Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 23
Erlendur annáll | 23Áramótablað 29. desember 2010
Raunir námumanna og leyniskjalaleki
kosningabandalag þeirra, Miðju-
flokksins, Kristilegra demókrata
og Frjálslynda flokksins hlaut alls
49 prósent atkvæða og hélt velli.
Ástæðan er að stórum hluta það
tómarúm sem kosningasigur Sví-
þjóðardemókratanna skóp, en þeir
hlutu sex prósent atkvæða. Enginn
annar flokkur vill þó starfa með Sví-
þjóðardemókrötunum, en þeir eru
öfgahægriflokkur sem hefur verið
vændur um kynþáttahatur.
29. september
Þjóðverjar ljúka við greiðslu
stríðsskaðabóta
Mikil tímamót urðu í Þýskalandi
þegar Þjóðverjum tókst loksins að
ljúka greiðslum á stríðsskaðabót-
um frá fyrri heimsstyrjöldinni. Í
Versalasamningunum, sem voru
undirritaðir árið 1919, samþykktu
Þjóðverjar að taka á sig alla ábyrgð
á fyrri heimsstyrjöldinni og einnig
að greiða gríðarlegar stríðsskaða-
bætur, sem myndu reiknast á 385
milljónir bandaríkjadala á núvirði.
Stríðsskaðabæturnar voru þýskum
almenningi mikill þyrnir í aug-
um, enda var honum óskiljanlegt
hvernig hægt hafi verið að líta svo á
að Þjóðverjar hafi tapað stríðinu. Á
meðan stríðið stóð yfir, frá 1914 til
1918, steig aldrei einn einasti óvina-
hermaður á þýska jörð.
Október
13. október
Námuverkamönnum bjargað í
Síle
Þann 5. ágúst féllu San José-námu-
göngin í Atacama-eyðimörkinni í
Síle saman og lokuðust 33 námu-
verkamenn af á 700 metra dýpi. Í
fyrstu voru þeir taldir af en 22. ágúst
tókst að ná sambandi við þá. Var
hafist handa við að finna lausn á því
hvernig bjarga mætti námumönn-
unum og var byrjað að grafa göng
til þeirra skömmu síðar. Þann 9.
október hafði tekist að grafa göngin
en björgunaraðgerðir hófust fjórum
dögum síðar. Var þá hylki sem borið
gat einn mann í einu látið síga niður
og námumennirnir síðan hífðir upp,
hver á fætur öðrum. Námuverka-
mennirnir frá Síle vöktu heimsat-
hygli og keppast nú bókaútgefendur
og kvikmyndafyrirtæki um að fá rétt-
inn að sögu þeirra. Þeir þurftu sam-
tals að dvelja 69 daga í námunni.
25.-26. október
Náttúruhamfarir í Indónesíu
Indónesar hafa þurft að þola ým-
islegt á undanförnum árum. Urðu
þeir til að mynda illa úti í jólaflóð-
bylgjunni árið 2004, en þá létust allt
að 170 þúsund manns í Indónesíu
einni. Í lok október skall önnur flóð-
bylgja á Indónesíu þótt hún hafði
ekki verið nærri því jafnkraftmikil og
sú sem lagði landið í rúst árið 2004.
Flóðbylgjan skall á Vestur-Súmötru
og skildi eftir sig 435 fórnarlömb,
auk þess sem fjöldi húsa eyðilagðist.
Degi síðar hófst eldgos í Merapi-
fjalli á eyjunni Jövu. Þurftu um 350
þúsund manns að flýja heimili sín
vegna gossins og 350 létust í hama-
ganginum. Þúsundir þurfa nú að
hafast við í tjaldbúðum vegna ham-
faranna.
Nóvember
13. nóvember
Suu Kyi laus úr stofufangelsi
Baráttukonan og nóbelsverðlauna-
hafinn Aun San Suu Kyi var sleppt
úr stofufangelsi sínu í Rangoon í
Búrma. Þar hafði hún þurft að dúsa
síðan 1989 með hléi frá 1995 til
2000. Mikil fagnaðarlæti brutust út
í höfuðstöðvum stjórnmálaflokks
hennar, Þjóðardeildar um lýðræði.
Í ræðu sagði Suu Kyi meðal annars
að að grunnurinn að lýðræði væri
tjáningarfrelsi og lagði áherslu á að
umbótum yrði komið á í Búrma „á
réttan hátt.“ Suu Kyi var látin laus
aðeins sex dögum eftir kosning-
ar þar í landi, en flokki hennar var
meinuð þátttaka í þeim. David
Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, og Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, eru meðal þjóðar-
leiðtoga sem fögnuðu frelsi Suu Kyi.
23. nóvember
Norður-Kórea gerir árás
Mikil spenna hefur ríkt á Kóreu-
skaganum á árinu og náði hún há-
marki eftir stórskotaliðsárás Norð-
ur-Kóreumanna á suðurkóresku
eyjuna Yeonpyeong. Þar fór fram
heræfing suðurkóreska hersins og
féllu tveir hermenn í árásinni auk
tveggja óbreyttra borgara. Stríðs-
æsingarmenn fóru mikinn í Seúl,
höfuðborg Suður-Kóreu, og kröfð-
ust aðgerða. Yfirvöld í Norður-Kór-
eu sögðust hafa litið á heræfinguna
sem ögrun og hefðu aðeins verið
að svara fyrir sig. „Byltingarher Al-
þýðulýðveldisins brást við ögrunum
strengjabrúðustjórnarinnar í suðri
með snöggri og kraftmikilli árás. Við
munum ekki hleypa þeim einn þús-
undasta úr millimetra inn fyrir land-
helgi okkar,“ sagði í yfirlýsingu.
28. nóvember
Wikileaks birtir skjöl
frá utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna
Wikileaks stóð við gefin loforð og
hóf að birta fyrstu skjölin af um 250
þúsund sem því hafði áskotnast frá
utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna.
Það var óbreyttur hermaður sem var
staðsettur í Írak, Bradley Manning,
sem var ábyrgur fyrir lekanum, bæði
þessum og hinum fyrri í júlí. Enn
er verið að birta skjölin sem hafa
tvímælalaust verið helsta fréttaefni
ársins. Julian Assange hefur verið
hundeltur í kjölfarið og hafa margir
bandarískir stjórnmálamenn kraf-
Náumenn Heimsbyggðin horfði á
námumennina koma upp á yfirborðið.
Merkel Angela Merkel stóð í ströngu.
Wikileaks Juliane
Assange var mikið í fréttum.