Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Page 2
2 | Fréttir 29. desember 2010 Áramótablað
Hetjuleg björgun
n „Ég er mjög ánægður með að fólki finnist
þetta um mig og þetta eflir mann í starfinu,“
segir Þórður Guðnason sem var
kjörinn hetja ársins 2010 af les-
endum DV. Þórður fékk afger-
andi kosningu en tekur þó fram
að þetta hafi verið samstarf allra
þeirra sem komu að björguninni og
að hann hafi verið einn hlekkur í langri keðju.
Þórður og félagar hans í Björgunarfélagi
Akraness unnu gífurlegt þrekvirki þegar þeir
björguðu sjö ára dreng úr sprungu á Langjökli
í fyrravetur. Drengurinn hafði fallið ofan í 30
metra djúpa sprungu ásamt móður sinni,
sem lést í slysinu. Liðsmenn Björgunarfélags Akraness voru kallaðir út en þegar
komið var á jökulinn var sú ákvörðun tekin að Þórður skyldi látinn síga niður
í sprunguna til mæðginanna. Í um það bil klukkutíma hékk hann á hvolfi við
afar erfiðar aðstæður og á tímabili átti hann erfitt með öndun þar sem sprung-
an þrengdi að brjóstkassa hans. Þurfti þá að hífa hann ofar áður en hann fór
aftur niður. Í þriðju tilraun náði hann að koma línu um fót drengsins og bjarg-
aði honum á ótrúlegan hátt.
Búinn að missa höllina
n Skilanefnd Landsbankans hefur leyst til
sín rúmlega 400 fermetra einbýlishús Fjár-
festingafélagsins Gaums í Svalbarðsstrand-
arhreppi á Norðurlandi. Jóhannes Jónsson,
kenndur við Bónus, bjó í húsinu
þar til nýlega og var lögheim-
ili hans skráð þar. Gamli Lands-
bankinn átti tæplega 400 milljóna
króna veð í húsinu. Jóhannes býr
ekki lengur í húsinu. Samkvæmt
þjóðskrá er lögheimili hans nú í Fagraþingi í
Kópavogi.
Gaumur er fjárfestingafélag í eigu Jóhannesar
og barna hans, Jóns Ásgeirs Jóhanessonar og
Kristínar Jóhannesdóttur. Félagið hélt meðal
annars utan um eignarhlut þeirra í Baugi á
sínum tíma. Gaumur er tæknilega gjaldþrota
í dag og skilur eftir sig skuldir upp á tugi milljarða króna.
Fyrr á árinu var greint frá því að Arion banki hefði gert kyrrstöðusamning við
Gaum vegna skuldsetningar félagsins sem felur það í sér að hvorki verður
gengið að eignum félagsins né verður það sett í þrot meðan á kyrrstöðusamn-
ingnum stendur.
Góð laun hjá slökkviliðinu
n Jón Gnarr borgarstjóri fær 106 þúsund krón-
ur ofan á föst mánaðarlaun sín fyrir stjórn-
arformennsku í slökkviliðinu á höfuðborgar-
svæðinu. Stjórnin á að funda að
jafnaði einu sinni í mánuði. Auk
Jóns eiga sæti í stjórninni bæjar-
stjórar allra sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu. Fyrir stjórnarsetu
sína fá þeir 70.824 krónur á mán-
uði. Jón fær hins vegar 50 prósenta álag ofan á
þau laun, á þeim forsendum að meira vinnu-
álag sé á honum en öðrum stjórnarmönnum.
Kostnaður slökkviliðsins vegna stjórnarlauna
borgarstjóra og bæjarstjóra á höfuðborgar-
svæðinu er því rúmlega 6,3 milljónir króna
á ári. Stjórnarlaunin leggjast sem fyrr segir
ofan á ofan á föst laun borgar- og bæjarstjóra
sem eru að jafnaði í kringum milljón krónur á mánuði. Jón Viðar Matthíasson
slökkviliðsstjóri segir vinnuálagið hjá stjórnarmönnum mjög misjafnt.
2
3
1
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Þórður Guðnason
bjargaði lífi sjö ára drengs:
HETJA
ÁRSINS
27.–28. desember 2010 149. tbl. 100. árg. leiðb. verð 395 kr. MánudaGur oG ÞriðjudaGur
n Eins og fall
fram af tíu
hæða blokk
n „Því neðar sem
ég fór var minna
pláss til að anda“
Hetja ársins 22–23
Fleiri íslenskar hetjur
Ásmundur Þór Krist-
mundsson „einstakt að
bjarga mannslífum“
sigrún Pálína
Ingvarsdóttir
Jóhannes á fóðurbílnum Íslenska alþjóðasveitin
ÓTRúlEg bJöRguN dJúpT í lANgJöklI
m
Y
N
d
r
Ó
b
er
T
r
eY
N
Is
sO
N
Fréttir 2–3
Jói í Bónus
missir húsið
Neytendur 14–15
úTSöluR SkEllA Á
n 70% lækkun n Tölvur á 50 þúsund n skiptið jólagjöfunum strax
JÓN TEkuR
100 ÞúSuNd
í lAuN FRÁ
SlökkVIlIÐINu
n einn fundur á mánuði Fréttir 6
Fréttir 8
Fólkið 26
sögur af geimverum:
Eini BÆrinn
sEM LiFir aF
raGnarÖK
n bæjarstjóri vill fá herinn
Erlent 16
bústaðahverfi:
Ólafur ragnar:
Fréttir 4
ráðherra-
sonur skilar
styrk upp
á milljón
Keypti gjöf fyrir Dorrit
í Fríðu frænku
NÁgRANNI
gRÆTuR
EFTIR
SkOTÁRÁS
Heitustu bitarnir
í boltanum
Sport 25
6 | Fréttir
27. desember 2010 Mánudagur
Íslenskur starfsmaður UPS í Danmörku tók pakkana heim í hús:
Bjargaði jólunum
Jón Gnarr borgarstjóri fær 106 þús-
und krónur ofan á föst mánaðar-
laun sín fyrir stjórnarformennsku í
slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Stjórnin á að funda að jafnaði einu
sinni í mánuði. Auk Jóns eiga sæti í
stjórninni bæjarstjórar allra sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu. Fyr-
ir stjórnarsetu sína fá þeir 70.824
krónur á mánuði. Jón fær hins veg-
ar 50 prósent álag ofan á þau laun,
á þeim forsendum að meira vinnu-
álag sé á honum en öðrum stjórnar-
mönnum. Kostnaður slökkviliðsins
vegna stjórnarlauna borgarstjóra og
bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu
er því rúmlega 6,3 milljónir króna á
ári. Stjórnarlaunin leggjast sem fyrr
segir ofan á ofan á föst laun borgar-
og bæjarstjóra sem eru að jafnaði í
kringum milljón krónur á mánuði.
Jón Viðar Matthíasson slökkvi-
liðsstjóri segir vinnuálagið hjá
stjórnarmönnum mjög misjafnt.
Slökkviliðið vinni samkvæmt stofn-
samningi: „Þar stendur að stjórn-
in sé skipuð framkvæmdastjórum
sveitarfélaganna. Hún heldur fundi
svo oft sem þurfa þykir og að jafnaði
ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði.
Heimilt er að fella niður fundi um
sumarleyfistíma og einnig er heimilt
að halda aukafundi eftir þörfum, ef á
þarf að halda.“
Mjög oft rólegt
Aðspurður um hversu miklum tíma
hann telji að stjórnarmenn slökkvi-
liðsins verji í starfið á mánuði, svar-
ar Jón Viðar: „Það er mjög misjafnt.
Hver bæjarstjóri þarf að fylgja eft-
ir málum slökkviliðsins í sínu bæj-
arfélagi. Það fer náttúrulega tölu-
verður tími í það. Þetta hefur með
eldvarnareftirlit og forvarnarsvið
að gera ásamt tengingu við bygg-
ingafulltrúann. Síðan er mikil vinna
þegar verið er að fara yfir fjárhagsá-
ætlanir og hefur sú vinna aukist eft-
ir að meiri sparnaðarkröfur komu
inn. Ég á svo reglulega fundi með
þeim um málefni sveitarfélagsins
og slökkviliðsins. Það eru allnokkr-
ir klukkutímar í mánuði sem fara í
þetta.“
Samkvæmt heimildum DV er
starf stjórnarmanna slökkviliðs-
ins á höfuðborgarsvæðinu þó sjald-
an sérlega annasamt. Það gerist til
að mynda mjög reglulega að lang-
stærsta hlutverk formannsins sé að
mæta á mánaðarlegan stjórnarfund
slökkviliðsins. Fyrir þá vinnu fær
borgarstjóri 106 þúsund krónur ofan
á grunnlaun sín, sem eru um milljón
á mánuði. Hvernig sem á það er litið,
er ljóst að slökkviliðið greiðir pólit-
ískt kjörnum formanni sínum býsna
hátt tímakaup.
Oftast klukkutíma fundir
Samkvæmt fundargerðum stjórnar
slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu
hafa átta stjórnarfundir farið fram á
þessu ári. Fimm af þessum fundum
stóðu yfir í einn klukkutíma í senn.
Einn þeirra stóð yfir í einn og hálfan
klukkutíma, einn fundurinn stóð yfir
í tvo tíma og sá langlengsti stóð yfir í
fjóra klukkutíma. Sá fundur fór fram
19. nóvember þegar vinna við fjár-
hagsáætlun borgarinnar var á fullu.
Frá því Jón Gnarr tók við sem
borgarstjóri Reykjavíkur þann 15.
júní á þessu ári, hefur hann sótt tvo
stjórnarfundi hjá slökkviliðinu. Eng-
inn fundur var haldinn frá 21. maí og
fram til 17. september. Stjórnarfund-
irnir tveir sem Jón hefur sótt, hafa
samtals staðið yfir í fimm klukku-
tíma. Á því tímabili hefur hann þegið
um 636 þúsund krónur í laun.
Meiri undirbúningsvinna
embættismanna
Jón Viðar segir launin hafa staðið í
stað síðustu ár. „Þessi kjör hafa í raun
ekki hækkað í svolítinn tíma. Það var
farið í að samræma þessi kjör á milli
byggðarlaga og það eru nokkur ár
síðan það var gert. Síðan hafa menn
verið mjög hófstilltir í hækkunum á
þessum hlutum síðastliðin 4–5 ár. Ef
eitthvað er, þá hefur þetta dregist aft-
ur úr,“ segir hann.
Aðspurður um hvers vegna borg-
arstjóri þurfi að fá 50 prósent hærri
laun en til að mynda bæjarstjóri
Kópavogs, segir Jón Viðar: „Ástæðan
fyrir þessu álagi á formann er meiri
undirbúningsvinna hjá honum og
hans embættismönnum en hjá öðr-
um sveitarfélögum.“
106 ÞÚSUND
OFAN Á LAUN
n Slökkviliðið greiðir borgarstjóra 106 þúsund á mánuði n Átta stjórnarfundir á þessu ári n Oftast klukkutími í senn n Launakostnaður stjórnar 6,3 milljónir á ári
„Það eru allnokkr-
ir klukkutímar í
mánuði sem fara í þetta. Stjórnarfundir slökkviliðsins 2010
n 15. janúar 08.00–09.00
n 19. febrúar 08.00–09.00
n 19. mars 08.00–09.00
n 16. apríl 09.00–10.00
n 21. maí 09.00–09.30
n 17. september 08.00–10.00
n 22. október 08.00–10.00
n 19. nóvember - 09.00–13.00
Stjórnarfundir 2010
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Borgarstjóri Jón Gnarr fær 106 þúsund
krónur á mánuði fyrir að vera stjórnarfor-
maður slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Rólegt á bráðamóttökunni um jólin:
Jólamaturinn fór
vel í landann
Innbrot í verslun
„Þetta hefur nú allt verið með hefð-
bundnu sniði og á heildina litið ró-
legt hjá okkur. Það var frekar rólegt
hér á aðfangadag en örlítið meira
að gera á jóladag,“ segir Jón Kristj-
ánsson, læknir á bráðamóttökunni.
Hann segir að hátíðirnar hafi gengið
stórslysalaust fyrir sig og enginn hafi
leitað sér aðstoðar vegna ofáts.
Jólin eru hátíð ljóss og friðar en
einnig mikilla kræsinga og veislu-
halda. Það er misjafnt hvað er á
boðstólum landsmanna en yfirleitt
gerir fólk vel við sig í mat og drykk
yfir hátíðirnar og leyfir sér að borða
örlítið meira en venjulega. Það hafa
komið upp tilfelli undanfarin ár
þegar fólk hefur gert svo vel við sig
að það hefur þurft að leita til læknis
vegna ofáts.
Um þessi jól virðist fólk þó hafa
kunnað sér hófs þar sem engin slík
tilfelli hafa komið inn á borð bráða-
móttökunnar.
Karlmaður var handtekinn á sunnu-
dag eftir að hafa brotist inn í Hús
verslunarinnar, gegnt verslunar-
miðstöðinni Kringlunni. Maðurinn
braut rúðu og fór inn í verslun sem
er í húsinu. Lögreglan kom fljótt á
vettvang og klófesti manninn, sem
var færður í fangageymslur. Það var
fréttastofa Vísis sem greindi frá at-
burðinum en í samtali fréttastofunn-
ar við lögregluna kom fram að ekki
væri ljóst hvort einhverju hafi verið
stolið, en staðfest var að maðurinn
hefði rótað til og eitthvað skemmt
innandyra.
Herjólfur til
Þorlákshafnar
Breyta þurfti siglingum Herj-
ólfs um helgina vegna veðurs.
Seinni ferð ferjunnar á sunnu-
dag var felld niður vegna veðurs.
Þetta kom fram í tilkynningu frá
Eimskipum. Einnig var tilkynnt á
sama tíma að ferjan myndi sigla
til Þorlákshafnar næstu daga
samkvæmt áætlun þeirrar hafnar.
Arnar Thor Stefánsson, sem starf-
ar sem upplýsingatækniráðgjafi hjá
UPS í Danmörku, varð sannkölluð
jólahetja eftir að hafa komið jóla-
pökkum í réttar hendur og undir tré
fyrir jól.
Arnar, sem býr í Óðinsvéum og
vinnur öllu jafna við tækniráðgjöf,
var beðinn um að létta undir með
flutningamönnum hjá UPS vegna
mikilla anna. Hann var með um 35
pakka til að keyra út en vegna veðurs
og hálku á vegum gekk erfiðlega að
koma þeim á áfangastað.
„Ég tók pakka með mér heim
22. desember meðal annars af því
að það spáði leiðinlegu veðri dag-
inn eftir. Svo á Þorláksmessu reyndi
ég að keyra út pakka og tókst að af-
henda kannski sex til sjö eftir að hafa
fest mig að minnsta kosti fjórum
sinnum. Eftir að hafa verið í röð í um
klukkutíma í miðbæ Óðinsvéa seinni
partinn sá ég að ég kæmist ekki með
restina af pökkunum til baka til UPS
og ákvað því að taka þá með mér
heim. Ég hringdi síðan í alla viðtak-
endur sem ég gat náð í og bauð þeim
að koma bara heim til mín að ná í
pakkana. Annars hefðu pakkarnir
ekki komist til skila fyrr en eftir jól,“
segir Arnar og vill ekki gera mikið úr
atvikinu.
Einn þeirra sem sótti jólapakk-
ann sinn heim til Arnars gladdist svo
yfir þjónustunni að hann hafði sam-
band við danska sjónvarpsstöð sem
kom og fylgdist með Arnari afhenda
nokkra pakka. „Þetta vakti það mikla
lukku að mönnum fannst ég ætti að
komast í sjónvarpið. Mér persónu-
lega fannst bara svo mikilvægt að
koma sem flestum út fyrir jól og gleð-
in í augum þeirra sem fengu pakkana
voru næg verðlaun fyrir mig,“ seg-
ir Arnar og bætir við glaður í bragði
að hann hafi klætt sig í íslenska lopa-
peysu sérstaklega fyrir fréttina.
hanna@dv.is
Alvöru jólasveinn Arnar Thor bauð fólki
að koma heim til sín að sækja pakka sem
annars hefðu ekki borist fyrr en eftir jól.
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
Þetta helst Hitt málið
2 | Fréttir 27. desember 2010 M
ánudagur
Bankinn tók húsið
af Jóhannesi í Bónus
Skilanefnd Landsbankans hefur leyst
til sín rúmlega 400 fermetra einbýl-
ishús Fjárfestingafélagsins Gaums í
Svalbarðsstrandarhreppi á Norður-
landi. Jóhannes Jónsson, kenndur við
Bónus, bjó í húsinu þar til nýlega og
var lögheimili hans skráð þar. Gamli
Landsbankinn átti tæplega 400
milljóna króna veð í húsinu. Jó-
hannes býr ekki lengur í húsinu.
Samkvæmt þjóðskrá er lögheim-
ili hans nú í Fagraþingi í Kópa-
vogi.
Gaumur er fjárfestingafélag í
eigu Jóhannesar og barna hans,
Jóns Ásgeirs Jóhanessonar og
Kristínar Jóhannesdóttur. Félag-
ið hélt meðal annars utan um
eignarhlut þeirra í Baugi á sín-
um tíma. Gaumur er tæknilega
gjaldþrota í dag og skilur eftir
sig skuldir upp á tugi milljarða
króna.
Fyrr á árinu var greint frá því að Ar-
ion banki hefur gert kyrrstöðusamn-
ing við Gaum vegna skuldsetningar
félagsins sem felur það í sér að hvorki
verður gengið að eignum félagsins né
verður það sett í þrot meðan á kyrr-
stöðusamningnum stendur. Skila-
nefnd Landsbankans átti hins vegar
einu tvo veðréttina á húsinu og gat
því leyst það til sín óháð kyrrstöðu-
samningi Arion banka við félagið og
án þess að Arion banki fengi hlutdeild
í söluhagnaði hússins.
Eignaðist húsið 10. desember
Þegar flett er upp á húsinu í Fast-
eignaskrá Íslands kemur fram að
þann 10. desember í þessum mánuði
færðist eignarhaldið á því frá Gaumi
yfir til eignarhaldsfélagsins Mynnis
ehf. sem er í eigu Landsbankans. Til-
gangur félagsins er kaup og sala á eig-
in fasteignum samkvæmt vef Láns-
trausts. Veðbandayfirlit hússins hefur
ekkert breyst við eignatilfærsluna og
hvíla enn sömu skuldir á því og áður.
Landsbankinn hefur því ekki enn, að
minnsta kosti formlega séð, afskrifað
þær skuldir sem hvíla á húsinu.
Ætla má að Landsbankinn muni
selja húsið í kjölfarið en í ársreikningi
Mynnis fyrir árið 2009 kemur fram
að allar fasteignir félagsins hafi verið
í sölumeðferð á árinu. Þá má ætla að
áhvílandi skuldir á húsinu verði af-
skrifaðar.
Jóhannes vildi ekki tjá sig
DV hafði samband við Jóhannes þann
10. desember, sama dag og húsið var
fært formlega frá Gaumi og yfir til
Landsbankans. Jóhannes virðist þá
ekki hafa vitað að Landsbankinn væri
búinn að leysa húsið til sín. Jóhann-
es hefur, sem kunnugt er, þjáðst af
krabbameini og verið í erfiðri læknis-
meðferð við sjúkdómnum og nefndi
hann að hann hefði verið mikið frá
vegna þessa.
Orðrétt sagði Jóhannes: „Og hvað
með það, ég veit bara ekki til þess. Þú
verður bara að tala við einhvern hjá
Gaumi um það. Ég er búinn að vera
frá í veikindafríi. Þú verður að fá þess-
ar upplýsingar bara hjá bankanum.“
Hættu að greiða af skuldunum
Hvort svo sem Jóhannes vissi af því
á þessum tíma eða ekki að Lands-
bankinn hefði leyst húsið til sín þá
liggur alveg ljóst fyrir að Hrafna-
björg er í dag eign gamla Landsbank-
ans. Ljóst er því að Gaumur hefur
ekki getað haldið áfram að greiða af
þeim himinháu skuldum sem hvíla á
húsinu. Einnig er ljóst að skilanefnd
hefði að öllum líkindum frekar viljað
að Gaumur héldi áfram að greiða af
skuldunum sem hvíla á húsinu þar
sem veðsetningin sem hvílir á hús-
inu er miklu hærri en áætlað sölu-
verðmæti þess. Ætla má að ekki fá-
ist meira en 100 hundrað milljónir
króna fyrir húsið. Fasteignamat húss-
ins er til að mynda ekki nema rúmar
90 milljónir króna. Landsbankinn
mun því ekki fá kröfu sína greidda að
fullu og mun því væntanlega þurfa
að afskrifa hluta þeirra skulda sem
hvíla á Hrafnabjörgum þegar húsið
verður selt.
Greiddu af húsinu í september
Í september síðastliðinn lá ekki ann-
að fyrir en að Jóhannes myndi halda
áfram að búa í húsinu þar sem Gaum-
ur greiddi afborganir af 400 milljóna
skuldunum sem hvíla á því. Jóhannes
sagði þá að hann vissi ekki annað en
að hann myndi halda áfram að búa
í húsinu. „Það hefur ekki verið neitt
annað í spilunum,“ sagði Jóhann-
es þegar hann var spurður um hver
greiddi afborganir af húsinu.
Jón Ásgeir, sonur Jóhannesar, svar-
aði fyrirspurn DV á þá leið að lánar-
drottnar Gaums myndu fá greitt í
hverjum mánuði á meðan kyrrstöðu-
samningur félagsins stendur. „Bankar
n Skilanefnd Landsbankans hefur leyst til sín einbýlishús Fjárfestingafélagsins G
aums á Norðurlandi
n Landsbankinn átti 400 milljóna króna veð í húsinu n Jóhannes Í Bónus býr ekk
i lengur í húsinu
Ingi F. Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
400 milljóna skuldir Um 400 milljóna króna skuldir hvíla á húsinu Hrafnabjörgum sem
áður var í eigu Gaums. Jóhannes bjó í húsinu en Landsbankinn hefur nú leyst það til sín
.
Ekki góður kostur Betra hefði verið fyrir
skilanefndina ef Gaumur hefði haldið áfram
að greiða af skuldunum sem hvíla á húsinu
þar sem verðmæti hússins er miklu lægra
en skuldirnar. Hluti skilanefndarinnar sést
hér á kröfuhafafundi í ágúst.
„Gaumur. JJ greidir
rekstur og vidhald.
miðvikudagur og fimmtudagur 8. – 9. september 2010 dagblaðið vísir 103. tbl.100. árg. – verð kr. 395
séra vigfús Þór við lögregluna:
ÁStarÞrÍ-
HYrNiNgur
JuLiaNS
birgitta Jónsdóttir um kærurnar:
400 FERMETRA SVEITASETUR Í EYJAFIRÐI:
„ÉG HÉLT
ÞESSU
LEYNDU
FYRIR
ÖLLUM“ n ÞögNiN um biSkupSmÁLið
fréttir
JÓI
BÝR
FRÍTT
fréttir
n fYrirtÆkið gaumur bOrgar
af SvEitaSEtri JÓHaNNESar
n gaumur Í kYrrStöðu
HJÁ ariON baNka
n „Hvað kEmur Það Ykkur við?“
n gaumur SkuLdar HÁtt Í
400 miLLJÓNir Í HÚSiNu
fÆr LÍka frESt
HJÁ ariON baNka
n SEx miLLJarða SJÁLfSÁbYrgð frYSt fréttir
kampusch segir frá:
3.096
dagar
Í vÍti
HÆTTU-
LEGUSTU
LÖND Í HEIMI
fréttir
rafiðnaðarmenn:
ÞÚSUND
FLÚNIR
LAND
fréttir
ErLENt
ICEBANK
NEITAR AÐ
SKILA 200
MILLJÖRÐUM
fréttir
7. september 2010
Hundur lét vita af
innbrotsþjófum
Heimilishundur á Völlunum í Hafn-
arfirði vakti eigendur sína aðfaranótt
annars dags jóla þegar innbrots-
þjófar létu til skarar skríða. Að sögn
lögreglu var fjölskyldan í fasta svefni
þegar þjófarnir létu greipar sópa í
anddyri íbúðarinnar. Ekki er ljóst
hversu margir þjófarnir voru en
rándýr kuldaúlpa er meðal þess sem
stolið var. Þegar hundurinn fór að
láta ófriðlega forðuðu þjófarnir sér.
Tvö önnur innbrot í Vallarhverf-
inu voru tilkynnt lögreglu sömu
nótt. Í þau skipti voru húsráðendur
í jólaboðum þegar þjófarnir brutust
inn en þeir höfðu meðal annars á
brott með sér 50 tomma sjónvarp,
fartölvu og skartgripi.
Skjálftahrina
við Krýsuvík
Um fimmtán jarðskjálfar mældust
í Krýsuvík á jóladag og annan í jól-
um. Stærsti skjálftinn sem mældist
reyndist 3,2 á Richter en skjálfta-
hrinan hófst síðdegis á jóladag.
Töluverð skjálftavirkni hefur
verið í Krýsuvík undanfarna mán-
uði en samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands er það talið
tengjast breytingum í háhitakerf-
um neðanjarðar en ekki endilega
talið þýða að um kvikuinnskot sé að
ræða. Í síðustu viku var einnig tals-
verð skjálftavirkni við Grímsey og
stóð hún að mestu yfir frá föstudegi
til laugardags.
Pókerklúbbi lokað
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu lokaði þremur skemmtistöð-
um aðfaranótt 26. desember. Virtu
skemmtistaðirnir ekki reglur um
opnunartíma skemmtistaða. Í einu
tilviki var um að ræða pókerklúbb á
höfuðborgarsvæðinu þar sem gestir
gátu keypt sér áfengi. Leit lögregla
svo á að starfsemi staðarins um-
rædda nótt hafi verið ólögleg. Virtust
eigendur staðanna annaðhvort ekki
þekkja ákvæði laga um helgidagafrið
eða misskilja þau.
Nóttin var að öðru leyti róleg hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
enda tiltölulega fáir á ferli vegna
veðurs.
Messufall á
Norðurlandi
Helgihald féll víða niður á Norð-
ur- og Austurlandi á annan í
jólum vegna vonskuveðurs sem
gekk yfir landið. Þannig féll helgi-
hald í Hofteigskirkju á Jökul-
dal niður vegna veðurs. Þá féll
helgihald í Eyjafjarðarsveit niður
vegna mikillar hálku og hvass-
viðris. Hátíðamessa sem fara
átti fram í Hjaltastaðarkirkju var
frestað til 2. janúar.
Víða var vonskuveður á
sunnudag en það var einna verst
á Austurlandi þar sem vindhraði
fór upp í 40 metra á sekúndu.
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækið
• Eyðir frjókornum og svifryki
• Vinnur gegn myglusveppi og ólykt
• Eyðir bakteríum og gæludýraflösu
• Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi
Hæð aðeins 27 cm
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Hlauparinn Björn Margeirsson,
sem sigraði í Reykjavíkurmaraþon-
inu í sumar, er hættur að keppa fyr-
ir frjálsíþróttadeild FH vegna þess að
Kristján Arason starfar fyrir hand-
knattleiksdeild félagsins. Þetta segir
Björn í samtali við DV. Björn er fyrsti
Íslendingurinn sem sigrar í Reykja-
víkurmaraþoninu frá árinu 1984 en
hann hljóp kílómetrana 42 á tveimur
klukkustundum og 33 mínútum.
Kristján var starfsmaður Kaup-
þings fyrir hrunið haustið 2008 og
fékk á annað þúsund milljónir lánað-
ar frá bankanum til að kaupa hluta-
bréf í honum. Lánin frá bankan-
um, sem voru kúlúlán, verða að öllu
óbreyttu afskrifuð þar sem Kristj-
án setti fjárfestinguna inn í einka-
hlutafélagið 7. hægri snemma árs
2008. Engar persónulegar ábyrgðir
voru fyrir láninu frá Kaupþingi eft-
ir að Kristján hafði sett það inn í 7.
hægri. Hann sleppur því með skrekk-
inn meðan margir aðrir starfsmenn
Kaupþings þurfa að greiða hluta af
lánunum til baka.
Kristján er jafnframt einn þekkt-
asti handknattleiksmaður landsins
og gerði garðinn frægan í þýsku úr-
valsdeildinni og með íslenska lands-
liðinu hér á árum áður. Hann var
ráðinn sem íþróttastjóri hjá hand-
knattleiksdeild FH í vor á þessu ári
og var síðar ráðinn þjálfari meistara-
flokks FH fyrir yfirstandandi keppn-
istímabil.
Eiga ekki að vinna hjá íþrótta-
félögum
Björn er ósáttur við að menn eins og
Kristján geti fengið vinnu hjá íþrótta-
félögum eins og FH og telur að þau
eigi ekki að ráða þá til sín. Hann
skrifaði bréf til stjórnar frjálsíþrótta-
deildar FH rétt fyrir jól þar sem hann
lýsti því yfir að hann væri hættur í
FH vegna óánægju sinnar með kúlu-
lánafortíð Kristjáns. „Ég lýsti því yfir
að meginástæðan þess að ég væri
hættur væri sú að íþróttafélög eins
og FH eigi bara að taka skýrari stöðu
gegn svona mönnum. Að þau eigi
einfaldlega ekki að fá svona menn í
vinnu hjá sér. Það eru margir sem eru
sammála mér trúi ég en ég veit ekki
hvort þeir hafa áhuga eða kjark til að
lýsa því yfir,“ segir Björn.
Í bréfinu til stjórnarinnar seg-
ir Björn meðal annars um þessa
ástæðu sína: „Nú er svo komið að
samviska mín býður mér ekki upp á
að vera kenndur við sama félag og
Kristján Arason og samviska manns
er eitthvað sem menn eiga að taka
mark á.“
FH alltaf FH
Björn segir að svörin sem hann fékk
frá stjórn frjálsíþróttadeildar FH hafi
verið á þá leið að hún gæti ekki haft
áhrif á eða tekið ákvarðanir fyrir
aðrar deildir félagsins. Hann segist
ekki vera alveg sáttur við þetta svar
frá stjórninni þar sem hann telji að
hugsa verði um hagsmuni FH sem
heildar en ekki bara að út frá hags-
munum einstakra deilda. Hann telur
að eðlilegt hefði verið að aðalstjórn
FH hefði tekið málið fyrir. Hann seg-
ist þó ekki hafa sent aðalstjórn fé-
lagsins bréf. „FH er alltaf FH hvort
svo sem þú spilar handbolta eða
stundar frjálsar. Fólk tengir alla liðs-
menn félagsins saman þó þeir stundi
ólíkar íþróttagreinar.“
Hlauparinn segist ekki hafa sett
fram neinar kröfur í bréfi sínu til
stjórnar frjálsíþróttadeildarinnar og
að hann skilji sáttur við félagið. „Við
skiljum í mjög góðu þó mér finnist
leiðinlegt að þurfa að kveðja klúbb-
inn svo snögglega.“
Telur Kristján sekan um siðferð-
isbrot
Þegar Björn er spurður um hvað
hann telji rangt við þátttöku Kristj-
áns í íslensku viðskiptalífi á síðustu
árum segir hann: „Hann setti fjár-
festingu sína í Kaupþingi inn í einka-
hlutafélag til að verða ekki ábyrgur
fyrir henni persónulega. Það er þessi
ehf.-væðing sem ég er að mótmæla;
að geta stolið peningum á þennan
hátt. Svona menn eiga bara einfald-
lega að borga sínar skuldir til baka.“
Hann segir að þó Kristján hafi
ekki gerst sekur um lögbrot þá hafi
hann gerst sekur um siðferðilega
ámælisverða hegðun. Hlaupar-
inn segir að inn í málið spili auð-
vitað að Kristján sé hetja í Hafnar-
firði. „Það vita það allir að Kristján
er hetja í Hafnarfirði en það truflar
mig að heilt bæjarfélag ætli að fyr-
irgefa honum það sem hann gerði
bara út af því. Þarna eru stórir fisk-
ar í lítilli tjörn, forsvarsmenn hand-
knattleiksdeildar FH, að ráðskast
með hagsmuni félagsins alls. Það á
ekkert að fyrirgefa Kristjáni siðferð-
isbrot sem venjulegt fólk yrði for-
dæmt fyrir.“
Björn segist í framtíðinni ætla
að keppa fyrir uppeldisfélag sitt,
Ungmennasamband Skagafjarðar
(UMSS), en hlauparinn er ættaður
að norðan. Hann segir að hann hafi
vissulega alltaf ætlað að enda feril
sinn með skagfirska félaginu en seg-
ir að koma Kristjáns til FH hafi hrað-
að þeirri ákvörðun sinni. „Ég er viss
um að mér mun líða betur þegar ég
verð kominn úr klúbbnum frekar en
að vera í honum.“
Hætti í FH út af
Kristjáni Ara
n Björn Margeirsson hlaupari hefur sagt skilið við FH út af Kristjáni
Arasyni n Sendi bréf til stjórnar frjálsíþróttadeildar FH
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Nú er svo komið
að samviska mín
býður mér ekki upp á að
vera kenndur við sama
félag og Kristján Arason
og samviska manns er
eitthvað sem menn eiga
að taka mark á.
Hætti vegna samvisku sinnar Björn Margeirsson
hlaupari segir í bréfi til frjálsíþróttadeildar FH að hann
hafi ákveðið að hætta í félaginu samvisku sinnar
vegna. Hann segist ekki hafa viljað vera kenndur við
sama íþróttafélag og Kristján Arason.