Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 18
18 | Innlendur annáll 29. desember 2010 Áramótablað
fólks sem hann átti að vinna fyrir
sem umboðsmaður skuldara. Frétt-
in vakti mikla athygli og reiði með-
al fólks í samfélaginu enda ekki talið
við hæfi að umboðsmaður skuldara
væri með braskskuldir á herðunum.
Skömmu eftir þetta hætti Runólf-
ur sem umboðsmaður skuldara.
Ágúst
11. ágúst
Guðrún Ebba óskaði eftir
áheyrn kirkjuráðs
Biskupsmálið hófst árið 1996 með
frétt í DV um að Sigrún Pálína Ingv-
arsdóttir hefði kært Vigfús Þór Árna-
son til siðanefndar fyrir að bregðast
ekki við ásökunum hennar á hend-
ur Ólafi Skúlasyni biskupi, sem hún
sakaði um tilraun til nauðgunar.
Sama ár sögðu 2.344 einstaklingar
sig úr þjóðkirkjunni.
Biskupsmálið var svo tekið aftur
upp í fjölmiðlum árið 2010, en fyrsta
fréttin birtist í DV þann 11. ágúst.
Fjallaði hún um að bréf Guðrúnar
Ebbu Ólafsdóttur hefði legið ósvarað
hjá biskupi í rúmt ár. Í því bréfi lýsti
hún kynferðisofbeldi sem hún varð
fyrir af hendi föður síns og óskaði
eftir fundi með kirkjuráði til að ræða
það.
Í ágúst sögðu 1.964 einstaklingar
sig úr þjóðkirkjunni.
13. ágúst
Kirkjan leynir bréfi
biskupsdóttur
DV óskaði ítrekað eftir upplýsingum
um kynferðisbrotamál innan kirkj-
unnar en kom alls staðar að lokuð-
um dyrum. Biskupsstofa neitaði að
láta af hendi afrit af bréfi Guðrún-
ar Ebbu biskupsdóttur og formaður
fagráðs um kynferðisbrot neitaði að
upplýsa um málið. DV birti hluta af
bréfi Guðrúnar Ebbu sem hún sendi
blaðinu. Þar hvatti hún kirkjuráð til
að taka á máli Sigrúnar Pálínu og
biðja hana opinberlega afsökunar.
Gunnar Rúnar Matthíasson, for-
maður fagráðs gegn kynferðisbrot-
um innan kirkjunnar, staðfesti að
einum starfsmanni kirkjunnar hefði
verið vísað úr starfi árinu áður vegna
kynferðisbrota. Hann gat ekki gefið
frekari upplýsingar um það.
15. ágúst
Hannes Þór Helgason myrtur á
heimili sínu
Gunnar Rúnar Sigurþórsson myrti
Hannes Þór Helgason á heimili sínu
í Hafnarfirði. Gunnar Rúnar var drif-
inn áfram af þráhyggju sinni á kær-
ustu Hannesar en áður hafði hann
sett myndband á vef YouTube þar
sem hann játaði ást sína á henni.
Aðfaranótt 15. ágúst hafði Gunnar
Rúnar hitt kærustuna á skemmtistað
í miðborg Reykjavíkur. Taldi Gunn-
ar að ef hann myndi ráða Hannesi
bana myndi kærasta hans verða sín.
Gunnar Rúnar hefur verið met-
inn ósakhæfur en ekki hefur verið
kveðinn upp dómur í málinu.
18. ágúst
Biskupsdóttir fékk áheyrn
kirkjuráðs
Guðrún Ebba Ólafsdóttir fékk
áheyrn kirkjuráðs þann 17. ágúst.
Þar sagði hún sögu sína sem Karl
Sigurbjörnsson biskup sagðist ætla
að geyma í hjarta sínu. Í kjölfarið
upplifði hún mikinn létti og frelsi
en kirkjuráð taldi að þar með væri
málinu lokið. Eftir að mál Guðrún-
ar Ebbu kom fram sögðu hundruð
manna sig úr þjóðkirkjunni. Kirkju-
ráð lagði til að stofnuð yrði sann-
leiksnefnd innan kirkjunnar til að
fara ofan í þessi mál og hefur kirkjan
brugðist við reiði almennings með
því að leggja drög að rannsóknar- og
sannleiksnefnd. Kröfur eru uppi um
að Karl biskup axli ábyrgð og víki.
27. ágúst
Fórnarlömb biskups
segja sögu sína
Fórnarlömb Ólafs Skúlasonar bisk-
ups stigu fram og sögðu sögu sína
í opnuviðtali í DV. Það voru þær
Ólöf Pitt Jónsdóttir, Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir , Stefanía Þorgríms-
dóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir, og
Særós Guðnadóttir, auk konu sem
vildi ekki koma fram undir nafni.
Ágúst/September
Átökin um auðlind sjávar
Átök voru og eru undirliggjandi um
núverandi kvótakerfi og hugmynd-
ir ríkisstjórnarinnar um að fara
svonefnda fyrningarleið og leysa
kvótann til ríkisins á 20 árum. Jón
Bjarnason sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra reyndi að ná víð-
tækari sátt um málið með aðild
hagsmunaaðila að starfshópi. Hóp-
urinn undir formennsku Guðbjarts
Hannessonar kom sér saman um
að mæla með svonefndri samninga-
leið, en hún á í senn að treysta þann
skilning að auðlindir hafsins séu al-
mannaeign en nytjarétturinn sé hjá
útgerðunum. Svonefnd markaðs-
leið, sem byggðist á fyrningu og inn-
lausn kvótans, fékk ekki hljómgrunn
innan nefndarinnar. Jón Bjarnason
hefur þrátt fyrir þetta farið gegn vilja
útvegsmanna oftar en einu sinni,
meðal annars með því að úthluta
skötuselskvóta af hálfu ríkisins. Þá
neitaði hann að gefa út úthafsrækju-
kvóta á þeim grundvelli að ekki hefði
tekist að veiða upp í kvótann mörg
undanfarin ár. Undir lok ársins var
ljóst að Jón vildi ganga lengra og
leigja út allt að 10 þúsund tonn af
viðbótarþorskkvóta á yfirstandandi
fiskveiðiári. Frumvarp þar að lútandi
hefur ekki fengið hljómgrunn innan
ríkisstjórnarinnar.
September
6. september
Fékk enga samúð hjá
forsetanum
Vígdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands, segir í samtali við DV
að hún hafi ekki verið í þöggunarlið-
inu í biskupsmálinu og hafi aldrei
verið. Hún sagði að hún tæki upp-
lifun Sigrúnar Pálínu mjög nærri sér.
Sigrún hafði stuttu áður sagt frá upp-
lifun sinni af fundi sínum með Vig-
dísi þar sem hún fékk hvorki samúð
frá henni né huggun.
11. september
Biskup neitar að hætta dúntöku
Biskupsstofa neitaði að hætta æðar-
dúntöku í hólma á Hagavatni á Snæ-
fellsnesi og vísaði til ítaks í hólman-
um frá 15. öld. Landeigandi Haga,
sem á þann hluta vatnsins sem um-
lykur hólmann, kærði sóknarprest-
inn á Staðarstað til lögreglu fyr-
ir ólöglega dúntöku. Lögfræðingur
Biskupsstofu sagði kirkjuna vera í
fullum rétti að nýta æðardúninn í
hólmanum. Ágóðinn rennur í vasa
sóknarprestsins.
16. september
Endapunktur á myntkörfulánin
Hæstiréttur kvað upp þann dóm
sinn í september, sem lengi hafði
verið beðið eftir, að íslensk lán sem
áður voru bundin gengistryggingu
skyldu afturvirkt bera óverðtryggða
vexti Seðlabanka Íslands. Með þess-
ari ákvörðun staðfesti Hæstiréttur
dóm héraðsdóms sem féll í sumar.
Með þessu fékkst vísir að niðurstöðu
varðandi svokölluð myntkörfulán
hjá um 40 þúsund heimilum. Fjár-
mögnunarfyrirtækin hófu flest að
endurreikna lánin og einfaldari út-
reikningum lauk fljótlega eftir að
dómurinn féll. Enn eru fjármála-
stofnanir þó ekki búnar að umreikna
öll lán og að öllum líkindum þarf
fjölda dómsmála til að skera úr um
mismunandi útfærslur gengislána
og um mál þeirra sem hafa selt eða
keypt eignir sem báru gengistryggð
lán. Strax eftir dóminn boðaði ríkis-
stjórnin lagasetningu um að öll bíla-
lán og húsnæðislán með gengisvið-
miðun yrðu gerð ólögmæt, óháð efni
samninganna. Þau voru samþykkt
rétt fyrir jól.
24. september
Beitti þrjá drengi
kynferðisofbeldi
Helgi Hróbjartsson játaði fyrir fag-
ráði þjóðkirkjunnar að hafa beitt
þrjá drengi kynferðisofbeldi í for-
tíðinni. Enn eitt kynferðismál tengt
séra Helga er komið inn á borð þjóð-
kirkjunnar. Séra Helgi starfaði lengi
við trúboð í Afríku og viðmælendur
DV lýstu honum flestir sem ákaflega
hlýjum og nærgætnum manni.
27. september
Heimilin seld á uppboði
Fjölda fjölskyldna biðu þau örlög að
missa húsnæði sitt á uppboði á árinu
sem er að líða. Um þrettán hundr-
uð fasteignir höfðu í september ver-
ið seldar á nauðungaruppboðum.
Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, þar
sem ástandið er verst, sagði skelfi-
legt að horfa upp á fólk missa hús-
in sín. Svanborg Sigmarsdóttir, hjá
umboðsmanni skuldara, hvatti fólk
til að leita sér aðstoðar fyrr en síð-
ar og sagði enga bið eftir viðtali hjá
lögmönnum embættisins, en em-
bættið óx svo að umfangi á árinu að
það flutti í nýtt húsnæði áður en árið
rann sitt skeið.
Október
30. OKTÓBER 2010
Varð fyrir lest í Noregi
Tuttugu og þriggja ára gamall Íslend-
ingur lét lífið þegar hann varð fyrir
lest í Drammen í Noregi. Atvikið átti
sér stað á Brakerøya-lestarstöðinni í
bænum og virðist sem svo að maður-
inn hafi dottið niður á lestarsporið.
Engir farþegar voru í lestinni sem var
á fullum hraða á leið til Óslóar. Tals-
menn lögreglunnar á svæðinu segja
að maðurinn hafi nær örugglega lát-
ist samstundis.
Október-Desember
Heiðar Már í eldlínunni
Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og
fyrrverandi samstarfsmaður Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar, var mjög í
umræðunni síðla árs vegna tveggja
aðskildra mála. Í október greindi DV
frá stöðutöku Heiðars Más gegn ís-
lensku krónunni á árunum 2006 og
2007 og fundum hans með erlend-
um fjárfestum þar sem hann ræddi
um að taka stöðu gegn krónunni.
Einnig greindi blaðið frá því að hann
hefði mælt með allsherjarstöðutöku
Landsbankans og annarra fyrirtækja
Björgólfs Thors gegn krónunni og ís-
lenskum fyrirtækjum á árinu 2007.
Þar ræddi Heiðar Már ítarlega áætlun
um hvernig hann vildi útfæra þessa
stöðutöku þannig að Björgólfur Thor
græddi á lækkun hlutabréfaverðs á
Íslandi sem og á lækkun krónunnar.
Umfjöllun DV var byggð á tölvupóst-
um frá Heiðari Má og minnisblöðum
sem hann kynnti fyrir stjórn Lands-
bankans. Heiðar Már neitaði öllu
saman og hótaði DV málaferlum ef
umfjöllunin yrði ekki dregin til baka.
Heiðar Már stefndi DV síðan í
desember eftir að fjárfestahópur á
hans vegum hafði hætt við kaup á
tryggingafélaginu Sjóvá. DV hafði
meðal annars greint frá dramatísk-
um samskiptum Heiðars Más og
Más Guðmundssonar, bankastjóra
Seðlabankans, þar sem rætt var um
kaupin á tryggingafélaginu. Dráttur-
inn á sölunni á Sjóvá var meðal ann-
ars tilkominn vegna þess að bankinn
hafði um allnokkurt skeið rannsak-
að viðskipti Heiðars Más með af-
landskrónur en þau eru mögulega
talin stangast á við gjaldeyrishafta-
lög Seðlabanka Íslands. Niðurstaðan
úr rannsókn bankans á viðskiptum
Heiðars Más liggur ekki fyrir.
Nóvember
4. nóvember 2010
Grunuð um stórfelld fjársvik
Helga Ingvarsdóttir var handtekin
ásamt kærasta sínum, Vickram Bedi,
í Bandaríkjunum grunuð um stór-
fellda fjárkúgun.
Lögreglan í Harrison í New York-
ríki telur að upphæðirnar sem parið
kúgaði út úr fórnarlambi sínu Rog-
er C. Davidson, þekktum píanóleik-
ara og tónskáldi, hafi verið allt að
20 milljónir bandaríkjadala. David-
son leitaði til þeirra þeirra með vír-
ussýkta tölvu í ágúst 2004 og hafði
áhyggjur af því að tónverk hans,
myndir og önnur verðmæti á harða
disk tölvunnar myndu glatast, en
Helga og Bedi áttu fyriræki sem bauð
upp á tölvuviðgerðarþjónustu.
Helga Ingvarsdóttir hefur verið
látin laus gegn tryggingu, með því
skilyrði að hún fari ekki út úr New
York-ríki. Réttað verður í málinu á
nýju ári.
14. nóvember 2010
Veitti föður sínum
lífshættulega áverka
Þorvarður Davíð Ólafsson réðst með
fólskulegum hætti á föður sinn, tón-
listarmanninn Ólaf Þórðarson, á
æskuheimili sínu við Urðarstíg. Ólaf-
ur hlaut lífshættulega áverka og ligg-
ur enn meðvitundarlaus á sjúkrahúsi
eftir árásina. Það var eiginkona Ólafs
sem kom að honum stórslösuðum
en þá þegar höfðu nágrannar hringt
á lögreglu vegna gruns um að ekki
væri allt með felldu á heimilinu. Mál-
ið mun hafa snúist um að Þorvarður
taldi sig eiga inni ógreiddan móður-
arf eftir móður sína sem lést fyrir 16
árum. Þorvarður var undir áhrifum
eiturlyfja þegar árásin átti sér stað.
Hann var handtekinn á heimili sínu
í vesturbæ Reykjavíkur skömmu eftir
árásina og játaði verknaðinn.
Þorvarður Davíð mun þurfa að
sæta geðrannsókn en hann hefur
setið í gæsluvarðhaldi síðan hann var
handtekinn.
25. nóvember
Ásaka Gunnar um kynferðislegt
ofbeldi
Þrjár konur sendu stjórn Krossins
bréf þar sem þær ásökuðu Gunn-
ar Þorsteinsson um kynferðislegt
ofbeldi. Það voru tvær fyrrverandi
mágkonur Gunnars, þær Sólveig og
Sigríður Guðnadætur, ásamt Brynju
Dröfn Ísfjörð Ingadóttur. Í viðtali
við DV segist Gunnar vera bugaður
maður en hann muni hreinsa mann-
orð sitt. Nokkrum dögum síðar steig
Gunnar til hliðar sem forstöðumað-
ur Krossins.
29. nóvember
Eins og George Clooney
Jónína Benediktsdóttir, eiginkona
Gunnars í Krossinum, lýsti því yfir í
viðtali við DV að hún tryði á sakleysi
eiginmanns síns. Jónína lét þessi orð
meðal annars falla: „Hann er svo
myndarlegur þessi maður. Það er
hans stærsta vandamál hvað hann
er myndarlegur. Hann er eins og
George Clooney.“
Desember
24. desember 2010
Skotárás í Bústaðahverfi
Skotið var úr haglabyssu á útidyra-
hurð einbýlishúss í Bústaðahverfinu
á aðfangadag jóla. Einnig var ráðist á
lögreglumann og hann laminn í and-
litið. Íbúar hússins voru heima þegar
árásin átti sér stað, þar á meðal eitt
ungabarn. Talið er að árásin tengist
handrukkun vegna fíkniefnaskuldar.
Óttaslegin Dorrit Moussaieff forsetafrú og Karl Sigurbjörnsson biskup fylgjast einbeitt með fjölmennum mótmælum við setningu Alþingis
nú í haust. MYND SIGTRYGGUR ARI
Bankamenn yfirheyrðir Sérstakur saksóknari yfirheyrði fjölda fólks á árinu og þurftu
sumir að sæta gæsluvarðhaldi. Sigurður Einarsson kom til landsins eftir að alþjóðleg
handtökuskipun hafði verið afturkölluð. MYND RÓBERT REYNISSON