Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 29. desember 2010 Áramótablað „Það er mjög erfitt að sjá þessar staðreyndir,“ segir Ásthildur Sturlu- dóttir, bæjarstjóri Vesturbyggð- ar. Samkvæmt nýjum tölum Hag- stofunnar eru hlutfallslega mestur brottflutningur af Vestfjörðum af öllum stöðum á landinu. Íslending- um fjölgar um 2,2 prósent á milli ára en þeim fækkar um 3,2 pró- sent á Vestfjörðum. Aðeins fjölgar á tveimur stöðum á landinu, á höf- uðborgarsvæðinu og Norðurlandi eystra. Ásthildur segist ekki vita hvort gripið verði til sérstakra aðgerða en hún telur að samgöngumál og menntamál séu helstu ástæður þess að fólk flýi firðina. „Búsetuskil- yrðin eru alveg frábær. Gott fólk og næg atvinna. Hér er ekkert atvinnu- leysi og húsnæði á góðu verði,“ segir hún. „Þetta er algjör draumastaður að vera á.“ Gegnumgangandi landsbyggðarflótti „Þessi landsbyggðarflótti hefur verið gegnumgangandi alltaf alls staðar í heiminum. Það er þessi borgarmyndun. Það á sér margar skýringar, fólk telur sig vilja vera í margmenni, maður er manns gam- an, ég held að það sé helsta skýring- in,“ segir hún en bætir við að fólk vilji kannski meiri breidd og tæki- færi í atvinnulífinu. „Fólk hefur líka verið að elta börnin sín sem eru að fara í skóla.“ Ásthildur telur að minna yrði um brottflutning ef samgöngur og menntamál yrðu bætt á Vestfjörð- unum. Hún segir að strax hafi já- kvæð þróun orðið þegar byrjað var að bjóða Vestfirðingum upp á framhaldsskólanám í Fjölbrauta- skóla Snæfellinga. „Við sáum al- veg viðsnúning eftir tilkomu fjöl- brautaskólans. Tölur frá 2007 sýna að dregið hefur úr fækkun, en núna er aftur dýfa á milla ára. Her skýr- ingin er er erfitt að segja en það eru margir sem eru að snúa aftur heim til föðyrlands síns, það er að segja útlendingar.“ Aðgerða þörf „Við teljum að það þurfi að koma til móts við okkur með einhverj- um hætti,“ segir Ásthildur og hún vill að ríkið komi að málum og að- stoði Vestfirðinga með einhverj- um hætti, ef það sé á annað borð stefna ríkisins að halda í byggð úti á landi. „Það þarf að grípa til ein- hverra aðgerða.“ Ásthildur bendir einnig á að fólksflóttinn hafi líka talsverð áhrif á tekjur sveitarfélags- ins og segir að það gæti reynst erfitt að halda úti lögboðinni þjónustu við íbúa svæðisins með minnkandi tekjum. Úr sveit í borg Íslendingar eru samkvæmt tölun- um orðnir 318.236 sem er fjölgun um 643, eða 0,2 prósent, frá árinu 2009. Miðað við tölurnar fjölgar fólki mest á höfuðborgarsvæðinu, eða um 0,7 prósent frá 2009. Tölu- vert meiri fjölgun er á kvenfólki en karlmönnum á höfuðborgarsvæð- inu. Aðeins eitt sveitarfélag fyrir Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Íslendingar færa sig í borgina n Íslendingum fjölgar um 0,2 prósent n Nánast jafnmargar konur og karlar n Hlutfallslega mest fækkun á Vestfjörðum Flóttinn úr dreifbýlinu Vestfirðir Íbúar 2010 7.129 Breyting frá 2009 -3,2% Austurland Íbúar 2010 12.306 Breyting frá 2009 -1,2% Vesturland Íbúar 2010 15.371 Breyting frá 2009 -0,1% Allt landið Íbúar 2010 318.236 Breyting frá 2009 0,2% Suðurnes Íbúar 2010 21.052 Breyting frá 2009 -1,4% Suðurland Íbúar 2010 23.806 Breyting frá 2009 -0,3% Norðurland eystra Íbúar 2010 29.006 Breyting frá 2009 0,3% Höfuðborgar- svæðið Íbúar 2010 202.186 Breyting frá 2009 0,7% Norðurland vestra Íbúar 2010 7.380 Breyting frá 2009 -0,3% Mannfjöldi eftir landsvæðum 1. desember 2010 Gunnar Gunnarsson Austfirðingur og stjórnmálafræðingur: „Ég fæ sting í hjartað“ Gunnar Gunnarsson stjórnmálafræðingur og blaðamaður flutti rúmlega tvítugur frá Egilsstöðum til Reykjavíkur þegar hann hóf nám við Háskóla Íslands. Hann vonast til þess að geta flutt aftur austur að loknu meistaranámi sínu, en það er alls ekki á vísan að róa. „Ég vonast til þess en það verður að skoðast þegar ég búinn í mínu námi. Það er aðallega tvennt sem gæti staðið í vegi fyrir því. Í fyrsta lagi þarf ég að finna mér vinnu við hæfi. Ef ég ætla að halda áfram sem blaðamaður þá eru tvær eða þrjár stöður í faginu á Austurlandi. En það er ekki víst að maður haldi áfram þar. Hitt er félagsskapur. Unga fólkið fer í burtu í framhaldsnám, einkum á háskólastigi. Við höfum enga slíka skóla á Austurlandi. Það flyst á brott, mögulega einhleypt, fær vinnu með skóla sem verður síðan aðalstarfið þeirra og vinnur sig upp. Það finnur sér maka, sem vill kannski ekki flytja úr borginni. Við útskrift er einstaklingurinn með vinnu og fjölskyldu sem erfitt að er rífa rífa sig frá.“ Aðspurður hvernig honum líði þegar hann sér tölur sem sýna áframhaldandi fólksflótta af landsbyggðinni til höfuðborgarinnar svarar Gunnar: „Ég fæ sting í hjartað. Þetta er ógeðslega fúlt og það virðist vera sama hvað menn gera. Það virðist fátt eða ekkert virka. Kannski er grátlegast að það virðist skorta langtímahugsunina. Ákvarðanir eru teknar á Alþingi af fólki sem er komið á miðjan aldur og það skynjar ekki þarfir unga fólksins.“ Gunnar bætir við: „Þegar börnin eru farin leiðist foreldrunum meira og meira og mögulega við starfslok flytja þau líka í burtu. Þannig hverfa kynslóðirnar og fjölskyldurnar.“ Gunnar segir texta lagsins Þá verður gaman að lifa, eftir Bubba Morthens, lýsa raunveruleikanum ágætlega. Í þorpi úti á landi flýr fólkið suður. Það fást víst í borginni heitar kruður. Þar er betra að dorma í einangrun inni. Með átján rása sjónvarpsminni. :,: Í borginni er betra að lifa :,: utan höfuðborgarsvæðið bætir við sig íbúum og er það Norðurland eystra. Þar bætast við 0,3 prósent og er íbúafjöldi í sveitarfélaginu því 29.006. Líkt og á höfuðborgar- svæðinu eru fleiri kvenmenn en karlmenn sem bætast við íbúa- fjöldann. Í öllum öðrum sveitarfélögum fækkar íbúum en mesta stökkið á milli ára er á Vestfjörðum. Á Vest- fjörðum fækkaði íbúum á árinu um 3,2 prósent og eru nú aðeins 7.129 íbúar á svæðinu. Litlu mun- ar á fjölda karla og kvenna á Ís- landi. Aðeins eru 1.508 fleiri karl- ar en konur sem hafa lögheimili á Íslandi. Þeir einstaklingar sem ekki hafa lögheimili á Íslandi eru því ekki inni í fyrrnefndum tölum. Bíldudalur Á Vestfjörðum fækkaði íbúum á árinu um 3,2 prósent og eru nú aðeins 7.129 íbúar á svæðinu. MYND KRISTINN SNÆR AGNARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.