Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 78
78 | Fólkið 29. desember 2010 Áramótablað
Stór mynd er á miðjum Laugaveginum
af Agli „Gillzenegger“ Einarssyni með
yfirskriftinni „Gillzenegger styður ní-
menningana“. Aðspurður segist Egill
ekki hafa hugmynd um hver setti upp
skiltið með myndinni og kveðst forvit-
inn að vita hverjum datt þetta í hug.
Hann hefur þó ekki miklar áhyggjur af
málinu og ætlar ekki að aðhafast neitt
sérstakt í því.
„Það eru svona þrír dagar síðan ég
fékk þetta sent. Ég ætla ekki að gera
neitt í þessu, ég veit ekki hver setti
þetta upp eða neitt, en ég sé að það
er notuð sama myndin og er fram-
an á mannasiðabókinni. Það hefur
greinilega verið einhver snillingur sem
kokkaði þetta. Ég hafði nú bara gaman
af því að sjá þetta þegar ég fékk þetta
sent,“ segir hann um málið. Egill er
sáttur við yfirlýsinguna og segir hana
vera rétta, þó að hann hafi ekkert með
skiltið að gera.
Þó að Egill hafi ekki áhyggjur af
yfirlýsingunni er hann ekki alveg
áhyggjulaus. „Ég hef miklar áhyggj-
ur af því að ég sé kominn úr fjór-
um prósentum (fituhlutfall) í svona
sjö,“ segir Egill sem ætlar beint í
ræktina. „Núna er það bara lax,
eggjahvítur og gymmið í þrjá tíma á
dag. Þetta gengur ekki. Þessi jól, það
er ekkert eðlilega mikið át sem fylg-
ir þessu,“ segir hann og kveðst bara
vera með sama áramótaheit og öll
þjóðin, að fara í ræktina.
Stuðningsyfirlýsing á Laugavegi:
Gillz styður nímenningana
– í alvöru Í alvöru Stuðningsyfirlýs-ingin sem er á Laugaveg-inum er ekki frá Agli. Hann styður engu að síður nímenningana.
Skiltið Yfirlýsingin er prentuð á skilti sem
hengt hefur verið upp við Laugaveginn.
Makalaus Kalli
leikur sjálfan sig
n Karl önnum kafinn n Strengir engin áramótaheit
S
jónvarpsstjarnan Karl
Berndsen förðunarmeistari
og stílisti mun koma til með
að leika sjálfan sig í sjón-
varpsþáttaröðinni Makalaus sem
frumsýnd verður á Skjá Einum á
nýju ári. Karl segist vera spennt-
ur fyrir hlutverkinu en býst ekki
við að það verði mikið erfiðara en
önnur verkefni sem hann sinnir
um þessar mundir. Meðal þeirra
verkefna er sjónvarpsþátturinn
Nýtt Útlit, sem einnig er sýndur á
Skjá Einum, og rekstur Beauty Bar
í turninum við Höfðatorg.
Hugarfóstur
aðalpersónunnar
Karl mun vera hugarfóstur Lilju
aðalpersónunnar sem sér hann
fyrir sér inn á baðherbergi þeg-
ar hún er að taka sig til. Þar gefur
Kalli hin ýmsu ráð varðandi hvern-
ig hún skuli greiða sér eða farða
enda er það hans sérþekking en
hann gaf á dögunum út sína fyrstu
bók sjálfur. Hann segist ekki vita í
hve mörgum þáttum hann mun
leika í, en segist ekki getað ímynd-
að sér að þeir verði margir.
„Það sem ég er búinn að sjá af
handritinu lítur vel út,“ segir Karl
sem er spenntur fyrir þáttunum.
Hann segist vera spenntur fyrir því
að vinna með Þorbjörgu Marinós-
dóttur, höfundi bókarinnar sem
sjónvarpsþættirnir eru byggðir á.
„Hún er frábær og okkur kemur vel
saman. Ég held að þetta verði bara
fjör. Ég las bókina og mér fannst
hún frábær.“
Á leið til Flórída
Þrátt fyrir andríki hjá Karli ætl-
ar hann að taka sér smá frí næstu
daga og skella sér til Flórída. „Jújú,
ég er úti á velli á leiðinni til Amer-
íku og ætla vera þar yfir nýja árið,“
segir Kalli en hann mun eyða ára-
mótunum einn, enda er hann
sjálfur makalaus. Hann segist þó
vona að það breytist á nýja árinu.
Aðspurður hvort hann strengi
einhver áramótaheit segir Kalli að
það hafi alltaf gefist honum best að
sleppa því, og „vera ekkert með of
miklar yfirlýsingar um áramótin.“
Karl Berndsen:
Félagar Samstarfið við Þorbjörgu
Marinósdóttur leggst vel í Kalla.
Sjónvarpsstjarna
Karl Berndsen er
spenntur fyrir því
að leika sjálfan sig í
sjónvarpsþáttaröðinni
Makalaus.
Í sambandi
á Facebook
Jón Hilmar Hallgrímsson, oftast
kallaður Jón stóri, er genginn út. Á
Facebook-síðunni hans sést að hann
er kominn í samband með stúlku sem
heitir Ásdís Lilja. Jón stóri hefur verið
mikið á milli tannanna á fólki í sumar
en hann var nýverið í ítarlegu viðtali á
Stöð 2. Þar sagði hann meðal annars
að síðast þegar að hann var á lausu
hafi hann farið inn á Facebook og bætt
við öllum sætum stelpum sem hann
sá á vinalistann sinn. Hvort hann hafi
kynnst Ásdísi Lilju á Facebook er hins
vegar ekki ljóst.
Fyrsta sinn
í tuttugu ár
Eiríkur Jónsson blaðamaður tók
strætó í fyrsta skipti í 20 ár á jóladag.
Hann lýsir því á bloggsíðu sinni að hann
hafi þó lent í einhverjum ógöngum
í strætóferðinni. „Á Hlemmi sagði
vagnstjórinn mér að fara yfir í annan
vagn sem líka var númer sex vegna
þes að hann þyrfti að breyta sínum
í ás (hvað sem það nú þýðir). Skipti
þá engum togum að nýja sexan tók
stefnuna niður Hverfisgötuna aftur
(sjaldan sem maður ferðast fram og
tilbaka næstum samtímis). „Hvert
ertu að fara?“ hrópaði ég eftir tómum
vagninum endilöngum. „Þú tókst vagn-
inn vitlausu megin á Hverfisgötunni.
Nú ertu á réttri leið,“ svaraði vinalegur
vagnstjórinn.“