Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Qupperneq 66

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Qupperneq 66
66 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 29. desember 2010 Áramótablað Árið 2010 hófst frábærlega með bronsinu sem strákarnir okkar lönduðu á Evrópumótinu í handbolta í Austurríki. Árið 2010 var ekki það viðburðaríkasta í sögunni en þó mátti margt gott sjá og ýmislegt nýtt. Hér er stiklað á stóru í íslenskum íþróttum á árinu sem er að líða. Íslenskt íþróttalíf 2 10 AFREK ÁRSINS Brons á EM Strákarnir okkar stóðust pressuna heldur betur á Evrópumótinu í Austurríki en það var fyrsta stórmót liðsins eftir árangurinn á Ólympíuleik- unum. Þrátt fyrir mótlæti í byrjun sáu strákarnir íslensku þjóðinni fyrir rafmagnaðri spennu og stórbrotnum tilþrifum á leið sinni að bronsinu. Verða lengi í minnum hafðir varnartilburðir Alexanders Petersson í bronsleiknum gegn Póllandi. Blikar eiga nú bikar Það er af sem áður var þegar Blika áttu enga bikara. Hið unga, uppalda og stórskemmti- lega lið Breiðabliks fylgdi eftir bikarmeistaratitli sínum frá árinu 2009 með Íslands- meistaratitlinum í ár. Hafði það betur en FH á markatölu. Alfreð Finnbogason var kjörinn besti leikmaður mótsins og hélt hann í atvinnumennsku til Lokeren í desember. Þrír í röð Aron Kristjánsson kvaddi Haukana aftur með látum í vor. Haukar urðu Íslandsmeistarar þriðja árið í röð, nú eftir stórkostlegan oddaleik að Ásvöllum sem minnti á gömlu góðu dagana. Haukar unnu alla titlana sem í boði voru á árinu og voru án efa langbesta liðið. Aron tók við þjálfun Hannover-Burgdorf í þýsku efstu deildinni en Valdimar Fannar Þórsson úr HK var kjörinn besti leikmaður N1-deildarinnar. ÍSLANDSMEISTARAR ÁRSINS Loksins kom að því hjá Snæfelli Eftir langa bið tókst Snæfelli loksins að landa þeim stóra. Snæfell varð Íslandsmeistari í körfubolta eftir ótrúlega úrslitakeppni þar sem liðið átti aldrei heimavallarréttinn en vann alla leiki sína á útivelli. Hafði Snæfell betur í úrslitarimmunni gegn Keflavík. Snæfell vann alla titlana sem í boði voru en maður ársins var Hlynur Bæringsson. Hann var kjörinn besti leikmaður deildarinnar, mikilvægastur í úrslitarimmunni, besti varnarmaðurinn og var valinn í úrvalslið ársins. Alfreð Gíslason, Dagur Sigurðsson og Guðmundur Þórður Guðmundsson Þrír íslenskir handboltaþjálfarar hafa gert það afar gott á árinu. Alfreð Gíslason vann alla þá titla sem í boði voru í Þýskalandi ásamt því að landa loksins Meistaradeildartitlinum með Kiel. Kiel er í þriðja sæti þýsku deildarinnar sem stendur. Dagur Sigurðsson hóf árið með glans og gerði magnaða hluti með Austurríki á EM á heimavelli þess. Hann er nú með Fusche Berlín óvænt í öðru sæti í sterkustu deild í heimi og er að stimpla sig inn sem besti ungi þjálfari heims. Guðmundur Guðmundsson landaði bronsinu með Íslandi á EM og er nú með Rhein-Neckar Löwen í fjórða sæti þýsku deildarinnar og kominn í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar. ÞRÍR Á TOPPNUM UPP OG NIÐUR Árið hans Gylfa Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson átti stórkostlegt ár. Hann skoraði að vild með Reading fyrri hluta árs í næstefstu deildinni á Englandi. Hann lék sína fyrstu A-landsleiki. Var aðalmaðurinn í U21 árs liðinu sem vann sér sæti á EM. Gylfi var keyptur til Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni á sjö milljónir punda og er markahæsti leikmaður liðsins í vetrarfríinu þó hann hafi aðeins byrjað inni á fjórum sinnum. Það þyrfti ekki að koma neinum á óvart yrði Gylfi valinn íþróttamaður ársins í byrjun janúar. Fær ekkert að spila Frægðarsól Eiðs Smára Guðjohnsen er svo sannarlega sest í bili. Eftir glatað gengi með Mónakó færði Eiður sig um set til Stoke þar sem hann var strax skammaður fyrir að vera ekki í nægilega góðu formi. Hann er enn sagður of þungur til að spila en hann hefur ekki spilað mínútu í síðustu níu leikjum Stoke. Er hann kominn með nýtt viðurnefni: „Pudjohnsen“. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir aðeins fjórum árum var Eiður að halda boltanum á lofti á Nou Camp þegar hann var kynntur til sögunnar sem nýjasti leikmaður Barcelona. FYRSTA SKIPTI Ungir á EM Í fyrsta sinn í sögunni verður Ísland í lokakeppni Evrópumóts U21 árs landsliða í knattspyrnu en hún fer fram næst í júní á næsta ári í Danmörku. Íslenska U21 árs liðið vann hug og hjörtu Íslendinga en 7.000 manns sáu liðið leggja Skota að velli á Laugardalsvelli. Aðeins átta þjóðir komast inn á lokakeppni EM og er því afrek drengjanna ekkert lítið. Blað brotið í sögunni Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fór á stórmót í fyrsta skipti á árinu. Þær komust inn á Evrópumótið sem haldið var í Danmörku og Noregi nú í desember. Við ramman reip var að draga strax frá upphafi því ekki var riðilinn árennilegur. Svo fór að stelpurnar töpuðu öllum leikjunum og áttu aldrei möguleika. Þær eru þó reynslunni ríkari og stefna á að tryggja sér sæti á HM sem fer fram í Brasilíu á sama tíma að ári.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.