Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Page 16
16 | Innlendur annáll 29. desember 2010 Áramótablað
aldrei skuldir fyrr en í fulla hnefana,“
sagði hann og fullyrti að bankarnir
hefðu mikið svigrúm til afskrifta og
ættu sjálfir að bera kostnaðinn af af-
skriftunum. Fimm barna faðir, Þórð-
ur Magnússon, sagði við DV á sama
tíma að ekkert mætti út af bregða.
„Ef eitthvert barnið bryti tönn og
við þyrftum að leggja út í kostnað
við tannviðgerðir, þá gæti það riðið
okkur að fullu. Maður er með hnút
í maganum um hver mánaðamót.
Ég sé ekki fram á að þetta gangi til
lengdar. Það er ekkert útlit fyrir að
þetta lagist,“ sagði hann og heimilin
biðu.
12. febrúar
Myntkörfulánin ólögmæt
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi
þann dóm að svokölluð myntkörfu-
lán væru ólögmæt. Það var Dalvík-
ingurinn Jóhann Rafn Heiðarsson
sem stefndi fjármögnunarfyrirtæk-
inu Lýsingu vegna kaupleigusamn-
ings á bifreið en hluti lánsins var
gengistryggður. Dómurinn komst að
þeirri niðurstöðu að ákvæði samn-
ingsins um gengistryggingu væri í
raun ólögmæt verðtrygging þar sem
lánið hefði verið veitt í íslenskum
krónum. Lýsing áfrýjaði málinu til
Hæstaréttar Íslands.
Eins og staðan var þarna skuldaði
sá sem tók gengistryggt bílalán sum-
arið 2007 tvöfalt meira en sá sem tók
jafnhátt verðtryggt lán, samkvæmt
útreikningum DV. Sá sem tók 2,7
milljón króna verðtryggt lán skuld-
aði þarna um 2,5 milljónir króna á
meðan sá sem valdi myntkörfulánið
skuldaði hvorki meira né minna en
5,8 milljónir króna.
15. febrúar
Tveir týnast á Langjökli
Björgunarsveitarmenn björguðu
skoskri konu á fimmtugsaldri og 11
ára gömlum syni hennar aðfara-
nótt 15. febrúar eftir að hafa leitað
þeirra á Langjökli frá því klukkan
hálfsex daginn áður. Höfðu þau orð-
ið viðskila við vélsleðahópinn sinn.
Þau voru köld og hrakin en talið er
að hárrétt viðbrögð konunnar hafi
bjargað henni og syni hennar.
20. febrúar
Lést eftir að hafa orðið fyrir bíl
Hörður Heimir Sigurðsson lést þann
20. febrúar, rúmu ári eftir að hafa
orðið fyrir Hummer-jeppa sem ekið
var á miklum hraða niður Laugaveg
aðfaranótt 24. janúar 2009.
Ökumaðurinn, Jón Kristinn Ás-
geirsson, keyrði Hummer-bifreið í
eigu föður síns, Ásgeirs Davíðsson-
ar, eða Geira á Goldfinger, á mikl-
um hraða niður Laugaveg og á Hörð
Heimi. Jón Kristinn sem var und-
ir áhrifum áfengis og fíkniefna flúði
af vettvangi en atburðinn náðist á
myndband. Hann var síðar dæmd-
ur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir
ákeyrsluna auk annarra glæpa sem
hann hafði framið.
24. febrúar
Smálánin komust í hámæli
Neytendasamtökin stigu fram og
vöruðu fólk við svokölluðum smá-
lánum sem fyrirtækin Hraðpening-
ar og Kredia buðu upp á. Lánastarf-
semin byggir á því að lána allt að
40 þúsund krónur til tveggja vikna.
Upphæðin er svo innheimt með 25
prósenta vöxtum. „Á hverjum degi
fá Neytendasamtökin athugasemdir
um starfsemi þessara okurlánafyrir-
tækja, ýmist ábendingar frá almenn-
ingi eða reynslusögur frá reiðum lán-
takendum og/eða aðstandendum
þeirra,“ sagði á heimasíðu samtak-
anna.
Mynd ársins 2010
Mynd ársins 2010 er að öllum líkind-
um myndin af starfsmönnum Lands-
bankans og stjórnendum Baugs sem
tekin var í samkvæmi á veitingastað
á skíðasvæðinu Courchevel í frönsku
Ölpunum um miðjan apríl 2007.
Um er að ræða mynd af gestum sem
flestir voru í boðsferð í Frakklandi á
vegum Landsbankans. Myndin lak
á netið í febrúar og vakti mikla at-
hygli. Nokkur af þekktustu andlitum
íslensks viðskiptalífs voru á mynd-
inni, meðal annars Jón Ásgeir Jó-
hannesson, Pálmi Haraldsson og
Sigurjón Árnason.
Myndin þótti meðal annars
merkileg fyrir þær sakir að hún sýndi
svart á hvítu hversu náin tengsl voru
á milli helstu stjórnenda Landsbank-
ans og Baugs en eignarhaldsfélag
Jóns Ásgeirs var einn stærsti lántak-
andi bankans.
Mars
8. mars
Litháar dæmdir fyrir mansal
Fimm Litháar voru dæmdir í Héraðs-
dómi Reykjaness fyrir mansal. Þeir
hlutu hver um sig fimm ára dóm.
Mönnunum var meðal annars gef-
ið að sök að hafa brotið gegn 19 ára
litháískri stúlku og beitt hana ólög-
mætri nauðung, frelsissviptingu og
ótilhlýðilegri aðferð áður en og þeg-
ar hún var send til Íslands. Þeir fluttu
hana til landsins og hýstu í því skyni
að notfæra sér hana kynferðislega.
Rökstuddur grunur lá fyrir um
tengsl mannanna við glæpasamtök í
Litháen. Dómurinn var kveðinn upp
fyrir luktum dyrum en dómhald-
ið var lokað að kröfu réttargæslu-
manns litháísku stúlkunnar.
10. mars
Íslendingur myrðir Íslending í
Danmörku
Ásbörn Andrason, 47 ára Íslend-
ingur, var handtekinn grunaður um
morðið á Stefáni Brynjari Óskars-
syni. Stefán Brynjar var 42 ára þegar
hann lést.
Danska fréttaveitan Ritzau sagði
frá því að Ásbjörn og Stefán hefðu
báðir verið óreglumenn. Talið er
að Ásbjörn hafi stungið Stefán með
vasahnífi í hálsinn. Ásbjörn hafði
sjálfur samband við lögregluna eftir
að árásin átti sér stað. Þeir höfðu set-
ið að drykkju og auk þess voru þeir
taldir hafa verið undir áhrifum eit-
urlyfja.
18. mars
Handtekin fyrir fíkniefnasmygl
í Perú
Jóna Denny Sveinsdóttir fimm barna
einstæð móðir úr Innri-Njarðvík var
handtekin með rúmlega tvö kíló af
kókaíni á Jorge Chávez-flugvellinum
í Líma í Perú. Talið er að hún hafi ætl-
að að smygla eiturlyfjunum til Nor-
egs en þangað var för hennar heit-
ið þegar fíkniefnalögreglan stöðvaði
för hennar. Hún var nýverið dæmd í
sex og hálfs árs fangelsi í Perú og af-
plánar dóm sinn í kvennafangelsi þar
í landi.
20. mars
Karlmaður skorinn á háls í
Reykjavík
Ráðist var á rúmlega fertugan karl-
mann við Mánagötu í Norðurmýri
í Reykjavík og honum veittir lífs-
hættulegir áverkar. Rúmlega þrítug-
ur karlmaður veittist að honum með
einhvers konar eggvopni eða hnífi
og skar hann á háls. Fórnarlambið
var flutt á slysadeild og þaðan á gjör-
gæslu þar sem hann lá þungt hald-
inn. Ekki er vitað hvaða ástæður lágu
að baki árásinni eða hvort deilur
höfðu átt sér stað fyrir hana.
21. mars
Eldgos á Fimmvörðuhálsi
Lítið eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi.
Tiltölulega stutt var að ganga upp að
gosinu og var hægt að virða það fyrir
sér úr hæfilegri fjarlægð. Gosið vakti
mikla athygli erlendis og flykktust
ferðamenn til landsins til að ganga
að gosinu. Ómar Ragnarsson fjöl-
miðlamaður, sem fjallað hefur um
mörg eldgos, sagði þetta gos vera
það minnsta sem hann hefði séð.
„Þetta er ósköp venjulegt, lítið og
sætt hraungos. Gosið er það tuttug-
asta og fyrsta sem ég sé og með þeim
allra minnstu.“
24. mars
Deilur í Selfossprestakalli
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson,
prestur í Selfossprestakalli, vildi ekki
gefa yfirmanni sínum eftir skrifstofu
kirkjunnar. Séra Kristinn Ágúst Frið-
finnsson tók við sem sóknarprestur
nýs sameinaðs Selfossprestakalls og
fékk þar lyklavöldin, allt nema lykl-
ana að skrifstofunni sem séra Ósk-
ar vildi ekki gefa frá sér. Hann hafði
fengið sérstakt leyfi hjá þjóðkirkj-
unni til að stýra Selfosskirkju en þeg-
ar leyfið rann út vildi hann ekki skila
lyklunum að skrifstofu sinni. Nýr
sóknarprestur gat því ekki komið sér
fyrir í nýrri skrifstofu sinni.
Apríl
12. apríl
Sannleiksskýrslan kemur út
Eftir umtalsverðar og ítrekaðar tafir
var skýrsla rannsóknarnefndar Al-
þingis loks birt 12. apríl. Hún fól í sér
margvíslega áfellisdóma yfir stjórn-
endum bankanna. Jafnframt voru
ráðherrar, embættismenn og opin-
berar eftirlitsstofnanir taldar hafa
vanrækt störf sín með alvarlegum
afleiðingum. Almennt var talið að
skýrslan gæfi raunsanna mynd af að-
draganda og orsökum bankahruns-
ins. Sérstök þingmannanefnd undir
forystu Atla Gíslasonar var falið þeg-
ar í janúar að fara yfir skýrsluna og
ákveða hvort á grundvelli skýrslunn-
ar yrði lögð fram ákæra af hálfu Al-
þingis á hendur ráðherrum. Alþingi
ákvað á haustþingi að gefa á grund-
velli skýrslu þingmannanefndarinn-
ar aðeins út ákæru á hendur Geir
H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, vegna bankahrunsins. Eng-
inn embættismaður í ráðuneytum,
Fjármálaeftirlitinu eða Seðlabank-
anum hefur þurft að svara til saka
nema Baldur Guðlaugsson, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu. Sérstakur saksóknari
gaf á árinu aðeins út ákærur á hend-
ur bankamönnum í svonefndu Byr-
máli, en búist er við fjölda ákæra af
hálfu embættisins vegna markaðs-
misnotkunar.
Fjölmiðlar og háskólar fengu
heldur ekki háa einkunn nefndar-
innar. „Háskólamenn þurfa að end-
urskoða borgaralegar skyldur sínar
og sporna gegn hagsmunaárekstr-
um. ... Árvökulir hugsandi borgarar,
sem láta sig samfélagið varða, eru
varanlegasta viðnámið gegn því að
við festumst aftur í sýndarveruleika
ímyndarspunans,“ sagði Vilhjálm-
ur Árnason, heimspekiprófessor og
fulltrúi í siðfræðihóp rannsóknar-
nefndarinnar, í fyrirlestri mörgum
mánuðum eftir útkomu skýrslunnar.
14. apríl
Eldgos í Eyjafjallajökli
Þann 14. apríl byrjaði að gjósa í
Eyjafjallajökli í fyrsta sinn í 189 ár.
Vikurnar á undan hafði verið gos á
Fimmvörðuhálsi, steinsnar frá Eyja-
fjallajökli. Miklar jarðhræringar
höfðu átt sér stað vikum og mánuð-
um fyrir gosið en engan óraði fyrir
hvaða áhrif gosið átti eftir að hafa.
Strax og veðurstofan varð vör
við gosið var hrundið í framkvæmd
rýmingaráætlun og var öllum íbú-
um á svæðinu gert að flýja heimili
sín. Búfénaður á bæjum í kring var
skilinn eftir og bæir og jarðir voru
undir þykku lagi af gosösku. Bænd-
ur fengu þó fljótlega að snúa aftur á
bæi sína til að sinna búfénu. Strax var
ljóst að miklu hreinsunarátaki þyrfti
að hrinda úr vör og óttuðust menn
um áhrif öskunnar á bæði jarðir og
skepnur.
Ekki nóg með að gosaskan klæddi
nærliggjandi sveitir í þykkan gráan
búning heldur bárust öskuagnir um
alla Evrópu. Flugsamgöngur lömuð-
ust og setti það meðal annars sjúkra-
flug í uppnám. Lestarsamgöngur í
Evrópu önnuðu ekki eftirspurn og
mörg hundruð þúsund manns kom-
ust ekki leiðar sinnar. Gosið hélt
áfram svo vikum skipti og voru sam-
göngur um alla Evrópu í lamasessi á
meðan.
Áhrif gossins dvínuðu á sumar-
mánuðum en goshrinunni lauk 23.
apríl. Á meðan á gosinu stóð beindist
athygli heimspressunnar að landinu
og þustu bæði fréttamenn og ferða-
menn til landsins til að fylgjast með
gosinu. Orðið Eyjafjallajökull vakti
einnig mikla athygli og voru misgóð-
ar tilraunir fréttamanna vestanhafs
til að bera fram nafn eldfjallsins dag-
legt skemmtiefni í spjallþáttum ytra.
16. apríl
Kreppa unga fólksins
Fjörutíu prósent ungs barnafólks,
sem keypti fasteign seint í uppsveifl-
unni, eru í hópi þeirra sem eru á
mörkum þess að ná endum saman
um mánaðamót, að því er fram kom
í skýrslu Seðlabankans um stöðu
heimilanna. Þar sagði að meginþorri
þessa fólks byggi við neikvæða eigin-
fjárstöðu, skuldaði meira í húsnæð-
inu en það ætti.
24. apríl
Stúlkur létust í bílslysi
Þrjár stúlkur slösuðust í alvarlegu bíl-
slysi við Mánatorg norðan Keflavík-
ur. Tvær stúlknanna létu lífið en sú
þriðja komst lífs af. Ökumaður bíls-
ins, sem var sá eini sem var í bílbelti,
komst nær ómeiddur frá slysinu.
Apríl
Glitnismönnum stefnt
DV greindi frá því í apríl að skila-
nefnd Glitnis hefði stefnt sex ein-
staklingum sem tengdust Glitni á
árunum fyrir hrun vegna sex millj-
arða króna lánveitingar til að kaupa
hlutabréf eignarhaldsfélagsins Fons
í bresku skartgripakeðjunni Aurum
sumarið 2008. Sexmenningarnir,
meðal annars Jón Ásgeir Jóhannes-
son og Pálmi Haraldsson, eru krafðir
um endurgreiðslu sex milljarðanna
til Glitnis. Félagið sem fékk lánið,
FS38, var einnig í eigu Pálma.
Eins og málið lítur út runnu því
sex milljarðar út úr Glitni og til félags
í eigu Pálma Haraldssonar vegna
Sigmundur Davíð á hlaupum Formaður Framsóknarflokksins reynir að bjarga sér undan eggjadrífu við setningu Alþingis. Lögreglumenn horfa til himins og bíða þess sem verða vill. MYND SIGTRYGGUR ARI
Sigurganga Besta Vinsældir Besta flokksins jukust stöðugt og svo fór að flokkurinn fékk
sex borgarfulltrúa kjörna. MYND SIGTRYGGUR ARI