Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Qupperneq 67
Sport | 67Áramótablað 29. desember 2010
Stærsti einstaki íþróttaviðburður heims, HM í fótbolta, fór fram á árinu en Spánn landaði heimsmeistaratitlinum eftir sigur í úrslita-
leik gegn Hollandi. Ýmislegt gerðist í íþróttunum ytra eins og á ári hverju og er hér stiklað á stóru.
Svipmyndir
Kóngar fótboltans Spánn fylgdi eftir Evrópumeistaratitli sínum með sigri á HM. Spánn hafði betur í úrslitaleik gegn Hollandi
þar sem Andres Iniesta skoraði eina mark leiksins. Spánn virðist vera gersamlega ósigrandi og þar sem liðið er á góðum aldri þyrfti
ekki að koma neinum á óvart að þeir verði aftur Evrópumeistarar í Úkraínu og Póllandi eftir eitt og hálft ár.
Upprisan fullkomuð Fyrir fimm árum skall öflugur fellibylur á New Orleans í Bandaríkjunum
þar sem þúsundir létust. Þurfti fólk að búa á heimavelli NFL-liðsins, New Orleans Saints, lengi
vel. Saints hefur undanfarið ár styrkst og tókst því að vinna Superbowl í febrúar nokkuð óvænt
með því að leggja Indianapolis Colts að velli. Ríkti mikil gleði í New Orleans en leikmenn liðsins
tileinkuðu sigurinn fórnarlömbum fellibyljarins Katrínar.
Langbestir í körfu
Í aðdraganda HM í
körfubolta sem fram fór í
Tyrklandi í ár dró hver stór-
stjarnan á fætur annarri
sig út úr bandaríska liðinu.
Það var þó ekki eins og
Bandaríkin væru með
einhverja aukvisa í liðinu
en þar var að finna menn
á borð við Kevin Durant,
sem var svo kosinn besti
leikmaður mótsins, Lamar
Odom og Derrick Rose.
Það er skemmst frá því að
segja að Bandaríkin urðu
heimsmeistarar og gerðu
það nánast með vinstri.
Í úrslitum lögðu þeir
heimamenn í Tyrklandi að
velli, 81–64.
Enn ósigraður Floyd Mayweather hefur
lengi haldið sig frá bardaga við hinn magnaða
Filipseying, Manny Paquioau. Hann snéri þó
aftur í hringinn á árinu og barði Shane Mosley í
spað. Vann Mayweather með einróma úrskurði
dómara og er hann nú ósigraður á ferlinum í
fjörtíu og einum bardaga.
Hætti við að hætta Mikill farsi myndaðist í
kringum yfirvofandi brottför Waynes Rooneys
frá Manchester United í haust en hann sagðist
þá vilja yfirgefa félagið. Aðeins tveimur dögum
síðar var hann búinn að sannfærast um að
Manchester væri staðurinn fyrir hann og
skrifaði hann undir nýjan samning. Rooney var
gripinn við framhjáhald á árinu, í annað skiptið,
en hann er þó enn í sambúð með konu sinni,
Colleen.
Frábær byrjun Ancelotti Carlo Ancelotti fékk það verkefni að koma Chelsea
aftur á toppinn á Englandi eftir þriggja ára einokun Manchester United. Það tókst
honum svo sannarlega en Chelsea var langbesta lið síðasta tímabils. Chelsea vann
deildina þó aðeins með einu stigi en í fyrsta skipti í sögu úrvalsdeildarinnar skoraði
lið meira en hundrað mörk. Chelsea varð einnig bikarmeistari en ekki frekar en
forverum sínum tókst Ancelotti að vinna Meistaradeildina.
Þrenna hjá Mourinho
Jose Mourinho vann mikið
afrek með ítalska liðið Inter
á árinu er hann landaði hinni
eftirsóttu þrennu. Inter vann
ítölsku deildina, bikarinn og
Meistaradeildina eftir sigur á
FC Bayern í úrslitaleik í Madríd,
2–0. Inter lagði Barcelona á
leið sinni í úrslitaleikinn. Eftir
tímabilið kvaddi Mourinho og
tók við Real Madrid. Rafael
Benitez var ráðinn til Inter en
var rekinn um daginn. Inter á
nær enga möguleika á titlinum
í ár en það hefur unnið hann
undanfarin sex ár.
Næstum fullkomið ár hjá Nadal Tenniskappinn
Rafael Nadal vann mikið afrek á árinu en honum tókst
að landa sigri á þremur af fjórum risamótum ársins.
Hafði hann sigur á Wimbledon-mótinu, opna franska
og opna bandaríska. Eina mótið sem hann tók ekki var
opna ástralska en það hirti Roger Federer. Nadal var
kjörinn íþróttamaður ársins utan Englands á árlegu
hófi breska ríkissjónvarpsins í desember.
Rússland fékk HM Allt varð vitlaust undir lok árs þegar kosið var um hvaða lönd
skyldu halda heimsmeistarakeppnina í fótbolta árin 2018 og 2022. Vildu margir að
fótboltinn kæmi heim til Englands en á endanum urðu það Rússland og Katar sem
fengu keppnirnar tvær. Var það ljóst fyrir kosninguna að atkvæði nefndarmanna
voru til sölu en enskir gerðu sér enga greiða með því að sýna þætti um spillingu
innan FIFA í sömu viku og kosið var.
af erlendum vettvangi