Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 17
Innlendur annáll | 17Áramótablað 29. desember 2010
kaupa á hlutabréfum sem einn-
ig voru í eigu félags sem Pálmi átti.
Hlutabréfin fóru frá einu félagi til
annars í eigu Pálma og peningarn-
ir sem fengust fyrir hlutabréfin, sem
fengnir voru að láni frá Glitni, voru
notaðir að hluta til að borga upp
skuldir Fons. Í staðinn þess að Fons
skuldaði Glitni 2,5 milljarða skuldaði
FS38 milljarðana 2,5 auk 3,5 millj-
arða til viðbótar. Tveir milljarðar af
því fóru svo til að greiða upp aðra
skuld Fons auk þess sem ráðandi að-
ili í stærsta hluthafa Glitnis, Jón Ás-
geir Jóhannesson, fékk 1 milljarð af
þessum 6 inn á bankareikninginn
sinn.
Nokkur af ummælunum í stefnu
Glitnis hafa orðið klassísk. Meðal
annars þau ummæli Einars Arnar Ól-
afssonar að betra væri fyrir Glitni að
láta Pálma bara fá milljarðana inn á
reikning í skattaskjóli og sleppa við-
skiptafléttunni með bréfin í Aurum.
Maí
8. maí
Manndráp á Suðurnesjum
Ellert Sævarsson, rúmlega þrítug-
ur karlmaður, varð 53 ára gömlum
manni, Hauki Sigurðssyni, að bana
í Reykjanesbæ. Ellert játaði að hafa
orðið Hauki að bana þegar þeir mætt-
ust á förnum vegi í Reykjanesbæ um
nóttina. Þeir þekktust ekkert, en Ell-
ert mun hafa verið haldinn ranghug-
myndum um fórnarlamb sitt og talið
að hann væri annar maður. Eftir stutt
orðaskipti þeirra á milli, réðst hann á
Hauk og kastaði meðal annars gang-
stéttarhellu í höfuð hans, með þeim
afleiðingum að hann lést.
Morðið á Hauki var framið
skammt frá heimili Ellerts, en þangað
fór hann eftir að hafa framið ódæðið.
Hann var handtekinn á heimili sínu
morguninn eftir. Í yfirheyrslum lög-
reglu játaði hann á sig morðið. Hann
hlaut 16 ára fangelsisdóm.
29. maí
Besti flokkurinn vinnur
stórsigur í höfuðborginni
Úrslit urðu víða óvænt í sveitar-
stjórnarkosningunum sem fram fóru
29. maí. Besti flokkurinn undir for-
ystu Jóns Gnarr kom, sá og sigraði í
Reykjavíkurborg. Flokkurinn hlaut
nær 35 prósent atkvæða og 6 menn
kjörna. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut
tæp 34 prósent og 5 menn kjörna,
tapaði tveimur fulltrúum. Samfylk-
ingin tapaði einum fulltrúa en hélt
þremur. VG hélt einum fulltrúa en
Framsóknarflokkurinn tapaði sínum
eina fulltrúa og hefur því enga rödd
innan borgarstjórnar í fyrsta skipti
um langt árabil.
Í kosningabaráttunni hélt Besti
flokkurinn því meðal annars á lofti
að hann myndi hygla vinum og
kunningjum innan borgarkerfisins
og lofaði meðal annars ísbirni í Hús-
dýragarðinn. Árangur Besta flokks-
ins er talinn endurspegla megna
óánægju með stjórn borgarinnar
misserin næst á undan. Þá þykir jafn-
framt ljóst að bankahrunið hafi kynt
undir óánægju með gömlu flokkana
sem stundum ganga undir nafninu
fjórflokkurinn.
Umskipti urðu víðar í sveitar-
stjórnarkosningunum, meðal annars
á Akureyri þar sem meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins og Samfylkingarinn-
ar kolféll. Listi fólksins náði hrein-
um meirihluta eða 6 fulltrúum í 11
manna bæjarstjórn.
Maí
Kaupþingsklíkan tekin
Ein af stóru fréttunum í uppgjörinu
við hrunið á árinu 2010 var þegar
nokkrir af helstu stjórnendum Kaup-
þings voru handteknir og yfirheyrð-
ir af embætti sérstaks saksóknara í
maí. Rannsókn sérstaks saksókn-
ara á málefnum Kaupþings snýst
um meinta markaðsmisnotkun með
hlutabréf auk alls kyns fleiri meintra
brota. Frægasta viðskiptafléttan sem
er til rannsóknar er viðskipti kat-
arska sjeiksins Al-Thanis með hluta-
bréf í Kaupþingi fyrir um 26 milljarða
króna í aðdraganda bankahrunsins.
Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús
Guðmundsson, Ingólfur Helgason
og Steingrímur Kárason voru allir
handteknir og yfirheyrðir í tengslum
við rannsókn málsins.
Sigurður Einarsson lét hins vegar
bíða eftir sér þar til í ágúst en þá kom
hann til yfirheyrslu hér á landi frá
London þar sem hann er búsettur.
Enn hafa ekki verið gefnar út
ákærur vegna rannsóknarinnar á
málefnum Kaupþings.
Maí
Tugmilljóna greiðslur í stríðinu
um sparisjóðinn
DV greindi frá því í maí að þrír menn,
Magnús Ægir Magnússon, sem stýrði
Sparisjóði Hafnarfjarðar eftir hallar-
byltinguna svonefndu sem gerð var
árið 2005 í sjóðnum, Jón Auðunn
Jónsson, lögfræðingur sparisjóðs-
ins á þeim tíma, og Þorlákur Ómar
Einarsson fasteignasali, hefðu feng-
ið greiddar um 100 milljónir króna
hver fyrir að taka þátt í uppkaupum
á stofnfjárbréfum í Sparisjóði Hafn-
arfjarðar árið 2005. Greiðslurnar fóru
inn á erlenda bankareikninga.
Mikil átök voru þá um Sparisjóð
Hafnarfjarðar og náði félag í eigu
Baugs, A-Holding, undirtökum í
sjóðnum með uppkaupum á stofn-
fjárbréfum sem þremenningarnir
stóðu fyrir. Forsvarsmaður A-Hold-
ing var Stefán H. Hilmarsson, fjár-
málastjóri Baugs. DV hafði undir
höndum kvittanir fyrir millifærslun-
um en samt könnuðust þremenning-
arnir ekki við umræddar greiðslur.
Júní
9. júní
Féll fram af Látrabjargi
Þýskur ferðamaður á miðjum aldri
lést eftir að hann féll fram af Látra-
bjargi. Hann féll þegar hann var að
taka myndir á bjargbrúninni en ekki
er vitað nánar hvernig það gerðist.
Maðurinn var hér á ferðalagi ásamt
unnustu sinni. Lík hans var flutt
með þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Reykjavíkur. Fallið er talið hafa ver-
ið um 60–100 metrar. Allir tiltækir
björgunarsveitarmenn voru kallað-
ir á vettvang við Látrabjarg eftir að
maðurinn féll þar niður.
16. júní
Ippon fyrir neytendur
Kveðinn var upp dómur í Hæstarétti
Íslands þar sem úrskurðað var að
Lýsingu hf. og SP-fjármögnun hefði
ekki verið heimilt að binda veitt lán
gengi erlendra miðla. Talið var að
dómurinn myndi greiða úr þeirri
réttaróvissu sem ríkt hafði um mynt-
körfulán. Gísli Tryggvason, talsmað-
ur neytenda, sagði að dómurinn
væri ippon fyrir neytendur. Talað var
um að óvissunni væri loksins eytt
en mál myntkörfulánþega voru svo
sannarlega ekki til lykta leidd. Enn
máttu tugþúsundir lánþega bíða til
haustsins þegar skorið var úr um
hvaða vexti lánin ættu að bera. Til-
mæli ríkisstjórnarinnar um að lán-
in skyldu bera lægstu óverðtryggðu
vexti Seðlabankans mæltust illa fyrir
á meðal þeirra sem töluðu fyrir hags-
munum myntkörfulánþega.
19. júní
Banaslys í Silfru
Franskur karlmaður um þrítugt lést á
Þingvöllum við köfun í gjánni Silfru.
Honum var komið upp á yfirborð-
ið meðvitundarlausum og úrskurð-
aður látinn eftir að lífgunartilraunir
báru ekki árangur. Með í för var unn-
usta hans sem var flutt með sjúkra-
bíl á Landspítalann þar sem henni
var veitt áfallahjálp. Svo virðist sem
maðurinn hafi fest sig í gjánni og ekki
getað losað sig, en allt að tuttugu og
fimm metra dýpi er þar sem slysið
varð. Hann var á vegum ferðaþjón-
ustufyrirtækis.
27. júní
Ein hjúskaparlög á Íslandi
Ný hjúskaparlög tóku gildi þennan
dag sem heimiluðu prestum að gefa
saman samkynhneigð pör. Skiptar
skoðanir voru um málið innan kirkj-
unnar en á prestastefnu felldu prest-
ar tillögu um að samþykkja stuðn-
ing við frumvarp sem sett hafði verið
fram og var því vísað til biskups og
kenningarnefndar til umfjöllunar.
Alþingi samþykkti hins vegar lögin
og sama dag og þau tóku gildi gengu
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra og Jónína Leósdóttir í hjóna-
band.
Júní
Al-Thani fram í dagsljósið
DV greindi í júní frá yfirheyrslum
sérstaks saksóknara yfir Halldóri
Bjarkari Lúðvígssyni, fyrrverandi
starfsmanni fyrirtækjasviðs Kaup-
þings, þar sem hann ræddi um við-
skipti katarska sjeiksins Al-Thanis
með hlutabréf í Kaupþingi haustið
2010. Í yfirheyrslunum kom með-
al annars fram hvernig stjórnendur
bankans reyndu að leysa Al-Thani
undan allri ábyrgð og tengslum við
Kaupþing þegar ljóst var að bankinn
var fallinn.
Yfirheyrslurnar yfir Halldóri
Bjarkari vörpuðu áður óþekktu ljósi á
Al-Thani-málið en meðal gagna sem
embætti sérstaks saksóknara hafði
undir höndum við rannsókn málsins
var samtal á milli Halldórs Bjarkars
og starfsmanns í innri endurskoð-
un bankans þar sem þeir ræddu um
Al-Thani-viðskiptin. Meðal þess sem
kom fram í því samtali var að Heið-
ar Már Guðmundsson og Magn-
ús Guðmundsson hefðu útbúið Al-
Thani-fléttuna. Jafnframt kom fram
að Halldóri Bjarkari hefðu fundist Al-
Thani-viðskiptin vera algert bull og
að hann hefði sjálfur losað sig við sín
hlutabréf í bankanum þegar hann
áttaði sig á eðli viðskiptanna.
Júní
Arðgreiðslur skólastjórans
DV greindi frá því í lok júní að Ólaf-
ur Johnson, eigandi og skólastjóri
Menntaskólans Hraðbrautar, hefði
undanfarin ár tekið sér tugi millj-
óna króna í arð út úr skólastarfinu
og jafnframt lánað fé út úr skólan-
um til útrásarverkefna. 80 prósent
af fjármögnun skólans eru opinber
fjárframlög. Blaðið greindi frá því að
Ríkisendurskoðun hefði verið beðin
um að rannsaka bókhald skólans þar
sem grunsemdir hefðu vaknað um
að skólinn hefði fengið of háar fjár-
veitingar miðað við nemendafjölda.
Jafnframt kom fram í frétt DV að
kennarar skólans væru ósáttir við lág
laun sem væru lægri en kveðið væri á
um í kjarasamningum Kennarasam-
bands Íslands.
Ríkisendurskoðun skilaði skýrslu
um starfsemi Hraðbrautar í byrjun
október þar sem nokkur af þeim atr-
iðum sem komið höfðu fram í frétt-
um DV um skólann voru gagnrýnd.
Meðal annars var komist að þeirri
niðurstöðu að skólinn hefði fengið
nærri 200 milljónum króna of mikið
í fjárveitingar og að Ólafur hefði ekki
haft forsendur til að greiða sér arð
út úr skólastarfinu. Mörg fleiri atriði
í skólastarfinu voru gagnrýnd í um-
fjöllun Ríkisendurskoðunar.
Menntamálanefnd fundaði um
starfsemi Hraðbrautar í kjölfar
skýrslu Ríkisendurskoðunar og rit-
aði nefndin mjög gagnrýna greinar-
gerð um skólastarfið í kjölfarið sem
byggði á skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar.
DV greindi svo frá því í desember
að afar ólíklegt væri að gerður yrði
annar samstarfssamningur við Ólaf
þegar núverandi samningur renn-
ur út næsta sumar og má því nánast
fullyrða að dagar skólans séu taldir
vegna hátternis skólastjórans og eig-
andans.
Júlí
9. júlí
Catalina Ncogo dæmd fyrir
vændisstarfsemi
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi
Catalinu Mikue Ncogo í 15 mánaða
fangelsi fyrir milligöngu um vændi,
líkamsárás og brot gegn valdstjórn-
inni. Hún var hins vegar sýknuð af
ákærðu fyrir mansal.
Catalina var dæmd í tveggja
og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness í byrjun desember 2009
fyrir hagnýtingu vændis og fíkni-
efnabrot en Hæstiréttur þyngdi þann
dóm í þrjú og hálft ár. Dómurinn nú
er hegningarauki við þann dóm. Ell-
efu karlmenn voru ákærðir fyrir að
kaupa vændisþjónustu af konunum.
Héraðsdómur segir í niðurstöðu
sinni að Catalina sé sakfelld fyrir að
hafa haft með höndum umfangs-
mikla vændisstarfsemi sem hún
hafði viðurværi sitt af, tvær líkamsár-
ásir og ítrekað brot gegn valdstjórn-
inni. Hún eigi sér engar málsbætur
og ásetningur og brotavilji henn-
ar hafi verið einbeittur hvað varðar
vændisstarfsemina.
12. júlí
Sviplegt slys á Neskaupstað
Ung kona, fædd 1989, lést er hún féll
fyrir björg í svokölluðum Urðum,
sem eru í fólkvangi, austan við Nes-
kaupstað. Fall stúlkunnar var um 18
til 20 metrar, hún var látin þegar að
var komið.
Júlí
Umboðsmaður skuldara í
skuldafeni
DV greindi frá því í lok júlí að Spari-
sjóðurinn í Keflavík þyrfti að afskrifa
rúmlega 500 milljóna króna hluta-
bréfaskuld eignarhaldsfélags Run-
ólfs Ágústssonar, fyrrverandi rektors
Háskólans á Bifröst. Runólfur hafði
nýlega verið skipaður í embætti um-
boðsmanns skuldara. Félagið heitir
Obduro ehf. og skuldaði það spari-
sjóðnum tæpar 530 milljónir króna
í árslok 2008. Lánið var veitt til að
kaupa hlutabréf í Icebank, Spari-
sjóðabanka Íslands.
Runólfur taldi ekkert óeðlilegt
við viðskiptin og reyndi að skýla sér
á bak við það að hann hefði selt vini
sínum, Steinbergi Finnbogasyni, fé-
lagið í árslok 2008. Skuldirnar sem
voru inni í félaginu voru hins vegar
skuldir Runólfs þótt hann hafi reynt
að koma sér undan þeim með því að
setja félagið yfir á vin sinn. Umboðs-
maður skuldara átti því útistandandi
skuldir vegna hlutabréfakaupa sem
voru margfalt hærri en skuldir þess
Geir Haarde ákærður Þingheimur ákvað að gefa út ákæru á Geir H. Haarde og draga hann fyrir landsdóm í kjölfar bankahrunsins. Árni
Mathiesen, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Björgvin G. Sigurðsson sluppu hins vegar við ákæru. MYND SIGTRYGGUR ARI
Í haldi Hreiðar Már Sigurðsson er hér leiddur út úr húsakynnum sérstaks saksóknara. Hann
sat í stuttu gæsluvarðhaldi á meðan á yfirheyrslum stóð. MYND SIGTRYGGUR ARI