Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 37
Fókus | 37Áramótablað 29. desember 2010
Sprengikraftur
í menningarlífinu 2010
1 Hvað bar hæst á árinu?„Það sem stendur upp úr á árinu
var að íslensk kvikmyndamenning
eignaðist í fyrsta sinn heimili við
opnun Bíó Paradísar á Hverfisgöt-
unni ásamt því að Kvikmyndamið-
stöð Íslands flutti í sama hús. Í fyrsta
sinn hefur fólk aðgang að húsi þar
sem alþjóðlegri kvikmyndamenn-
ingu eru gerð skil allan ársins hring
með fjölbreyttu úrvali af kvikmynd-
um. Við uppskárum einnig grósku
síðustu ára í mörgum frábærum
kvikmyndum eins og til dæm-
is The Good Heart, Óróa, Brimi,
Sumarlandinu og Gauragangi sem
skemmtu okkur, upplýstu og munu
breiða hróður okkar víða um heim.“
2 Hvað fór illa á árinu?„Það sem var grætilegast á árinu
var hinn óhóflegi niðurskurður hins
opinbera til íslenskrar kvikmynda-
gerðar sem olli því að þjóðin verður
af mörgum verkum, leiknum kvik-
myndum, sjónvarpsseríum, heim-
ildarmyndum og stuttmyndum. Við
færðumst aftur um fimmtán ár og
ekki sér fyrir endann á því menning-
arlega stórslysi ef ekki verður brugð-
ist hratt við. Þetta hefur veikt okkur
því þjóð er menning og í nútíma-
samfélagi er kvikmyndagerðin mjög
mikilvægur hluti af henni.“
3 Hvað er fram undan? „Ég geri mér vonir að fram und-
an sé, nú þegar sýnt hefur verið
fram á mikilvægi kvikmyndagerð-
ar og annarra listgreina í íslensku
efnahagslífi ofan á hið menning-
arlega, að stjórnvöld stórefli hinar
skapandi greinar. Þar eru sóknar-
færin og grunnurinn að nýju og
betra Íslandi. Við þurfum lifandi
menningarstefnu til framtíðar.“
Ragnar Bragason leikstjóri:
Færðumst aftur um 15 ár
Stefán Máni rithöfundur:
Skipið valin spennusaga
ársins í Frakklandi
1 Hvað bar hæst á árinu?„Á minni plánetu á enginn
heima nema ég svo ég tel til að
Skipið/Noir Océan var valin
spennusaga (noir) ársins í Frakk-
landi af bókmenntatímaritinu
Noir.“
2 Hvað fór illa?„Ég var ekki með bók.“
3 Hvað er fram undan?„Svartur á leik verður í bíó og
jólin 2011 kemur út ný bók frá
mér.“
Hallgrímur Helgason rithöfundur:
Í fjölmiðlabindindi
1 Hvað bar hæst á árinu?„Hápunktur ársins hjá mér per-
sónulega var að ég var boðinn á
bókmenntahátíð í Kóreu. Það var
ótrúleg upplifun að koma þangað,
ég hafði aldrei komið til Asíu áður
og þarna opnaðist nýtt herbergi í
íbúðinni heimur. Skemmtilegasta
helgi ársins var hins vegar mál-
þingið um Guðrúnu frá Lundi í
Ketilási á Fljótum.
Lestrarupplifun ársins var að
lesa Óvíd, loksins á íslensku, og
Íslenska þjóðhætti. Ég las Doris
Less ing í fyrsta sinn á árinu og
Þá fannst mér The Good Heart eft-
ir Dag Kára góð mynd og Enron í
Borgarleikhúsinu var skemmtilegt.
Þá er alltaf gaman að sjá fólk úti í
bæ breytast í skáld yfir nótt, eins
og Þórdísi Gísladóttur og Yrsu Þöll
Gylfadóttur, efnilegar skáldkonur
þar á ferð og eins er gaman að sjá
höfunda ná fullri blómgun og þá
nefni ég Bergsvein Birgisson.“
2 Hvað fór illa?„Hrunið heldur áfram að kvelja
okkur. Að lokum ákvað ég að hætta
að fylgjast með fréttum en tek
samt ofan fyrir þeim sem standa í
útmokstrinum og láta ekkert á sig
fá þótt svipuhöggin dynji á þeim
frá hjástandandi mótherjum jafnt
sem samherjum. Það er mjög létt
að fara í fjölmiðlabindindi á Íslandi
í dag þar sem maður þarf að fletta
tveimur stærstu dagblöðum lands-
ins með hönskum. Það er grátlegt
að sjá tvo aðalhrunkvöðlana geta
haldið áfram að kvelja þjóðina
með sjónarmiðum sínum og lát-
ið hana auk þess borga fyrir það
margar milljónir á dag.“
3 Hvað er fram undan?„Persónulega hlakka ég auð-
vitað til að horfa á Rokland á hvíta
tjaldinu í janúar. Næsta haust verð-
ur svo bókamessan í Frankfurt þar
sem Ísland verður í öndvegi. Það
er sögulegt tækifæri fyrir okkur
sem þjóð. Það hefur komið berlega
í ljós eftir hrun að menningin er
okkar mesti styrkur. Það var ágætt
að sjá á síðasta ári að skapandi
greinar eru orðnar jafnstórar og
landbúnaður og útgerð til samans.
Í menningunni liggja mestu verð-
mæti þjóðarinnar einmitt vegna
þess að hún verður alls ekki metin
til fjár. Þess vegna er það þannig að
allir peningar sem eru settur í list
breytast í guill meðan allir pening-
ar sem settir eru í bankamenn og
útgerðarmenn breytast í bull.“
1 Hvað bar hæst á árinu? „Mér finnst standa upp úr hvað
kom mikið út af ágætum bókum og
þá má jafnvel telja skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis með sem
gæti verið áhrifamesta rit sem hef-
ur verið sett saman á íslensku. Þá
má ekki gleyma því að við eigum
frábæra sinfóníuhljómsveit sem
býr við þröngan húsakost en hef-
ur haldið uppi vandaðri og líflegri
dagskrá í vetur.“
2 Hvað fór miður? „Ég man ekki eftir neinu sér-
stöku því mér hefur fundist betri
gangur í menningunni en í þjóð-
lífinu almennt, efnahagslífinu,
stjórmálalífinu og viðskiptalífinu.
Menningin vísar okkur veginn og
er það sem okkar litla þjóð þarf á
að halda.
3 Hvað er fram undan?„Stærsta verkefnið á næsta ári
hlýtur að vera nýja tónlistarhús-
ið og hvernig menn ætla að ljá því
inntak og gera það að almenni-
legum vettvangi fyrir tónlist. Það
er ærið verkefni því þetta er stórt
hús, þarna þarf Sinfóníuhljóm-
sveitin að spjara sig og nú er verið
að hugsa um að þarna verði fluttar
óperur líka sem er líklega gert í
einhverju óðagoti eins og okkar er
oft háttur.“
Egill Helgason dagskrárgerðarmaður:
Betri gangur í menning-
unni en þjóðlífinu
MENNINGARLOFIÐ FÆR:
Norræna húsið fyrir stöðugar
uppákomur og skemmtilega við-
burði sem koma á óvart og krydda
menningarlíf landans.
MENNINGARLASTIÐ FÆR:
Menntamálaráðherra Katrín Jak-
obsdóttir fyrir niðurskurð til kvik-
myndagerðar á Íslandi.
MENNINGARVERÐLAUN DV
Verðlaunahafar Menningar-
verðlauna DV 2009
Kristján Árnason, sýningin Jesús litli,
hönnunarhópurinn Vík Prjónsdótt-
ir og heiðursverðlaunin fékk Jórunn
Viðar.
Heiðursverðlaun DV
Jórunn Viðar, tónskáld og píanóleikari tekur
við heiðursverðlaunum frá forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni.
Verðlaunahafar Menningarverð-
launa DV 2009 voru tilkynntir við
athöfn í Iðnó í marsmánuði. Í bók-
menntaflokknum hlaut Kristján
Árnason verðlaunin fyrir þýðingu
sína á Ummyndunum Óvíds, sýning-
in Jesús litli var verðlaunuð í flokki
leiklistar og hönnunarhópurinn Vík
Prjónsdóttir fékk hönnunarverð-
launin.
Heiðursverðlaunin hlaut Jórunn Við-
ar, tónskáld og píanóleikari. Hljóm-
sveitin Hjálmar fékk flest atkvæði í
netkosningu verðlaunanna.
Menningarverðlaunin verða afhent
aftur eins og venja er í marsmánuði
2011.
kristjana@dv.is
Menningarárið 2010