Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 28
28 | Erlendur annáll 29. desember 2010 Áramótablað Óblíð náttúra Fyndnar myndir Dýrin í fréttum Magnaðar myndir Átök og mótmæli Fólkið á árinu Bestu ljósmyndir ársins 2010 Hvirfilbylurinn Megi Þakplötur fljúga á Filippseyjum þegar hvirfilbylurinn Megi skall á eyjunum í október. Merapi eldfjallið í allri sinni dýrð Merapi eldfjallið á Indónesíu gýs hér eldi og ösku upp í stjörnubjartan himininn. Fjallið tók að gjósa í lok október. Eftirsótt sæti á bekknum Erfitt reyndist fyrir ferðamenn að komast til hinnar fornu borgar Machu Picchu í Perú vegna gífurlegra flóða í janúar. Flóðin rufu vegi og lestarteina, en á þessari mynd má sjá hvar flóðið hefur hrifsað með sér hluta útsýnispalls. Ótrúleg björgun Þau voru einstaklega óblíð náttúruöflin á Haítí í janúar, þegar jarðskjálfti skildi eftir sig 230 þúsund látna. Þessu barni tókst þó að bjarga en hér eru rússneskir björgunarmenn að kippa því upp úr húsarústum. Efnilegir fimleikamenn Þessir efnilegu fimleikamenn teygja hér á vöðvunum og æfa handstöðu í skólanum sínum í Zejiang-héraðinu í Kína. Gamli og nýji tíminn mætast Það var hinn danski Hans-Henrik Dussel sem varð þess heiðurs aðnjótandi að eignast fyrstu iPad-tölvuna. Hér heldur hann á fyrstu Apple-tölvunni sinni í hinni hendinni. Undarlegar dýfingar Þótt ótrúlegt megi virðast er ekki verið að pynta manninn sem hangir öfugur á myndinni. Hann er að laga rafmagnskapla á meðan félagar hans halda honum í kjörstöðu til verksins. Beint í mark Þessi nautabani fékk slæma útreið á nautaati á Malaga í sumar. Þó fór betur en á horfðist og nautabaninn ætlar að halda áfram iðju sinni. Garpar í Thames Þessir sundgarpar búa sig hér til sunds í frosinni Thames-ánni í Lundúnum. Hér er ef til vill komin ný áskorun fyrir íslenska sjósundskappa. Ókindin í Egyptalandi Mikil skelfing greip um sig við ferðamannastaðinn Sharm el-Sheikh í Egyptalandi, eftir að hákarl varð þýskri konu að bana. Mikil leit hófst í kjölfarið og töldu menn sig hafa fundið óvættinn, sem sést á þessari mynd. Ströndin var opnuð á ný en þá réðst hákarl á fleiri ferðamenn. Hundur í holu Þessi hundur er í þann mund að lenda í holu sem myndaðist úti á miðri götu í Caracas í Venesúela. Vegna mikils landskriðs féll gatan saman. Höfrungur situr öldu Þessi mynd náðist við suðurströnd Suður-Afríku. Höfrungurinn var kominn talsvert nálægt landi og lyftist með öldunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.