Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Síða 36
34'
Verslunarskýrslur 1983
Innflutningur varnarliðseigna. Við lok heimsstyrjaldarinnar var sett á fót
nefnd, er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir setuliðanna tveggja, sem þau
fluttu ekki úr landi. Nefndin sá og um sölu slíkra eigna til innlendra aðila. Árið
1951 hófust sams konar kaup af bandaríska liðinu, sem kom til landsins
samkvæmt varnarsamningi íslands og Bandaríkjanna í maí 1951. Síðar hafa hér
bæst við kaup á bifreiðum o. fl. frá einstökum varnarliðsmönnum, svo og kaup
frá íslenskum aðalverktökum á tækjum o.fl., sem þeir hafa flutt inn tollfrjálst
vegna verka fyrir varnarliðið. Eru hvor tveggja þessi kaup meðtalin í þeim
tölum, sem hér fara á eftir. — Vörur þær, sem hér um ræðir, fá ekki tollmeðferð
eins og aðrar innfluttar vörur, og er þar af leiðandi ógerlegt að telja þær með
innflutningi í verslunarskýrslum. Rétt þykir að gera hér nokkra grein fyrir
þessum innflutningi, og fer hér á eftir yfirlit um heildarupphæð þessara kaupa
hvert áranna 1951—83 (í þús nkr.):
1951 2,0 1958 51,1 1965 42,8 1972 193,3 1979 2 323,0
1952 0,8 1959 98,0 1966 41,2 1973 245,7 1980 5 148,0
1953 6,6 1960 168,3 1967 53,5 1974 349,2 1981 6 730,3
1954 17,3 1961 80,3 1968 91,6 1975 512,5 1982 8 537,6
1955 20,5 1962 44,7 1969 105,6 1976 640,4 1983 10 177,8
1956 24,4 1963 63,4 1970 193,1 1977 984,1
1957 24,0 1964 41,4 1971 181,1 1978 1 331,2
í kaupverðmætinu er innifalinn kostnaður við viðgerðir o. fl. til aukningar á
söluverðmæti o. fl. Sundurgreining kaupverðmætisins eftir vöruflokkum 1982 og
1983 fer hér á eftir (í þús kr.):
1982 1983
Fólksbílar (1982:131,1983:122)..................................... 4 982,6 5 315,3
Vöru-og sendiferðabflar (1982: 38,1983: 32) ........................... 523,1 376,5
Aðrirbflar ............................................................. 35,0 25,8
Vörulyftur,dráttar-ogtengivagnar ....................................... 18,9 156,4
Vinnuvélar............................................................. 466,1 352,3
Aðrar vélar og tæki..................................................... 45,5 36,8
Varahlutir í bfla og vélar, einnig hjólbarðar........................... 42,4 229,0
Skrifstofu-ogbúsáhöld, heimilistæki og húsgögn ........................ 272,8 643,7
Fatnaður .............................................................. 110,8 37,8
Matvæli, niðursoðin, sælgæti o. fl ................................ 1 313,1 1 854,1
Ýmsarvörur ............................................................ 415,9 558,2
Vörur keyptar innanl. vegna söluvarnings, viðgerðir og bankakostnaður . 311,4 591,9
Alls 8 537,6 10 177,8
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 241—257) er sýndur útflutningur á hverri einstakri vörutegund
eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður vöruskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vörutegunda í þessari töflu
samkvæmt sérstakri vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning. Um þetta vísast til
nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á bls. 241.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir
vörudeildum núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu III á
bls. 20—27 eru verðmætistöflur útflutnings svarandi til 2ja fyrstu tölustafa
hinnar 6 stafa tákntölu hvers vöruliðs í vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning,
með skiptingu á lönd.