Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1984, Blaðsíða 37
Verslunarskýrslur 1983
35
í töflu VI á bls. 258 er verðmæti útflutnings skipt eftir vinnslugreinum hvert
áranna 1979—83. Er hér um að ræða sérstaka flokkun útflutnings, sem gerð
hefur verið ársfjórðungslega frá og með ársbyrjun 1970. Hefur þessi flokkun
verið birt í Hagtíðindum fyrir hvern ársfjórðung, en í verslunarskýrsium er hún
aðeins birt fyrir heil ár.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verslunar-
skýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) í
þeirri höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla
getur ekki átt við ísfisk, sem íslensk skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um
verðákvörðun hans í verslunarskýrslum sérstakar reglur. Til ársloka 1967 var,
auk löndunar- og sölukostnaðar o. fl., dregin frá brúttósöluandvirði ísfisks
ákveðin fjárhæð á tonn fyrir flutningskostnaði, en þessu var hætt frá og með
ársbyrjun 1968. Á árinu 1983 fylgdi Fiskifélag íslands þessum reglum við
útreikning á fob-verði ísfisks (og kolmunna í bræðslu) út frá brúttósöluandvirði
hans, og var hann tekinn í útflutningsskýrslur samkvæmt því (hundraðstölur til-
greindar hér á eftir miðast allar við brúttósöluandvirði):
Bretland og V-Pýskaland í janúar-september: Á öllum ísfiski: Löndunar-
kostnaður kr. 0,10 á kg, hafnargjöld o. fl. 5,3%, tollur 2% á ísuðum karfa, 3,7%
á ísuðum þorski, ýsu og ufsa en 15% á öðrum ísfiski, sölukostnaður 3% í
Bretlandi en 2% í V-Þýskalandi. í október-desember: 25% heildarkostnaður á
öllum ísfiski. Færeyjar: Á kolmunna í bræðslu og á öllum ísfiski: 5% heildar-
kostnaður.
Það skal tekið fram, að fiskiskip, sem selja ísfisk erlendis, nota stóran hluta af
andvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á skips-
hafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum frádrætti til
útreiknings á fob-verðmæti. Skortir því mjög mikið á, að gjaldeyri svarandi til
fob-verðs sé skilað til bankanna.
Útflutningsverðmœti 5 skipa, sem seld voru úr landi 1983 (í nr. 93.20.00 í töflu
V), nam alls 102 636 þús. kr., og fer hér á eftir skrá yfir þau:
Rúmlestir Útflutn.verðm.
brúttó þús. kr.
Laxfoss til Panama, farskip ............................... 1 599 19 462
Gullverk NS-12 til Noregs, skuttogari ............................. 331 20 790
Fjallfoss til Panama, farskip ............................. 1 599 27 728
Hekla til Panama, farskip ......................................... 708 17 848
Esja til Grænhöfðaeyja, farskip ................................... 710 16 808
Samtals 4 947 102 636
Tvö fyrst töldu skipin eru talin með útflutningi júnímánaðar, hin 3 með
útflutningi desembermánaðar.
Á árinu 1983 voru 2 flugvélar seldar úr landi, báðar til Bandaríkjanna, að
verðmæti alls 14 655 þús. kr. Þær eru taldar með útflutningi desembermánaðar.
í 6. yfirliti er sýnd hlutfallsleg skipting á verðmæti útfluttra afurða eftir
uppruna, þ. e. í meginatriðum eftir atvinnuvegum. Frá ársbyrjun 1970 kom til
framkvæmda endurskoðuð og bætt flokkun á útfluttum afurðum eftir uppruna.
Hafa niðurstöður hennar verið birtar í 6. yfirliti í Verslunarskýrslum síðustu ára,
ásamt með tölum samkvæmt eldri flokkuninni allt aftur til aldamóta, enda voru
þær sæmilega sambærilegar innbyrðis að því er varðar afurðir sjávarútvegs og
landbúnaðar, en útfluttar iðnaðarvörur komu ekki sérstaklega fram í eldri
flokkuninni, heldur voru þær taldar í ,,ýmislegu“. Rétt þótti að fá fram hlutdeild