Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 20
20 | Fréttir 29. desember 2010 Áramótablað Apríl 2010 - Rannsóknarskýrsla Alþingis Magnús þakkar fyrir sig „Takk Meira en nog :-).“ n Svar Magnúsar Guðmundssonar, forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, í júlí 2008 þar sem hann svaraði tölvupósti Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns Kaupþings, um bónusgreiðslur fyrir árið 2007. Sigurður stakk upp á því að Magnús fengi eina milljón evra, um 120 milljónir króna, í bónus vegna rekstrarársins 2007. Magnús var sáttur við það. Niðurstaðan sem rannsóknarnefnd Alþingis kemst að er sú að slíkar bónusgreiðslur til starfsmanna íslensku bankanna hafi oft og tíðum verið byggðar á huglægu mati en ekki raunverulegum rekstrar- árangri íslensku bankanna fyrir hrun. Tölvupóstsamskiptin á milli Sigurðar og Magnúsar eru notaðuð til að styðja þessa fullyrðingu Apríl 2010 - Rannsóknarskýrsla Alþingis Styrmir fékk upp í kok „Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“ n Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem hann tjáir sig um sýn sína á íslenskt samfélag. Apríl 2010 - Stefna slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og viðskiptafélögum hans Erfiður eigandi „Mér finnst hinn góði eigandi okkar aðeins setja þig í erfiða stöðu með þessum mail. Goldsmith er t.d. virði 1,5 en ekki 4,0 o.s.frv. En ég geri allt sem þú segir mér að gera.“ n Einar Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Glitnis, í tölvupósti til Lárusar Welding, bankastjóra Glitnis, í maí 2008 þar sem hann tjáði sig um viðskipti Jóns Ásgeirs, Pálma Haraldssonar og Glitnis með hlutabréf í bresku skartgripakeðjunni Aurum. Orð Einars staðfesta nánast þann grun slitastjórnar Glitnis að viðskiptin með Aurum-bréfin hafi ekki farið fram á eðlilegum og markaðslegum forsendum fyrir Glitni og að greitt hafi verið yfirverð fyrir bréfin. Maí 2010 - DV Ekki hræðilegt að eiga strák „Ég var mjög lengi að jafna mig á því að eiga strák. Mér finnst það ennþá mjög merkilegt. Hann er ósköp indæll og dásamlegur og ég er ofsalega ánægð með hann, en það er samt skrítið að eiga strák. Fyrst og fremst hef ég lært að það er ekkert hræðilegt við það að eiga strák eins og ég hélt fyrst.“ n Sóley Tómasdóttir, femínisti og oddviti Vinstri grænna í borgar- stjórn, tjáði sig um fæðingu sonar síns í viðtali við DV. Ummælin vöktu mikla athygli þar sem einhverjir túlkuðu þau á þann veg að Sóley væri haldin karlfyrirlitningu. Hugsanlegt er að þessi ummæli hafi haft slæm áhrif á fylgi Vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum fyrr á árinu. Apríl 2010 - Rannsóknarskýrsla Alþingis Úttroðinn Sigurjón „Sigurjón var þarna, það voru snúðar á borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd með gullúri og kippti honum út.“ n Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um fund sem ráðherrar í ríkisstjórninni héldu með stjórnendum Landsbankans í aðdraganda bankahrunsins haustið 2008. Landsbankinn vildi eignast Glitni fyrir lítið og var það eitt af málum fundarins. Sigurjón Árnason talaði af sér á fundinum og gaf upp að staða Landsbankans væri ekki eins góð og látið hefði verið í veðri vaka. Björgólfur Thor Björgólfsson stöðvaði Sigurjón svo áður en hann sagði of mikið og dró hann út úr fundarherberginu. Apríl 2010 - Rannsóknarskýrsla Alþingis Björgólfur verstur „Og verstur var Björgólfur [Thor Björgólfsson] [...] og hann var að ljúga að hinum líka og þeir komu svo bara um kvöldið og sögðu: „Það er ekkert að marka það sem þessi maður segir“.“ n Árni Mathiesen, þáverandi fjármála- ráðherra, greindi frá því í skýrslunni að upplýsingarnar sem Björgólfur Thor Björgólfsson og aðrir stjórnendur Landsbankans gáfu um stöðu bankans í aðdraganda efnahagshrunsins 2008 hefðu ekki verið mjög traustar. Markmið Björgólfs Thor með því að fegra stöðu bankans virðist hafa verið að Landsbankinn bjargaði sér fyrir horn með því að sameinast Glitni eða Kaupþingi. Mars 2010 - Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar Að smala köttum „Hoppandi meirihlutar á Alþingi duga skammt við aðstæður eins og okkar þjóð gengur í gegnum og of mikil orka og tími fer að smala þeim saman og ná málum í gegn. Ein flokks- systir okkar orðaði þetta ágætlega þegar hún sagði að þetta væri eins og að smala köttum.“ n Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gagnrýndi nokkra af þingmönnum Vinstri grænna sem settu sig ítrekað upp á móti ákvörðunum ríkisstjórnarinnar á árinu. Þeirra á meðal voru Ögmundur Jónasson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Vegna eftirfarandi ummæla Jóhönnu hlutu þessir þingmenn nafnbótina villikettir. Apríl 2010 - Rannsóknarskýrsla Alþingis Davíð vildi Blómaval „Það er að ég komist í stjórn Blómavals.“ n Davíð Oddsson seðlabankastjóri var ekki mjög upprifinn af hugmyndum Landsbankamanna um sameiningu við Glitni í aðdraganda hrunsins haustið 2008. Seðlabankastjóranum þóttu hugmyndirnar arfavitlausar og sagði hann í hæðni við Halldór J. Kristjánsson, bankastjóra Landsbankans, að hann myndi samþykkja sameininguna með því skilyrði að hann fengi að setjast í stjórn Blómavals. Apríl 2010 - Rannsóknarskýrsla Alþingis Tryggva ólíft á Íslandi „Þarna situr forsætisráð- herra frammi og skelfur eins og lauf í vindi og getur ekki tekið ákvörðun. Hann hlustar á þig og þú ert að grafa undan þessu. Ef þetta gengur ekki fram mun ég persónulega sjá til þess að þér verði ólíft á Íslandi það sem eftir er.“ n Tryggvi Þór Herbertsson, núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins og fyrrverandi efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde, lenti í orðaskaki við Davíð Oddsson seðlabankastjóra í aðdraganda hrunsins. Davíð taldi Tryggva Þór tala máli Glitnismanna, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og félaga, í viðræðunum við ríkið um lausn á vandamálum Glitnis. Tryggvi vitnaði í orð Davíðs í skýrslunni sem virðast hafa falið í sér hótun í garð Tryggva. Ágúst 2010 - DV Ábyrgð fórnarlamba nauðgana „Oftar en ekki eru þessi mál tengd mikilli áfengisnotkun og ekki á ábyrgð neins nema viðkomandi sem er útsettur fyrir því að lenda í einhverjum vandræðum. Það er erfitt hvað það er algengt að fólk bendi alltaf á ein- hverja aðra og reyni að koma ábyrgðinni yfir á þá. Fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér.“ n Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, í viðtali við DV um nauðganir á skemmti- stöðum. Fjórtán konum var nauðgað inni á skemmtistöðum í Reykjavík á síðasta ári, og þar af fjórum á sama skemmtistaðnum, Apótekinu. Af þessu tilefni ræddi DV við Björgvin. Hann benti á að fórnarlömb nauðgana bæru ábyrgð á sjálfum sér og að lögreglan væri enginn „frelsandi engill“. Mars 2010 - DV Pálmi gráðugur „Horft til baka, já, þá var ég drifinn áfram af græðgi.“ n Pálmi Haraldsson fjárfestir viðurkenndi í viðtali við DV á árinu að hann hefði stundað siðferðilega vafasöm viðskipti. Meðal þess sem Pálmi viðurkenndi var að fyrirtæki og félög sem gengu kaupum og sölum manna á milli hefðu verið verðmetin allt of hátt. Hann sagði einnig að viðskiptin með flugfélagið Sterling, sem hann keypti og seldi á sínum tíma, stæðust ekki neina skoðun. FLEYGUSTU UMMÆLIN 2010 n Mörg af fleygustu ummælum ársins 2010 koma úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis n Skýrslan kom út í apríl og hafði landinn beðið hennar nokkuð lengi n Önnur fleyg ummæli ársins tengjast einnig mörg hver uppgjörinu við íslenska efnahagshrunið með einum eða öðrum hætti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.