Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 22
22 | Erlendur annáll 29. desember 2010 Áramótablað Raunir námumanna og leyniskjalaleki n Árið einkenndist af náttúruhamförum og einu stærstaumhverfis- slysi sögunnar n Wikileaks sá um að fylla fréttasíðurnar n Námuverka- menn frá Síle stálu senunni n Silvio Berlusconi sá um skemmtiatriðin Janúar 4. janúar Hæsta mannvirki sögunnar vígt Í borginni Dúbaí í Sameinuðu ar- abísku furstadæmunum var tekin í notkun hæsta bygging mannkyns- sögunnar. Byggingin ber heitið Burj Khalifa, sem þýðir einfald- lega „Kalífa-turninn.“ Turninn er 828 metrar á hæð og er því tæpum 200 metrum hærri en sú bygging sem kemur næst á listanum. Það er sjónvarpsmastrið KVLY sem er að finna í Norður-Dakóta ríki í Bandaríkjunum og er það 629 metrar að hæð. Kalífa-turninn kostaði um einn og hálfan millj- arð bandaríkjadala og tóku fram- kvæmdirnar sex ár. Arkitektinn var Bandaríkjamaðurinn Adrian Smith. 12. janúar Hörmungar á Haítí Jarðskjálfti sem mældist 7,0 á Richt- er-kvarða reið yfir Haítí, en upptök hans voru í bænum Léogane, um 25 kílómetra frá höfuðborginni Port-au-Prince. Jarðskjálftinn hafði skelfilegar afleiðingar í för með sér en alls lágu um 230 þúsund manns í valnum af hans sökum. Talið er að allt að milljón Haítar hafi misst heimili sín og í kjölfarið hefur mik- ill fjöldi fólks þurft að hafast við í tjaldbúðum. Enn sér ekki fyrir endann á hörmungunum á Haítí en í tjaldbúðunum geisar alvarleg- ur kólerufaraldur og auk þess eru glæpir algengir, sér í lagi nauðgan- ir og misþyrmingar á konum og börnum. Febrúar 27. febrúar Einn stærsti jarðskjálfti sögunnar Þriðji stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur frá upphafi skók Síle, en upptök hans voru í Maule- héraðinu, um 100 kílómetra frá Concepcion, næststærstu borg- inni í Síle. Skjálftinn mældist 8,8 á Richter-kvarða og stóð hann yfir í 90 sekúndur. Hann fannst vel í höfuðborginni Santíagó, en hann fannst einnig í fjölmörgum borg- um Argentínu, meðal annars í Bú- enos Aíres. Alls létust tæplega 500 manns vegna skjálftans og ljóst er að mun verr hefði getað farið. Eignatjón var þó umtalsvert, en um 370 þúsund byggingar eyði- lögðust. Mars 26. mars Suðurkóresku herskipi sökkt með tundurskeyti Suðurkóreska herskipinu Cheon- an var sökkt við vesturströnd Kór- euskagans í Gulahafi. Alls féllu 46 sjóliðar en 110 manns voru í áhöfninni. Í kjölfarið var gerð alþjóðleg rannsókn á tildrögum atburðarins og voru niðurstöður hennar kynntar þann 20. maí. Var talið næsta víst að norðurkóreskt tundurskeyti hefði verið að verki, sem hefði sennilega verið skotið úr kafbáti. Norðurkóresk yfirvöld þvertóku fyrir að hafa átt hlut að máli. Á myndinni má sjá syrgjandi ættingja þeirra sem fórust með skipinu. Apríl 10. apríl Flugvél Lechs Kazcynskis, forseta Póllands, hrapar. Enginn komst af. Pólska forsetaflugvélin hrap- aði um 20 kílómetrum fyrir utan Smolensk í Rússlandi. Í flugvélinni var forseti Póllands, Lech Kaz- cynski, ásamt 12 þingmönnum, yf- irmanni herforingjaráðs Póllands og fjölda annarra háttsettra stjórn- málamanna og embættismanna. Alls voru 96 manns um borð en enginn komst af. Kaldhæðnis- legt var að flugvélin var á leið til minningarathafnar í Smolensk, þar sem minnast átti fórnarlamba úr fjöldamorðunum í Katyn-skógi. Í ár voru 70 ár liðin síðan sovéski herinn flutti pólska herfanga í miðjan skóginn þar sem grafnar höfðu verið fjöldagrafir, sem voru fylltar jafnóðum. Alls voru yfir 22 þúsund manns teknir af lífi en með í forsetaflugvélinni voru ætt- ingjar fórnarlambanna. 20. apríl Sprenging í olíuborpalli, eitt stærsta umhverfisslys sögunnar Sprenging varð í borpalli olíuris- ans British Petrolium í Mexíkó- flóa undan strönd Louisiana-ríkis í Bandaríkjunum. Á borpallinum, sem bar nafnið Deepwater Horiz- on, var einn öflugasti djúpsjávar- bor í heimi. Vegna mikils þrýst- ings vegna uppsafnaðrar leðju varð gífurleg sprenging á pallinum þann 20. apríl. Þar létust 11 en 125 komust undan í björgunarbátum. Sprengingin var svo öflug að hana var hægt að sjá í meira en 50 kíló- metra fjarlægð. Tveimur dögum síðar sökk borpallurinn og um leið kom rof í olíuleiðslur sem leiddi til eins mesta olíuleka sem sést hefur. Neyðarástand myndaðist á Mexíkóflóa þar sem fólk sem hafði viðurværi sitt af sjávarútvegi eða ferðamannaiðnaði var skyndilega svipt starfi sínu. Þá varð ómetan- legur skaði á dýralífi og gróðri. Barack Obama setti málið í for- gang og hét því að aðstoða það fólk sem hlyti skaða af olíulekan- um. Hann hét því einnig að British Petrolium yrði dregið til ábyrgðar. Ekki tókst að hemja lekann fyrr en fimm mánuðum síðar, þann 19. september, en þá höfðu lekið allt að milljón tonn af olíu í Mexíkó- flóa. Maí 2. maí Grikkir fá neyðarlán Lengi hafði verið vitað að þjóðar- skuldir Grikkja væru langt umfram landsframleiðslu þeirra. Í efna- hagshruninu árið 2008 keyptu Grikkir, líkt og Írar, sér tíma með því að gefa út ótakmarkað magn af ríkisskuldabréfum sem lánar- drottnar gátu tekið upp í skuldir til að innheimta síðar. Í apríl var svo komið að skuldabaginn var orðinn of þungur fyrir Grikki til að bera er vextir á ríkisskuldabréfum náðu nýjum hæðum. Að lokum fór svo að Evrópusambandið og Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn þurftu að rétta Grikkjum hjálparhönd með neyð- arláni sem hljóðaði upp á samtals 110 milljarða evra. Mikil mótmæli brutust út í kjölfarið en Grikkir eru ekki allir sáttir við veru AGS í landi sínu. Í kjölfarið hefur ríkisstjórn Grikklands kynnt gífurlegan nið- urskurð í almannaþjónustu, hærri skatta og hærri eftirlaunaaldur. Þá ríkir einnig mikið atvinnuleysi í Grikklandi. 6. maí Ný ríkisstjórn í Bretlandi Bretar gengu til kosninga eftir að Gordon Brown forsætisráðherra hafði gengið á fund Elísabetar II og beðið hana um leysa upp þingið í apríl. Íhaldsmenn fengu flest atkvæði í kosningunum en vantaði þó 20 þingsæti til að hljóta hreinan meirihluta. Þeir hófu hins vegar strax samningaviðræður við frjálslynda demókrata, en það telst til tíðinda þegar samsteypuríkis- stjórnir eru myndaðar í Bretlandi. Brown sagði af sér sem forsætis- ráðherra þann 13. maí og þar með lauk 13 ára vist Verkamannaflokks- ins í ríkisstjórn. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, varð for- sætisráðherra og Nick Clegg, leið- togi frjálslyndra demókrata, varð varaforsætisráðherra. 20. maí 15 milljarða listaverkastuldur í París, skorið úr römmum Brotist var inn í nýlistasafnið í Par- ís, Musée d‘Art Moderne, og tekin fimm meistaraverk eftir þá Pablo Picasso, Henri Matisse, Georges Braques, Fernand Léger og Amed- eo Modigliani. Heildarvirði mál- verkanna er að minnsta kosti rúm- lega 100 milljónir evra, eða um 15 milljarðar íslenskra króna. Örygg- ismyndavélar sýndu grímuklædd- an mann koma inn um glugga, en hann hafði einfaldlega brotið rúðuna. Hann hófst síðan handa við að skera meistaraverkin úr römmunum með dúkahníf. Ekki er vitað hvers vegna þjófavarnarkerfi safnsins fór ekki af stað. Pierre Cornette de Saint-Cyr, yfirmað- ur safnsins, sagði að vegna þess hve verkin væru þekkt, væru þau óseljanleg. „Þannig að þið þjófaar, herrar mínir, þið eruð vanvitar. Skilið þið nú verkunum.“ Vanvit- arnir hafa ekki fundist. Júní 11. júní Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hefst í Suður-Afríku Lið frá 32 löndum kepptu um heimsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu. Mótið er jafnan talið til stærstu íþróttaviðburða í heimi en að meðaltali horfðu um 400 milljónir manna á hvern leik, þar af yfir 700 milljónir á úrslitaleik- inn. Fór svo að Spánverjar fóru með sigur af hólmi, eftir að hafa borið sigurorð af Hollendingum í framlengingu með marki Andrés Iniesta. Keppnin þótti takast vel og fengu Suður-Afríkumenn 9 af 10 mögulegum í einkunn frá FIFA, alþjóðaknattspyrnusamband- inu, fyrir framkvæmd keppninnar. Fjárhagslega stóð keppnin þó ekki undir væntingum fyrir Suður-Afr- íku, en landið hafði eytt miklum fjármunum í endurbætur á leik- vöngum. Bjuggust suðurafrísk yfirvöld við allt að hálfri milljón ferðamanna vegna keppninnar en þangað komu hins vegar aðeins 300 þúsund. Júlí 25. júlí Wikileaks birtir gögn frá Afganistan Uppljóstrunarsíðan Wikileaks var áberandi í erlendum fréttum á árinu. Í apríl birti síðan mynd- skeið af tveimur þyrluárásum sem vöktu heimsathygli en þau voru að stórum hluta unnin á Íslandi og frumsýnd í fréttatíma RÚV. Í júlí hóf Wikileaks að birta um 90 þús- und skjöl um stríðið í Afganistan, svokallaðar stríðsdagbækur (war- logs). Julian Assange, stofnandi og hugmyndafræðingur Wikile- aks, öðlaðist heimsfrægð í kjöl- farið en þau stjórnvöld sem áttu hlut að máli í skjölunum reyndu að verjast fréttum af misferli sem mest þau máttu. Í skjölunum kom meðal annars fram að tala fallinna óbreyttra borgara væri miklu hærri en bandarísk stjórnvöld hafa hald- ið fram opinberlega. 29. júlí- 2. september Hitabylgja og skógareldar í Rússlandi Gífurleg hitabylgja var í Austur- Evrópu og Rússlandi í ágústmán- uði. Í Rússlandi var hvert hitamet- ið á fætur öðru slegið og meira að segja fengu íbúar í Síberíu að upp- lifa hitabeltisloftslag. Hitabylgjan var valdur að miklum þurrkum sem lögðu grunninn að skógareld- um sem geisuðu allan ágústmán- uð með skelfilegum afleiðingum. Dimitrí Medédev, forseti Rúss- lands, lýsti yfir neyðarástandi í landinu þar sem enginn var óhult- ur fyrir reykmettuðu andrúms- loftinu. Í stórborgum urðu líkhús yfirfull en heimilislaust fólk varð sérstaklega illa úti. Alls létust um 15 þúsund manns úr reykeitrun, en þeir sem áttu í öndunarerfið- leikum fyrir voru vitanlega í meiri hættu en aðrir. Á tímabili sást ekki milli húsa í Moskvu þar sem reyk- urinn fyllti hvern krók og kima. September 19. september Kosningar í Svíþjóð Þingkosningar voru haldnar í Svíþjóð og hélt samsteypustjórn Fredriks Reinfeldts velli. Sósíal- demókratar töpuðu 18 þingsætum en hlutu samt flest þingsæti, eða 112. Hófsami samstöðuflokkurinn, flokkur Reinfeldts, fékk 107 sæti en Flugslys Forseti Póllands fórst í hörmulegu flugslysi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.