Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Síða 24
Hommi í 3. deildinni Steindór Sigurjónsson,
leikmaður 3. deildar liðsins Sindra frá Höfn í Hornafirði, er líklega
eini opinberlega samkynhneigði leikmaðurinn sem spilar á
Íslandi. Steindór kom út úr skápnum í fyrra en hann var í viðtali
á vefmiðlinum fótbolti.net. „Það er bara mjög venjulegt að vera
samkynheigður í fótbolta, þetta breyttist alla veganna ekkert hjá
mér eftir að ég kom út,“ segir hann og bætir við í skemmtilegu
viðtali að sturtan eftir leiki skapi engin vandamál. „Ég held að
þeim finnist ekkert að því, ég fer allavega aldrei einn í sturtu.“
leiknir Heimsækir víkina Fjór-
tánda umferðin í 1. deild karla fer fram í dag, miðvikudag,
en það er sú síðasta fyrir verslunarmannahelgi. Stórleikur
umferðarinnar er í Breiðholtinu þar sem topplið Víkinga
sækir heim Leikni sem er í þriðja sæti deildarinnar. Takist
Víkingum ekki að sigra geta Þórsarar verið á toppnum yfir
fríhelgi verslunarmanna en þeir eiga leik gegn Njarðvík
á Njarðtaksvellinum. Aðrir leikir í þessari 14. umferð eru
KA-ÍR, Fjölnir-ÍA, HK-Grótta og Fjarðabyggð-Þróttur.
molar
Geta City verður
að koma í ljós
n Paul Scholes, miðjumaður
Manchester United til 16 ára, telur
að Englandsmeistarar Chelsea verði
helstu keppi-
nautar United
um Englands-
meistaratitilinn
í ár. Hann veit þó
vel af hættunni
hinum megin í
borginni en þar
hefur Manchester
City verið að
sanka að sér leikmönnum. „Við
þurfum að bíða og sjá hvað gerist
hjá City, það hefur keypt svo marga
leikmenn. Hvort liðinu takist að spila
saman verður bara að koma í ljós. Það
er samt frábært fyrir borgina að vera
með tvö topplið. Það er smá breyting
frá því City var í 1. deildinni hérna
fyrir 10 árum,“ segir Paul Scholes.
viss um að tvíeykið
verði áfram
n Jamie Carragher, miðvörður Liver-
pool, er handviss um að tveir bestu
leikmenn liðsins, Fernando Torres
og Steven Gerr-
ard, verði báðir
á leikskýrslu í
fyrsta leik liðsins
þegar deildin
hefst 14. ágúst.
Mikið hefur verið
reynt að tala þá
frá félaginu en
Chelsea er afar
áhugasamt um Torres á meðan Real
Madrid og Inter renna hýru auga til
Stevens Gerrard. „Það hefur verið
mikil neikvæðni í kringum þetta síð-
ustu vikurnar. Ég er samt viss um að
Stevie og Fernando verði Liverpool-
leikmenn á komandi tímabili. Ef svo
verður þurfum við að koma okkur
rakleiðis aftur í Meistaradeildina,“
segir Carragher.
Ben arfa undir
smásjá newCastle
n Newcastle, sem komið er aftur
upp í ensku úrvalsdeildina, er með
Frakkann unga Hatem Ben Arfa á
teikniborðinu
ef marka má
umboðsmann
hans. „Newcastle
hefur áhuga á
honum en það er
ekki eina liðið.
Það eru einnig
lið frá Þýskalandi
og önnur frönsk
lið að reyna kaupa Ben Arfa,“
segir umboðsmaðurinn en Ben Arfa
leikur með Marseille í Frakklandi.
„Við höfum hitt forsvarsmenn AC
Milan fjórum sinnum og þeir segja
mér að þeir hafi áhuga á Ben Arfa.
Þeir geti hins vegar ekki keypt eins
og staðan er akkurat núna,“ segir
umboðsmaður Hatem Ben Arfa.
áfram hjá sevilla
n Brasilíski framherjinn Luis Fabiano
ætlar sér að vera áfram hjá spænska
úrvalsdeildarliðinu Sevilla. Hann
hefur verið þrálát-
lega orðaður við
brottför frá liðinu,
helst til Totten-
ham, sem hann
hefur bæði talað
vel og illa um á
síðastliðnum
vikum. „Á heims-
meistaramótinu
vissi ég alveg hvað var í gangi og þess
vegna var ég rólegur. Ég vissi alltaf að
ég yrði áfram hjá Sevilla, sama hvað
stóð um mig í blöðunum. Það var
mikið skrifað en ekkert af því var satt,“
segir Fabiano sem hefur einnig verið
orðaður við Manchester United.
24 sport umSjóN: TómAS þór þórðArSon tomas@dv.is 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Enn á eftir að skera úr um hvort Ferr-
ari-mönnum verði refsað meira fyr-
ir atvikið á Hockenheim-brautinni
um helgina þegar Felipe Massa fékk
óbein skilaboð um að hleypa Fern-
ando Alonso fram úr þegar 20 hring-
ir voru eftir. Vildu Ferrari-menn að
Alonso hefði sigur því hann á mun
meiri möguleika á að komast ofar í
stigakeppni ökumanna.
Skilaboðin þóttu þó nokkuð
skýr og var Ferrari-liðið sektað um
100.000 dollara og þar með fundið
sekt af dómurum keppninnar. Hvort
stigin verða tekin af Ferrari á síðar
eftir að koma í ljós.
Norður-Írinn Eddie Irvine ók
í fjögur ár fyrir Ferrari og var þar
ökumaður númer tvö á eftir sjö-
falda heimsmeistaranum Michael
Schumacher. „Hvergi stóð í samn-
ingnum mínum að ég væri núm-
er tvö eða að ég þyrfti nokkurn tíma
að hleypa Schumacher fram úr. Það
stóð bara að ég þyrfti að fara eftir
öllum liðskipunum, alltaf. Massa er
augljóslega með samningsákvæði
þar sem segir að hann þurfi að gera
það sama,“ segir Irvine sem sjálfur
þurfti að hleypa Schumacher fram
úr nokkrum sinnum.
„Massa samþykkti þetta án efa í
einrúmi, hann veit það, vélstjórinn
hans veit það og liðið veit það, hvers
vegna er þá mál gert úr þessu? Ef þú
samþykkir ekki þennan skilmála þá
ekur þú ekki fyrir Ferrari, svo einfalt
er það,“ segir Irvine sem vill þó ekki
sjá svona skilaboð berast til öku-
manna.
„Áhorfendurnir er það sem allt
snýst um. Þeir þurfa að vita að öku-
mennirnir eru að gefa allt sitt og hafa
leyfi til þess að keppa hvor gegn hin-
um alla keppnina. Skilaboð til öku-
manna eiga að vera bönnuð því í
Hockenheim voru áhorfendur rænd-
ir heiðarlegri keppni á milli Massa og
Alonso,“ segir Eddie Irvine.
tomas@dv.is
Eddie Irvine vék fyrir Schumacher:
reglurnar skýrar hjá ferrari
massa með Alonso á
hælunum Hann þurfti síðar
að víkja fyrir Spánverjanum.
„Spennan er orðin gríðarlega mik-
il hérna og varla verið talað um ann-
að síðustu tíu daga,“ segir Jónas
Gestur Jónasson, formaður knatt-
spyrnudeildar Víkings úr Ólafsvík,
en Víkingar eiga í kvöld stærsta leik í
sögu félagsins þegar liðið mætir Ís-
landsmeisturum FH í undanúrslitum
bikarsins. Aldrei áður hefur annarr-
ar deildar lið komist svo langt í bikar-
keppninni. „Þetta er lang stærsti leik-
urinn, ég held að það sé ekki neinum
blöðum um það að fletta,“ segir Jónas
Gestur. Markvörður Víkinga, Einar
Hjörleifsson, var hetja liðsins í und-
anúrslitum þegar hann varði tvær síð-
ustu spyrnur Stjörnunnar. „Við vitum
að það er ekkert ómögulegt í þessu,“
segir Einar. Leikurinn fer fram á
Kaplakrikavelli í kvöld og hefst klukk-
an 19.15.
mikil vinna að halda
mönnum á jörðinni
Þegar svona ævintýr eru í gangi er oft
erfitt að halda mönnum við efnið í
deildinni en svo hefur ekki verið hjá
Ólsurum. „Það hefur verið mikil vinna
að halda strákunum niðri en deild-
in hefur gengið vel. Það er aðal atrið-
ið hjá okkur, að vinna deildina,“ segir
Jónas Gestur en í 2. deildinni fer ekki
á milli mála að Víkingar eru með lang-
besta liðið, enda taplausir og á hrað-
leið upp í 1. deildina þar sem þeir voru
í ein fimm ár áður en þeir féllu í fyrra.
„Við eigum von á um þúsund
stuðningsmönnum. Það búa rétt rúm-
lega þúsund í Ólafsvík og á öllu svæð-
inu eru um 4.000 manns. Svo er mikið
um brottflutta Ólsara á höfuðborgar-
svæðinu þannig að mér sýnist að það
sé alveg gríðarleg stemning fyrir leikn-
um. Við vitum samt alveg að FH er
gríðarlega gott lið. Við fórum á leik-
inn gegn Haukum og það fer ekki á
milli mála að þeir eru ótrúlega öflugir.
Fyrirfram er náttúrulega talið að þetta
eigi að vera FH sigur en við munum
nú búa til flottan leik úr þessu. Aðal-
atriðið er bara að strákarnir skemmti
sér,“ segir Jónas Gestur.
Ásókn í ungu strákana
„Liðið í ár er það besta sem Vík-
ingur hefur átt,“ segir Jónas Gestur.
„Við vorum í fimm ár í fyrstu deild-
inni, oft í neðri hlutanum að bjarga
okkur á síðustu stundu. Kannski var
það bara gott fyrir okkur að falla en
við misstum síðan 14 menn frá síð-
asta ári. Við settumst niður strax eft-
ir mótið í fyrra og hugsuðum okkar
mál. Það var annaðhvort að gefast
upp eða blása bara til sóknar sem við
ákváðum svo að gera. Við náðum í
Ejub aftur og fórum í það að reyna að
fylla liðið, bæði með íslenskum leik-
mönnum og erlendum.“
Mikið er um erlenda leikmenn í
liði Víkings en þeir eru allir á viðráð-
anlegum launum segir Jónas. „Það
kostar auðvitað að hafa þá en þetta
er mjög viðráðanlegur kostnaður.
Þeir eru allir að vinna þannig að þetta
eru engar stjarnfræðilegar tölur,“ seg-
ir Jónas en Víkingur á líka þrjá unga
leikmenn, Brynjar Gauta Guðjóns-
son, Brynjar Kristmundsson og Þor-
stein Má Ragnarsson, sem mörg lið
vilja fá til sín og hafa sum haft sam-
band við þá beint sem er ólöglegt.
„Það hefur verið mikil ásókn í
ungu strákana. Það er að vísu hætt að
hringja í þá, það er bara hringt í mig.
Þeir munu klára tímabilið hér og svo
setjumst við niður eftir tímabilið og
ákveðum framtíð þeirra. Þeir eru all-
ir á samningi til ársins 2011 og eru
ákveðnir í að fara ekki nema félagið fái
eitthvað fyrir þá,“ segir Jónas Gestur.
Taplausir í bikarnum gegn FH
Víkingur úr Ólafsvík og FH hafa mæst
einu sinni í bikarnum, árið 1985, og
þá unnu Ólsarar. Hafa þeir því aldrei
tapað fyrir FH í bikarkeppninni. Leik-
urinn sem um ræðir fór fram árið
1985 á malarvellinum í Ólafsvík en á
þeim tímapunkti voru Ólsarar í efsta
sæti suðvesturriðils gömlu 3. deildar-
innar og FH var í efsta sæti 2. deildar.
Víkingar unnu leikinn, 2-1, þar sem
íþróttafréttamaðurinn og fyrrverandi
markamaskínan Hörður Magnús-
son kom FH yfir snemma leiks. Pétur
Finnsson og Magnús Teitsson skor-
uðu síðan hvor sitt markið og tryggðu
Víkingum áframhaldandi þátttöku í
bikarnum.
Stórleikur fyrir félagið
Einar Hjörleifsson, vítabaninn í mark-
inu hjá Víkingi, var pollrólegur þeg-
ar DV hafði samband við hann í gær.
Aðspurður hvort spennan væri að
gera út af við menn gat hann nú ekki
tekið undir það. „Nei, ég get nú ekki
sagt það. Ég er bara að þrífa bílinn,“
sagði hann og bað dóttur sína um að
sprauta ekki á bílinn á meðan hann
talaði í símann, það væri þó í lagi að
sprauta á stéttina.
„Þetta er auðvitað stórleikur fyr-
ir félagið, leikmenn, þjálfara og bæj-
arfélagið. Við mætum samt bara og
spilum okkar leik, það gerum við alltaf
sama hvort mótherjinn er BÍ, Stjarnan
„Styttra Síðan FH tapaði leik“
Spútniklið VISA-bikarsins, Víkingur úr
Ólafsvík, leikur stærsta leik í sögu fé-
lagsins í kvöld þegar liðið mætir Íslands-
meisturum FH í undanúrslitum bikar-
keppninnar. Víkingar hafa ekki tapað
mótsleik á árinu, hvorki í deildarbikar
né Íslandsmóti. Spennan er gífurleg segir
formaðurinn, Jónas Gestur Jónasson,
sem hefur haldið utan um metnaðarfullt
starf í Ólafsvík í ellefu ár. Víkingar hafa
aldrei tapað bikarleik gegn FH.
TómAS þór þórðArSon
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is VíTABAnI Einar Hjörleifsson var hetja ólsara í átta liða úrslitum gegn Stjörnunni.
KÁTIr PILTAr ólsarar hafa ekki tapað
mótsleik á árinu.