Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
DRUKKU MENGAÐ
VATN Í VIKU Hafi vatnið verið rauð-gruggugt hefur enginn sagt mér það á þeim tíma sem það gerðist.
Landlæknisembættinu og sótt-
varnalækni bárust ekki upplýs-
ingar um vatnsmengunarslysið á
Eskifirði þann 4. júlí fyrr en eftir
að starfsmaður sjúkrahúss á Aust-
urlandi sendi fyrirspurn um málið
til landlæknisembættisins. Þá var
ljóst að vatn væri mengað og heim-
ildir herma að fjölmargir íbúa hafi
kennt sér meins eftir neyslu vatns-
ins. Læknum ber skylda til að til-
kynna allar farsóttir og óeðlilega
atburði sem þessa til embættisins.
Íbúar voru sömuleiðis grunlausir í
sex daga um að neysluvatn þeirra
væri mengað. Heilbrigðiseftirlit
Austurlands ráðlagði fólki ekki að
sjóða neysluvatn fyrr en 9. júlí þeg-
ar niðurstöður sýnatöku lágu fyr-
ir þar sem talið var upphaflega að
mengunin hefði ekki borist nema í
hluta kerfisins. Fjórum dögum eft-
ir slysið var ljóst að mengunin var
meiri en menn ætluðu.
Blóðvökva úr fiskiskipi
dælt inn á vatnslögn bæjarins
Mengunarslysið varð í löndunarhúsi
fiskimjölsverksmiðju Eskju þann 4.
júlí. Afleiðingar þess voru að kólí-
gerlar komust í neysluvatn bæjarins.
Blóðvatnslögn úr fiskiskipi var fyr-
ir mistök tengd inn á neysluvatns-
lögn bæjarins en íbúarnir fengu ekki
að vita um mengunina fyrr en nærri
viku eftir að slysið átti sér stað þegar
tilkynning barst inn um bréfalúguna
9. júlí. Fólk átti að sjóða neysluvatn
sitt og það þurftu íbúar að gera til 19.
júlí. Heilbrigðiseftirlitið er gagnrýnt
fyrir að bregðast ekki við ástandinu
fyrr en of seint.
Tekur tíma að fá niðurstöður
Helga Hreinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Austur-
lands (HAUST), segir það vitleysu
að engin tilkynning hafi borist
frá eftirlitinu. Hún hafi skrifað og
sett saman skýrslu til bæjarstjórn-
ar Fjarðabyggðar um málið þar
sem ferlið er rakið. Aðspurð hvar
ábyrgðin liggi á því að nærri vika
leið frá slysinu þar til fólki var
ráðlagt að sjóða vatnið segir hún
ábyrgðina liggja hjá Vatnsveitunni
og HAUST. „Tilkynning var borin
í hús um leið og menn vissu hvað
þetta var.“ Helga segir það taka
ákveðinn dagafjölda að fá niður-
stöður úr rannsóknum og ekki sé
hægt að horfa á vatn til að vita hvað
sé í því.
Íbúar á svæðinu hafa fullyrt að
rauðgruggugt vatn hafi runnið úr
krönum eftir slysið sem ætti að gefa
tilefni til að grípa strax til aðgerða
en við það kannast Helga ekki.
„Hafi vatnið verið rauðgruggugt
hefur enginn sagt mér það á þeim
tíma sem það gerðist.“
Verra en menn grunaði
Samkvæmt umræddri skýrslu
HAUST barst stofnuninni tilkynn-
ing um slysið samdægurs og var
gripið til ráðstafana um bakskolun
lagna af hálfu vatnsveitustjóra. Var
það trú manna að mengunin hefði
ekki borist nema í hluta kerfisins
næst bræðslunni og voru sýni tek-
in úr neysluvatni næst henni dag-
inn eftir. Niðurstaðan var sú að það
magn kólígerla sem fannst væri vel
innan neysluvatnsreglugerðar.
Miðvikudaginn 7. júlí voru sýni
tekin víða í dreifikerfinu og bár-
ust niðurstöður þeirra HAUST um
hádegi föstudaginn 9. júlí. Niður-
staðan sýndi að mengun hefði bor-
ist inn á lagnakerfið í mun meiri
mæli en menn grunaði og fyrstu
rannsóknir bentu til. Í sýnunum
„voru að hluta til kólígerlar í þriggja
stafa tölum,“ segir í skýrslu fram-
kvæmdastjóra HAUST. Var vatns-
veitustjóra falið að vara stofnanir
bæjarins við og dreifibréf um alvar-
leika málsins útbúið og sent í hús.
Allt fram að þeim tíma, eða í sex
daga, höfðu íbúar ekki hugmynd
um að neysluvatn bæjarins hefði
verið mengað.
Síðan hafa sýni verið tekin
úr neysluvatni á dreifikerfi ann-
an hvern dag samkvæmt skýrslu
HAUST. Gerlafjöldi er sagður hafa
lækkað jafnt og þétt frá því sem
mældist í sýnum teknum 7. júlí en
ekki þótti tryggt að aflétta tilmæl-
um til íbúa um að sjóða vatnið fyrr
en þann 19. júlí.
Samkvæmt skýrslunni er ekki
vitað til að neinn hafi veikst af
völdum mengunarinnar né held-
ur hafi heimsóknum á heilsugæslu
eða innlögnum fjölgað. Þessi orð
úr skýrslunni stangast á við það
sem íbúar hafa haldið fram í fjöl-
miðlum í gær, meðal annars í sam-
tali við DV. Þar er fullyrt að tugir
ef ekki hundruð einstaklinga hafi
kennt sér meins, fengið niðurgang
og þessháttar. Síðar átti DV eftir að
fá staðfest að 16 ára stúlka var lögð
inn á sjúkrahús daginn eftir slysið.
Sóttvarnalæknir í myrkrinu
Sóttvarnalækni bárust ekki upplýs-
ingar um málið frá heilsugæslunni
fyrr en 16. júlí, nærri tveimur vik-
um eftir að mengunarslysið átti sér
stað og ljóst var að hætta var á far-
sótt meðal íbúa. Var það þá vegna
fyrirspurnar ritara á heilsugæsl-
unni sem upplýsingarnar bárust
til embættisins að sögn Haraldar
Briem sóttvarnalæknis. Haraldur
var sjálfur í sumarfríi þegar þetta
átti sér stað en í kjölfarið fékk settur
sóttvarnalæknir frekari upplýsing-
ar um málið frá HAUST og ræddi
við lækni á staðnum sem ekki taldi
að neinna óeðlilegra veikinda hefði
gætt meðal íbúanna. Ekki þótti
ástæða til frekari aðgerða af hálfu
embættisins enda ljóst á þeim
tímapunkti að unnið væri að því
að koma í veg fyrir frekari mengun
og löngu búið að upplýsa íbúa um
áhættuna.
Óútskýrð iðrasýking
Samkvæmt upplýsingum sem Har-
aldur fékk frá sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað var 16 ára stúlka frá Eski-
firði lögð inn á spítalann þann 5.
júlí, daginn eftir mengunarslysið,
með iðrasýkingu. Mun stúlkan hafa
náð sér vel en engin skýring fékkst
á þessum veikindum hennar. Har-
aldur segir þó ekki hægt að fullyrða
neitt um orsakasamhengi.
Haraldur segir niðurstöður at-
hugunar sinnar á málinu að beiðni
DV vera þær að ekki hafi verið um
óvenjulegar magapestir sem hægt
sé að tengja mengunaróhappinu.
Magakveisa hafi reyndar verið
að ganga í Neskaupstað sem ekki
tengist slysinu á Eskifirði er hon-
um tjáð. Haraldur er engu að síður
gagnrýninn á verkferli og boðskipti
í málinu og bendir á sóttvarnalög
máli sínu til stuðnings. Gera hafi átt
embættinu grein fyrir stöðunni fyrr.
„Um þessa atburðarás vil ég
segja að boðskipti hafi gengið of
stirðlega fyrir sig og ekki í samræmi
við verklagsreglur sem reynt hefur
verið að setja. Það er auðvitað eng-
in afsökun að um sumarleyfistíma
er að ræða og mikið um manna-
skipti. Það er einboðið að fara þurfi
yfir þetta mál og reyna að færa til
betri vegar,“ segir Haraldur Briem.
SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Haraldur Briem sóttvarnalæknir gagnrýnir stirð boðskipti milli stofnana í tengslum við mengunarslysið
á Eskifirði og segir vinnubrögð ekki í samræmi við verklagsreglur. Í viku eftir slysið voru íbúar grunlaus-
ir um að vatnið væri mengað. Heilbrigðiseftirlit Austurlands og vatnsveitan vanmátu alvarleika málsins.
Ekkert samband HaraldurBriemsóttvarna-
læknirsegirboðskiptihafaveriðstirðogekki
samkvæmtverklagsreglum.Hannsegiraðfara
þurfiyfirmálið.MYND HÖRÐUR SVEINSSON