Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Blaðsíða 14
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 193,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,1 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 194,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,5 kr.
BENSÍN
Almennt verð VERÐ Á LÍTRA 193,0 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,0 kr.
Almennt verð VERÐ Á LÍTRA 193,9 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,1 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,5 kr.
GEYMSLUÞOLINN
OSTUR
Oft þegar keypt er stórt oststykki,
myglar bróðurpartur þess vegna
þess að það er ekki notað. Þetta
getur reynst raunin sérstaklega ef
fáir eru á heimilinu. Gott ráð er að
frysta leifar af osti, til þess að nota
síðar. Þennan ost er hægt að nota
í til dæmis grillaðar samlokur eða
pítsur, eða bara í hvað sem er þar
sem osturinn er bráðinn. Sumir
ostar endast líka mun lengur en
áður. Dæmi um þetta er parmesan-
ostur. Hann er mjög dýr miðað
við aðra osta, en ef notað er lítið
af osti í einu er hentugt að kaupa
parmesan ost, því hann endist
mánuðum saman í kæliskápnum.
RÝR BRAGÐAREFUR
n Lastið fær ísbúðin Brynja á Akur-
eyri. Viðskiptavinur hafði samband
við blaðið og hafði nýlega verslað
bragðaref í Brynju. Afgreiðslustúlk-
an setti óvenju lítið sælgæti í ísinn
og fjarlægði síðan stóran skerf af
namminu í þessum þegar sælgætis-
rýra bragðaref. Henni fannst hún þá
hafa sett of mikið. Þegar viðskipta-
vinurinn spurði hvort að
sælgætisskammturinn
væri ekki heldur lítill,
þá hreytti afgreiðslu-
stúlkan í hana að
svona væri þetta bara,
og því fannst henni ekki
mikið til ísbúðarinnar koma.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
FRÁBÆRT SUSHI
n Lofið fær Fiskmarkaðurinn í Aðal-
stræti fyrir að bjóða upp á ódýrt
sushi. Á staðnum er hægt að fá átta
bita í hádeginu á 1.290 krónur, og
þeim fylgir stór brauðkarfa
með þremur áleggstegund-
um. Fyrir þá sem vilja stærri
skammta er hægt að fá 14
bita á 1.590 krónur.
Bitarnir eru ferskir og
bragðgóðir og bornir
fram á mjög listilegan
hátt.
LOF&LAST
14 NEYTENDUR UMSJÓN: SÍMON ÖRN REYNISSON simon@dv.is 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
MÁ BJÓÐA ÞÉR MCFALAFEL? McDonald’s er ein
stærsta skyndibitakeðja heims. Einstakir staðir keðjunnar eru þó skemmti-
lega breytilegir. Á veitingastöðum keðjunnar í Egyptalandi er til dæmis
boðið upp á McFalafel, McDonald’s útgáfuna af þessum vinsæla miðaustur-
lenska skyndibita. Á Indlandi býður McDonald’s ekki upp á nautakjötsham-
borgara, af þeirri einföldu ástæðu að kýr eru heilagar hjá hindúum. Í staðinn
er boðið upp á kjúklinga- eða grænmetisborgara. Að lokum bjóða ísraelskir
Mcdonald’s-staðir upp á McKebab, en einnig upp á McFalafel. Það gæti því
verið sérstök reynsla að heimsækja þessa frægu keðju í framandi landi. E
L
D
S
N
E
Y
T
I
TÍU ÓDÝRIR Í MIÐBORGINNI
Það getur verið kvölin ein að finna ódýran en góðan mat í miðborg Reykjavíkur. Þó er hægt
að fá ljúffenga magafylli fyrir minna en 1.100 krónur auðveldlega ef leitað er á réttum
stöðum. DV tók saman tíu staði þar sem hægt er að borða á fyrir minna en 1.100 krónur.
Café Babalú
Skólavörðustíg 22a
Það besta við Babalú er án efa umhverfið. Huggulegt, hlýlegt, og gott kaffi. Á
staðnum er boðið upp á súpur, crepes og grænmetislasagna svo dæmi séu
nefnd, og allt undir 1.000 krónum.
Delí
Bankastræti 14
Lasagna, panini og pítsur er að finna á Delíinu. Allt á mjög hóflegu verði, og
ljúffengt um leið.
Vitabar
Bergþórugötu 21
Vitabar er löngu orðinn rómaður fyrir gleym-mér-ei-borgarann og gott ham-
borgaratilboð. Borgari á tilboði er undir 900 krónum og vel úti látinn. Vita-
bar er algjör búlla, en hamborgarinn er fyrsta flokks.
Prikið
Bankastræti 12
Á Prikinu færðu hamborgara, franskar og gos á 1.000 krónur. Hamborgaratil-
boðið er breytilegt eftir dögum, en á góðum degi er vel útilátinn beikonborg-
ari með osti og tilheyrandi á boðstólum. Með herlegheitunum er hægt að fá
bjór í staðinn fyrir gos fyrir 400 krónur aukalega.
Subway
Austurstræti 3
Á Subway er auðvelt að sleppa með máltíð undir 900 krónum. Stór bátur
Café Babalú Huggulegur staður þar sem hægt er að fá ódýrar pönnukökur, eða
„crepes“.
Hlöllabátar
Matarmiklir og
ekki of dýrir.