Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Qupperneq 14
Ódýr íslenskur
matur
n Lofið fær Íslenski barinn fyrir ódýr-
an íslenskan mat. Þrátt fyrir síhækk-
andi verðlag er enn hægt að fá há-
degismat á veitingastaðnum fyrir eitt
þúsund krónur. Hægt er að velja um
fimm til sex rétti; jafnt steikur sem
fisk. Skammtarnir eru ekki
alltaf mjög stórir en rúsínan
í íslenska pylsuendanum er
að með þessu fylgir súpa
dagsins og brauð eins
og þú getur í þig látið.
Vandfundinn er betri
hádegisverður á lægra
verði.
Hækkaði aftur
n Lastið fá olíufélögin fyrir að draga
lækkun á eldsneytisverði strax til
baka. Lítrinn af olíu og bensíni lækk-
aði um 5,6 prósent á fimmtudag-
inn en hækkaði strax daginn eftir.
Óánægður viðskiptavinur sagðist
kaupa bensín með óbragð í munni.
Nær væri fyrir olíufélögin, sem flest
hver skiluðu hundraða
milljóna hagnaði ár
hvert, að leggja neyt-
endum lið þar til það
versta í efnahagslífinu
væri yfirstaðið. „Svo
breytist verðið hjá þeim
alltaf samtímis,“ sagði hann
óðamála.
14 | Neytendur 29. ágúst 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 232,7 kr. 232,7 kr.
Algengt verð 232,5 kr. 232,5 kr.
Höfuðborgarsv. 232,4 kr. 232,4 kr.
Algengt verð 232,7 kr. 232,7 kr.
Algengt verð 234,5 kr. 232,8 kr.
Melabraut 232,5 kr. 232,5 kr.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Gulls ígildi
Góðar vogir eru gulls ígildi, í það
minnsta fyrir neytendur sem hyggj-
ast selja gullið sitt. Neytendastofa
greinir frá því á heimasíðu sinni að
vogir sem notaðar eru til að kaupa og
selja gull sé löggildingarskyldar. Með
því er tryggt að vogirnar vigti rétt.
„Hjá Neytendastofu er núna í gangi
eftirlit með vogum sem eru notaðar
í viðskiptum við að kaupa og selja
gull. Í úrtakinu reyndist engin vog
vera löggilt. Neytendastofa hvetur
þá sem eiga í slíkum viðskiptum til
að athuga hvort þær vogir sem eru
notaðar séu með gilda löggildingu.“
Stofnunin bendir líka á að hægt sé
að sjá á hreinleikastimpli skartgrips
hversu hátt hlutfall af hreinu gulli er
í vörunni. „Sem dæmi ef hreinleika-
stimpillinn er 585 þá inniheldur var-
an 58,5% af hreinu gulli.“
É
g byrja yfirleitt daginn á skyri
eða léttri ab-mjólk. Út í það
set ég bláber og krækiber sem
ég á í frystinum,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokksins.
Hann tilkynnti opinberlega fyrir viku
að hann væri á leið í megrun. „Jæja,
þá er komið að því. Á morgun byrja
ég fyrir alvöru í megrunarkúr sem
ég hlýt að kalla íslenska kúrinn því
hann felst í því að borða bara íslensk-
an mat,“ skrifaði Sigmundur Davíð á
heimasíðu sína. Hann sagði melting-
arlækninn sinn hafa ráðlagt sér þetta
því íslenskur matur væri sá hollasti í
heiminum. Sigmundur Davíð sagðist
vera 108 kíló.
Uppgötvaði þorskinn
Þegar DV náði tali af Sigmundi Davíð
var hann á ferðalagi um landið. Hann
sagðist ekki hafa búið sér til eiginleg-
an matseðil en passaði sig þó á því að
velja íslenskan mat. „Ég borða tölu-
vert af fiski. Ég hef nýlega uppgötv-
að að þorskurinn er sérstaklega góð-
ur fiskur. Hann er ekki bragðsterkur
og því er hægt að gera svo margt við
hann, til dæmis með fjölbreytilegum
kryddjurtum,“ segir Sigmundur Dav-
íð. Hann segist einnig vera duglegur
að borða lambakjöt; jafnvel slátur, en
hann sleppi þó sykrinum. „Ég reyni
svolítið að passa mig á sykrinum og
hveitinu,“ segir hann en viðurkennir
að hann svindli nú endrum og eins.
„Ég fékk mér til dæmis eina með öllu
um daginn en bað um lítið af öllu,“
segir hann glaðbeittur. Hann reyni
þó að halda slíku í hófi.
Íslenskt á Bessastöðum
Sigmundur Davíð segir að sér hafi
reynst tiltölulega auðvelt að fylgja
þeirri reglu að borða bara íslensk-
an mat. Honum hafi til dæmis verið
boðið til málsverðar á Bessastöðum
vegna komu forseta Litháens. Þar
hafi eingöngu íslenskur matur verið
á boðstólum. „Í hádeginu var reyktur
silungur í forrétt og svo lúða í aðal-
rétt. Um kvöldið var svo líka lax eða
silungur í forrétt og svo lambakjöt í
aðalrétt. Eftirrétturinn var ramm-
íslenskur því þar var á ferð skyrterta,“
segir hann og bætir við að þetta hafi
fallið vel að kúrnum hans.
Hann viðurkennir þó að upp
hafi komið aðstæður sem hafi verið
snúnar. Hann hafi til dæmis verið í
boði í vikunni þar sem á boðstólum
var íslenskt súkkulaðikex, Nóa kropp
og vínber. Þó vínberin væru líklega
hollust valdi hann súkkulaðikexið
þar sem vínberin voru innflutt. Hann
fékk sér þó hóflega af kexinu. „Mér
hefur reyndar tekist að verða mér úti
um íslensk vínber. Móðir mín rækt-
ar þau heima hjá sér og ég fæ ber hjá
henni,“ segir hann.
Fær ábendingar á Facebook
Sigmundur Davíð segir að fólk
hafi tekið þessu átaki hans vel.
Hann hafi fengið fjölmargar
ábendingar á Facebook um ís-
lensk krydd og íslenskar mat-
jurtir sem hann hafi aldrei not-
að eða jafnvel heyrt um áður.
„Það er til dæmis hægt að tína
kúmen og fíflablöð en ég viður-
kenni að ég kann ekki að hafa
þetta eftir,“ segir Sigmundur Dav-
íð en eins og fram kemur að ofan
var hann í bíl þegar DV náði tali af
honum. Hann segist fagna öllum
ábendingum sem hann fái.
Léttist hratt
Íslenski kúrinn virðist ætla að reyn-
ast Sigmundi Davíð vel því
hann hefur þegar misst
nokkur kíló. „Ég
gerði tilraunir með þetta áður en
ég byrjaði formlega. Ég er búinn að
missa fimm og hálft kíló frá því ég
byrjaði að prófa þetta en um eitt og
hálft frá því ég tilkynnti um þetta op-
inberlega,“ segir hann. Þá var Sig-
mundur Davíð 108 kíló svo nú er
hann líklega um 106,5 kíló. „Ég er
líka hressari og orkumeiri en áður,“
segir hann.
Spurður hvort hann hreyfi sig
mikið segir hann svo ekki vera. Til
hafi staðið að fara í klukkutíma
göngutúr á dag en það hafi ekki al-
veg gengið eftir. „Ég hef bara komist
þrisvar en ég ætla að reyna að taka
frá fastan tíma á hverjum degi.“
n Fær sér skyr eða ab-mjólk með berjum á morgnana n Uppgötvaði þorskinn
og borðar slátur n Þurfti að velja kex í stað innfluttra vínberja n Léttist hratt„Þó vínberin væru
líklega hollust
valdi hann súkkulaði kexið
þar sem vínberin voru
innflutt.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Matarræði
Svona grennir
Sigmundur sig
Ávextina vantar segir næringarfræðingur
Það ættu að vera hæg heimatökin að borða hollan og fjölbreyttan mat sem telst vera
íslenskur,“ segir Ólafur Gunnar Sæmundsson, næringarfræðingur og stundakennari
við Háskólann í Reykjavík. Hann telur hugmyndina um að neyta aðeins íslensks fæðis
ansi róttæka en þó ætti að vera tiltölulega auðvelt að nálgast íslenskan mat úr flestum
fæðuflokkum. „Hér er hægt að fá grænmeti og kornvörur sem ræktaðar eru hérlendis
og nánast allt sem maður þarf. Það eina sem yrði kannski vandasamt að nálgast væru
ávextirnir. Það er ekki mikið úrval af þeim hér, þó eitthvað sé nú framleitt,“ segir Ólafur.
Hann bendir þó á að íslensk ber sem vaxi úti í náttúrunni séu stútfull af næringarefnum
en þau sé því miður ekki gott að nálgast allt árið um kring.
Ólafur segir þó að það hljóti öllum að vera ljóst að fæðufjölbreytnin verði mun fátæk-
legri hjá þeim sem sniðganga allan mat sem kemur frá útlöndum. „Við höfum hins vegar
afar gott kjötmeti og fiskmeti. Svo eigum við úrval af margs konar grænmeti, til dæmis
kartöflum, rófum og gulrótum. Við eigum gott kornmeti og ræktum bæði hveiti, bygg og
fleira og ekki má gleyma að úrval mjólkurafurða er mikið. Þannig að ljóst er að ekki mun
þann mann skorta matvæli sem ákveður að neyta eingöngu íslenskra afurða. Spurður
hvernig honum lítist á áætlanir Sigmundar Davíðs, út frá næringarfræðilegu sjónarmiði,
tekur Ólafur skýrt fram að hann sé alls ekki sammála þeim fullyrðingum sem hafðar eru
eftir meltingarlækni Sigmundar, Sigurjóni Vilbergssyni, á vefmiðlinum Pressunni. Þar
kemur meðal annars fram að sniðganga beri brauð og mjólkurvörur.
Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur gagnrýndi ummæli Sigurjóns harðlega
á vefmiðlinum Vísi. Hann sagði þau óábyrg og ættu ekki við næringarfræðileg rök að
styðjast. Ólafur segist taka heilshugar undir orð Steinars. „Ég veit auðvitað ekki hvernig
Sigmundur Davíð gerir þetta en ef hann gætir þess að borða hæfilegt magn fæðu úr
öllum fæðuflokkum þá er þetta í fínu lagi. Hann hvetur Sigmund þó til þess að elta uppi
þá sem rækta ávexti á Íslandi eða brjóta regluna um að borða aðeins íslenskan mat
þegar kemur að ávöxtum.
Tálgar sig Sigmundur borðaði íslenskt
súkkulaðikex frekar en innflutt vínber,
jafnvel þó hann væri í megrunarkúr.