Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Side 80
28
Verslunarskýrslur 1983
Tafla IV. Innfluttar vörur 1983, eftir tollskrárnr. og löndum
Imports 1983, by tariff numbers (CCCN) and countries of origin.
1. Tilgreint er fob-verðmæti og cif-verðmæti innflutnings í hverju tollskrárnúmeri, þar sem hann er einhver, í
þúsundum króna. Meðalumreikningsgengi dollars við innflutning 1983 var: $ 1 = kr. 25,071. Síðan í ársbyrjun
1979 hefur cif-verðmæti innflutnings verið reiknað eftir svo nefndu tollafgreiðslugengi, sem er ákveðið fyrir
fram fyrir hvern mánuð og helst óbreytt í honum, ef ekki verður veruleg breyting á gengi íslenskrar krónu
gagnvart erlendri mynt, sjá nánar bls. 10* í inngangi.
2. Þyngd innflutnings er tilgreind nettó í tonnum með einum aukastaf. Nettóþyngd er brúttóþyngd að
undanskildum ytri umbúðum. — Auk þyngdar, er magn nokkurra vörutegunda gefið upp í rúmmetrum (áfengi,
timbur), paratölu (kvensokkar, hanskar úr leðri, skófatnaður) eða stykkjatölu (belti úr leðri, sokkabuxur,
manchetteskyrtur, sjónaukar, úr, skip, björgunarbátar, flugvélar, bifreiðar og fleiri flutningatæki, dráttarvélar,
píanó, orgel og nokkur önnur hljóðfæri, ýmsar vélar og tæki, bæði til atvinnurekstrar og til heimilisnota). í
mars/apríl 1974 bættust allmargar vörur í hóp þeirra, sem slíkar magnupplýsingar eru gefnar um, sjá bls. 28 í
Verslunarskýrslum 1974. Rúmmetratala/stykkjatala/paratala innflutnings frá hverju landi er tilgreind aftan við
heiti þess, en heildartalan er aftan við texta viðkomandi númers.
3. í töflu IV er sýndur innflutningur í hverju tollskrárnúmeri samkvæmt tollskrárlögum nr. 120 31. des. 1976, með
síðari breytingum. Tollskrárlög eru gefin út í heild á nokkurra ára fresti, og auk þess koma lög til breytinga á
gildandi tollskrá svo að segja árlega.
íslenska tollskráin er hin alþjóðlega Brússel-skrá, en hún er 4ra tölustafa vöruskrá, þar sem tveir fyrstu
stafirnir eru kaflanúmer (01—99) og tveir aftari stafirnir númer vöruliðs í kafla. Þar við bætast undirliðir við
mörg númer, en þeir eru til þess, að hver liður í hinni alþjóðlegu vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna — sem
er ætluð til tölfræðilegrar notkunar — eigi sér lið með sama vöruinntaki í Brússel-skránni. Auk þess sem þessir
undirliðir eru í íslensku tollskránni, er um að ræða frekari sundurgreiningu á sumum liðum hinnar alþjóðlegu
skrár, vegna íslenskra þarfa. Kemur þar aðallega til tvennt, skipting númers vegna þess að vara í því á að fá aðra
tollprósentu en aðrar vörur í því, og skipting númers til þess að fá fram sérgreiningu til upplýsingar.
4. Tollskrárnúmer hvers vöruliðs stendur með feitu letri yfir texta hans vinstra megin, en hægra megin er tilfært
samsvarandi vörunúmer samkvæmt hinni alþjóðlegu vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna. Er þar um að
ræða vöruskrá þessa eins og hún er eftir 2. endurskoðun hennar (Standard International Trade Classification,
Revision 2), en breytingar, er urðu á bæði Brússel-skrá og vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna við þá
endurskoðun, voru teknar í íslensku tollskrána með setningu laga nr. 120/1976.
5. Stjarna fyrir framan texta tollskrárnúmers merkir, að hann sé styttur. Getur þar bæði verið um að ræða styttingu
á sjálfum texta viðkomandi tollskrárnúmers og styttingu, sem fólgin er í því, að atriðum í fyrirsögn eða
fyrirsögnum tollskrárnúmers er sleppt að nokkru eða öllu í textanum eins og hann er í töflu IV. Stjarnan er sett
fyrir framan texta slíkra tollskrárnúmera til þess, að notendur töflu IV viti, að þeir þurfa að slá upp í sjálfri
tollskránni til þess að fá fulla vitneskju um texta viðkomandi númers.
6. Eins og gerð er grein fyrir í 1. kafla inngangs, þarf cif-verðmæti innflutnings frá landi að nema minnst 25 000
krónum til þess að það sé tilgreint sérstaklega. Áður var þetta mark við 15 000 krónur. Ef aðeins er um að ræða
innflutning frá einu landi, er það þó tilgreint, þótt innflutningur frá því sé undir 25 000 krónum. Tala landa, sem
minna en 25 000 kr. er flutt inn frá, er tilgreind í sviga aftan við ,,önnur lönd“ eða ,,ýmis lönd.“
1. Value ofimports in each tariff number is reported FOB and ClFin thous. of new krónur. Average conversion rate
for dollar 1983: $ 1,00 = kr. 25,071 (selling rate is conversion rate for imports).
2. Weight of imports is reported in metric tons with one decimal. Weights are counted net, i. e. excluding ,,external“
packing, whereas ,,internal“ packing is included. The import of some commodities is, in addition to weight, also
reported in cubic metres (m3), numbers or pairs. — Such figures are, where they occur, listed next to the name of
each country of origin, but the total is in each case stated behind the text of the heading concerned.
3. The nomenclature is that ofthe lcelandic Customs Tariff which since 1963 has been the same as the Brussels Tariff
(BTN, a 4 digit code, now the CCCN) of the Customs Co-operation Council in Brussels, as subdivided for
statistical purposes, and with further subdivisions for national use.
4. The tariff number of each heading is stated above its text to the left, but to the right is shown the corresponding
number in the Standard International Trade Classification, Revision 2.
5. An asterisk in front ofthe text ofa heading indicates that the text has been abbreviated. The full text can be seen in
the Customs Tariff itself which is available in English translation.
6. Countries from which imports amount to less than 25 000 krónur CIF are not specified if their number is 2 or
tnore. The number of such countries is stated in brackets behind ,,önnur lönd“ or ,,ýmis lönd“ which signifies
respectively ,,other countries“ and ,,sundry countries".