Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 10
10 | Fréttir 29. desember 2010 Áramótablað
Ólafur Ingi Jónsson forvörður bar
kennsl á falsað málverk sem var sagt
vera eftir myndlistarkonuna Nínu
Tryggvadóttur á uppboði Gallerís
Foldar þann 6. desember síðastlið-
inn. Myndin var fjarlægð af upp-
boðinu í kjölfarið á uppgötvun Ólafs
Inga. Verðmatið á myndinni var 1.400
til 1.600 þúsund krónur samkvæmt
heimasíðu Gallerís Foldar. Við númer
myndarinnar stendur: „Þetta verk var
fjarlægt úr uppboðsskrá.“
Ólafur segir aðspurður að ekki hafi
verið um að ræða nýja fölsun held-
ur mynd sem hafi verið fölsuð fyrir
nokkru síðan. Hann segir að mynd-
in sé ein af þeim sem tilheyra stóra
málverkafölsunarmálinu sem mik-
ið hefur verið rætt um í fjölmiðlum
undanfarinn áratug og sem fór fyrir
Hæstarétt fyrir um fimm árum. Ólaf-
ur segir að myndin sé ein af nokkur
hundruð fölsuðum málverkum, en
hann telur að allt að 900 myndir gætu
hafa verið falsaðar hér á landi í nafni
þjóðþekktra íslenskra listamanna.
Hluti af íslenskum listaverka-
heimi
„Ég sá um leið og ég skoðaði þessa
mynd á heimasíðu Gallerís Foldar að
hún var fölsuð og stoppaði því söluna
á henni. Það er fullt af svona verkum
úti um allan bæ. Ég hef ekki séð hana
áður en nú var hún að koma í endur-
sölu. Myndin sem var stoppuð núna
á uppboðinu er mynd úr gamla mál-
inu eins og alltaf má búast við að ger-
ist þegar mál eru í lausu lofti,“ segir
Ólafur.
Með síðustu setningunni á Ólaf-
ur við að ekki hafi fengist botn í stóra
málverkafölsunarmálið, þar sem Pét-
ur Þór Gunnarsson og Jónas Freydal
Þorsteinsson voru sýknaðir í Hæsta-
rétti fyrir málverkafalsanir. Hundruð
falsaðra málverka eru því enn í um-
ferð hér á landi ef marka má mat Ól-
afs. „Málverkafölsunarmálið er enn í
lausu lofti þar sem ekki fékkst dóms-
niðurstaða í það. Þetta er grauturinn
sem uppi er um þessar mundir þar
sem málið var ekki leitt til lykta fyrir
dómstólum og menn dæmdir. Svona
mál munu því verða hluti af íslensk-
um listaverkaheimi á meðan svo er.“
Fólkið vissi ekki betur
Ólafur segir að umrædd mynd sem
var sögð vera eftir Nínu hafi verið
keypt á uppboði í Gallerí Borg um
1995. Hann segist ekki hafa fundið
út nákvæmlega hvenær myndin var
seld en segir að það hafi líklega verið
áður en kærur komu fyrst fram í stóra
málverkafölsunarmálinu. Ólafur seg-
ir að fólkið sem hafi átt verkið hafi
verið algerlega grunlaust um að það
væri falsað. „Það er verið að misnota
nafn látinnar listakonu til að hafa fé af
fólki,“ segir Ólafur
Ólafur segir að myndin sé eft-
ir annan listamann en að henni hafi
verið breytt og látið líta þannig út eins
og hún væri eftir Nínu. Því var það
ekki svo að falsarinn hafi málað verk-
ið frá grunni með það fyrir augum að
láta það líta út eins og verk eftir Nínu
Tryggvadóttur.
Ólafur segist hafa borið kennsl á
fjórar aðrar óþekktar falsaðar myndir
á nokkrum dögum í byrjun desember.
Mögulegar nýjar falsanir
Ýmislegt bendir til að málverkafals-
arar séu enn þá að falsa og selja verk
sem sögð eru vera eftir þekkta ís-
lenska málara en slíkt mun viðhalda
þeim vandamálum sem Ólafur Ingi
ræðir um. Á meðan slíkar falsanir við-
gangast munu fölsuð verk rata á upp-
boð og inn á heimili grunlauss fólks
og stofnana sem geta ekki séð í gegn-
um falsanirnar.
Þórunn Guðmundsdóttir hæsta-
réttarlögmaður er til að mynda með
tvö mál á sinni könnu fyrir aðila sem
telja sig hugsanlega hafa keypt fölsuð
verk af áðurnefndum Pétri Þór Gunn-
arssyni, eiganda Gallerís Borgar.
Stendur eftir með ekki neitt
Annað málið snýst um kaup Skúla
Gunnlaugssonar hjartalæknis á mál-
verki sem sagt var vera eftir Þor-
vald Skúlason. Skúli keypti verkið af
Pétri fyrir 1.600 þúsund krónur í maí
á þessu ári. Skúli, sem búsettur er í
Bandaríkjunum, vissi ekki að degi
áður en hann keypti verkið hefði ann-
ar kaupandi skilað verkinu til Péturs
vegna gruns um fölsun eftir að hafa
fundið málningarlykt af verkinu sem
þó var sagt vera 30 ára. Greint var
frá þessu máli á RÚV í ágúst þar sem
Skúli ræddi um það.
Þegar Skúli komst að þessu lét
hann listfræðing skoða verkið og fann
hann ýmislegt að því. Skúli skilaði svo
myndinni til Péturs en sagt var við
hann að hann gæti ekki fengið endur-
greitt strax. Þess í stað fékk hann þrjú
málverk frá Gallerí Borg sem litið var
á sem einhvers konar tryggingu fyrir
endurgreiðslu.
Þórunn segir aðspurð að eftir
þetta hafi hins vegar komið í ljós að
Gallerí Borg var einungis með verkin
í umboðssölu og þurfti Skúli því að
skila þeim til eigenda þeirra. „Svo
reyndist nú koma í ljós að Pétur átti
ekki verkin heldur var hann með þau í
umboðssölu. Þannig að réttir eigend-
ur gáfu sig fram og fengu verkin hjá
Skúla. Í kjölfarið fór ég fram á það fyr-
ir hönd Skúla að fá endurgreiðslu eða
þá að málverkið yrði afhent til baka til
að hægt væri að láta rannsaka það al-
mennilega. Við höfum hins vegar ekki
fengið endurgreiðslu og ekki fengið
málverkið til baka til að láta rannsaka
það.“
Þórunn undirstrikar að of snemmt
sé að fullyrða að málverkið sem sagt
er vera eftir Þorvald sé falsað þar sem
ekki hafi farið fram nægilega mikl-
ar rannsóknir á því til að hægt sé að
slá því föstu. Ólafur Ingi skoðaði hins
vegar verkið í maí fyrir fyrri kaupanda
þess og komst að þeirri niðurstöðu að
verkið væri líklega falsað.
Þórunn segir að lögmaður Péturs,
Steinbergur Finnbogason, hafi sent
henni bréf í vikunni fyrir hönd Péturs
þar sem hann setur fram gagnkröfur
á hendur Skúla fyrir meintan miska
og mannorðsmissi vegna fjömiðla-
umfjöllunarinnar um málverkið í ág-
úst. Afar líklegt er því að málið endi
fyrir dómi. Á meðan stendur Skúli
eftir með ekki neitt í höndunum en
1.600 þúsund krónum fátækari. Pét-
ur heldur hins vegar eftir peningun-
um hans og málverkinu sem hann
seldi honum.
Falsað Louisu-verk
Hitt málið sem Þórunn er með snýst
um verk sem sagt er vera eftir Lou-
isu Matthíasdóttur. Umbjóðandi
Þórunnar, sem ekki er vitað hver er,
keypti verkið af Pétri í Gallerí Borg
fyrir nokkru. Hún segir að það verk
hafi verið sent í rannsókn til Banda-
ríkjanna. „Það á að vera eftir Louisu
Matthíasdóttur en það er búið að
fara í mjög nákvæma rannsókn og
efnagreiningu hjá sérfræðingum í
Bandaríkjunum,“ segir Þórunn. Þór-
unn segir að niðurstaða rannsóknar-
innar sé sú að verkið sé falsað. Hún
segir að verkið hafi verið talsvert dýr-
ara en verkið sem sagt var vera eftir
Þorvald.
Ljóst er því að þessum tveimur
málum á milli kaupenda verkanna
og Péturs Þórs er hvergi nærri lokið .
LEITA RÉTTAR SÍNS ÚT
AF FÖLSUÐUM VERKUM
n Ólafur Ingi Jónsson bar kennsl á fimm fölsuð málverk á nokkrum dögum í byrjun
desember n Hann segir fölsuð málverk hugsanlega vera um 900 talsins n Enn berast
fréttir af nýjum fölsunum n Tvö fölsunarmál eru til skoðunar hjá lögfræðingi
„Svona mál munu
því verða hluti af
íslenskum listaverkaheimi
á meðan svo er.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Kom auga á falsað verk Ólafur
Ingi kom auga á falsað verk sem
bjóða átti upp í Gallerí Fold fyrr í
mánuðinum. Verkið átti að vera eftir
Nínu Tryggvadóttur. Svo virðist sem
falsarar séu enn að á Íslandi.
Bústaður Péturs Pétur Þór er skráður til heimilis á Óseyrarbraut 5 í Hafnarfirði. Þegar DV
bar að garði var enginn í húsinu.