Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 64
64 | Erlent sviðsljós 29. desember 2010 Áramótablað Anna Paquin og Stephen Moyer Ástralska leikkonan Anna Paqu- in og breski leikarinn Stephen Moyer gengu í hjónaband í lok ágúst á þessu ári. Þau hafa síðastliðin misseri verið að gera allt vitlaust í þáttunum True Blood þar sem kynlífssenur þeirra hafa vakið mikla athygli. Ást þeirra í þáttunum varð að alvöru ást sem endaði með hjónabandi. Orlando Bloom og Miranda Kerr Það eru fá hjón í heiminum jafnmyndarleg og leikarinn Orlando Bloom og fyrirsætan Miranda Kerr. Þau fóru að stinga saman nefjum árið 2007 og giftu sig síðan í júlí á þessu ári. Þeim hefur tekist ótrúlega vel upp við að halda sambandi sínu utan fjölmiðlanna en bæði tvö vilja sem sjaldnast birtast á síðum blaðanna. Fá þau bæði nóg að gera sem leikari og fyrirsæta. Megan Fox og Brian Austin Green Megan Fox er talin ein kynþokkafyllsta kona heims. Hún er rúmum tíu árum yngri en fyrrverandi Beverly Hills-stjarnan Brian Austin Green sem þessa dagana leikur í þáttunum um aðþrengdar eiginkonur. Þessi tvö byrjuðu að hittast fyrir sex árum, trúlofuðu sig fyrir fjórum árum og giftu sig síðan í maí. Calista Flockhart og Harrison Ford Calista Flockhart má muna sinn fífil fegri hvað varðar leiklistina en Harrison Ford er sígildur. Þó mikill aldursmunur sé á þeim hjónum giftu þau sig við hátíðlega athöfn þann 15. júní. Calista ættleiddi son árið 2001 en Harrison Ford skrifaði svo undir pappíra þess efnis í ár að hann væri löggildur faðir piltsins sem heitir Liam. Giftingar og skilnaðir Þessi áttu árið Þ es si s ki ld u Þ es si g if tu s ig Lady Gaga Frægðarsól þessarar ótrúlegu píu hækkar bara og hækkar. Hún er kominn með ógnvænlegan aðdáendahóp sem tryggir henni hver MTV-verðlaunin á fætur öðrum. Plötur hennar seljast í milljónum eintaka og myndböndin eru með þeim mest skoðuðu á YouTube. Lady Gaga átti einfaldlega bandaríska tónlistarbransann í ár en þú þarft að vera orðin nokkuð stórt nafn þegar Beyoncé biður um að fá að gera myndband með þér. Justin Bieber Táningastjarnan frá Kanada er gjörsam- lega að gera allt vitlaust en uppselt er á alla tónleika hans sama hvar þeir eru haldnir í heiminum. Minnir fárið í kringum þennan unga pilt hvað helst á Bítlaæðið þegar það stóð sem hæst. Þurfti meðal annars að aflýsa tónleikum hans í Ástralíu þar sem svo mikil geðshræring myndaðist í kringum komu hans að ungar stúlkur voru farnar að láta illum látum og leið yfir margar þeirra. Bieber er einfaldlega sá heitasti í dag. stjarnanna Það var nóg að gerast í tilhugalífi stjarnanna úti í hinum stóra heimi á árinu. Fjöldinn allur var af skiln- uðum og annað eins af giftingum. Hér eru nokkur pör sem skildu og önnur sem innsigluðu ást sína auk tveggja einstaklinga sem tóku árið 2010 með trompi. Sandra Bullock og Jesse James Skilnaður þeirra vakti mikla athygli og átti sér stað eftir eftir að upp komst um framhjáhald Jesse eftir fimm ára hjónaband. Þetta var aðeins átta dögum eftir að Sandra hreppti Óskarsverðlaunin. Jesse iðraðist en aðeins of seint enda kom í ljós að hann hafði verið ótrúr frá upphafi. Sandra er nú einhleyp en ættleiddi son sem heitir Louis. Jim Carrey og Jenny McCarthy Eftir að hafa verið saman í ein fimm ár, lengur en nokkur hafði reiknað með, tilkynnti parið um sambandsslitin á Twitter. Þau höfðu ekkert nema góða hluti um hvort annað að segja en ástin var einfaldlega ekki til staðar lengur. Þegar frá leið fóru þó að birtast fréttir af Carrey í mikilli ástarsorg og undarlegri hegðun hans. Mel Gibson og Oksana Grigorieva Allt fór í háaloft þegar Oksana sakaði leikarann og leikstjór- ann um að hafa beitt hana andlegu og líkamlegu ofbeldi. Klárlega ljótasti skilnaður ársins en þau eignuðust dóttur árið 2009. Upptökur af Gibson vöktu mikla reiði um allan heim en þar kom berlega í ljós að rússneska tónlistarkonan hafði eitthvað til síns máls. Ekki var það til að bæta ímynd Gibsons sem hafði verið sakaður um hatur á gyðingum, blökkufólki og samkynhneigðum. Cheryl Tweedy og Ashley Cole Þau byrjuðu að hittast árið 2004, voru trúlofuð ári síðar og voru gift 2006. Í lok árs 2006 voru bresku slúðurblöðin með viðtöl við fyrirsætu sem sagðist hafa sofið hjá Cole. Tweedy hætti að ganga með giftingarhringinn um sinn en þau sættust svo að lokum. Árið 2009 komst aftur kreik orðrómur um framhjáhald. Að þessu sinni var Cole ekki fyrirgefið og Tweedy sótti um skilnað í maí. Ashley Cole hefur síðan þá verið einn óvinsælasti maður Bretlandseyja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.