Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 33
Árið hófst á Icesave og endaði á
því ólánsmáli líka. Svo kusum við
trúð sem borgarstjóra. Því mætti
kannski halda fram að við værum
voluð þjóð á vonarvöl og að allt
væri hér í ógurlegu uppnámi.
En þrátt fyrir allan hávaðann
og óráðsöskur sjálfskipaðra sann-
leiksriddara sem hertóku eftir-
hrunsumræðuna þá höfum við það
nú samt sem áður og þrátt fyrir allt
alveg ágætt. Svona heilt á litið. Nú
hillir meira að segja undir að Ice-
save-helvítið verði loks til lykta
leitt. Og með sanngirnisgleraugun
á nefinu verður að viðurkennast
að kjörtímabil trúðastjórnarinnar í
ráðhúsinu hefur farið mun betur af
stað en hringekjurugl endalausra
meirihlutaskipta á fyrra kjörtíma-
bili. Muniði? Og þrátt fyrir stöðug-
ar viðsjár í útkrotuðum veðurkort-
um Stjórnarráðsins er óvinsælasta
ríkisstjórn allra tíma meira að segja
enn við völd – þrátt fyrir stöðuga
vopnaða aðför órólegu deildarinn-
ar. Sem lætur ekkert tækifæri ónot-
að til hnífalags og vinsældaupp-
hlaups á kostnað samstarfsfólks
síns sem þrautpínt situr lúnum
herðum og stoppar upp í stærsta
gat sem sést hefur á gauðrifnum
sokk ríkissjóðs. Á meðan Davíð
hlær í Hádegismóum situr Jóhanna
uppi með svartapétur. Hennar tími
kom. Og er hér enn. Þrátt fyrir allt.
Óreiðumönnum umbunað ...
Það setur að vísu svolítið strik í
reikninginn að okkur hafi ekki
auðnast að taka á skuldamálum
heimilanna með almennum hætti
og færa aftur svolítið af ofteknum
verðbótum sem hlóðust upp á hús-
næðislánin. Þvert á móti var ákveð-
ið að taka einvörðungu á vanda
þeirra sem skuldsettu sig hvað
allra mest en ráðdeildarfólkinu
var áfram refsað, en það fékk einn-
ig að blæða fyrir skuldaafskrift-
ir óreiðufólksins. Þetta er svolítið
öfugsnúið. Á meðan óreiðumönn-
um er umbunað með ríkulegum
skuldaafskriftum er ráðdeildar-
sömum refsað með ógnarhækkun
skulda í kjölfar verðbólguhvells-
ins. Það hljóta að teljast vafasöm
skilaboð til komandi kynslóða og
bera vott um heldur einkenni-
legt siðferði, að aðeins þeim sem
hlóðu á sig allt of miklum skuld-
um sé hjálpað. Í kjölfar hrunsins
opinberaðist almenningi siðleysi
gróðapunganna sem engu eirðu í
auðsókn sinni en nú þegar nokkuð
er liðið á eftirhrunstímann þurfum
við einnig að gæta að því að skipta
ekki út einu tagi siðleysis fyrir ann-
að.
... ráðdeildarsömum refsað
Árið sem nú er að líða einkennd-
ist af ýmis konar sensasjón og upp-
hlaupum, til að mynda í umfjöllun
um matvælaaðstoð til fátækra. Af
hverju í ósköpunum er fátækt fólk
látið húka í biðröð undir ljósmynd-
aregni á meðan mun einfaldara
væri að dreifa úttektarkortum til
þeirra sem þurfa? Er það kannski
myndefnið sem ræður aðferðinni
fremur en aðstoðin sem slík?
Annað dæmi um fjölmiðlaupp-
hlaup var þegar hópur fólks sem
mig minnir að kalli sig Heimavarn-
arliðið tók að sér, undir rauðum
fána, að verja heimili óreiðumanns
sem gat ekki lengur greitt fyrir
lúxus lífið sem hann hafði tekið að
láni. Samt var látið eins og um ein-
hverja alþýðuhetju væri að ræða
sem stæði í baráttu við ljóta kap-
ítalista. Í raun var þessu þveröfugt
farið. Því miður berast stöðugt
fréttir af fólki sem er löngu hætt að
greiða skuldir sínar en lifir eigi að
síður í vellystingum í trausti þess
að enginn krefji það skuldaskila.
Fólk sem hlóð á sig einbýlishús-
um, glæsibílum, sumarbústöðum
og yfirveðsettum vélsleðaflota get-
ur ekki ætlast til þess að ráðdeild-
arfólkið greiði endalaust fyrir óráð-
síuna. Svoleiðis heimili á ekki að
verja. Heldur gera upp.
Stökkvum kreppufjandanum
á flótta
Ýmislegt svona þarf að laga á nýju
ári en horfurnar eru þrátt fyrir allt
ágætar. Undirstöðurnar eru alveg
sæmilegar eins og sást í borgar-
stjórnarkjörinu og í stjórnlagaþing-
skosningunum. Í stað þess að lýð-
skrumarar af tagi Piu Kærs gaard,
Jörgs Haiders og Geerts Wilders
næðu að sigla inn í tómarúmið og
hrifsa til sín völdin var það góð-
látlegur grínari sem tók að sér að
flengja beran bossa fjórflokksins.
Sem betur fer. Svo nú er máski kom-
inn tími til að stökkva kreppufjand-
anum á bráðan flótta og hætta hel-
vítis bölmóðinum sem allt treður í
svaðið, jafnt spillingararfa fortíð-
ar sem fagra sprota framtíðar. Tími
öskurapanna er vonandi liðinn.
Vonandi auðnast okkur á nýju ári að
hefja samfélagið upp úr volæðinu af
yfirvegun og sæmilegri festu.
Umræða | 33Áramótablað 29. desember 2010
Hjálpsemi,
réttlæti og
virðing
Ragnhildur Guðmundsdóttir er
formaður Mæðrastyrksnefndar og
vann ötult sjálfboðaliðastarf fyrir jólin,
en þörf landsmanna fyrir aðstoð var
meiri í ár en oft áður.
Hver er konan?
„Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Er jólatörnin búin eða verða frekari
úthlutanir um áramót?
„Nei, nú er lokað og við erum að skoða
málin og ganga frá. Við hefjum svo aftur
starfið í janúar. Þá höldum við okkar striki
og höfum opið á miðvikudögum þar sem við
afgreiðum mat frá klukkan 14–17.“
Hefur þú tölu á hversu margar fjölskyld-
ur þáðu aðstoð það sem af er desember?
„Það voru tæplega 4.000 fjölskyldur.“
Hvað er erfiðast við þetta starf?
„Að vita til þess að fólk sem vinnur 100
prósent launaða vinnu skuli ekki hafa laun
sem duga fyrir lágmarksframfærslu. Það
er óásættanlegt. Það getur verið erfitt
að horfa upp á fólk sem þarf að leita sér
aðstoðar, en við erum ömmur og langömm-
ur og finnum að oft er nóg að taka aðeins í
höndina á fólki, vera góður og hlýlegur og
brosa þannig að fólki finnist gott að koma
til okkar.“
Hvað er gleðilegast við starfið?
„Mér finnst gleðilegast að finna þann mikla
samhljóm sem þjóðin sýnir þesu starfi. Þeir
eru margir sem vilja hjálpa til og leggja
fram krafta sína með vinnu, peningum og
gjöfum. Þessi góði hugur er ómetanlegur og
hér var alltaf nóg af aðstoðarfólki sem ég vil
færa sérstakar þakkir.“
Er neyðin meiri en fólk gerir sér grein
fyrir?
„Sagan segir manni að neyðin sé til staðar
og það sé þörf á að skoða málin og leita að
rótum vandans. Það þarf að vinna út frá því.
Ef búið er að finna meinið er hægt að lækna
það. Þegar maður veit ekki hvert meinið er
getur verið erfitt að skipuleggja hjálpina, en
ég hef lúmskan grun um að fólk kæri sig ekki
um vita nákvæmlega hvernig mál standa.“
Áttirðu góð jól?
„Já,mjög góð jól. Ég var með fjölskyldunni
og allir eru frískir. Það skiptir öllu máli og þá
er ekki yfir neinu að kvarta.“
„Já, við ætlum að elda fullt af mat.“
Vilhjálmur Hilmar Sigurðarson
24 ára, matreiðslumaður
„Já, ég fer í áramótapartí sem er svona
afmælispartí líka.“
Andri Egilsson
25 ára, stúdent
„Já, bara heima hjá mér.“
Björn Sigurðsson
64 ára, sérfræðingur
„Já, svona vinapartí. Það verða kannski
tuttugu manns.“
Ævar Örn Garðarsson
19 ára, kjötsendill
„Nei, ég er að vinna.“
Ari Þór Hilmarsson
20 ára, kokkur
Maður dagsins
Ferðu í áramótapartí?
Flugeldasala Freyr Bjartmarz og Eyrún Pétursdóttir, sjálfboðaliðar Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, hafa unnið að því hörðum höndum síðustu daga að gera
klárt fyrir flugeldasöluna. Allt var að mestu klárt þegar ljósmyndara DV bar að garði. MYND RÓBERT REYNISSON
Myndin
Fjandanum stökkt á flóttaAðstöðubrask í nýrri mynd
Dómstóll götunnar
Kjallari
Dr. Eiríkur
Bergmann