Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Qupperneq 80
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80
Hreinn
Sveinn!
Brotlegur
ráðherra
n Ögmundur Jónasson kvartaði und-
an því á heimasíðu sinni á þriðjudag
að fjallað væri um meintar óvin-
sældir Ásmundar Einars Daðasonar,
þingmanns Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs, innan þingflokks
síns. Sagði Ögmundur, sem er dóms-
mála- og mannréttindaráðherra, í
bloggfærslu að Ásmundur væri sinn
uppáhaldsþingmaður. Með færslunni
birti hann hins vegar athyglisverða
samsetta mynd. Myndin var samsett
úr tveimur myndum, annarri af
húsnæði fjölmiðlasamsteypunnar
365 og hinni af Ásmundi sjálfum.
Að minnsta kosti önnur
myndin er þó ekki í
eigu Ögmundar held-
ur ljósmyndarans
Róberts Reynissonar.
Bendir allt til þess
að æðist yfirmaður
dómsvaldsins hafi
sjálfur
brotið lög
um höf-
unda-
rétt.
„Ég er bara heppinn
og ánægður“
n Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, lenti í töluvert hörðum árekstri
á Þorláksmessu og þurfti að dveljast
á Landspítalanum yfir jólin vegna
áverka sem hann hlaut. Í samtali við
DV í gær sagðist hann vera nýkominn
heim en væri óvinnufær eins og er.
„Ég er bara heppinn og ánægður,“
segir Þórarinn, sem var einn í bílnum
þegar áreksturinn átti sér stað. Hann
segir engan hafa slasast alvarlega í
árekstrinum. Þórarinn borðaði jóla-
steikina á spítalanum og segist hafa
fengið mjög góða
aðhlynningu. „Ég
er bara hress og
sérstaklega er
geðheilsan í góðu
lagi. Ég er búinn að
fá mikið af góðum
kveðjum og er
þakklátur fyrir
það.“
Sveinn er
aldrei einn
n Leikverkið Lér konungur eftir
sjálfan William Shakespeare, var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á annan í
jólum. Frumsýningin varðar einn af
hápunktum menningarlífsins ár hvert
og eru prúðbúnir gestir jafnan úr efstu
lögum samfélagsins. Á því varð engin
breyting á sunnudaginn því meðal
gesta má nefna Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, og Sigurjón
Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóra
Landsbankans og helsta forvígismann
Icesave-reikninganna. Báðir eiga þeir
það sameiginlegt að stjarna
þeirra hefur skinið
skærar en einmitt nú
um stundir. Þá vakti
það mikla athygli
gesta að lögmað-
urinn Sveinn Andri
Sveinsson mætti á
frumsýninguna með
sjónvarps-
þuluna
fyrrverandi,
Evu Sólan,
upp á
arminn.
HELGARBLAÐ
29. DESEMBER 2010 – 2. JANÚAR 2011
150. TBL. 100. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 595 KR.
„Ég fór með fjölskylduna hingað og
það er bara mjög fínt. Ég er búin að
vera í örfáa daga og er á heimleið,“ seg-
ir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður
slitastjórnar Glitnis, í samtali við DV.
Steinunn ákvað að bregða undir sig
betri fætinum fyrir jól og skellti sér til
Dúbaí með fjölskyldu sinni. Ferðin var
stutt og ætlar hún að vera heima á Ís-
landi um áramótin.
Mikið hefur mætt á Steinunni und-
anfarin misseri enda vinna slitastjórn-
ar Glitnis við að endurheimta eignir
hins fallna banka mikil.
Á dögunum var Steinunn í New
York til að vera viðstödd dómsupp-
kvaðningu í máli slitastjórnarinn-
ar gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og
félögum hans. Dómari í málinu vís-
aði því hins vegar frá en í samtali við
DV í kjölfarið sagði Steinunn að mál-
inu væri langt í frá lokið. Má því ætla
að komandi ár verði viðburðaríkt hjá
Steinunni sem hefur ekki tekið sér frí
síðan hún tók við starfi formanns slita-
stjórnarinnar á haustmánuðum 2008.
„Ég hef ekki tekið mér sumarfrí síð-
an ég tók við þessu starfi í október 2008
þannig að það var tímabært fyrir mig
að gera eitthvað með fjölskyldunni,“
segir Steinunn sem að öðru leyti vildi
lítið tjá sig um ferðina.
Fullyrða má að það sé ekki á færi
hvers sem er að skella sér í nokkurra
daga ferð til Dúbaí. Steinunn er hins
vegar á góðum launum hjá slitastjórn
Glitnis en í ágúst síðastliðnum var
upplýst að hún hefði fengið 225 þús-
und krónur á dag, allan sólarhringinn,
fyrstu þrjá mánuði ársins.
einar@dv.is
Steinunn Guðbjartsdóttir hafði ekki tekið sér frí í tvö ár:
Fagnaði jólunum í Dúbai
Gleðilegt ár!
Getur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
www.rarik.is
Jól á framandi slóðum Steinunn
skellti sér með fjölskyldunni til Dúbaí þar
sem hún var yfir jólin.