Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 41
nýja árinu sjá Íslendingar ljós við
enda ganganna og bjartsýni eykst
nokkuð. Þetta verður árið þeg-
ar harðasta kreppan kveður. Mót-
mælendur gefast upp og þrástöður
og tunnubarningur á Austurvelli
detta úr tísku. Menn snúa sér að öðru og nokkrir
þekktir mótmælendur verða í sviðsljósinu á nýju
ári. Sturla Jónsson flytur aftur úr landi og nokkrir
aðrir hverfa til nýrra starfa.
Umræðan í samfélaginu fer að snúast meira
um bjartsýni en bölmóð þegar Íslendingum
verður ljóst að stjórnmálamenn munu ekki leysa
vanda þeirra heldur verða þeir að gera það sjálfir.
Ný fyrirtæki verða í sviðsljósinu og áður óþekktir
þátttakendur í íslensku atvinnulífi vekja athygli.
Völvan sér söngkonuna Björk Guðmundsdóttur
stíga fram sem kjölfestufjárfesti í nýju fyrirtæki.
Þannig verður smátt og smátt meiri friður í sam-
félaginu og aukinn baráttuvilji meðal alþýðu
manna en áfram ríkir mikið og djúpstætt van-
traust á öllu sem tengist stjórnmálum.
Erfið fæðing álvera
Þeir sem þrá meira en annað að uppbygging
álvera hefjist í Helguvík á Suðurnesjum eða á
Bakka við Húsavík verða orðnir langeygari en
nokkru sinni fyrr þegar nýtt ár verður á enda.
Völvan sér fátt annað en kyrrstöðu, málaleng-
ingar og tafir í báðum þessum tilvikum. Í árslok
verður það mat manna að ekkert hafi þokast í
neina átt og fullkomin óvissa ríkir áfram.
Skuggaleg mál tengd Alcoa erlendis sem
koma upp á árinu verða ekki til þess að flýta fyrir
uppbyggingu á Bakka og verða til þess að jafn-
vel Húsvíkingar missa áhuga á nánum samskipt-
um við risafyrirtækið. Völvan sér einhvers kon-
ar mótmæli íbúa á Reyðarfirði sem beinast gegn
útibúi Alcoa þar í bæ og sýnist það helst tengjast
meðferð spilliefna og mengun.
Sérstakur saksóknari
Ólafur Þór Hauksson, hinn sérstaki saksóknari,
mun sækja talsvert í sig veðrið á nýju ári. Fjöldi
ákæra og nýrra mála mun stuðla að því að sátt
og bjartsýni á framtíðina nær yfirhöndinni. Völv-
an sér samt nokkurn skugga á þegar einn hinna
föllnu bankastjóra hverfur úr augsýn með vov-
eiflegum hætti og verður lengi vel ekki ljóst um
afdrif hans.
Nokkuð vandræðaleg staða kemur upp þegar
einn starfsmanna embættis sérstaks saksóknara
þarf að láta af störfum vegna leka frá embættinu.
Sá starfsmaður verður í kjölfarið fyrirlitinn með-
al þjóðarinnar.
Icesave aftur á svið
Nýr Icesave-samningur verður í umræðunni í
upphafi nýs árs. Með pólitísku baktjaldamakki
tekst að afstýra því að hann fari í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Fyrst munu Samtök atvinnulífsins
styðja nýjan samning og hvetja til samþykktar
hans. Síðan næst sæmileg samstaða á Alþingi
um stuðning. Þar munar mestu um afskiptaleysi
sjálfstæðismanna. Þetta bakar Bjarna Benedikts-
syni, formanni flokksins, nokkrar óvinsældir í
röðum eigin flokksmanna í fyrstu. Sérstaklega
munu Morgunblaðið og Davíð Oddsson ham-
ast gegn honum vegna þessa máls. Eftir farsæla
samþykkt Icesave ákveður ríkisstjórnin að setja
hina svokölluðu fyrningarleið um kvótakerf-
ið í salt. Það er gjaldið fyrir stuðning sjálfstæð-
ismanna við Icesave og í kjölfarið þagna allar
gagnrýnisraddir úr þeirra herbúðum og Bjarni
þykir að lokum standa með pálmann í höndun-
um.
InDefence-samtökin ærast af reiði yfir þessari
samningagjörð og leita sér nýrra bandamanna
hér og þar í skúmaskotum stjórnmálaflokkanna.
Steingrímur berst áfram
Völvan sér Steingrím J. Sigfússon berjast áfram í
forystu ríkisstjórnarinnar eins og áður. Hann er
þó tekinn að mæðast í stormum sinnar tíðar og
Icesave-samningurinn eldri fylgir honum eins
og skuggi. Afstaða Steingríms í því máli er rifjuð
upp hvenær sem tækifæri gefst og andstæðing-
ar Steingríms nudda salti í sárið hvað eftir ann-
að. Sótt verður grimmt að Steingrími persónu-
lega. Völvan sér hann í miklu reiðikasti í beinni
útsendingu sjónvarps.
Stjórnmál á nýju ári
Völvan sér íslensk stjórnmál að sumu leyti lulla
sinn vanagang á nýja árinu. Óttinn við afdrif í
kosningum mun áfram tryggja ríkisstjórninni
líf og setu á valdastóli þótt stundum verði efast
um gildi þess. Eftir mikla naflaskoðun ætla sam-
fylkingarmenn áfram að sigla með Jóhönnu Sig-
urðardóttur í stafni skútunnar. Ekki er það vegna
þess að almenn ánægja sé með störf hennar
heldur óttast menn afleiðingar formannskjörs á
flokkinn.
Þetta gengur vel langt fram eftir árinu en á
haustdögum sér völvan Jóhönnu stíga skyndi-
lega til hliðar af heilsufarsástæðum og þá verður
hinn örótti stríðshestur Össur Skarphéðinsson
látinn taka við stjórntaumum flokksins til bráða-
birgða og situr hann út árið við misjafnar undir-
tektir flokksmanna.
Völvan sér framsóknarmenn hundóánægða
með formann sinn, Sigmund Davíð Gunnlaugs-
son. Ekki verður þó skipt því engum er treyst til
að taka við flokknum. Guðmundur Steingríms-
son stígur út úr skugganum og virðist ætla að
leggja til atlögu við formanninn í þeirri von að
verða þriðji ættliður til æðstu metorða í Fram-
sóknarflokknum. En hann hopar. Völvan sér
hann daðra við Samfylkinguna á ný. Sigmundur
verður tíður gestur í fjölmiðlum á nýju ári og ekki
alltaf að eigin frumkvæði. Völvan sér hann vand-
ræðalegan á svip þegar peningamál fjölskyld-
unnar komast í hámæli.
Hreyfingin og fulltrúar hennar á þingi verða
áfram í fréttum. Völvan sér Birgittu Jónsdóttur
í fangelsi vegna mála sem tengjast Wikileaks.
Margrét Tryggvadóttir hverfur af þingi þegar
hún gerir einhvers konar mistök í formlegu starfi
þingsins.
Réttarhöldin yfir Geir Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, vekja mikla athygli. Framan af
berst Geir eins og ljón og iðrast einskis. En þeg-
ar líður á réttarhöldin fyrir landsdómi brotn-
ar hann niður. Þá lýsir hann með einlægum og
átakanlegum hætti sambandi sínu og Davíðs
Oddssonar, forvera hans á forsætisráðherrastóli.
Vitnisburður Geirs um andlegt ofbeldi og stöð-
uga niðurlægingu kallar fram samúðarbylgju
meðal þjóðarinnar. Og landsdómur er sama
sinnis því hann fær skilorðsbundinn dóm fyrir
vanrækslu í starfi.
Völvan sér Illuga Gunnarsson setjast aftur inn
á þing í skugga háværra mótmæla sem koðna
fljótlega niður. Illugi lætur til sín taka sem helsti
bandamaður Bjarna Benediktssonar formanns
og saman reyna þeir að sætta andstæð öfl inn-
an flokksins í afstöðunni til ESB en verður ekk-
ert ágengt.
Stöguð og bætt ríkisstjórn
Mikla athygli vekur snemma árs þegar nokkrir
þingmenn úr röðum Framsóknar ganga til liðs
við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og veita
henni stuðning sinn. Formaður Framsóknar-
flokksins, Sigmundur Davíð, er fremstur í flokki
þessara nýju stjórnarliða en ekki fylgja allir
þegnar hans honum að málum. Vigdís Hauks-
dóttir stendur utan við þetta og berst hatramm-
lega gegn formanni sínum. Sigmundur fær ekki
ráðherrastól í ríkisstjórninni en situr alla ríkis-
stjórnarfundi og völvan sér hann í einhverjum
virðingarstól á Alþingi, líklega við fundarstjórn.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG,
snýr aftur á þing í byrjun mars. Þá fer fram blóð-
ugt uppgjör innan VG sem markar endalok pól-
itísks ferils hennar. Völvan sér ekki betur en að
í kjölfar þess hætti hluti VG-liða stuðningi við
ríkisstjórnina sem höktir áfram inn í vorið með
Framsókn sem hækju.
Bankastjórar í bobba
Allir bankastjórar íslenskra banka eiga erfitt ár
í vændum. Þegar líður á árið berast sífellt tíðari
fréttir af afskriftum skulda fyrirtækja og einstakl-
inga og gagnrýni á gerðir bankanna og ákvarð-
anir verður sífellt háværari. Völvan sér háttsetta
starfsmenn Landsbankans á mjög djúpu vatni
vegna umdeildra afskrifta og einhverjir þeirra
segja starfi sínu lausu eftir harða gagnrýni.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans,
stendur í mikilli orrahríð á árinu þegar uppvíst
verður um fyrirgreiðslu bankans til fyrirtækja í
eigu fyrrverandi stjórnenda.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion
banka, á einnig mjög í vök að verjast vegna mála
sem tengjast Baugi og Högum. Hann heldur
starfinu en völvan sér lífverði fylgja honum hvert
fótmál eftir undarlegt tilræði sem honum er sýnt
síðla árs. Hann verður í kastljósinu þegar frétt-
ir berast af skuldaniðurfellingu Arion banka til
tengdaföður bankastjóra annars banka.
Íslandsbanki fær sinn skerf af áföllum en
það tengist einkum fortíð bankans. Núverandi
bankastjóri, Birna Einarsdóttir, verður hins veg-
ar í fjölmiðlum vegna einkalífs síns.
Bankarnir allir þrír munu vakna upp við
vondan draum í haust þegar fréttist af miklum
áformum fyrirtækja um skuldabréfaútboð til að
fara á snið við vaxtamun bankanna.
Bankablúsinn ómar
Mikið havarí verður þegar upp kemst að fjár-
málaráðherra hefur beitt þrýstingi til stuðn-
ings Saga Capital. Völvan sér mikla umræðu um
lausafjárvanda bankans á miðju ári.
MP Banki rær lífróður og á elleftu stundu
tekst að safna nægu eigin fé til þess að bankinn
fljóti áfram. Völvan sér Margeir Pétursson hverfa
ósáttan úr forystu bankans í tengslum við þetta
mál og sýnist hann sitja við skriftir þegar líður á
árið.
Bankar taka til
Bankar hafa frumkvæði að ýmsum breytingum
í atvinnulífinu og stjórna ýmist opinberlega eða
bak við tjöldin. Íslandsbanki leysir til sín BNT og
þar með olíurisann N1 og skráir á hlutabréfa-
markað. Síminn verður einnig skráður á mark-
að á nýju ári. Símafyrirtækin Nova og Tal sam-
einast á nýja árinu. Bauhaus opnar margboðaða
stórverslun sína við rætur Úlfarsfells á nýju ári
og verður mikill titringur hjá keppinautunum en
almenningur nýtur góðs af tryllingslegum opn-
unartilboðum. Húsasmiðjan fer einstaklega illa
út úr þeim slag og lífeyrissjóðirnir tapa stórfé á
þeirri fjárfestingu sinni.
Sameining Arion banka og Íslandsbanka
verður mikið rædd á nýju ári en völvan sér
skugga hneykslis yfir skilanefnd Glitnis tefja mál-
ið. Byr verður á vormánuðum sameinaður Nýja
Landsbankanum.
Söluferli verslanakeðjunnar Haga fer alger-
lega í vaskinn í höndum Arion banka og í kjölfar-
ið verður keðjan brotin upp og einstakir hlekkir
hennar seldir. Völvan sér erlenda kröfuhafa sem
um sárt eiga að binda koma að því máli.
Þorgerður Katrín á forsíðum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kúvendir ferli
sínum og hættir afskiptum af stjórnmálum. Ekki
er það af pólitískum ástæðum heldur af per-
sónulegum ástæðum. Völvan sér hana á nýjum
stað við ný verkefni í nýjum félagsskap.
Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar, lend-
ir í miklum vanda eftir að gerð verður atlaga að
honum vegna stofnunar 7 hægri ehf. sem reynist
ekki hafa staðist lög. Í kjölfarið reynir Kristján að
borga hluta af kúluláni félagsins en rambar per-
sónulega á barmi gjaldþrots.
Árni Johnsen í vandræðum
Árni Johnsen lendir í óheppilegri stöðu á nýju
ári. Völvan sér hann í kastljósi fjölmiðla þar sem
hann er talinn hafa farið offari í dugnaði sínum
og stigið óafvitandi yfir strikið. Árni hefur sam-
úð flestra í málinu og heldur sínu striki þrátt
fyrir allt. Völvan sér hann í nýju embætti í Vest-
mannaeyjum og er það starf sem tengist sjávar-
útvegi.
Saga til næsta bæjar
Völvan sér mál sem tengist Útvarpi Sögu vekja
talsverða athygli og skemmtan á nýju ári. Fyrst
verða þekktum forsvarsmanni stöðvarinnar á
sérstæð mistök í beinni útsendingu og vekur
þjóðarathygli. Í framhaldinu leitar viðkomandi
sér hjálpar við tilteknu vandamáli og fær bata.
Umfjöllun stöðvarinnar um þetta vandamál og
lækninguna þykir ganga nokkuð lengra en venja
er í þessum málum og vekur mikla athygli.
Völvuspá | 41Áramótablað 29. desember 2010
Sátt um störf sérstaks saksóknara Ólafur Þór
Hauksson saksóknari nær umtalsverðum árangri þótt
hann glími við voveifleg mál á árinu.
Með pálmann í höndunum Bjarni Benediktsson
á stormasamt ár en framganga hans borgar sig á
endanum.
Verst með öllum ráðum Sótt verður grimmt að
Steingrími Sigfússyni.
Blóðugt uppgjör í VG Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
snýr aftur á þing í mars en endurkoman verður ekki
farsæl.
Aftur kemur vor í dal
VÖLVUSPÁ