svo sem vefnaðarvöru. Skýringin á þessum
mun er því sú, að þungavörunnar gætir miklu minna á móts við hinar dýrari í
innflutningnum nú heldur en áður. í útflutningnum er aftur á móti minni munur
á vörumagnsvísitölu og þyngdarvísitölu.
1. yfirlit sýnir ■ innflutning og útflutning í hverjum mánuði 1981—1983
samkvæmt verslunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um mánaðarlega
skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli).
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV (bls. 28—240) sýnir innflutning 1983 í hverju númeri tollskrárinnar
og skiptingu hans á lönd. Sýnd er þyngd í tonnum (auk þess stykkja- eða
rúmmetratala nokkurra vörutegunda), fob-verð og cif-verð. Taflan er í tollskrár-
númeraröð og vísast í því sambandi til skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við
upphaf töflu IV á bls. 28.
I töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti innflutningsins fob og cif eftir
vörudeildum núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu II á
bls. 4—19 er sýnt verðmæti innflutningsins eftir vöruflokkum sömu skrár með
skiptingu á lönd.
1 sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram: Mismunur
cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá útflutningsstaðnum
ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem hér um ræðir, er ekki
einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri útflutningshöfn til
íslands, heldur er í sumum tilfellum líka um að ræða farmgjöld með járnbrautum
eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem vöru er síðast
útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl. Fer þetta
eftir því, við hvaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður
að því, að vörur séu seldar cif íslenska innflutningshöfn. í slíkum tilfellum er
tilsvarandi fob-verð áætlað af tollyfirvöldum.
Frá og með Verslunarskýrslum 1983 þarf innflutningur frá landi að nema
minnst 25 þús. kr., til þess að hann sé tilgreindur sérstaklega í töflu IV — nema
um sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um.
2. yfirlit sýnir verðmœti innflutningsvaranna bœði cifogfob eftir vörudeildum.
Ef skip og flugvélar er undanskilið nemur fob-verðmæti innflutnings 1983 alls
17 630 527 þús. kr., en cif-verðið 20 052 589 þús. kr. Fob-verðmæti innflutnings
1983 að undanskildum skipum og flugvélum var þannig 87,9% af cif-verðmæt-
inu. — Ef litið er á einstaka flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs og cif-verðs
er mjög rnismunandi, og enn meiri verða frávikin til beggja handa, ef litið er á
einstakar vörutegundir.
Til þess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs skiptist á
vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað 1% af cif-verði
2