Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Blaðsíða 39
Verslunarskýrslur 1983
37'
þessi borin undir þær stofnanir hinna þriggja aðalatvinnuvega, sem hér eiga hlut
að máli. — Frá og með árinu 1977 er lagmeti (nr. 18 í töflu III) flokkað með
iðnaðarvörum, en ekki sjávarvörum. Hafa tölur 6. yfirlits um útfluttar afurðir af
fiskveiðum og af iðnaði verið færðar til samræmis við þessa breytingu árin
1971—76, en eldri tölur yfirlitsins eru látnar standa óbreyttar.
í 7. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1983 skiptist á
mánuði.
Vörusala íslensks markaðar h.f. íslenskur markaður h.f. hóf í ágúst 1970
verslun með íslenskan varning í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Stærstu
hluthafar í þessu fyrirtæki eru Samband ísl. samvinnufélaga (28,6%) og Álafoss
h.f. (24,3%). Glit h.f., Osta- og smjörsalan og Sláturfélag Suðurlands eiga hvert
um sig 10% hlutafjárins, en aðrir hluthafar, um 20 talsins, eru aðallega
framleiðendur iðnaðarvöru. Aðalviðskiptamenn íslensks markaðar eru flugfar-
þegar, sem eru á förum úr landi, en auk þess er nokkuð um, að kaupendur panti
vörur og fái þær sendar í pósti. Hvorki vörusala á staðnum né póstsending til
útlanda er tekin í útflutningsskýrslur. Að meðaltali hefur um 90% sölunnar
verið í erlendum gjaldeyri, og hefur sú sala numið sem hér segir (í þús. nkr.).
1971: 692,7, 1972: 721,9, 1973: 827,3, 1974: 880,2, 1975: 1 587,8, 1976: 2 268,3,
1977: 3 145,4, 1978: 6 081,4, 1979: 8 319,8, 1980: 8 947,4, 1981: 12 186,7, 1982:
25 968,0 og 1983: 58 803,3.
Sundurgreining söluandvirðis eftir vörutegundum 1981—83 fer hér á eftir, í
þús kr. Númer samkvæmt flokkunarskrá útflutnings (sjá töflu V) er tilgreint í
sviga:
Grásleppuhrogn niðurlögð (18.31) ............
Annað lagmeti úr sjávarafurðum ..............
Reyktur fiskur ót. a. (49.29) ...............
Kindakjöt fryst (51.10) .....................
Ostur (57.10)................................
Aðrar landbúnaðarafurðir ....................
Reykturlax (79.41)...........................
Vörur úr loðskinnum (80.10)..................
Gærur fullsútaðar (81.10) ...................
Ullarteppi (83.10)...........................
Vettlingar, húfur, treflar ofl., prjónað (84.10) ...
Peysur prjónaðar (84.40).....................
Ytri fatnaður, prjónaður og ofinn (84.50 og 88.10)
Skrautmunir og húsbúnaður úr postulíni (89.58) ..
Silfur- og gullsmíðavörur (89.80.10).........
íslenskar iðnaðarvörur ót. a.................
Ýmsarvörur ..................................
1981 1982 1983
203,4 400,4 773,7
114,1 224,2 434,0
26,6 52,1 101,1
105,5 208,2 401,2
131,6 260,3 500,7
22,2 44,0 84,3
128,3 252,3 487,9
211,4 355,4 1 206,6
106,4 290,0 633,1
810,9 1 693,5 3 120,8
1 532,8 1 030,2 6 772,3
2 866,1 6 844,3 18 649,2
3 423,7 8 391,7 17 093,2
431,2 2 995,0 1 417,6
349,4 518,2 843,7
438,3 717,1 1 611,5
1 284,8 1 691,1 4 672,4
Alls 12 186,7 25 968,0 58 803,3