Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 62
62 | Innlent sviðsljós 29. desember 2010 Áramótablað
Mikið gerðist í íslensku stjörnulífi á árinu.
Hæst bar að Jón Gnarr og hans sveit
af frægu fólki tók við Reykjavíkur-
borg en Besti flokkurinn myndaði
meirihlutasamstarf með Samfylk-
ingunni. Meintur handrukkari, Jón
stóri, var í hverju viðtalinu á fætur
öðru eftir útgáfu bókar um hann.
Kristrún Ösp hætti með Dwight
Yorke og Ásdís Rán sat nakin
fyrir í Playboy svo fátt eitt sé
nefnt.
Stjörnur tóku
við borginni
Tobba
fann
mann
Eftir að hafa sagt stúlkum
í tæp tvö ár hvernig þær
eigi að finna mann og halda í
hann fann stefnumótadrottn-
ingin Tobba Marinós sér sjálf
kærasta. Tobba er nú í sambandi
með Karli Sigurðssyni, söngvara
Baggalúts og borgarfulltrúa
Besta flokksins, og eru þau mjög
hamingjusöm. Tobba gaf út sína
aðra bók á árinu, Dömusiði, sem
var á meðal þeirra mest seldu.
Vala orðin Grand
Glamúrgellan Vala Grand
fékk draum sinn loksins
uppfylltan en hún gekkst
undir kynleiðréttingu á árinu
og varð því formlega kona.
Stuttu eftir aðgerðina hætti
hún með kærastanum sínum
og spunnust upp úr því miklar
deilur á Facebook þegar hann
fann sér nýja. Vala er byrjuð
með netþætti á mbl.is sem
hafa vakið mikla athygli og
er eindregið verið að skora á
hana að taka þátt í keppninni
Ungfrú Íslandi.
Dónalegur Westwick
Íslenskar konur hreinlega trylltust á dögunum þegar leikarinn Ed
Westwick úr Gossip Girl var hér á landi að djamma. Var hann eltur
út um allt af íslenskum stúlkum sem vildu allt fyrir hann gera.
Westwick sýndi þó ekki meiri mannasiði en svo að hann öskraði
á þær og eyðilagði nokkrar myndavélar. Var hann blindfullur og
erfiður en þegar kom að því að fara í háttinn spurði hann hátt og
snjallt hverjar vildu nú fylgja honum upp á hótelherbergi. Stóð
þar ekki á svörunum og svaf Westwick ekki einn hér á landi.
Besti flokkurinn tekur við Í hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri varð ljóst að Reykjavíkurbúar ætluðu að refsa fjórflokknum grimmilega í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna. Svo fór að Besti flokkurinn, leiddur af Jóni Gnarr, fékk sex menn inn og myndaði meirihluta með Samfylkingunni. Jón Gnarr settist sjálfur í borgarstjórastólinn og hefur fengið misjafna dóma fyrir störf sín þar. Fleiri stjörnur sitja nú sem borgarfulltrúar en má þar nefna bóksalann og söngvarann Óttar Proppé og söngvara Baggalúts, Karl Sigurðsson.
Jón stóri úti um allt Hinn meinti handrukkari Jón Hilmar Hallgrímsson,
betur þekktur sem Jón stóri, leyfði Helga Jean Claessen að skrifa um sig grínbók
sem kom út í desember. Í kjölfar bókarinnar fór Jón í viðtöl úti um allt, meðal ann-
ars á Stöð 2, mbl.is, Harmageddon og á FM957. Hefur Jón talað opinberlega um
fíkniefnaneyslu sína og vill að börnin haldi sig frá fíkniefnum. Sjálfur segist hann
ekki vera handrukkari en hann rukkar þó skuldir og lendir stundum í slagsmálum
eins og strákar gera.
Kvaddi
Yorke
Fyrirsætan Kristrún
Ösp Barkardóttir
sem hefur síðastliðin
misseri verið í sam-
bandi við fyrrverandi
knattspyrnuhetjuna
Dwight Yorke gaf
það samband upp á
bátinn. Kristrún, sem
er tvítug, fann ástina í
örmum átján ára pilts
hér heima og eru þau
tvö ástfangin mjög.
Kristrún segist sakna
Yorke og ætla þau tvö að
halda áfram að vera vinir.
Vill hún ekki missa hann úr
lífi sínu.
Ásdís í
Playboy
Það var að vanda
nóg að frétta af
Ásdísi Rán í ár. Hún
lét loksins verða
af því að sitja fyrir
nakin í búlgarska
Playboy og þóttu
myndirnar afar vel
heppnaðar. Ásdís
kvaddi Búlgaríu
með söknuði en
hún fluttist búferl-
um til München þar
sem eiginmaður
hennar, Garðar
Gunnlaugsson,
spilar nú með
neðrideildar liðinu
Unterhaching.
Logi vakti athygli
Handknattleikshetjan Logi Geirsson gaf út bókina
10.10.10 í október. DV skrifaði upp nokkrar sögur úr
bókinni og vöktu þær gífurlega athygli. Eins voru
á meðal mest lesnu frétta ársins þegar Logi lenti
í áflogum á Hverfisbarnum og var leiddur út í
lögreglubíl til skýrslutöku. Í bókinni kom meðal
annars fram að Logi hefði gefið vafasömum manni,
sem hann treysti þó, umboð yfir fjármunum sínum og
sá nýtti umboðið til að kaupa sextán íbúðir sem Logi
vissi ekki um.