Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Side 26
Mikil eftirspurn er eftir júlíein-
taki búlgarska Playboy, að sögn
starfsmanns Eymundsson. Það
er íslenska fyrirsætan Ásdís
Rán Gunnarsdóttir sem prýð-
ir forsíðu blaðsins, og hægt er
að tryggja sér eintak í forsölu á
vefnum eymundsson.is. Sam-
kvæmt starfsmanni verslun-
arinnar eru að minnsta kosti
nokkur eintök pöntuð daglega,
en blaðið kemur til landsins
öðru hvoru megin við mánaða-
mót. Mun það vera í fyrsta skipti
sem Ásdís Rán situr fyrir nakin,
en samkvæmt Facebook-síðu
hennar komu myndirnar afskap-
lega vel út.
Söngkonan vinsæla Emilíana Torr-
ini á von á barni og birtist skemmti-
legt viðtal við hana á franskri aðdá-
endasíðu á dögunum þar sem hún
uppljóstraði skemmtilegum atvik-
um tengdum meðgöngunni en hún
er tiltölulega nýkomin úr tónleika-
ferðalagi. Aðspurð um einhver fynd-
in atvik svaraði Emilíana: „Ég var
veik og mjög mjög þreytt undir lok-
in, og datt aldrei í hug að ég gæti ver-
ið ófrísk. Ég get ekki horft á peysuna
sem ég notaði á þessum tíma án þess
að verða óglatt. Ó og kaldar soba
núðlur í kvöldmat var það versta í
heimi. Þvílíkt drama sem fór í gegn-
um hausinn á mér, mér flaug í hug
að ég væri með orma, eða eitthvað
væri að mér, eða ég væri að deyja,
allt nema að ég gæti verið ólétt.“
Emilíana segir einnig í viðtalinu
að óléttan hafi letjandi áhrif á sköp-
unargáfuna öfugt við það sem henni
hafi verið sagt.
„Mér var sagt að á þessum tíma
yrði ég hvað mest skapandi, að lögin
myndu bara renna frá mér, ég hefði
enga stjórn á því. Svo leið og beið
en það eina sem gerðist var að ég
varð agndofa yfir sjálfri mér. Ég er í
mínum eigin vaxandi barnaalheim.
Þetta gerir mig algerlega orðlausa,
ég er eins og tré í sumargolunni og
ekkert í gangi! Svo þið getið ímynd-
að ykkur, ekki mörg lög hafa orðið
til, en þau fáu sem hafa fæðst er ég
mjög ánægð með. Þau koma mér á
óvart, ekki lögin sem ég átti von á að
semja ófrísk.“
ÓLÉTT Á TÓNLEIKAFERÐALAGI
EFTIRSPURN
EFTIR ÁSDÍSI
SÖNGKONAN EMILÍANA TORRINI:
Tökur á sjónvarpsþáttunum
Mannasiðum munu hefjast á
Þjóðhátíð. Um er að ræða þætti
sem byggja á samnefndri bók
Egils Gillzeneggers Einarsson-
ar sem kom út um síðustu jól.
Í bókinni kennir Egill íslensk-
um karlmönnum mannasiði og
hefur hann sjálfur líkt bókinni
við Alþýðubók Halldórs Laxness,
sem kom út fyrir um 80 árum.
Það er Hannes Þór Halldórs-
son sem leikstýrir þáttunum, en
hann gerði einnig hina vinsælu
þætti Atvinnumennirnir okkar.
Þá er ofurpródúsentinn Kristófer
Dignus einnig með í för. Þættirn-
ir verða sýndir á Stöð 2 í janúar.
MANNASIÐIR
Á ÞJÓÐHÁTÍÐ
26 FÓLKIÐ 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
ELÍAS HELGI KOFOED-HANSEN:
Á TRÚNÓ MEÐ
AXL ROSE
„Ég sagði mömmu að ég væri að fara
í skólaferðalag, en fór á tvenna Guns
N‘ Roses tónleika í Kanada staðinn,“
segir Elías Helgi Kofoed-Hansen um
upphafið á stórmerkilegu ævintýri
sínu í janúar á þessu ári. En ævintýr-
ið endaði á þann veg að aðstoðar-
menn söngvarans Axl Rose urðu að
biðja Elías um að yfirgefa partí, svo
hægt væri að koma söngvaranum í
bólið. Elías segir ferðina hafa borið
skjótt að. Hann var auralaus en fékk
laun fyrir að leika í kvikmyndinni
Óróa og pantaði sér í kjölfarið flug,
lestar- og tónleikamiða, en ljóst var
að gisting yrði að mæta afgangi ef
endar ættu að ná saman. „Ég fór því
á aðdáendasíðu Guns N‘ Roses og
auglýsti eftir garði til að fá að tjalda í
en það var bara hlegið að mér,“ segir
Elías. Þremur dögum síðar fær hann
tölvupóst þar sem hann var beðinn
um símanúmerið sitt og í kjölfarið
hringir Ron „Bumblefoot“ Thal, gít-
arleikari Guns N‘ Roses í hann. „Ég
þekkti rödd hans strax, við spjölluð-
um heillengi og hann sagði mér að
það væri ekki skynsamlegt að tjalda
í Kanada í janúar, það væri svo
ofsalega kalt þar. Svo lét hann
mig fá e-mailið sitt og
bað mig um að senda
sér upplýsingar um
hvort ég væri búinn að
redda mér gistingu.“
Elías ákvað að
skella sér út upp
á von og óvon
um gisting-
una, en áður
en hann fór
lét Bumble-
foot hann vita
að tveir bak-
sviðspassar
myndu bíða
hans á seinni
tónleikana.
Ævintýri
Elíasar er svo
stórbrotið að
erfitt er að koma
því fyrir í plássi,
eins og þessi
grein þekur, en
til að gera langa
sögu stutta end-
aði hann í sér-
stöku eftirpartíi
eftir tónleikana,
þar sem kanadískar stórstjörnur og
fyrirsætur voru á hverju strái. Eftir
að Elías hafði vingast við Sebastian
Bach, fyrrverandi söngvara rokk-
sveitarinnar Skid Row, tók Sebastian
hann á svæðið þar sem Axl slakaði
á ásamt félögum sínum. „Ég settist
hjá honum og vildi taka skot með
honum, en hann tók aldrei skotið.
Svo þegar ég var að ganga í burtu,
þá heyrðist kallað „Hey Eli, this is
for you“, og svo drakk hann staupið.“
Þá var eins og losnað hefði um eitt-
hvað hjá rokksöngvaranum fræga
og eftir skamma stund var hann
farinn að heimta að „The Ice-
landic dude“ settist hjá hon-
um. „Bumblefoot sagði við
mig að ég hefði komið hon-
um á bragðið, það það væri
stórhættulegt að gefa honum
fyrsta staupið. En hann var nú
líklega að grínast.“ Upphaflega
sátu þeir saman fjórir; Axl, El-
ías, Sebastian og gæi að nafni
Jannyck, en fljótlega vildi Axl fá
Elías út af fyrir sig. „Hann sendi
alla sem voru í kringum okkur
í burtu og öryggisverðirnir
stóðu í kringum okkur
og pössuðu að enginn
væri að trufla okkur.
Svo horfði hann djúpt
í augun á mér og sagði
mér frá æsku sinni og
erfiðum hlutum í
lífi sínu. Mað-
ur sogaðist
alveg inn
í heim
hans,“
segir
Elías. Þegar þeir
höfðu spjallað
drykklanga stund,
komu aðstoðar-
menn Axl og vildu
tala við Elías. „Þeir
sögðu mér að ég yrði
að fara, því hann myndi
ekki hætta að tala fyrr
en hann hefði sagt mér
frá öllu lífi sínu. Hann
átti að halda stóra tón-
leika daginn eftir og
þeir máttu ekki við því
að hafa hann þunnan
og illa sofinn,“ segir Elías
og bætir við að Axl hafi
mætt þremur tímum of
seint á tónleik-
ana daginn eft-
ir. Nánar útlist-
un á sögunni má
finna á vef RÚV,
þar sem hann var
í viðtali við Andra
Frey Viðarsson.
dori@dv.is
Hinn 19 ára gamli Elías Helgi Kofoed-Hansen skellti
sér á tvo Guns N‘ Roses tónleika í Kanada í janúar.
Þar lenti hann í partíi með hljómsveitinni og end-
aði á nánu spjalli við rokksöngvarann Axl Rose.
Á meðan hélt mamma hans að hann væri í skóla-
ferðalagi.
Emilíana Torrini
Datt ekki í hug að
hún væri ófrísk.
ELÍAS HELGI KOFOED-
HANSEN Hlustaði á Axl
Rose tala um æsku sína.
MYND HÖRÐUR SVEINSSON
AXL ROSE
Söngvari Guns
N‘ Roses.