Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 29. ágúst 2011 Mánudagur
S
amkvæmt upplýsing-
um frá iðnaðarráðu-
neytinu verður ekki
gripið til neinna að-
gerða í tengslum við
lánsloforð Byggðastofnunar
til Ökugerðis Íslands þar sem
málið er „úr sögunni“. Í skrif-
legu bréfi frá ráðuneytinu við
fyrirspurn DV segir að loforð
um hámarkslán til Ökugerðis
Íslands hafi runnið út þann 24.
ágúst. Í loforðinu sem Byggða-
stofnun veitti Ökugerði Íslands
var sérstaklega tekið fram að
það félli niður að liðnum sex
mánuðum frá dagsetningu
bréfsins.
Með tölvupósti þann 8. júní
2011 var loforðið framlengt til
24. ágúst. „Sá frestur er nú lið-
inn án þess að neinar tilkynn-
ingar hafi borist um framvindu
verkefnisins, og er því láns-
loforðið fallið úr gildi,“ segir
í svari iðnaðarráðuneytisins.
Heimildir DV herma að erfið-
lega hafi gengið hjá aðstand-
endum fyrirtækisins að fá það
hlutafé og/eða eiginfjárfram-
lag sem var forsenda fyrir láni,
en stórir aðilar sem höfðu hug
á því að koma að verkefninu
hafa nú dregið sig til baka.
Hreinsað til
Lánsloforð stofnunarinnar til
fyrirtækisins hefur vakið þó
nokkra athygli en Sturla Böðv-
arsson sat í stjórn Byggða-
stofnunar á sama tíma og lof-
orðið var gefið. Þá var Sturla
einn af stofnendum Ökugerð-
is Íslands og stjórnarformað-
ur. Sturlu hefur nú verið vik-
ið úr stjórn Byggðastofnunar
rétt eins og öllum úr fyrrver-
andi stjórn. Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra skipaði nýja
stjórn yfir Byggðastofnun í
vikunni en ekki var leitað eft-
ir tilnefningum frá þingflokk-
um stjórnmálaflokkanna eins
og verið hefur. Óánægju gæt-
ir með ákvörðunina á meðal
þingmanna Vinstri-grænna,
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks.
Byggðastofnun hefur lengi
legið undir ámæli fyrir að veita
lán gegn ótryggum veðum.
Sérstök nefnd sem endurskoða
átti lánafyrirkomulag stofnun-
arinnar var sett á laggirnar í tíð
fyrri stjórnar en heimildir DV
herma að ákveðinnar óánægju
hafi gætt innan iðnaðarráðu-
neytisins með niðurstöðu
þeirra nefndar. Nýr stjórnar-
formaður Byggðastofnunar er
Þóroddur Bjarnason prófess-
or á hug- og félagsvísindasviði
Háskólans á Akureyri. Líklegt
má telja að vænta megi ákveð-
inna breytinga á lánastarfsemi
sem og stefnu stofnunarinn-
ar innan tíðar. Ákvörðun iðn-
aðarráðherra um að skipta
stjórninni út fyrir nýja var tek-
in í samræmi við álit ríkisend-
urskoðunar frá árinu 1996 en
þar var lagt til að komið yrði
á beinu stjórnsýslusambandi
milli ráðherra og stofnunar-
innar.
Flokkspólitískur stimpill
Þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs hef-
ur samþykkt yfirlýsingu sem
gagnrýnir þá ákvörðun iðnað-
arráðherra að skipa sjálfur nýja
stjórn Byggðastofnunar. Ög-
mundur Jónasson innanríkis-
ráðherra sagðist vilja að fráfar-
andi stjórnarmenn yrðu beðnir
afsökunar. Þá munu þing-
menn Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins einnig
vera afar óánægðir með þessa
ákvörðun iðnaðarráðherra,
samkvæmt heimildum DV.
Hingað til hafa stjórnarmenn
stofnunarinnar verið skipaðir
pólitískt af stjórnmálaflokkum
sem eiga þingsæti á Alþingi.
Heimildarmaður innan stjórn-
sýslunnar segir að með þessari
ákvörðun sinni reyni iðnaðar-
ráðherra að losa stofnunina
við þann flokkspólitíska stimp-
il sem lengi hafi fylgt henni.
Allir fulltrúarnir sjö í frá-
farandi stjórn Byggðastofn-
unar eru tengdir fjórflokkn-
um sterkum böndum. Þannig
sat Bjarni Jónsson, sonur Jóns
Bjarnasonar sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, sem
varaformaður í stjórn stofn-
unarinnar fyrir hönd Vinstri-
grænna. DV hefur áður fjallað
um málefni Bjarna sem hefur
fengið verkefni, meðal annars
í ráðuneyti föður síns. Hann
var á fullum launum hjá Veiði-
málastofnun á meðan hann
stundaði doktorsnám við
Standford-háskóla í Banda-
ríkjunum. Þá þáði hann rann-
sóknarstyrki í gegnum fyrir-
tæki sitt Fræðaveituna ehf. Var
þetta gagnrýnt á sínum tíma og
í kjölfarið endurgreiddi Bjarni
styrkina.
Fráfarandi fulltrúar voru
skipaðir af stjórnmálaflokk-
unum sem eiga sæti á Alþingi.
Þannig var fráfarandi stjórn-
arformaður stofnunarinnar,
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
skipuð af Samfylkingunni. Þá
sat Herdís Á. Sæmundardóttir
í stjórn fyrir hönd Framsókn-
arflokksins og Sturla Böðv-
arsson fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins. Stjórnarseta Sturlu
var afar umdeild, sérstaklega
eftir að upp komst að fyrirtæki
sem hann stofnaði og stýrði
hafði verið lofað 200 milljóna
króna hámarksláni frá Byggða-
stofnun.
„Stjórnin er náttúrulega
bara búin að afgreiða málið,“
sagði Aðalsteinn Þorsteins-
son, forstjóri Byggðastofnunar,
í samtali við DV í síðustu viku
um lánsloforðið. Hann sagði
nýja stjórn stjórn engu breyta
um lánsloforðið til Ökugerðis
Íslands. „Þetta er bara lánslof-
orð sem er bundið ákveðnum
skilyrðum og ef þau eru upp-
fyllt þá er ekkert annað en að
borga,“ sagði Aðalsteinn sem
tók jafnframt fram að engin
leið væri fyrir nýja stjórn að
taka lánsloforð til baka, enda
væri slíkt léleg stjórnsýsla. Eins
og DV hefur greint frá er eig-
andi Ökugerðis Íslands, Páll
Guðfinnur Harðarson, með
átta gjaldþrot á bakinu en sam-
kvæmt reglum Byggðastofnun-
ar á að skoða sérstaklega við-
skiptasögu fyrirtækja sem fá
lán hjá stofnuninni.
Tregur til breytinga
Samkvæmt upplýsingum frá
iðnaðarráðuneytinu er frestur
Ökugerðis Íslands til að fá lánið
runninn út og því verður ekkert
úr lánafyrirgreiðslunni. Sturla,
sem skipaður var sem fulltrúi
sjálfstæðismanna í fráfarandi
stjórn Byggðastofnunar fyrir
um ári, hefur í samtali við DV
sagt að ekkert óeðlilegt hafi ver-
ið við aðkomu hans að málinu.
Sturla sat einnig á sama tíma í
sérstakri lánanefnd stofnunar-
innar sem falið var að endur-
skoða lánastarfsemi.
Á meðal þess sem rætt
var í nefndinni voru mögu-
legar leiðir til þess að koma í
veg fyrir að stofnunin veiti lán
út á ótrygg veð. Heimildir DV
herma að fulltrúar Byggða-
stofnunar í nefndinni, þeirra á
meðal Sturla, hafi viljað stíga
varlega til jarðar í slíkum breyt-
ingum, og var niðurstaðan sú
að skoða málið áfram. Heim-
ildir blaðsins herma að ákveð-
innar óánægju hafi gætt inn-
an iðnaðarráðuneytisins með
niðurstöðu nefndarinnar. Þá er
talið líklegt að lítill vilji til breyt-
inga á lánafyrirkomulagi stofn-
unarinnar hjá fráfarandi stjórn
hafi ýtt undir ákvörðun um að
skipta henni algjörlega út.
Breytti lögum sér í vil
DV hefur fjallað ítarlega um
málið að undanförnu. Í stofn-
gögnum Ökugerðis Íslands
frá 13. júlí 2010 sem DV hef-
ur undir höndum kemur fram
að Sturla Böðvarsson sé eini
stjórnarmaðurinn og formað-
ur stjórnar. Þá er hann einnig
framkvæmdastjóri og eini pró-
kúruhafi félagsins. Sem sam-
gönguráðherra lagði Sturla
fram frumvarp á þingi þess
efnis að ökunemar yrðu skyld-
aðir til að fá þjálfun í svoköll-
uðu ökugerði og að það yrði
liður í almennu ökunámi. Í
fyrra tóku slík lög gildi.
Áætlað er að nemendur
muni að minnsta kosti þurfa
að greiða 35 þúsund krón-
ur fyrir að nota aðstöðu Öku-
gerðis Íslands. Ökukennara-
félag Íslands sótti um lán hjá
Byggðastofnun fyrir starfsemi
ökugerðis úti á landi árið 2008
en þeirri umsókn var hafnað.
Í niðurlagi í svarbréfi stofnun-
arinnar sagði: „Þá virðist verk-
efnið við fyrstu sýn ekki falla
vel að starfssviði stofnunar-
innar.“
Anna Kristín
Gunnarsdóttir
Stjórnarformaður
Samfylking
Bjarni Jónsson
Varaformaður
Vinstri-grænir
Arndís Soffía
Sigurðardóttir
Stjórnarmaður
Vinstri-grænir
Ásmundur
Sverrir Pálsson
Stjórnarmaður
Samfylking
Drífa
Hjartardóttir
Stjórnarmaður
Sjálfstæðisflokkur
Herdís Á. Sæ-
mundardóttir
Stjórnarmaður
Framsóknar-
flokkur
Fráfarandi stjórn
Lán tiL
SturLu
„úr Sögunni“
n Iðnaðarráðherra úthýsir flokksgæðingum úr Byggðastofnun n Sturla Böðvarsson á meðal
þeirra sem víkja n Ökugerði Íslands fær ekki lán frá Byggðastofnun eins og lofað hafði verið
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Fréttir „Þetta er
bara lánslof-
orð sem er bundið
ákveðnum skilyrðum
og ef þau eru uppfyllt
þá er ekkert annað
en að borga.
Óvissuástand Á þessum stað átti að rísa stærðarinnar ökugerði fyrir ökunema en nú er alls óljóst hvort slíkt gangi
eftir þar sem Byggðastofnun veitir ekki lán til verkefnisins.
Settur af Sturla Böðvarsson er ekki í nýrri
stjórn Byggðastofnunar en þar sat hann þegar
stofnunin lofaði fyrirtæki hans hámarksláni.