Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 26
26 | Skrýtið 29. desember 2010 Áramótablað
Skrýtnustu
dýr ársins
n National Geographic birti lista yfir furðulegustu dýr ársins
n Allt dýrategundir sem fundist hafa á árinu n Leðurblaka sem
lítur út eins og Yoda n Hr. Burns í froskslíki n Fiskur með hendur
Hann er uppnefndur „köngulóar-
maðurinn“ af vinum og samstarfs-
fólki. Köngulær eru hans líf og yndi
en hann starfar við rannsóknir á
þeim við háskóla í karabíska ey-
ríkinu Púertó Ríkó. Hann ferðast
reglulega til Papúa Nýju-Gíneu,
frumskógareyjunnar norðan við
Ástralíu í Kyrrahafinu. Þar stund-
ar hann rannsóknir á áður óþekkt-
um köngulóategundum, sem eru
meðal hundraða nýrra dýrateg-
unda sem uppgötvast hafa á liðn-
um árum í afskekktum fjallasvæð-
um Papúa Nýju-Gíneu.
Rétt nafn þessa köngulóarmanns
er ekki Peter Parker heldur Ingi Agn-
arsson og er hann Íslendingur. „Flest-
um köngulónum söfnum við á nótt-
inni þegar við göngum um skóginn
með ljós á hausnum. En á daginn slæ
ég í runnana og næ þeim sem detta
úr þeim,“ sagði Ingi í viðtali við sjón-
varpsstöðina Discovery fyrr í ár þegar
fjallað var um nýju dýrategundirnar
og fólkið sem rannsakar þær.
200 nýjar tegundir á Papúa
Nýju-Gíneu
En vísindamenn hafa ekki einungis
uppgötvað köngulær á þessari stóru
og dularfullu eyju. Í hópi hinna áður
óþekktu dýrategunda sem fundust
eru trjáfroskar með króklaga nef, 16
áður óþekktar tegundir froska, þrjár
nýjar tegundir fiska, dvergpokadýr
og trjákengúrur, ný trjámús, tegund-
ir skrautlegra páfagauka og risarott-
ur. Um 200 nýjar dýrategundir hafa
uppgötvast á síðustu tveimur árum á
Papúa Nýju-Gíneu, flestar í tveimur
könnunarleiðöngrum á síðasta ári.
Minnir á Yoda
Frægust þessara nýju dýrategunda frá
eyjunni er líklega leðurblakan snotra
sem sést hér á stóru myndinni á síð-
unni. Hún sló í gegn á meðal netverja
og var uppnefnd Yoda-leðurblakan
því hún þykir minna á hinn smávaxna
og græna Yoda, læriföður Loga geim-
gengils í Star Wars-myndunum.
Skrýtnustu dýr ársins
Nýverið birti vísinda- og náttúru-
tímaritið National Geo graphic
lista yfir skrýtnustu dýrategund-
irnar sem uppgötvaðar voru á
árinu. Yoda-leðurblakan er ein
þeirra. Skrýtnustu dýr ársins eru
hvert öðru skrýtnari en þau eru af
ýmsum ólíkum tegundum og frá
ólíkum stöðum í heiminum, eins
og sést á meðfylgjandi myndum.
Tekið skal fram að sagt er að
dýrategundir séu uppgötvaðar
þegar þeim hefur verið lýst og þær
skrásettar af vísindamönnum. Það
má auðvitað vera að menn hafi
komið auga á þessi dýr áður, ein-
hvern tímann í fyrndinni.
Helgi Hrafn Guðmundsson
blaðamaður skrifar helgihrafn@dv.is
„Rétt nafn þessa
köngulóarmanns
er ekki Peter Parker heldur
Ingi Agnarsson og er hann
Íslendingur.
Langur og mjór Vísindamenn sáu þennan snigil fyrst í ár við rannsóknir í fjalllendi innan
landamæra Malasíu á eyjunni Borneó. Snigillinn kastar stjörnulaga pílum í elskhuga sinn til
að makast og hefur því verið kallaður Ninja-snigill.
MYND: Peter KooMeN
Yoda-leðurblaka Þessi furðulega og nýuppgötvaða
leðurblaka frá Papúa Nýju-Gíneu hefur enn ekki fengið
formlegt fræðiheiti. Netverjar voru hins vegar fljótir að
nefna hana í höfuðið á Yoda, geimverunni aldurhnignu úr
Stjörnustríðsmyndunum, enda er mikill svipur með þeim.
MYND: Poitr NASKrecKi
Notar ugganna til að ganga um botninn Þessi bleiki fiskur tilheyrir einni
níu tegunda handafiska sem skrásettir voru í maí. Handafiskurinn hefur aðeins
fundist við áströlsku eyjuna Tasmaníu. MYND: KAreN GowLett-HoLMeS
Mr. Burns? Vísindamenn römbuðu fram á þrjár áður óþekktar froskateg-
undir í leiðangri í Kólumbíu í september. Þessi mjóleiti froskur hefur fengið
vinnuheitið Simpson-froskurinn því leiðangursstjóranum Robin Moore
fannst hann minna sig á herra Burns í þáttunum um Simpson-fjölskylduna.
MYND: roBiN Moore
trjábítur? Þessi steinbítstegund fannst í Santa Ana-fljóti í Amasón-
frumskógum Perú fyrir nokkrum árum. Það var þó ekki fyrr en í ár sem
menn uppgötvuðu að hún nærist á viði. MYND: MicHAeL GouLDiNG
t. rex-blóðsuga Þessi blóðsuga uppgötvaðist
í Amasónfrumskógum Perú í apríl og hefur fengið
nafnið Tyrannobdella Rex – konungur blóðsug-
anna. Hún getur orðið allt að sjö sentimetra löng
og skartar stórum tönnum. MYND: PLoS oNe