Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 58
58 | Lífsstíll 29. desember 2010 Áramótablað Búðu til áramótahattana Ekki hrista flöskuna! Gerðu þinn eigin áramótahatt úr litríku kartoni, restum af gjafapappír og skemmtilegu skrauti. Það er alls ekki flókið verk og útkoman getur orðið skemmtileg og litrík. Allt sem þú þarft er límstifti, heftari, gúmmíteygjur eða borðar og skemmtilegir bútar af kartoni og pappír. Þú getur þess vegna notað tóma morgunkornspakka og límt á þá fallegan pappír. Settu áramótahattana við disk hvers og eins gests í áramóta- boðinu og farðu fram á að þeir verði settir upp. Kampavín er auðvitað sá drykkur sem flestir skála í á gamlárskvöld, en hvernig á að opna kampavínsflöskuna og hvernig á að bera kampavín fram? 1Kældu kampavínið. Það má kæla það í þrjár klukkustundir í kæliskáp eða í hálftíma í fötu með ís. 2 F jarlægðu álpappírinn og vefðu klút um flöskuna áður en þú opnar hana, þannig passar þú upp á að korktappinn lendi ekki í andliti nærstaddra og að kampavínið flæði ekki allt úr flöskunni. Haltu um flöskuháls- inn meðan þú snýrð vírinn af – það tekur um sex snúninga. 3Haltu nú flöskunni í um það bil 45 gráðu alla, haltu við botn flöskunnar með annari hendi og um korkinn með hinni. Losaðu korktappann varlega af og helltu kampavíninu í glösin. Það er gaman að brjóta upp borð- haldið með skemmtilegum sam- kvæmisleikjum. Leikurinn: Hver er ég? slær alltaf í gegn. Það sem þarf: „post it“- miða eða blöð, skriffæri og límband. Láttu alla gestina safnast í hring og límdu miða með nafni einhvers frægs einstaklings á ennið á hverjum og einum. Það mega allir sjá hvað stendur á miðanum hjá hinum en ekki sínum eigin. Því skaltu gæta þess vandlega að gestir sjái ekki hvað stendur á miðanum þegar hann er límdur á enni þeirra. Þátttakendur eiga svo að reyna að komast að því hvaða frægi einstaklingur þeir eigi að vera. Spyrja má hina já- eða nei- spurninga og skulu þeir svara þér þar til þú færð nei-svar, þá fær næsti aðili að reyna sig. Sá vinnur sem fyrstur fattar hver hann/hún er. Hver er ég? Skartaðu stjörnum um áramótin Stjörnum prýdd Það er allt leyfilegt þegar við kveðjum gamla árið og göngum inn í það nýja. Fáðu hugmyndir að áramótalúkkinu frá förðunarmeistaranum Lisu Eldridge. Steldu förðun Fridu Gustavsson í Vogue með aðstoð förðunarmeistarans Lisu Eldridge: S tjörnur og súperstjörn- ur fylltu desemberhefti Vogue, þar sem síðurnar voru skreyttar með flúruðu stjörnumynstri og súpermódel sátu fyrir. Förðunarþátturinn var einnig stjörnum prýddur og til- valinn til að sækja hugmyndir að áramótalúkkinu. Því ef það er ein- hvern tímann viðeigandi að mála sig svona þá er það á áramótunum. Það er allt leyfilegt þegar við kveðj- um gamla árið og göngum inn í það nýja. Lachlan Bailey tók myndirnar en Frida Gustavsson sat fyrir, Mir- anda Almond stíliseraði og förðun var í höndum Lisu Eldridge sem gaf þeim einnig góð ráð sem vilja stæla litríka og draumkennda förðunina. Á sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda tíðkaðist að skreyta andlitið með blómum. Þetta veitti Lisu innblástur fyrir förðunarþátt- inn, sem og Talitha Getty sem var leiðandi í tískunni á þessum tíma. „Gamall vinur minn á förðunarliti frá Mary Quant frá þessum tíma og einu leiðbeiningarnar sem fylgdu með voru: teiknaðu blóm hvar sem er. Ég elska þessa hugmynd um fullkomið frelsi,“ sagði Lisa í sam- tali við Vogue og sagði einnig: „Það er svo mikill mínimalismi í fegurð nútímans að mér fannst gaman að leika mér með förðunina og njóta þess!“ Eins og Lisa sagði sjálf þá var litapallettan lykillinn að vel heppn- aðri útkomu. „Skærbleika stjarn- an lítur vel út þegar henni er ekki blandað saman við liti, þar sem litirnir eru allir ljósir pastellitir var jafnvægi í þættinum. Ef ég hefði til dæmis notað rauðan varalit í þess- ari töku hefði þetta farið frá því að vera sætt yfir í það að vera hræði- legt!“ Taktu eftir því að grunnförðun- in er einföld og varirnar eru mjög hlutlausar. Fylgdu leiðbeiningunum! ingibjorg@dv.is Hvernig setur þú gerviaugnhár á? Vefðu augnhárunum utan um fingurinn og leyfðu þeim að standa þannig í smá tíma. Það kemur í veg fyrir að endarnir standi út þegar augnhárin eru komin á. Settu þunnt lag af lími á bandið sem heldur augnhárunum saman. Leyfðu líminu að þorna aðeins áður en augnhárin eru sett á. Festu augnhárin á með því að klemma þau saman við þín eigin augnhár. Reyndu að festa þau eins nálægt augnhárunum og mögulegt er. Byrjaðu yst og færðu þig svo smám saman innar. Passaðu þig bara að loka ekki augunum fyrr en límið er fullþornað. Notaðu svartan augnblýant til að hylja límið. Með stjörnur undir augunum Einfaldasta leiðin til þess að fá flottar stjörnur undir augun er að nota pall- ettur. Notaðu augnháralím til þess að festa palletturnar undir augunum. Best er að taka stjörnupallettuna upp með augnháraplokkara, setja smá lím aftan á hana og leyfa því að þorna aðeins áður en þú límir þær á andlitið. Þá er minni hætta á að stjörnurnar renni til eða límið smiti út frá sér. Eins er hægt að útbúa stensla og nota blautan augnblýant. Stóra bleika stjarnan Byrjaðu á því að teikna útlínurnar með bleikum varablýant. Grunnaðu stjörnuna með bleikum lit í aðeins ljósari tón af kremkenndum lit. Lisa notaði Make Up Forever Aqua Cream Color. Berðu síðan kremaðan lit í mjög björtum bleikum lit yfir grunninn. Lisa notaði Make Up Forever Mufe HD Microfinish Cream Blush, Truth or Dare. Notaðu síðan fjólublátt glimmer á augnlokin til að gefa förðuninni dýpt. Þokumynstur Þetta mynstur varð til fyrir tilviljun fyrir síðustu töku dagsins. Þá fór Lisa að leika sér og gaf hugmyndafluginn lausan tauminn. Litasamsetningin er lykillinn að útkomunni. Notaðu blautan gelformúlu- augnblýant til að fá silkikennda og mjúka áferð. Notaðu bursta til þess að teikna línurnar. Lisa notaði MAC Fluidline sem endast lengi og smitast ekki. Þeir koma í mörgum litatónum en burstarnir eru seldir sér. Byrjaðu á því að útbúa stjörnustensla. Notaðu stenslana síðan til þess að mála stjörnurnar á andlitið með silfurlit. Veldu liti sem tóna vel saman. Leyfðu hugmyndafluginu síðan að ráða för þegar þú dregur línur eftir andlitinu og myndar þína eigin stjörnuþoku fríhendis. Lisa notaði vatnsliti frá Kryolan í pasteltónum, silfri og metal. Að lokum dustaði hún silfurglimmeri frá MAC yfir stjörnurnar og Illamasqua tindrandi púðri yfir andlitið. Það er ómissandi þáttur hátíðahald- anna að njóta góðs matar og það er líka allt í lagi – það segir að minnsta kosti Michelle May, höfundur Eat What You Love, Love What You Eat. „Að njóta hátíðanna og vera á sama tíma alltof upptekin til þess að fara í ræktina er það sem tilheyrir þessum árstíma og ekkert til að skammast sín fyrir.“ 1 Haltu áfram að borðaEftir að hafa borðað yfir þig hvað eftir annað þá langar þig ef til vill til þess að sleppa heilu máltíðunum. „Það er slæm hugmynd vegna þess að þá hungrar þig enn meira í mat,“ segir Louis J. Aronne, höfundur bók- arinnar On Losing Weight Without Being Hungry. „Daginn eftir að þú borðar yfir þig skaltu passa að borða prótín í morgunverð, egg, kotasælu eða ab-mjólk.“ 2 Farðu í ræktinaEf þú lyftir aðeins glösum og göfflum í desember er mikilvægt að fara að hreyfa sig. Líkamsrækt hefur góð áhrif á heilsuna og hugarfarið líka. „Líkamsrækt fyllir þig kappi og jákvæðni og það hjálpar þér að velja rétt á diskinn,“ segir Joy Bauer nær- ingarfræðingur. 3 Slepptu öllu hvítu„Slepptu hvítu brauði, kexi, kökum og beyglum,“ segir Joy enn- fremur. „Þegar líkaminn er ekki vanur aukamagni af salti og sykri þá myndast bjúgur. Um leið og þú losn- ar við bjúginn þá færðu meiri orku og líður betur. Þessum árangri getur þú náð á tveimur dögum.“ 4 Skrifaðu niður markmið þínSkrifaðu niður einföld markmið. Um leið og þú hefur skrifað þau nið- ur eru þau orðin að loforði. Það er ekki nóg að hugsa með sjálfum sér: Ég ætla að missa nokkur kíló. Betra er að skrifa niður: Ég ætla að losna við þessi tvö aukakíló sem ég bætti á mig um jólin fyrir 15. febrúar og ekki degi seinna! 5 Ekki gleyma grænmetinuGrænmeti er bæði hollt og gott og heldur blóðsykrinum jöfnum til lengri tíma. Það gerir að verkum að hungrið ber þig ekki ofurliði. 6 Hentu afgöngunumEkki geyma alla afgangana, smá- kökurnar og ísterturnar. Hentu þessu bara og keyptu í staðinn ávexti og holla smábita. 7 Drekktu vatnDrekktu nóg af vatni og skolaðu út allri vitleysunni. Flestir drekka minna af vatni en þeir þurfa. Próf- aðu að drekka meira af vatni og sjáðu hvort þú finnir ekki hjá þér minni þörf í sætindi. Sjö góðar leiðir til að missa aukakílóin: Burtu með hátíðarkílóin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.