Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Side 316
Hagstofa íslands
gefur út eftirtalip rit:
1. Hagskýrslur Islands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru
birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verslunarskýrsl-
ur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosning-
ar, Dómsmálaskýrslur o. fl.). f I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132
rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið út 81 rit.
2. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur
um utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu og aðrar vísitöl-
ur, og árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af
Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda er 170 kr.
3. Statistical Bulletin var sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands, á ensku
og ætlað útlendingum, sem fengu það ókeypis. Það var 4ra blaðsíðna mánaðarrit frá
júní 1931 til desember 1962, en síðan 16 blaðsíðna ársfjórðungsrit. Efni þess var
sumpart tekið úr Hagtíðindum og sumpart fengið frá Seðlabankanum. Þá er
Seðlabankinn í febrúar 1980 hóf útgáfu nýs ársfjórðungsrits á ensku, Economic
Statistics, var ákveðið að leggja Statistical Bulletin niður, og kom síðasta blað þess út í
maí 1980.
4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur
að geyma um hvern mann. fbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1983 er 1368 bls., og
verð 1700 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað,
að hún seljist upp.
5. Fyrirtaekjaskrá. í ritinu Skrár yfir fyrirtœki á íslandi 1969 var birtur frumstofn skrár
Hagstofunnar um fyrirtæki (þar eru með bændur, útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s.
frv.) að meðtöldum stofyiunum og félagssamtökum. Viðaukar við þetta rit voru gefnir
út 1972 og 1973. Síðan hafa — í framhaldi af fyrri útgáfum — komið út heildarskrár
aðila í fyrirtækjaskrá, sem hafa sérstakt auðkennisnúmer í henni, það er annað númer
en nafnnúmer samkvæmt þjóðskrá. Einstaklingar, sem reka starfsemi á eigin nafni,
eru þannig ekki í þessum útgáfum. Atvinnurekendur, stofnanir og félagssamtök í
síðustu heildarskrá, sem er miðuð við maílok 1984, eru um 17 400 að tölu. Verð þess
heftis er 260 kr.
6. Skrár yflr dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána,
koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yfir dána eftirtalin ár kosta sem hér segir:
1968—81 14 hefti hvert á 40 kr., 1982 60 kr. Skrár yfir dána 1965—67 (eitt hefti) eru
upp gengnar.
7. Bifreiðaskýrsla kemur út árlega í fjölrituðu hefti. í því eru um 20 töflur með
fjölþættum upplýsingum um bifreiðaeign landsmanna. Hagstofan tók við þessu
verkefni af Vegagerð ríkisins frá og með Bifreiðaskýrslu 1. janúar 1972. —
Bifreiðaskýrsla 1. jan. 1972—83 kostar 60 kr. hver um sig.
8. í ritinu Skrá um stofnanaheiti, sem kom út, fjölritað, á árinu 1972, er dönsk og ensk
þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Uppsláttaratriði í riti
þessu eru um 1500 að tölu. Venjulegar orðabækur eru haldlitlar í þessu efni, og er
þessu riti ætlað að bæta úr þeirri vöntun. Verðið er 40 kr.
Afgreiðsla ofangreindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð),
101 Reykjavík. Sími 26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646. Rit eru send
gegn póstkröfu, sé þess óskað, þó ekki rit það, er um ræðir í lið 4.