Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 34
Í slenska bankakerfið hrundi í byrj- un október 2008; þá skall á það sem við höfum kallað kreppu. Ástæðan var glannaskapur banka- mannanna og stærstu hluthafanna. Sögur ganga um margvísleg lögbrot sumra þeirra; það mun væntanlega koma í ljós. En ástæðan var líka og ekki síður vanhæfni og glannaskapur íslenskra stjórnvalda sem höfðu látið líðast, já, beinlínis ýtt undir, að bank- arnir yxu fjárhag landsins langt yfir höfuð. Og höfðu virt að vettugi all- ar raddir sem vöruðu við yfirvofandi stórslysi. Það voru líka stjórnvöld, miklu fremur en bankamennirnir eða útrásarvíkingarnir, sem skópu það andrúmsloft í samfélaginu sem varð til þess að alltof stór hluti almennings reisti sér hurðar ás um öxl og það kom mönnum rækilega í koll þegar banka- kerfið hrundi og talsverður hluti at- vinnulífsins varð fyrir þungu höggi. Þetta er svona nokkurn veginn það sem gerðist. ÞAÐ ERU RÚM TVÖ ÁR SÍÐAN! En nú er liðið töluvert á þriðja ár síð- an bankarnir hrundu, og það er að renna upp árið 2011. Vissulega sitj- um við enn að mörgu leyti í súpunni. Margir bera miklu þyngri skuldabyrði en þeir höfðu nokkurn tíma ætlað sér. Aðrir hafa verið sviptir vinnu sinni. Enn aðrir hafa misst fótanna, öryggið sem skiptir okkur mennina svo miklu máli er ekki lengur til staðar. Sjálfs- traust þjóðarinnar hefur vikið fyrir tortryggni. Við héldum að við værum svo klár, en okkar bestu menn reynd- ust vera vanhæfir og óhæfir og sumir kannski lögbrjótar. Og svo framveg- is. Það mun enn líða alllangur tími þangað til þessi áhrif hrunsins verða úr sögunni. En samt. Þetta gerðist fyrir meira en tveimur árum. Það er langt þangað til við komumst aftur á sama stað og við vorum á fyrir hrunið, en er ennþá kreppa á Íslandi? Er kannski kominn tími til að blása hana af? BJARTARI TÍMAR OG BJARTSÝNNI TÍMAR Nú er ég ekki talnaglöggur maður. Og ég hef í raun litla hugmynd um hvern- ig hagtölur blása um þessi áramótin. Ég veit að það er margt að í mörgu búi, en er kreppa? Er það kannski farið að há okkur hvað við teljum okkur búa við djúpa kreppu? Getum við kannski litið svo á að árið 2010 hafi verið síð- asta ár kreppunnar og með nýju ári og hækkandi sól horfum við fram á bjart- ari tíma? Og kannski umfram allt: Bjartsýnni tíma? Minna kvart og kvein og vol og væl? Já, við urðum fyrir áfalli. Margir urðu fyrir talsverðu peningalegu áfalli, og fáeinir fyrir mjög miklu peninga- legu áfalli. En ég held nú samt að það sé löngu orðið tímabært að við hætt- um að líta svo á að við sem þjóð eig- um við mjög mikla erfiðleika að stríða. Sé einhver sleginn utan undir, rétt eins og við vorum, þá má fyrirgefa honum að hann hringsnúist svolítið kringum sjálfan sig fyrst á eftir og hafi þörf fyr- ir að tala mikið um kinnhestinn við mann og annan. En við hljótum samt að þreytast á því röfli þegar við sjáum að aðrir menn í heimi hér hafa orðið fyrir miklu alvarlegri áföllum og tjóni og búa við miklu harðari kjör og öm- urlegri – þá nennum við ekki enda- laust að hlusta á suðið í manninum sem fékk kinnhestinn. Þannig verðum við líka að líta á okkur sjálf. Við urðum fyrir kinnhesti og það sveið undan, og það er sjálf- sagt og eðlilegt að skoða nákvæmlega hvað gerðist og refsa þeim sem sló okkur, en svo þýðir ekki að einblína á þetta endalaust. HÖFUM VIÐ ÞAÐ VERR EN HAÍTÍ? Í byrjun 2010 varð eitt fátækasta ríki heims, Haíti, fyrir skelfilegu áfalli, gríðarsterkum jarðskjálfta. Fá ef nokk- ur ríki í heiminum voru verr í stakk búin til að takast á við afleiðingar þess. Enda þurftu Haítar á hjálp að halda, og fengu hana refjalaust – þar á meðal frá hinni íslensku rústabjörg- unarsveit sem vann sín verk möglun- arlaust og af trúmennsku. En þrátt fyrir alla hjálpina, þá er ljóst að afleið- ingar hrunsins munu segja til sín á Haítí í áratugi. Á tímabili eftir bankahrunið hér á landi 2008, þá héldum við líka að við yrðum áratugi að jafna okkur. Það má nú vera ljóst að þær bölsýn- isspár munu fráleitt rætast. Við verð- um kannski ekki í bráð á því spítti sem „góðærið“ hafði í för með sér, en við komum til með að hafa það mjög gott – ekki bara í samanburði við hina örfátæku og gæfusnauðu eins og íbúa Haítí, heldur beinlínis í saman- burði við flestalla íbúa jarðar. En þó erum við enn kvartandi og kveinandi og volandi, eins og við eigum alveg skelfilega bágt – og enginn hafi áður orðið fyrir álíka áfalli og við. Mér leiðist þetta. Ég held reynd- ar að öllum leiðist þetta, þegar hér er komið sögu. Það er bara eins og við getum ekki annað, séum föst í neti sjálfsvorkunnarinnar. Þegar við lítum í spegil, þá sjáum við aðframkominn vesaling, illa haldinn, umsetinn, allir vondir við hann – en er eitthvað hæft í þessari spegilmynd? Er ekki spegill- inn svo skítugur að það er ekkert að marka mynd okkar? Þurfum við ekki að hreinsa hann, til að sjá okkur sjálf almennilega, sjá hvað við höfum það í rauninni fínt? Miðað við flestalla í heiminum? Og megum við ekki bara vera skikk- anlega ánægð með það? STJÓRNVÖLD DAVÍÐSTÍMANS Það eru fáein atriði sem þurfa að vera á hreinu. Við þurfum að geta treyst því að hið endurreista bankakerfi hafi eftir megni réttlætið að leiðarljósi, þegar fjárhagur einstaklinga og fyrirtækja er endurskipulagður. Við þurfum alveg sérstaklega að geta treyst því að þeir sem lökust hafa kjörin í þessu landi verði ekki fyrir meiri launaskerðingum en orðið er, nóg er nú samt. Og við þurfum að geta treyst því að barnafólk og gamalt fólk njóti þess velferðarríkis sem stjórn- völdum Davíðstímans tókst ekki að leggja í rúst. Sé það tryggt þá eigum við fullfrískt vinnandi fólk vel að þola örlítið hærri skatta um skeið. Við þurfum líka að geta treyst því að hafi menn brotið af sér á tímum „góðæris“ og bankahruns, þá muni þeir súpa seyðið af því. Og við þurf- um að vita að ekki aðeins hugsanleg- ir pörupiltar í bönkunum og útrásinni súpi það seyði, heldur fái hrunverjar í stjórnkerfinu líka makleg málagjöld. Og það þarf að vera á hreinu að stjórnkerfi okkar verði héðan í frá svo opið og gegnsætt og tiltölulega óspillt að önnur eins ósköp og „góðærið“ skelli aldrei aftur á, og að stjórnmála- spilling síðustu áratuga muni aldrei endurtaka sig. BYRJUM UPPBYGGINGUNA Þetta þarf að gera. Þetta á líka allt að vera vel hægt. Nú þegar kreppan sjálf er afstaðin (já, hún er það!) þá þarf að byrja uppbygginguna. Vissulega byrj- um við hana neðan frá, en þannig er líka von til þess að uppbyggingin tak- ist vel. Og verði fyrrnefnd atriði höfð að leiðarljósi, þá mun hún lukkast fyrr en hinir svartsýnu og kvartsáru telja nú og við þurfum ekki að sitja volandi við skítugan spegilinn öllu lengur. Er kreppunni lokið? Hættum þessu voli og væli!M ig langar til að minnast Ólafs Jóns Leóssonar vörubílstjóra. Hann svipti sig lífi í skugga fjárhagsvanda í kreppunni. Hann sá enga aðra leið út. Ég var nýverið verðlaunaður fyrir skrif mín um fá- tækt og félagslega einangrun. Verð- launin voru hluti af fjölmiðlasam- keppni Evrópuráðs til að vekja athygli á fátækt í heimsálfunni. Til að veita verðlaununum viðtöku bauð Evrópu- sambandið mér til Brussel. Ég sendi starfsfólki sambandsins ferðatilhög- un mína sem hafði að geyma tengi- flug með flugfélaginu Ryanair. Ég fékk svar um hæl: „Því miður. Evrópusam- bandið pantar ekki flug með lágfar- gjaldaflugfélagi.“ Þess í stað fékk ég senda miða á besta farrými, svoköll- uðu Business Class, og það með mun dýrari flugfélögum en ég óskaði eftir. Kaldhæðnislegt. Þarna átti ég að fljúga út á ráðstefnu um fátækt sitjandi á lúxusfarrými alla leið. Ég afþakkaði. Flaug með Ryanair. Við komuna til Brussel var ég sendur á fjögurra stjörnu glæsihótel, á besta stað í miðbænum. Þar skorti ekkert og auðséð að fara átti vel um ráðstefnu- gesti. Í ofanálag komst ég að því að Evrópusambandið hafði greitt fyrir netþjónustu allra gestanna, greinilega hugað að öllu. Allt í boði Evrópusam- bandsins að sjálfsögðu. Í kjölfarið var mér síðan boðið í glæsilegan kvöldverð. Ég þarf varla að minnast á það en hann var auð- vitað í boði Evrópusambandsins. Boðið var upp á kampavín á undan og léttvín með matnum. Kvöldverð- urinn fjórréttaði fór fram á einum af dýrustu veitingastöðum borgarinn- ar, í hjarta hennar. Staðurinn er sögu- frægur og staðsettur á fallegasta torgi Bruss el. Bara til að gefa smá lýsingu á því hversu flottur og dýr staðurinn er, þá eru þar inni gamlar viðarinnrétt- ingar í bland við gylltar klæðningar og arineld. Ég er svei mér þá ekki viss um að eiga nóg inni á tékkareikningnum mínum til að bjóða frúnni út að borða þar eina kvöldstund. Evrópusambandið lét aftur á móti ekki þar við sitja. Auðvitað var öllum líka boðið í bæði morg- unverðar- og hádegisverðarhlaðborð daginn eftir. Það síðarnefnda var sér- deilis glæsilegt þar sem fimm stór veisluborð var að finna með ótal- mörgum réttum. Drykkina skorti ekki heldur fyrir ráðstefnugestina. Þökk sé Evrópusambandinu. Í baráttu þess gegn fátækt. Áður en fínu ræðuhöldin á ráð-stefnunni hófust þurfti ég, og aðrir gestir, að rísa úr sæti til að heiðra prinsessu af Belgíu sem steig inn í salinn ásamt fjölmennu fylgd- arliði sínu. Augljóst var að prinsess- an býr ekki við neinn skort, það mátti vel greina á hátterni hennar og útliti. Þarna var ætlast til þess að ég stæði upp fyrir konungborinni manneskju sem kostar án efa drjúgan skilding- inn að halda uppi, á kostnað hinna fátæku sem ella gætu notið góðs af fjármununum. Ég spurði sjálfan mig; væri nú ekki meira vit í því að leggja niður konungsembættið og setja fjármunina frekar í aðstoð við fá- tæka? Ég spyr mig líka að því, væri til að mynda hægt að leggja niður emb- ætti forseta Íslands og setja þá fjár- muni í aðstoð við fátæka? Þess í stað gekk inn í salinn prinsessa í sínu fína dressi svo að allir gætu dáðst að henni. Önnur prúðbúin kona, ráðherra fé- lagsmála í ónefndu Evrópuríki, tók til máls yfir kvöldverðinum flotta sem haldinn var á ofsalega fína veitinga- staðnum. Hún stóð þarna í rándýrri dragt, meira að segja ég gat séð að um væri að ræða rándýran fatnað, og um hálsinn bar hún svo hálsfesti frá Channel. Í hljóðnemann reyndi hún á sama tíma að fá mig til að trúa því að hún hefði mikla samúð með fá- tækum. Á meðan ræðumenn ráðstefn-unnar fóru yfir nauðsyn þess að fátækum Evrópubúum sé hjálpað vissi ég af betlandi almúg- anum á neðanjarðarlestarstöðinni undir byggingunni þar sem ráðstefn- an var haldin. Það sá ég með eig- in augum kvöldið sem ég kom. Þar mátti sjá fátæklinga biðja um aur fyrir mat undir fótum hinna jakka- fataklæddu embættismanna Evr- ópusambandsins, sem létu svo í það skína að þeir vildu útrýma fátækt. Bæði í kvöldverðinum glæsilega og á ráðstefnunni sjálfri sátu svo ýmsir ráðherrar Evrópu- ríkja og lofuðu öllu fögru í barátt- unni gegn fátækt. Milli þess sem þeir dreyptu á kampavíninu. „Þetta er ekki endirinn á veginum, heldur byrjun hans“ og: „þetta er aðeins fyrsta skrefið“ eru dæmi um setningar sem ég heyrði í nánast öllum ræðum sem fluttar voru yfir kvöldverðinum og á ráðstefnunni. Samt var öllum boðið út á Business Class, gisting á flottum 4 stjörnu hót- elum og boðið í glæsilega málsverði. Ég sá það svo vel úti í Brussel að pól- itíkusarnir kunna alveg að velja orð- in, sem vissulega hljóma vel, en á sama tíma skortir verkin. Orð bíta nefnilega ekki gegn fá-tækt. Látum nú árið 2011 verða árið þar sem verkin verða látin tala. Vinnum gegn fátækt á Íslandi. Sleppum öllum fögrum orðum og gerum eitthvað í málunum. Fyrir þá fjölmörgu sem þurfa nauðsynlega á hjálp að halda og í minningu Ólafs Jóns Leóssonar. Blessuð sé minning hans. 34 | Umræða 29. desember 2010 Áramótablað Trésmiðjan Illugi Jökulsson Helgarpistill Trausti Hafsteinsson Barist gegn fátækt á Business Class „En nú er liðið tölu- vert á þriðja ár síðan bankarnir hrundu, og það er að renna upp árið 2011. Vissulega sitjum við enn að mörgu leyti í súpunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.