Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 60
60 | Lífsstíll 29. desember 2010 Áramótablað 30-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM ÚTSALA Áramót eru merk tímamót fyrir marga og ekki óalgengt að þá líti fólk yfir farinn veg og hugleiði hvað betur mátti fara á árinu sem er að renna sitt skeið. Þá er líka upplagt að strengja þess heit að gera betur á nýju ári, enda er nýtt ár eins og óskrifað blað og gaman að sjá fyrir sér fallega mynd á því óskrifaða blaði að ári. Burtu með lestina Algengustu áramótaheitin tengjast oftar en ekki löstum sem fólk vill losa sig við, eins og að hætta reykingum, drekka minna, éta minna og hreyfa sig meira. Að rækta garðinn sinn er mikilvægt og margir strengja þess heit að sinna betur sínum nánustu, hitta vinina oftar, heimsækja Tótu töntu að minnsta kosti tvisvar á árinu og vera almennt betri við fólk. Gera meira og eignast meira Sumir ætla að standa sig betur í skólanum eða vinnunni, aðrir ætla að eignast eitthvað nýtt eins og hús, bíl, flott föt eða kærasta/kærustu. Þá er líka til í dæminu að fólk strengi þess heit að losna við gamla kærastann eða gömlu kærustuna, verða frjálst, ferðast meira, leika sér meira, njóta meira. Gleymd heit Áramótaheit eru þó þeirrar náttúru að gleymast gjarnan strax í janúar. Sumir halda sín heit lengur og einn og einn heldur út allt árið. Hvort sem fólk hefur hugsað sér að strengja áramótaheit eða ekki í ár, er sem fyrr segir góður siður að líta yfir farinn veg og ákveða að gera sitt besta á nýja árinu, vera hugsanlega betri í dag en í gær. Njótið hvers dags Ef áramótaheitin klikka er ekkert við því að gera og alveg bannað að rífa sig niður fyrir það. Hafa bara hugfast að það er aldrei of seint að bæta sig. Og mikilvægast af öllu er að njóta hvers dags, því eins og segir í ljóðinu: Guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól. Kyndla vora hefjum hátt... Margir huga að sínum innri manni um áramót og strengja áramótaheit: Áramótaheit eins og köngulóarvefur Gerður Kristný skáld: „Ég held ég hafi strengt eitt í fyrra, en man ekki hvað það var. Ég hef ekki haft það fyrir reglu að strengja áramótaheit og kannski ætti ég ekkert að vera að því fyrst þau rista svona grunnt. En maður veit aldrei. Kannski í framtíðinni eiga áramótaheitin eftir að strengjast yfir líf mitt eins og köngulóarvefur.“ Aldrei aftur fjórar plötur í desember Bragi Valdimar Skúlason, Baggalút: „Sagði Guðmundur það, já? Hann hefur reyndar ekki rétt fyrir sér í því. Ég er ekki með neina lesti til að hætta, það er varla hægt að vera betri en ég er nú þegar. Ef ég hins vegar strengdi áramótaheit í ár yrði það að gera ekki tilraun til að gefa út fjórar plötur í desember á næsta ári.“ Aldrei Barði Jóhannsson tónlistarmaður: „Nei, ég hef aldrei gert það.“ Kaupi bara karton Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri: „Nei, í sjálfu sér ekki. Ég hef verið að basla við að hætta að reykja, en kaupi svo bara karton í staðinn. Ég held það væri betra að lofa engu, hætta bara í rólegheitum. Áramót eru þó ákveðin tímamót í lífi hvers og eins, fólk lítur yfir farinn veg og gerir aðeins upp líf sitt. Mér finnst það tilheyra á áramótum.“ Talaðu við Braga Guðmundur Pálsson, Baggalút: „Nei. Það hefur aldrei hvarflað að mér. Ég er samt alltaf að reyna að bæta mig, en dreifi því bara jafnt yfir árið. Talaðu við Braga. Ég gæti best trúað að hann strengdi áramótaheit.“ Strengir þú áramótaheit? Var með eitt fyndið Hugleikur Dagsson teiknari: „Ég var með eitthvað rosalega fyndið áramótaheit um daginn, sem hefði verið skemmtilegt fyrir blaðið, en ég man það ekki lengur. Það var samt rosalega fyndið. Annars hef ég aldrei strengt áramótaheit, datt bara þetta fyndna í hug í síðustu viku. Nú er það því miður gleymt.“ Tannþráðarheitin klikka Margrét Eir Hjartardóttir söngkona: „Já, ég geri það, en tek þau ekki nógu alvarlega. Ég er búin að vera með sama áramótaheitið í nokkur ár, heiti því árlega að nota meiri tannþráð. Þetta var til dæmis ekki gott tannþráðarár svo ég verð að strengja það eina ferðina enn. Líka að vera skipulagðari. Það eru heitin í ár.“ Ætla að vera betri við manninn minn Marta María Jónasdóttir aðst. ritstjóri: „Ég hef oft strengt áramótaheit og það hefur gengið misvel að fylgja þeim eftir. Mín áramótaheit stýrast yfirleitt af ofáti jólanna þar sem ég hef legið í sykur- og fitumarineringu. Áramótaheitið 2011 verður að vera betri við eiginmanninn því hann gaf mér svo veglega jólagjöf...“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.