Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 28. júlí 2010 ERLENT 17
„Uppljóstrun WikiLeaks er stað-
festing á hlutum sem maður hefur
verið að lesa, og hefur verið hald-
ið fram,“ segir St efán Pálsson, for-
maður Samtaka hernaðarandstæð-
inga. Hann segir kaldhæðnislegt að
nú hafi sjálfur Bandaríkjaher stað-
fest grun margra um að Banda-
ríkjamenn og bandalagsþjóðir eigi
á hættu að tapa stríðinu í Afganist-
an.
„Þetta sýnir að NATO sé í raun-
inni ekki að ná þeim árangri, sem
bandalagið hefur látið í skína. Nú
hefur það verið staðfest af hernum
sjálfum. Það er óskandi að lekinn
geti haft talsverð áhrif á umræð-
una í Bandaríkjunum,“ segir Stef-
án.
„Afganistanstríðið hefur alla tíð
verið selt skattborgurum og stjórn-
málamönnum í Bandaríkjunum
og í NATO-löndunum út á loforð
um einhverjar dagsetningar, iðu-
lega sagt að eftir tvo mánuði eða
tvö ár muni menn sjá einhverja
breytingu og menn verði að þola að
auka í herliðinu núna, en síðan eft-
ir ár verði hægt að fara að fækka og
þar fram eftir götunum. Þessi leki
felur í sér viðurkenningu á því að
þeir eru ekkert að nálgast það og
að menn séu ekki nálægt þeim stað
að stjórnarherinn í Afganistan geti
leyst þá af hólmi. Það hefur ein-
kennt þetta stríð að markmiðunum
er sífellt breytt. Nú heyrist manni
að aðalmarkmiðið nú sé að menn
tapi allavega ekki Pakistan líka,“
segir Stefán Pálsson. „Obama hef-
ur grafið sér þá gröf að lofa skjót-
um sigrum í Afganistan og látið
sig dreyma um að kalla heim her-
mennina um það leyti sem hann
mun sækjast eftir endurkjöri, Wik-
iLeaks-skjölin sanna að það verður
einhver skrípaleikur ef þeir draga
herliðið heim þá.“ helgihrafn@dv.is
Formaður Samtaka hernaðarandstæðinga segir WikiLeaks-skjölin staðfesta grun margra:
Bandaríkjamenn gætu tapað stríðinu
Vond staða í Afganistan Stefán Pálsson
segir skjölin sýna fram á það sem margir
hafi áður haldið fram, að Bandaríkjamenn
séu í miklum vanda staddir í Afganistan.
MYND KRISTINN MAGNÚSSON
AFHJÚPUN WIKILEAKS
Að Bandaríkjaher notar í síaukn-
um mæli fjarstýrðar árásarflugvélar
til að kanna vígvelli og ráðast á skot-
mörk í Afganistan, en þær eru þó
mun ófullkomnari en opinberlega
hefur verið talið.
Að CIA, bandaríska leyniþjónust-
an, stundar umfangsmikinn hernað í
Afganistan.
En skýrslurnar draga auk þess upp
mynd af daglegu lífi í stríðinu í Afgan-
istan og ýmsum skelfilegum atburð-
um þar sem almennir borgarar lenda
í skotlínunni fyrir mannleg mistök.
Uppljóstrari Julian
Assange, forsprakki
WikiLeaks, heldur
á forsíðu Guardian
í Lundúnum á
mánudaginn.
REUTERS
Stríðið fegrað WikiLeaks-skjölin þykja sýna að Bandaríkjaher sé mun verr staddur í
stríðinu í Afganistan en áður hefur verið haldið fram. Myndin var tekin á föstudaginn og
sýnir bandaríska hermenn styðja við særðan félaga við brennandi stríðsvagn. REUTERS
2009
Desember
Obama ákveður að
30 þúsund hermenn
verði sendir árið 2010
til viðbótar þeim sem
fyrir eru í Afganistan.
Samtals 100 þúsund
bandarískir hermenn
verða í Afganistan þegar
fyrirskipunin verður að
fullu framkvæmd.
REYNDU AÐ HYLMA YFIR
DAUÐA NÍTJÁN BORGARA
Bandarískir landgönguliðar hófu skothríð í Jalalabad í Afganistan eftir að bíl-
sprengja sprakk með þeim afleiðingum að einn hermaður særðist. Nítján óbreyttir
borgarar, saklausir vegfarendur sem áttu leið hjá, féllu í skothríðinni. Hermenn-
irnir reyndu að hylma yfir atburðinn í skýrslu um atvikið.
WikiLeaks-skjölin sýna hvernig
bandarískir hermenn, sem skutu 19
saklausa borgara til bana, reyndu að
hylma yfir verknaðinn.
Hinn 4. mars 2007 var ráðist
á sveit bandarískra landgöngu-
liða, sem hafði komið til Afganist-
an þremur vikum áður, í nágrenni
borgarinnar Jalalabad. Lítill sendi-
ferðabíll, hlaðinn sprengiefni sprakk
í loft upp. Hermennirnir flýðu í
dauðans ofboði og hófu skothríð.
Þeir skutu í allar áttir með vélbyss-
um á hraðbraut og hittu næstum
alla sem flæktust fyrir og þar á með-
al unglingsstúlkur á akri rétt hjá, fólk
í bílum sínum og eldri borgara sem
gengu framhjá. Nítján óvopnaðir, al-
mennir borgarar féllu og 50 særðust.
Ekkert kom fram í skýrslunni
En ekkert af þessu kemur fram
í upphaflegri skýrslu sem land-
gönguliðarnir sjálfir skrifuðu. Í
skýrslunni stóð aðeins að könn-
unarsveitin hefði snúið heim í
herstöðina á flugvellinum í Jalala-
bad. Aðeins einn hermaður særð-
ist í sprengjuárásinni, en hann
var fluttur burt og komst í lækn-
ishendur. Hermennirnir sögðust
hafa haldið að skotið hefði verið að
þeim úr öllum áttum.
Eftir að afganskir embættismenn
á staðnum tilkynntu um mannfall-
ið blossaði upp mikil reiði á með-
al íbúa á svæðinu. Mánuði síðar
gaf Mannréttindanefnd Afganistan
út skýrslu þar sem kom fram að á
meðal fórnarlambanna í skothríð-
inni hefði verið 16 ára nýgift stúlka
sem hefði borið heybagga og 75
ára gamall maður sem gekk heim
á leið eftir búðarferð. Í skýrslunni
kom fram að hugsanlega hefði ver-
ið skotið á hermennina úr einni átt
en því vísað á bug að margar skyttur
hefði skotið á þá samtímis.
Var ekki refsað
Bandarískur hershöfðingi viður-
kenndi fyrir Afgönum að skothríð-
in hefði verið „skelfileg mistök“ og
„álitshnekkir“. Hann borgaði fjöl-
skyldum þeirra látnu tvö þúsund
dollara hverri. Francis Kearney,
einn æðsti yfirmaður heraflans í
Afganistan sendi hersveitina heim.
En hermönnunum var ekki refsað.
Næst ákvað landgöngulið
Bandaríkjahers að rannsaka at-
burðinn sjálft og birti niðurstöð-
urnar ári síðar. Þær hreinsuðu
hermennina af öllum ásökunum.
Hermennirnir „brugðust rétt við
og í samræmi við reglur í hernaði,“
sagði Samuel Helland, hershöfð-
ingi landgönguliðsins í Afganistan.
Rannsóknin stóð yfir í 17 daga
og rætt var við 50 vitni. En her-
mennirnir fjórir sem skutu úr
vopnum sínum þennan örlagaríka
dag þurftu ekki að bera vitni. Þeim
hafði verið tryggð friðhelgi gegn
ákæru.
Skutu á heyrnar-
lausan mann
Shum Khan, sem er heyrnarlaus og
mállaus, bjó í litlu þorpi í Malekshay
í Afganistan, hátt uppi í fjöllunum.
Þegar þungvopnuð hersveit á vegum
CIA birtist í þorpinu hans í mars 2007,
„hljóp hann í burtu frá hermönnun-
um, í hræðslu og fáti“, eins og því er
lýst í leyniskýrslu.
Hinir leynilegu CIA-sérsveitar-
menn kölluðu á hann að stöðva.
Khan heyrði ekki í þeim. Hann hljóp
því áfram. Sérsveitarmennirnir skutu
hann, og vísuðu í reglur bandaríska
hersins í skýrslugerð. Khan særðist
illa en lifði af. Öldungar úr þorpinu
útskýrðu fyrir Bandaríkjamönnunum
að þeir hefðu gert hræðileg mistök.
Í staðinn náðu sérsveitarmennirnir
í skaðabætur. Texti leyniskýrslunnar
endar á knappan hátt: „Skaðabæt-
urnar voru í formi vista og leiðangur
„Element“ [heiti sérsveitarinnar] hélt
áfram.“
Skjölin sýna að NATO hefur notast
við leynilega, „svarta“ sérsveit, til
að elta uppi háttsetta menn í upp-
reisnarliði talibana og drepa þá eða
handsama án dóms og laga. Yfir
tvö þúsund manns eru á dauða- og
handtökulista sveitarinnar, sem heit-
ir Sérsveit 373 en listinn kallast „Jpel“.
Leyniskjölin sýna að í mörgum tilvik-
um hefur sérsveitin drepið menn af
listanum án þess að reyna að hand-
sama þá. Þau sýna einnig að sérsveit-
in hefur drepið almenna borgara,
saklausa karla, konur og börn - og
jafnvel afganska lögreglumenn - sem
lentu í skotlínunni.
Lengi hefur verið rætt um að af-
ganskir borgarar hafi fallið á óút-
skýrðan hátt. Sameinuðu þjóðirn-
ar sendu árið 2008 erindreka sem
kannaði hvort borgarar hefðu verið
felldir án dóms og laga.
Með uppljóstrun WikiLeaks kem-
ur nú í ljós að umrædd sérsveit er
ábyrg fyrir dauða margra af þeim
sem hurfu af óútskýrðum ástæðum.
Mánudagskvöldið 11. júní 2007
fór Sérsveit 373 á stúfana í leit að
talibanaforingjanum Qarl Ur-Rah-
mann í dalverpi nálægt Jalalabad.
Þegar sérsveitarmenn klöngruðust
í myrkrinu sáu þeir að vasaljósi var
beint að þeim. Þeir hófu skothríð
og kölluðu til AC-130-sprengju-
flugvél sem breytti svæðinu í eld-
haf. Í skýrslunni kemur fram að
sérsveitarmennirnir hafi því næst
uppgötvað að fólkið sem þeir skutu
á í myrkrinu voru afganskir lög-
reglumenn, sjö þeirra féllu og fjórir
særðust.
helgihrafn@dv.is
„SVARTA“ SÉRSVEITIN 373
Drápu fyrir slysni
AC-130-sprengjuflugvél
í árásarham. REUTERS
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Skotinn fyrir mistök Leynilegir
sérsveitarmenn CIA skutu heyrnarlausan
mann í bakið þegar hann heyrði ekki í
þeim. Myndin tengist efni fréttarinnar
ekki beint. REUTERS