Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Side 31
Verslunarskýrslur 1983
29
geta hvors ofns er 25 000 tonn af kísiljárni (ferrosilikoni). Tvo síðustu mánuði
1980 var annar ofn verksmiðjunnar ekki starfræktur vegna orkuskorts. Á árinu
1981 var af sömu ástæðu aðeins annar ofninn starfrækur í janúar, hvorugur í
febrúar, mars og framan af apríl, og annar ofninn frá því í október og til ársloka.
Svo hélst til febrúarloka 1982. Síðan voru báðir ofnarnir starfræktir fram í
október 1982, en þar á eftir einn ofn til ársloka, vegna markaðstregðu. í janúar
og febrúar 1983 var áfram starfræktur einn ofn, en eftir það báðir til ársloka, í
mars til maí þó með skertu álagi. Markaðsskilyrði verksmiðjunnar bötnuðu
verulega á árinu. — Frá og með 1977 er innflutningur til járnblendiverksmiðj-
unnar gerður upp mánaðarlega á sama hátt og það, sem flutt er inn af
Landsvirkjun, íslenska álfélaginu og Kröfluvirkjun. Innflutningur til járnblendi-
verksmiðjunnar 1983 nam 239,8 millj. kr., og var hann allur til rekstrar. —
Sömu eða svipaðar reglur gilda lögum samkvæmt um niðurfellingu gjalda á
innflutningi til íslenska járnblendifélagsins og gilda um það, sem flutt er inn af
fyrrnefndum 3 aðilum, sem hafa sérstöðu í þessu sambandi.
Hér fer á eftir skýrsla um innflutning 1983 til Landsvirkjunar, Kröfluvirkjunar
og íslenska járnblendifélagsins, og er hann greindur á vörudeildir og eftir
löndum. Fyrst er, fyrir hvern aðila um sig, tilgreind nettóþyngd innflutnings í
tonnum, síðan fob-verðmæti og loks cif-verðmæti, hvort tveggja í millj. kr.
Aftan við „önnur lönd“ er hverju sinni tilgreind tala þeirra, fyrst fyrir
Landsvirkjun, síðan fyrir Kröfluvirkjun og loks fyrir íslenska járnblendifélagið.
Aftan við hið sameiginlega yfirlit Landsvirkjunar, Kröfluvirkjunar og ís-
lenska járnblendifélagsins er sundurgreining á heildarinnflutningi til íslenska
álfélagsins 1983. Er sú skýrsla sett upp á sama hátt og skýrslan næst á undan,
nema fjárhæðir eru í þús. kr.