Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 50
75 ára sl. þriðjudag
Gísli Erlendsson
rekstrartæknifræðingur í Reykjavík
Gísli fæddist á Selfossi. Hann stund-
aði nám í vélvirkjun hjá Kaupfélagi
Árnesinga á Selfossi 1957–61, stund-
aði nám í Vélskóla Íslands 1962–65,
nám í tæknifræði við Tækniskóla
Íslands og Tækniskólann í Bergen
1965–68, lauk prófum sem rekstrar-
tæknifræðingur frá Tækniskólanum í
Bergen 1968 og lauk síðar kennara-
prófi frá KHÍ árið 2000. Hann hefur
auk þess stundað fjölda námskeiða.
Gísli starfaði sem hagræð-
ingarráðunautur og ráðgjafi hjá
frystihúsum Sambands íslenskra
samvinnufélaga 1968–73, var fram-
kvæmdastjóri og rekstrarráðgjafi
hjá tækni- og tölvufyrirtækjunum
Rekstrartækni hf. og RT-Tölvutækni
1972–90 og framkvæmdastjóri fyr-
ir tækniþjónustufyrirtækið Hjarn
hf. að hluta og alfarið frá sumrinu
1990.
Gísli var skólastjóri Fiskvinnslu-
skólans í Hafnarfirði frá 1995–2001
og starfaði eftir það sjálfstætt sem
rekstrartæknifræðingur, m.a. við
stjórnun skrifstofu viðlagatrygging-
ar vegna jarðskjálftanna árið 2000.
Hann vann síðan alfarið við þá skrif-
stofu á árunum 2008–2010.
Gísli var stjórnarformaður í iðn-
fyrirtækinu Kæli- og frystivélum, var
stjórnarmaður í ráðgjafarfyrirtæk-
inu Icefishco og var stjórnarmaður í
norska ráðgjafarfyrirtækinu Norfico
AS 1987–95.
Gísli sat í prófnefnd járniðnað-
armanna í Árnessýslu 1962–66, var
stjórnarmaður og síðan formaður
Hjólhúsaklúbbs Íslands 1974–82,
stofnfélagi að Hagræðingarfélagi Ís-
lands 1983 og í stjórn þess til 1988,
var stofnfélagi í Félagi íslenskra
rekstrarráðgjafa og í stjórn þess frá
1985–90 og meðdómari í borgar-
dómi Reykjavíkur í nokkur skipti.
Gísli hefur skrifað ýmsar greinar
í tæknirit um tækni- og tölvumálefni
auk ferðamála.
Fjölskylda
Gísli kvæntist 30.12. 1960 Jónínu
Hjartardóttur, f. 25.11. 1942, hús-
móður og stuðningsfulltrúa. Foreldr-
ar hennar voru Hjörtur Sigurðsson, f.
4.1. 1898, d. 19.6. 1981, bóndi og Jó-
hanna Hannesdóttir, f. 7.6. 1898, d.
3.7. 1981, húsfreyja. Gísli og Jónína
eiga því gullbrúðkaup á afmælisdag
Gísla.
Börn Gísla og Jónínu eru Helga,
f. 24.2. 1960, hjúkrunarfræðingur
í Danmörku en eiginmaður henn-
ar er Níels Holger Hansen verkstjóri
og á hún þrjú börn og eitt barna-
barn; Hjördís Jóna, f. 7.1. 1967, kenn-
ari og bæjarfulltrúi í Garðabæ, gift
Andrési Sigurðarsyni framkvæmda-
stjóra og eiga þau þrjú börn; Hulda, f.
24.1. 1977, skrifstofumaður, búsett á
Stokkseyri en eiginmaður hennar er
Viðar Helgason byggingameistari og
eiga þau einn son.
Hálfsystir Gísla, samfeðra: Erla,
f. 11.6. 1934, húsfreyja á Böðmóðs-
stöðum í Laugardal, gift Árna Guð-
mundssyni og eiga þau þrjú börn.
Albróðir Gísla: Jóhannes, f. 23.3.
1946, bílasali á Hvammstanga,
kvæntur Ragnheiði Eggertsdóttur og
á hann þrjú börn; Rögnvaldur, f. 17.8.
1952, d. 16.8. 1957.
Foreldrar Gísla voru Erlendur
Sigurjónsson, f. á Tindum í Svína-
vatnshreppi í Austur-Húnavatns-
sýslu f. 12.9. 1911, d. 17.4. 1988,
hitaveitustjóri á Selfossi, og k.h.,
Helga Gísladóttir, f. að Stóru-Reykj-
um í Hraungerðishreppi í Árnes-
sýslu 16.9. 1919, d. 25.2. 1987, hús-
móðir.
Gísli og Jónína halda upp á dag-
inn með fjölskyldunni.
70 ára á fimmtudag
Stefán fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MA 1955, fyrrihlutaprófi í verk-
fræði frá HÍ 1958 og prófi í bygging-
arverkfræði frá Danmarks Tekniske
Højskole 1961.
Stefán var verkfræðingur hjá
Chr. Ostenfeld og Jønson í Kaup-
mannahöfn 1961–63, var verkfræð-
ingur hjá gatna- og holræsadeild
borgarverkfræðings í Reykjavík
1964–66, forstöðumaður við mal-
bikunarstöð, grjótnám og pípugerð
Reykjavíkurborgar 1966–81, for-
stöðumaður byggingadeildar borg-
arverkfræðings 1981–84, aðstoð-
arborgarverkfræðingur frá 1984
og borgarverkfræðingur frá 1992
til 2003. Framkvæmdastjóri Aust-
urhafnar-TR frá 2003. Þá var Stef-
án kennari við Tækniskóla Íslands
1969–78 og prófdómari við HÍ
1975–80.
Stefán hefur verið fulltrúi Ís-
landsdeildar Norræna vegtækn-
isambandsins í starfsnefnd um
asfaltbundin slitlög frá 1973, full-
trúi borgarverkfræðings í stein-
steypunefnd frá 1967, formaður
Stéttarfélags verkfræðinga 1971–
73, í stjórn Verkfræðingafélags Ís-
lands 1973-75, í varastjórn BHM
1974-78, í orlofsheimilanefnd
BHM 1975–84. Hann starfaði með
fjölda nefnda hjá borginni og var
verkefnisstjóri við byggingu Ráð-
húss Reykjavíkur.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 6.6. 1959 Sig-
ríði Jónsdóttur, f. 17.9. 1934, fyrrv.
starfsmanni á skrifstofu Alþingis.
Hún er dóttir Jóns Sigurðssonar frá
Kaldaðarnesi, skrifstofustjóra Al-
þingis og þýðanda, og Önnu Guð-
mundsdóttur húsmóður.
Börn Stefáns og Sigríðar: Jón
Hallur, f. 29.8. 1959, bókmennta-
fræðingur og rithöfundur. Kona
hans er Rikke Houd, dagskrárgerð-
armaður. Synir þeirra eru Dag-
ur Óli, f. 20.2. 2005 og Kári, f. 4.11.
2006. Dóttir hans og Sigríðar St.
Stephensen er Iðunn, f. 27.1. 1995,
en dætur Jóns og Kristínar Mar
eru Brynja, f. 23.9. 1980, og Þór-
dís Halla, f. 2.8. 1993; Þórhildur, f.
23.1. 1965, d. 24.4. 1975; Hermann,
f. 25.7. 1968, bókmenntafræðingur
og rithöfundur í Reykjavík, kona
hans er Sigrún Benedikz kennari
við MR og börn þeirra eru Sólrún
Hedda, f. 7.4. 1994, Stefán Þórar-
inn f.11. 3. 2002 og drengur f. 25.
10. 2010.
Bróðir Stefáns er Birgir Stein-
grímur Hermannsson, f. 8.12. 1940,
viðskiptafræðingur og verslunar-
maður í Reykjavík.
Foreldrar Stefáns: Hermann
Stefánsson, f. 17.1. 1904, d. 17.11.
1983, íþróttakennari við MA, og
Þórhildur Sigurbjörg Steingríms-
dóttir, f. 31.3. 1908, íþróttakennari
við MA.
Stefán Hermannsson
framkvæmdastjóri Austurhafnar TR
50 ára sl. þriðjudag
Lúther fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp, fyrst í Vogahverfinu en
síðan í Breiðholtinu. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Ármúlaskóla
1977.
Lúther flutti til Danmerkur 1977
og starfaði þar sem tamningamað-
ur til 1979. Þá flutti hann heim til
Íslands, hóf nám við Bændaskól-
ann á Hvanneyri og lauk búfræði-
prófi 1980.
Lúther flutti aftur til Danmerk-
ur 1981 og hóf þá nám við Hillerød
Handelskole og lauk þaðan versl-
unarprófum 1984.
Lúther starfaði hjá Sól hf. 1984–
85, hjá Rolf Johansen 1985–88, var
síðan verslunarstjóri í Kaupfélagi
Kjalarnesþings til 1990 og sinnti
síðan ýmsum sölustörfum til 1995.
Lúther stofnaði fyrirtækið
Stiklu hf., sem selur útgerðarvör-
ur, ásamt Lúðvík Lúðvíkssyni 1995
og var hann þar framkvæmdastjóri
til 1998. Þá festi Stikla kaup á sápu-
gerðinni Frigg í Garðabæ og var
Lúther framkvæmdastjóri Friggjar
1998–2003. Hann hefur verið fram-
kvæmdastjóri hestavöruverslunar-
innar Hestagallerý frá 2005.
Fjölskylda
Synir Lúthers og Hönnu Maríu
Helgadóttur eru Arnar Logi, f. 14.4.
1993; Úlfur Darri, f. 30.12. 1999.
Kona Lúthers er Kolbrún Jóns-
dóttir, f. 1.3. 1970, skrifstofumaður.
Systkini Lúthers eru Sigurður
Jón Guðmundsson, f. 29.10. 1956,
vélstjóri, búsettur í Reykjavík; Sig-
urjón Úlfar Guðmundsson, f. 5.5.
1962, pípulagningamaður, búsett-
ur í Reykjavík; Berglind Harpa,
f. 30.11. 1964, kennari, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Lúthers eru Guð-
mundur Jónsson, f. 26.1. 1937,
fyrrv. sölumaður í Reykjavík, og
Margrét Sigurjónsdóttir, f. 9.3.
1939, fyrrv. starfsstúlka.
Ætt
Guðmundur er bróðir Valdimars
forstjóra. Guðmundur er sonur
Sigurðar Jóns, forstjóra Belgjagerð-
arinnar í Reykjavík Guðmunds-
sonar, hreppstjóra á Látrum og í
Breiðuvík Sigurðssonar. Móðir Sig-
urðar Jóns var Helga Beata Árna-
dóttir.
Móðir Guðmundar er Jórunn
Guðrún Guðnadóttir, kennara og
b. í Breiðholti við Reykjavík, Sig-
urðssonar og Sólveigar Sigurðar-
dóttur húsmóður.
Margrét er dóttir Jóns Guð-
mundssonar, lengst af olíubíl-
stjóra, og Elísu Ólafar Guðmunds-
dóttur húsmóður.
Lúther Guðmundsson
framkvæmdastjóri verslunarinnar Hestagallerý
Ingibjörg Albertsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ingibjörg fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Landeyjum. Hún var í vist hjá
Guðlaugi, kaupmanni á Eyrarbakka,
fór til Reykjavíkur um fermingu og
var þar fyrst ráðskona en starfaði síð-
ar í verslunum Silla og Valda og síð-
ar á Adlon bar í Aðalstræti. Seinni ár
vann hún á Sælkeranum í Hafnar-
stræti og vann síðan við fiskvinnslu.
Síðustu starfsárin utan heimilis
stundaði hún húshjálp.
Ingibjörg bjó með seinni manni
sínum að Rauðarástíg 3, í Höfða-
borg, og í Bjarnaborg á Hverfisgötu
83. Loks flutti hún á Meistaravelli þar
sem hún bjó til 2003 en þá flutti hún í
þjónustuíbúð við Lindargötu 61.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 25.12. 1950 Jóni Árna
Árnasyni en þau slitu samvistum
1953. Hann var sonur Árna Berg-
mann Gunnlaugssonar, f. 18.7. 1883,
d. 1980, og Kristínar Þórdísar Jóns-
dóttur, f. 18.9. 1886, d. 1984.
Dóttir Ingibjargar og Jóns Árna er
Sigrún Jónsdóttir, f. 4.12. 1950, hús-
móðir í Hnífsdal, en börn hennar
eru Jón Árni Þórðarsson, Jónína Eyja
Þórðardóttir, Vilborg Ása Bjarnadótt-
ir, Bjarni Freyr Guðmundsson, Berg-
mann Þór Kjartansson, Óskar Andri
Sigmundsson (d.10.01.2004), Sindri
Már Sigmundsson, Ómar Örn Sig-
mundsson og Aldís Sigmundsdóttir.
Ingibjörg giftist 23.3. 1956 Núma
Lórenz Ólafssyni Fjeldsted, f. 16.2.
1932, d. 20.4. 2006, sjómanni og hús-
verði. Þau skildu 1968. Foreldrar
hans voru Ólafur Fjeldsted, bólstrari
í Kópavogi, og k.h, Sæmunda Fjeld-
sted húsmóðir
Börn Ingibjargar og Núma eru Ól-
afur Sævar Fjeldsted, f. 9.12. 1955,
meðferðarráðgjafi í Ósló; Númi
Leó Númason, f. 22.2. 1957, búsett-
ur í Högsby í Svíþjóð en kona hans
er Kajsa Pörhola Númason og eru
börn þeirra Leó Númason og Ida
Númadóttir; Sæmunda Fjeldsted, f.
16.3. 1961, d 08.08.2006, húsmóð-
ir í Reykjavík, var gift Júlíusi Ólafs-
syni kaupmanni en þau skildu og eru
dætur þeirra Ingibjörg Alma Fjeld-
sted, f. 13. október 1978, börn henn-
ar eru Júlíus Örn, Almar Óli og Álfrún
Emma . Ólöf Rut Fjeldsted, f. 8. jan-
úar 1980. Sonur hennar er Ísak Daði,
f. 2002. Hún er gift Guðmundi Rey
Davíðssyni, sonur þeirra er Matthías
Reyr. Barn hennar og Þórðar Magn-
ússonar, f. 25. febrúar 1935, er Sæ-
munda Fjeldsted, f. 18. desember
1983, eiginmaður hennar er Sigur-
geir Már Sigurðsson, sonur þeirra er
Sigurður Már.
Hinrik Fjeldsted, f. 9.11. 1964, við-
skiptafræðingur, kvæntur Sigurveigu
Kristínu Fjeldsted og börn þeira eru
Hólmfríður Kristín, f. 11.5. 1995 og
Margrét Teresa f. 04.01. 2002 en son-
ur Hinriks og Elínar Hafsteinsdóttur
er Alexander Freyr Fjeldsted f. 25.03.
1994.
Albróðir Ingibjargar er Magnús
Albertsson, f. 24.2. 1932, verkamaður
í Reykjavík.
Hálfsystkini Ingibjargar, sam-
mæðra: Sigurjón Kjartansson, f.
17.6. 1929, d. 26.3. 1998, starfsmað-
ur á Keflavíkurflugvelli; Ágúst Kjart-
ansson, f. 21.6. 1925, dó tuttugu og
sex ára, sjómaður; Æska Björk Jó-
hannesdóttir, f. 21.2. 1941, húsmóð-
ir í Reykjavík; Ragnhildur Unnur Jó-
hannesdóttir, f. 1.4. 1942, húsmóðir
í Reykjavík; Elín Ósk Jóhannesdótt-
ir, f. 21.2. 1941, húsmóðir í Reykjavík;
Einar Mýrkjartansson, f. 26.5. 1937,
d. 1999, verkamaður í Reykjavík.
Foreldrar Ingibjargar voru Albert
Guðbjartur Pálsson, f. 11.9. 1893, d.
17.11. 1971, starfsmaður Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, og k.h., Ragnhild-
ur Sumarlína Magnúsdóttir, f. 22.10.
1902, d. 1968, húsmóðir.
80 ára á miðvikudag
50 | Ættfræði 29. desember 2010 Áramótablað