Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 11
Skil á ársreikningi 2009
Samkvæmt lögum áttu félög að skila ársreikningum til ársreikningaskrár
fyrir lok ágústmánaðar. Skilafrestur er því löngu liðinn.
Skorað er á stjórn félaga að senda nú þegar til ársreikningaskrár, rafrænt
eða á pappír, ársreikning félagsins og samstæðureikning, ef það á við,
fyrir árið 2009. Eigi félag eftir að skila eldri ársreikningum er skorað á það
að skila þeim einnig.
Fésektir
Félög sem vanrækja að senda ársreikninga til skrárinnar eða senda
ófullkomnar upplýsingar með ársreikningi geta sætt 500.000 kr. sekt.
Rafræn skil
Vakin er athygli á því að skila má ársreikningi rafrænt á þjónustusíðunni
www.skattur.is. Hvatt er til þess að ársreikningi sé skilað rafrænt í stað skila
á pappír. Sé ekki unnt að senda ársreikning rafrænt skal undirrituðum
ársreikningi skilað til ríkisskattstjóra, ársreikningaskrár,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Engin starfsemi
Skila ber efnahagsreikningi þar sem gerð er grein fyrir skráðu hlutafé,
eignum, skuldum og eigin fé þótt félagið hafi ekki haft með höndum
starfsemi á árinu 2009.
Ert þú í skilum?
Unnt er að sjá hvaða fyrirtæki eru í vanskilum með ársreikninga
á heimasíðu ríkisskattstjóra rsk.is/fyrirtækjaskrá/félög í vanskilum.
Athugaðu hvort þitt fyrirtæki stendur í skilum og bættu strax úr
ef svo er ekki.
Á vef ríkisskattstjóra, www.rsk.is eru upplýsingar um hvað
ársreikningur þarf að innihalda.
Á R S R E I K N I N G A S K R Á
Áskorun