Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Síða 22
22 ÚTTEKT 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
MATUR FYRIR HEILANN
Með því að velja vissar fæðutegundir getum við haft áhrif heilastarfsemi okkar. Það hljómar kannski ótrúlega
en rannsóknir sýna fram á að ákveðnar fæðutegundir hafa góð áhrif á einbeitingu, minnið, athyglisgáfu og
aðra heilastarfsemi. Það er ekki þar með sagt að þessi fæða komi í veg fyrir hrörnun á heilastarfsemi okkar en
hún getur hjálpað til við að halda minninu góðu og aukið skerpu eða einbeitingu þegar þess er þörf.
KOFFÍN VEKUR ÞIG
Það er ekki til nein töfralausn til að hækka greindarvísitöluna eða gera þig gáfaðri. Viss náttúruleg efni
eins og til dæmis koffín geta þó gefið aukna orku og aukið einbeitingu. Koffín fæst úr kaffi, súkkulaði,
orkudrykkjum og sumum lyfjum. Koffín vekur mann óumdeilanlega en áhrifin duga skammt. Hafa ber
þó í huga að í sambandi við koffín gildir það að meira er minna. Of mikið koffín gerir mann eirðarlausan
og getur valdið vanlíðan.
FISKUR
Fiskur er svo sannarlega matur sem er góður fyrir heilann. Fiskur er einn af þeim prótíngjöfum sem eru
frábærir fyrir heilann. Hann er ríkur af ómega-3 fitusýrum sem hafa góð áhrif á heilastarfsemina. Rann-
sóknir hafa sýnt fram á að fiskneysla minnkar hættu á hjartaáföllum, andlegri hrörnun og leikur einnig
stórt hlutverk í að bæta minni. Sérstaklega eftir að við eldumst. Til að viðhalda góðri heilastarfsemi og
og heilbrigðu hjarta er gott að borða fisk allavega tvisvar í viku.
SYKUR
Sykur er eldsneyti heilans. Ekki þó hvítur sykur heldur sykrur sem
líkaminn vinnur úr sykrinum og kolvetnunum sem þú borðar. Það er
ástæðan fyrir því að ef þú drekkur eitthvað sætt bætir það minnið í
smástund, hugsun og geðheilsu. Ef þú drekkur of mikið getur það
aftur á móti haft öfug áhrif á minnið. Farðu varlega í sykurinn, það
hefur góð áhrif á minnið.
PRÓTÍN
Vísindamenn hafa velt því fyrir sér hvort samband sé á milli prótíns
og heilastarfsemi. Eitt af þeim góðu áhrifum sem prótín hefur er að
það lætur þér líða vel lengur en kolvetni og fita. Matur sem er ríkur
af fitulitlum prótínum er góður fyrir þá sem eru að reyna að grenna
sig og almennt fyrir heilsuna. Það er samt erfitt að sýna fram á bein
tengsl á milli öflugrar heilastarfsemi og neyslu á prótíni.